Morgunblaðið - 22.04.1961, Síða 24
Vettvangur
Sjá bls 13.
89. tbl. — Laugardagur 22. apríl 1961
Bílfært norður
í næstu viku?
AKUREYRI, 21. apríl. — í dag
opnuðu snjóýtur frá Akureyri
og Húsavík leiðina á milli bæj
anna. Víða var mjög djúpur
snjór, sem ýturnar ruddust í gegn
8000 tn.
farin til
Bretlands
AKRANESI, 21. aprfl. — Nú er
búið að afskipa rúmlega 7800
lestum af sementi því sem
Sementsverksmiðj an hefur sam-
ið um sölu á til Bretlands, alls
20,000 lestum. Verksmiðjan hef-
ur á að skipa þrautþjálfuðu
starfsliði. Fjárhagur verksmiðj-
unnar er góður og mun láta
nærri að afskriftir á síðastá ári
hafi numið um 16 millj. kr.
— Oddur.
um á þjóðveginum. Mestur var
hann þó við Dalsmynni, en þar
voru skaflarnir 4 m á dýpt. Er
vegurinn nú fær stórum bílum,
en á honum er mikill vatnselg
ur vegna hlákunnar, sem brugðið
hefur til.
í dag hafði dálítið snjóflóð fall
ið á veginn við Litlu-Tjarnir í
Ljósavatnsskarði, en snjóýtur
ruddu veginn á svipstundu aftur.
Eftir helgina er í ráði að ryðja
Öxnadalsheiðina og verði ekki
tafir á því, ætti að verða orðið
bílfært milli Reykjavíkur og Ak
ureyrar um miðja næstu viku.
— St. E. Sig.
Starf prentsmiðju-
stjóra Gutenbergs
laust
1 NÝJUM Lögbirtingi er skýrt
frá því, að laust sé starf prent-
smiðjustjóra Ríkisprentsmiðj-
unnar Gutenberg, og verði það
veitt frá 1. júní næstkomandi að
telia.
Steingrímur Guðmundsson
prentsmiðjustjóri, verður sjö-
tugur í næsta mánuði og verður
því fyrir aldurssakir að hætta
störfum. Hann hefur verið
prentsmiðjustjóri í Gutenberg
frá því að ríkið keypti prent-
smiðjuna og hóf rekstur hennar
1. janúar. 1930.
Umsóknarfrestur um starfið
er útrunninn 13. maí n.k. og
fjallar dóms og kirkjumálaráðu
neytið um umsóknirnar.
Feröir í lofti og á láði
til að bjarga fífi drengs
í G Æ R og fyrradag fór
Björn Pálsson, flugmaður,
all-óvenjulegar ferðir vestur
á Barðaströnd. Sex ára gam-
all drengur, Karl Rútsson frá
Valshamri í Geiradal, veikt-
ist af bráðri botnlangabólgu
í fyrradag. Þar sem Reyk-
hólahérað hefur verið lækn-
islaust frá nýári og næsti
læknir er ekki nær en í Búð
ardal, var Björn Pálsson beð
inn um að sækja drenginn og
fljúga með hann suður. Gat
Björn ekki lent í fyrri ferð-
inni, sem hann fór í fyrra-
dag, en í síðari ferðinni í
gærmorgun, tókst honum að
mm
í víðavangshlaupinu í Hafn
arfirói var geysileg þá'tttaka,
t.d. voru yfir 60 drengir í
yngsta flokknum og voru
margir þeirra orðnir allfram-
lágir þegar að marki kom. Tók
þá sig til einn áhorfenda, Jón
Mathiesen kaupmaður, sem er
gamall íþróttagarpur, og hjálp
aði einum þeim yngsta í mark.
Vakti það mikinn fögnuð
meðal hinna fjölmennu áhorf
enda, enda hliupu kempurnar
allgreitt endastprettinn.
lenda og ná í sjúklinginn. Þá
var héraðslæknirinn í Búð-
Þórhallur Ólafsson, læknir.
ardal, Þórhallur Ólafsson,
kominn fyrir nokkrum
klukkutímum á Valshamar,
eftir sex tíma ferðalag, gang
andi og á hestum mestan
hluta leiðarinnar, vegna ó-
færðar.
