Morgunblaðið - 26.04.1961, Qupperneq 2
2
MORGVNBLAÐ1Ð
MiðviKudagur 26. apríl 1961'
Vill úrskurð
eignarrétt
Kaupmannahöfn, 25. apríL
Einkaskeyti frá Páli
JÓnssynL
ALF ROSS prófessor ritar í
Politiken í dag og leggur þar
til að handritin verði ekki
afhent fyrr en Haag-dóm-
stóllinn hefur kveðið upp
úrskurð um eignarréttinn. —
Ross, sem þekkir vel óskir
Islendinga, segir þá oft hafa
haldið fram lagalegum og
siðferðilegum rétti sínum til
handritanna, en að Danir
hafi hinsvegar talið eigna-
rétt sinn skilyrðislausan. —
Þannig gætir gagnstæðu í ís-
lenzkum og dönskum skiln-
ingi á eignarrétti á handrit-
unum. Meðan hún ríkir, get-
ur ekkert fyrirkomulag kom-
ið að tilætluðum notum og
dregið úr spennunnL
Ástæða er til að óttast, segir
Ross, að það sem við lítum á sem
Misheppnað
geimskot
Canaveralhöfði, Florida,
25. apríl (NTB-Reuter)
BANDARÍKJAMENN skutu í
dag á loft Atlaseldflaug frá eld-
flaugastöðinni við Canaveral-
höfða. Ajtti eldflaugin að flytja
gervihnött á braut umhverfis
jörðu og fylgir það fréttinni að
þetta hafi átt að vera nokkurs
konar lokaæfing áður en manni
væri skotið út í geiminn frá
Bandaríkjunum. En þrjátíu sek-
úndum eftir að eldflauginni var
skotið upp varð sprenging í
henni og brann hún til ösku.
Gervihnötturinn náðist þó ó-
skemmdur til jarðar.
1 gervihnettinum, sem er sams
konar og notaður verður þegar
manni verður skotið á loft," var
komið fyrir gervimanni, sem bú-
inn var margskonar mælitækjum
til að skrá þau áhrif, er maður
yrði fyrir á leiðinni um geiminn.
göfuglyndi, líti fslendingar, að
vísu ekki opinberlega, á þannig
að við séum nú loksins að gera
skyldu okkar. íslendingar og
Danir ættu því í bróðerni, að
leggja málio fyrir Haag dómstól-
inn. Falli dómur gegn Danmörku,
verður farið eftir honum og öll
andstaða gegn afhendingu fellur
niður. En ef Haag dómstóllinn
viðurkennir skoðxm Dana, skap-
ast skýr og óumdeilanlegur
grundvöllur fyrir að afhenda
handritin sem gjöf.
Berlingske Aftenavis gerir
grein prófessorsins að umræðu-
efni í dag. Segir blaðið að af-
hending handritanna sé því að-
eins á réttum rökum reist að
óskum íslendinga sé að fullu
fullnægt. En aðalrökin verða að
engu ef íslendingar telja þetta
ekki fulla lausn á málinu og álíta
að Danir hafi komið smásmugu
lega fram að afhenda ekki öll
handritin. Þá segir blaðið enn-
fremur að danska þinginu beri að
finna þá lausn er sýni íbúum
beggja landanna að hve miklu
leyti handritin eru gjöf Dana til
fslendinga, eða hvort íslendingar
eru hér viljandi að láta þröngva
sér til að láta réttmætar eignir
sínar verða áfram í Danmörku.
70 rauðmagar
á 350 kr.
Akranesi, 25. apríl
ALLIR Akranesbátar eru á sjó
í dag. í gær fengu þeir alls 160
lestir. Þessir tveir voru afla-
hæstir: Sigurvon með 15,5 lestir
og Höfrungurl. með 14 lestir.
Hæsti trillubáturinn var Hafþór,
sem fiskaði 2200 kg. — Tveir
piltar, 16 ára gamlir, eru ný-
komnir úr hrognkelsanetum.
