Morgunblaðið - 26.04.1961, Blaðsíða 14
14
MORCVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 26. apríl 1961
Söluturnar - verzlanir
ísformin, sem seld voru úr söluvögnunum
í Lækjargötu á sumardaginn fyrsta, voru
frá okkur. Þau seljast meira en nokkur
annar ís. — Við seljum verzlunum og sölu-
turnum. — Talið við okkur sem fyrst.
Við Miklatorg
Sími 17277
Barnavinafélagið Sumargjof
kvikmyndasýning
verður í Austurbæjarbíói kl. 3 í dag fyrir bðrn er
seldu bækur, blöð og merki á sumardaginn fyrsta,
Sölunúmer gildir sem aðgöngumiði.
Múrverk
Tilboð óskast í útipússningu á parhúsi. — Upplýs-
ingar í dag í síma 12082 kl. 3—5 og 24554 kl. 6—8.
Við miðbœinn
Fast við miðbæinn er til sölu:
Verzlunarhæð með tilheyrandi geymslum í kjallara
og 2 skrifstofuhæðir.
Hér er um nýlegt og gott húsnæði að ræða.
Grunnflötur hússins er rúmlega 130 ferm.
Árni Stefánsson, hdl. Gunnar J. Möller, hrl.
Málflutningur. Fasteignasala Suðurgötu 4. Sími 13294
Suðurgötu 4. Sími 14314 Viðtalstími kl. 17 til 19
Ferðaáætlun Reykjavik-
Fljóthlíð 1961
1. maí — 15. júní
Frá Reykjavík:
Sunnudaga kl. 21,30
Þriðjudaga kl. 18.00.
Fimmtudaga kl. 18.00.
Laugardaga kl. 14.00.
16. júní — 30. september.
Frá Reykjavík:
Sunnudaga kl. 21,30
Þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtud. föstud. kl. 18.00
Laugardaga kl. 14.00.
I. okt. — 31. okt.
Frá Reykjavík:
Sunnudaga kl. 21.30.
Þriðjudaga kl. 18.00.
Fimmtudaga kl. 18.00
Laugardaga kl. 14.00.
II. nóv. — 31. des.
Frá Reykjavík:
Laugardaga ki. 14.00.
Fjórar ferðir í viku.
Frá Múlakoti:
Sunnudaga kl. 17.00.
Þriðjudaga kl. 9.00.
Fimmtudaga kl. 9.00.
Laugardaga kl. 9,00.
Sex ferðir í viku.
Frá Múlakoti:
Sunnudaga kl. 17.00.
Þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga, föstudaga
og laugardaga kl. 9.00.
Fjórar ferðir í viku.
Frá Múlakoti
Sunnudaga kl. 17.00.
Þriðjudaga, fimmtudaga
og laugardaga kl. 9.00.
Ein ferð í viku ef færð leyfir
Frá Múlakoti:
Sunnudaga kl. 17.00
Þrennir tónleikar
UM þessar mundir er mikið um
tónleikahald í höfuðstaðnum,
jafnvel stundum þrennir tón-
leikar á dag. Slíkt er óheppi-
legt, og hvergi nærri gott fyrir
þá sem njóta vilja góðrar tón-
liestar, en geta þó varla verið
nema á einum stað á kvöldi.
Gamansamur náungi stakk upp
á því, að stofnað yrði enn eitt
embættið: „Tónleikastjóri Rvík-
ur og nágrennis“ og ætti hann
að koma „skikki“ á niðurröð-
un konserta, svo að ekki yrðu
árekstrar, eða allt lenti í einni
bendu.
Sá sem þetta ritar er nýkom-
inn frá kóngsins Kaupinhafn, og
virtist þar miklu minna um að
vera í músiklífinu en hér, en
sá stóri munur er þó á, að
hljómsveitimar starfa þar af
miklum krafti á meðan okkar
unga hljómsveit á svo mjög í
vök að verjast að talið er tví-
sýnt um hana. Ekki trúi ég þó
öðru en að hún lifi, enda væri
annað óhugsandi í sjálfstæðu
ríki, sem á tilveru sína einna
mest að þakka bókmenntum
og listum frá upphafi vega.