Réð naumast við flugvélina
Það var um hádegisbil á mið-
vikudag að hringt var til
Bjöms Pálssonar frá Króksfjarð
arnesi, og hann beðinn að vera
viðbúinn að sækja drenginn. —
Björn kvaðst mundi reyna það,
þótt veður væri vont, 8—10
vindstig, og flugbrautin á
Króksfjarðarnesi mjög stutt. —
Björn beið síðan eftir annarri
kvöð frá Króksfjarðarnesi, með-
an athugað var þar um líðan
drengsins og haft samband við
héraðslækninn í Búðardal. —
Klukkan 3 var Bjöm svo beð-
inn að leggja af stað, þar sem
líðan drengsins væri engu betri
og ófært - milli Búðardals og
Króksfjarðarness.
Björn hóf flugvélina þegar til
flugs, en er hann nálgaðist
Króksfjarðarnes, var mjög
dimmt yfir landinu, rigning og
þoka, bálhvasst og svo misvinda
samt, að Björn réð naumast við
Framh. á bls. 23.
Stúdentafélagsfund ur:
Spíritismiogsálar-
rannsóknir
GÍFURLEGUR fjöldi barna
var viðstaddur valdaafsal Vet
urs konungs i hendur sumar-
drottningarinnar, í Lækjar-
götu á barnadaginn. Forráða-
menn Sumargjafar giska á að
þar hafi verið eigi færri en
8—10 þús. manns. Allar bama
skemmtanirnar voru fjölsótt-
ar. Um morguninn fór skrúð-
ganga skáta um götumar. Var
talið að þetta myndi hafa ver-
ið ein allra f jölmennasta skáta
skrúðganga sem sézt hefði á
götum háfuðborgarinnar. Er
gangan fór eftir Hringbraut-
inni, var hún samfelld að
heita má frá Njarðargötunni,
og á móts við Landsspítala-
bygginguna. Strákar, sem óku
á skellinöðrum og sýndu
-kúnstir var einn liður í úti-
skemmtuninni í Lækjargötu.
Prestar leystir írá
störfum
f LöGBIRTINGI hefur verið til-
kynnt að séra Bergur Björnsson
prófastur að Stafholti í Mýra-
prófastsdæmi, muni láta af em-
bætti hinn 1. október í haust
Séra Bergur á að baki sér um
30 ára prestskap og prófastur hef
ur hann verið um allmörg ár.
Þá hefur Rögnvaldur Finnbogá
son fengið lausn frá störfum, en
hann var prestur að Mosfelli í
Grímsnesi. Hafði hann aldrei set-
ið þar, því þegar í upphafi
embættisferils síns þar afsalaði
hann sér jörðinni og hinu gamla
prestssetri þar.
Prof. R. Beck
nmr
tilky
giftingu
sma
A morgun, sunnudag, gengst
Stúdentafélag Reykjavíkur fyrir
almennum umræðufundi um göm
ul deiluefni, þ.e. spíritisma og
sálarrannsóknir. Fundurinn verð
ur haldinn í Sjálfstæðishúsinu og
hefst kl. tvö.
Frummælendur verða tveir,
séra Jón Auðuns, dómprófastur,
og Páll Kolka, fyrrv. héraðslækn
ir. Aðgangur er öllum heimill og
ókeypis þeim, sem sýnt geta
stúdentaskírteini (annað hvort
Stúdentafélags Reylijavíkur eða
Stúdentafél. Háskóla íslands
Aðrir greiða tíu krómur við inn
ganginn.
Þessi umræðuefni hafa löngum
valdið harðvítugum deilum hér á
landi, svo að búazt má við fjöl-
menni og fjörugum umræðum.
BLAÐ í Grand Forks í N-Dakóta,
skýrir frá því, að tilkynnt hafi
verið að fröken Margrét J. Brand'
son sem er menntaskólakennari
í San Francisko Og prof. Richard
Beck konsúll íslands í N-Dakóta;
ætli að ganga í hjónaband í júnl
ípánuði í sumar.
Fröken Margrét J. Brandson er
áhugasöm um norræna menn-
ingu og er í félögum sem að þeim
vinna ásamt íslandsfélagsskap I
heimaborg sinni
Varðarkaffi t Valhöll
í dag kl. 3-5 síðd