Báturinn þeirra heitir Böðvar,
2Vz tonn. Þeir eru með tíu þrjá-
tíufaðma löng net og fengu 225
hrognkelsi eftir nóttina. Þeir
seldu 70 rauðmaga á 350 kr., 70
lítra af hrögnum á 56ð kr. Einn-
ig hirtu þeir 35 grisleppur, sem
þeir ætla síðan að selja signa
eða saltaða á 140 krónur. Alls
gerir þetta 1050 kr. — Oddur.
L Æ G Ð IN fyrir suðvestan
landið hreyfist lítið úr stað,
enda hefur veðurlag ekkert
breytzt að ráði síðan fyrir
helgi. Segja má að lægðin
sveifli norður og norðaustur
yfir landið hlýju haflofti af
svæðinu fyrir vestan Bret-
landseyjar og Norðursjó. Þeg
ar þetta raka loft kemur yf-
ir svalan pólstrauminn fyrir
austan land og norðan, þétt-
ist vatnsgufan í því í þoku,
sem síðan berst með kuld-
anum inn að ströndinni og
fyllir allar víkur og voga.
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi:
SV-land, Faxaflói Og miðin:
SA kaldi, skúrir.
Breiðafjörður og miðin:
Austan kaldi, skýjað með
köflum.
Vestfirðir og miðin. NA
stinningskaldi, þokusúld norð
antil.
Norðurland til Austfjarða og
miðin: Austan gola eða kaldi,
þoka á miðunum og annesj-
um, en sums staðar bjart í
innsveitum.
SA-land og miðin: Austan
og SA kaldi, allhvass eftir há-
degi á morgun, skúrir.
Uppfylling-
in rann
i sjóinn
AKUREYRI, 4. apríl. —
Fyrir nokkru tóku hafnar-
verðir á Akureyri eftir því
að nokkrar lægðir voru tekn-
ar að myndast í hafnarbakk-
ann vestan hafnardokkarinn-
ar, en hann tengir aðalbryggj-
urnar á Torfunefi saman. Við
athugun kom í ljós, að sand-
ur, sem er aðaluppfylling á
hafnarbakka þessum, hafði
runnið út um timburþil, og
fram í dokkina. Er verka-
menn hófu þama viðgerð um
sl. helgi, kom í Ijós að stórir
hellar höfðu myndast þama
undir slitlagi götunnar, allt
að tveggja metra djúpir, og á
nokkurra metra kafla með-
fram dokkarþilinu. Viðgerð
er nú lokið. Álitið er, að vatns
rennsli frá brotnu holræsi
hafi orsakað skemmdir.
— St. E. Sig.
Sæmundur Símon-
arsonform. F.I.S.
AÉALFUNDUR Fél. ísl. síma-
manna, var nýlega haldinn. 1
framkvæmdastjóm voru kjömir
Sæmundur Símonarson, formað-
ur; Agnar Stefánsson, varafor-
maður; Vilhjálmur Vilhjálmsson,
ritari og Guðlaugur Guðjónsson,
féhirðir.
Svohljóðandi tillaga var sam-
þykkt á fundinum: Aðalfundir
Fél. ísl símamanna haldinn 19/4
1961 styður einhuga kröfur þær,
sem stjórn B.S.R.B. hefur sent
til ríkisstjórnarinnar og skorar
á ríkisstjórnina að verða við
þeim.
í félaginu eru nú milli fimm
og sex hundruð manns. Félagið
rekur lánasjóð, sem veitir félags-
mönnum nokkum stuðning við
húsbyggingar og aðrar fram-
kvæmdir, ennfremur rekur fé-
lagið styrktar- menningar og
kynningarsjóði, sem margir fé-
lagsmenn hafa notið góðs af.
(Frá F.Í.S.)
Samvinna á sviði
menningarmála
Mbl. barst í gær svohljóð-
andi fréttatilkynning frá
utanríkisráðuneytinu:
„ÞRIÐJUDAGINN 25. apríl laule-
í Reykjavík samningaviðræðun*
milli íslands og Sovétríkjanna
um samvinnu á sviði menningar-
mála, vxsinda og tækni, og fóru
viðraeður þessar fram með vin-
semd og skilningi af beggja
hálfu. Lauk þeim með undirrit-
un samnings milli íslands og
Sovétrík j anna um samstarf 1
þessu skyni.
Samkvæmt ákvæðum samn-
ings þessa ber báðum samnings-
aðilum í hvívetna að stuðla a3
aukinni samvinnu á sviði menn-
ingarmála, vísinda og tækni, með
því að stuðla að hverskona*
skiptum á sviði vísinda, tækni,
æðri mennta, fræðslumála, leik-
listar, kvikmyndalistar, bók-
mennta, myndlistar, tónlistar,
íþrótta og ferðamála, er efla
mega vinsamleg samskipti milll
þjóða og landa beggja samnings-
aðila.
Tekið er fram af beggja hálfu,
að menningarsamskipti íslanda
og Sovétríkjanna hafi þróazk
með hagkvæmum hætti á undan-
förnum árum, og vænta þeir
þess að með samningsgerð þess-
ari gæti samstarf landanna ál
þessu sviði orðið bæði víðtækara
og árangursríkara.
Samningiim undirrituðu Guð-
mundur í. Guðmundsson utan-
ríkisráðherra af hálfu íslands og
A. M. Alexandrov ambassador aJ
hálfu Sovétríkjanna.“
„Týrw i Kópavogi
TÝR, FTJS í Kópavogl, heldu*
síðasta fund á stjórnmálanám-
skeiðinu í kvöld kl. 8,30 að Mel-
gerði 1.
Á þessum fundi mun Helgl
Tryggvason kennari flytja er-
indi um skólamál: „Gamli skól-
inn og nýir tímar". Umræður
verða að erindinu loknu.
- Alsír
Framhald af bls. 1
Michel Debré, sagði í franska
þinginu í dag að ekki mætti
draga það í efa að uppréisnar-
menn stefndu enn að því að
hertaka París. Sagði hann að
nauðsynlegt yrði að beita
franska hemum í Alsír, sem
ætlað væri að berjast gegn
Serkjum, gegn uppreisnarhem-
um, ef foringjar Uppreisnarinn-
ar sæu sig ekki um hönd fljót-
lega.
Debré sagði að skipaðir hafi
verið nýir yfirmenn hersins í
stað þeirra sem standa fyrir upp
reisninni, og mætti búast við að-
gerðum hersins fljótlega. Benti
ráðheirann þingmönnum á að
þeir sem að uppreisninni standa,
hafa aðeins um tvo kosti að
velja eins og komið er. Annað
hvort að leggja til orustu við
her stjómarinnar eða gefast
upp. Ef þeir velja fyrri kostinn,
stofna þeir til borgarastyrjald-
ar, sagði Debré.
ÁSKORANIR
Messmer, hermálaráðherra
Frakka, skoraði í útvarps-
ávarpi á franska hermenn í
Alsír að óhlýðnast fyrirskipun-
um uppreisnarforingjanna og á
franska flugmenn að snúa heim
til Frakklands við fyrsta tæki-
færi. Þá gaf Fourquet hershöfð-
ingi, sem í gær var skipaður
yfirmaður franska flughersins í
Alsír, mönnum sínum fyrirskip-
un um það í dag að „gera ekki
við vélar þeirra (uppreisnar-
manna), ekki afhenda þeim
eldsneyti, ekki senda orðsending
ar þeirra, neita að flytja her-
menn þeirra“.
FLÓTTAMENN
Franska fréttastofan AFP
skýrði frá því í dag að 18 flutn-
ingaflugvélar hafi lent nálægt
Marseilles eftir að hafa flúið
frá Alsír. En auk þess hafi
tvær minni flugvélar komið frá
Alsír til Gíbraltar í dag og með
þeim fimm flugmenn. Aðrir
flugmenn komu til Marseilles
með flutningaskipi, sem tókst að
sigla úr höfn í Algeirsborg í
gær. Segja flugmennirnir að
fallhlífaliði uppreisnarmanna
hafi ekki tekizt að gera árás á
París vegna þess að flugmenn
hafi neitað að flytja þá.
Flóttamenn frá Alsír eru yfir-
leitt sammála um að fylgi upp-
reisnarmanna fari aftur minnk-
andi og að miklar efasemdir
ríki víða um réttmæti upp-
reisnarinnar.
Eins og skýrt hefur verið frá
setti franska stjórnin viðskipta-
og siglingabann á Alsír í gær.
Telja sérfræðingar að uppreisn-
armenn geti í hæsta lagi haldið
áfram baráttu sinni í tvær vik-
ur, en verði að þeim loknum
vistalausir.
SOUSTELLE HANDTEKINN
Tilkynnt var í Frakklandi í
dag að lögreglan hefði fyrirskip-
að handtöku Jacques Soustelle,
leiðtoga hreyfingar í Frakklandi,
sem nefnist SrAlsir er franskt“.
Soustelle var mjög náinn sam-
starfsmaður de Gaulle á tímum
Alsír byltingarinnar árið 1958,
en afleiðing þeirrar byltingar
var valdataka de Gaulle.
Soustelle sneri baki við forset-
anum eftir Alsírbyltinguna í jan-
úar 1960.
Sex hershöfðingjar og fjórir
Ofurstar, sem gengið hafa í líð
með uppreisnarmönnum í Alsír,
voru opinberlega sviptir nafn-
bótum sínum í dag.
MERS EL KEBIR
Sveitir fallhlífahermanna, sem
fylgja uppreisnarmönnum, —
reyndu í dag að taka flotastöð-
ina Mers el Kebir, sem er ná-
lægt borginni Oran. En herinn í
flotastöðinni fylgir frönsku
stjóminni og tókst honum að
hrinda árás uppreisnarmanna.
Franskt herskip lá í höfninnl
í Mers el Kebir og hóf það skot-
hríð á uppreisnarmenn er þeir
nálguðust flotastöðina. Árásin
stóð aðeins skamma stund og
hörfuðu uppreisnarmenn síðan
undan.
AÐEINS FIMMTI HLUTI
HERJSINS
Terrenoire upplýsingamálaráð-
herra hefur skýrt frá því að upp-
reisnarmenn hafi handtekið
Henry de Poilly hershöfðingja,
sem er yfirmaður franska hers-
ins í Vestur-Alsír. De Poilly,
sem hefur aðsetur í borginni
Tlemcen, fór til Algeirsborgar til
viðræðna og hafði " Maurica
Challe hershöfðingi, einn af leið-
togum uppreisnarmanna, tryggt
honum brottfararleyfi að þeim
loknum. Engu að síður fyrirskip.
aði Challe handtökuna.
Terrenoire lýsti þvi ennfremur
yfir að aðeins fimmti hluti
franska hersins í Alsír fylgdi
uppreisnarmönnum. Allir bæjar-
og sveitastjórar utan í Algeirs-
borg, Oran og Constantine hefði
einnig sent de Gaulle forseta
trúnaðaryfirlýsingar.
Síðustu fréttir \
París, 25. apríl (Reuter)
StoUSTU fréttir herma að
svo virðist sem uppreisnin í
Alsír sé að renna út í sandinn
og er óttazt að leiðtogarnir
kunni að grípa til örþrifaráða
á síðustu stundu.
Gripið hefur verið tll víð-
tækra varúðarráðstafana í
París, þriðju nóttina í röð.
í óstaðfestri frétt segir að
hershöfðingjamir fjórir, sem
standa fyrir uppreisninni, hafi
farið frá Algeirsborg.