Handritin heim! Sinfóníu-
hljómsveit Islands lifi!
Mikill organ-
snillingur
Mikill organsnillingur
MARTIN Gúnther Förstemann,
hinn frægi blindi organleikari
frá Hamborg, er hér staddur
öðru sinni og hefur haldið tón-
leika í Dómkirkjunni fyrir
styrktarfélagá Tónlistarfélagsins.
Verkefnin voru eftir Buxte-
hude, Lúbeck, Bach og Reger.
Organleikur Förstemanns er
framúrskarandi, heiður og klár;
og registur-list hans litrík og
vel yfirveguð. Listamaðurinn
sameinar á skemmtilegan hátt
barockstílinn rómantískum til-
finningaheimi. Meira veldis og
breiddar hefði undirritaður að
vísu óskað í fyrsta hluta hinnar
miklu C-dúr Tokkötu Bach, en
í því verki næstum yfirstígur
Bach sjálfan sig. Adagíóið var
guðdómlega vel leikið.
Frú Förstemann, sem einnig
er ágætur organleikari,og að-
stoðar mann sinn, er honum
ómetanleg stoð. Hún er hinn
góði engill í lífi þessa mikla
listamanns og registrerar í öll-
um verkunum, og leikur meira
að segja með á stöku stað. Það
er göfgandi að hlusta á organ-
leik Förstemanns. Þessir tón-
leikar voru hinir prýðilegustu
og eftirminnilegir öllum þeim
sem á hlýddu.
Söngur
Fóstbræðra
KARLAKÓRSSÖNGURIN hefur
verið á háu stigi um langan
tíma á íslandi. Karlakórar okk-
ar hafa ekki einasta haldið
fjölda söngskemmtana hér
heima og haldið uppi músiklífi
um langt skeið, heldur lagt í
víking með miklum og ágætum
árangri. Því miður gat undir-
ritaður ekki sótt fyrstu söng-
skemmtun „Fóstbræðra" nú, er
þeir eiga 45 ára afmæli. En síð-
ustu tónleikana heyrði ég, og
voru þeir hinir glæsilegustu í
alla staði. Hinir þrír stjórn-
endur kórsins komu allir fram
á sviðið og stjórnuðu. Jón Hall-
dórsson er þeirra elztur og
reyndastur, enda afburðagóður
kórstjóri. Vandaðri kórsöng
en undir hans stjórn getur
ekki. Kom það enn glöggt í
ljós að þessu sinni. Jón á mikl-
ar þakkir skyldar fyrir stjóm
sína á kórnum í fyrstu. Hann
mótaði kórinn og gerði hann að
hinu fínasta hljóðfæri. Þeir sem
á eftir komu, Jón Þórarinsson
tónskáld og Ragnar Björnsson,
héldu vel í horfinu, en Jón
var aðeins stuttan tíma stjóm-
andi kórsins. Ragnar hefur
mikla hæfileika sem söngstjóri
og hefur honum farið fram með
hverju ári og náð miklum ár-
angri. En „hljóðfærið" er líka
gott. Úrvals raddmenn og
músikalskir menn hafa jafnan
skipað kórinn, og svo er enn.
Einsöngvarar voru að þessu
sinni Friðrik Eyfjörð, Erlingur
Vigfússon, Gunnar Kristinsson í
fyrri hlutanum, en Jón Sigur-
björnsson, Eygló Victorsdóttir,
Vilhjálmur Pálmason, Gimnar
Kristinsson og Erlingur Vig-
fússon í síðari hlutanum, sem
helgaður var þáttum úr óperum.
Allir stóðu þessir einsöngvarar
sig vel, en sérstaklega ber þó
að nefna Jón Sigurbjömsson,
sem söng af miklum myndug-
leik og innri krafti. Hin „Fimm
alþýðulög" eftir Árna Thor-
steinsson sem Jón Þórarinsson
hefur útsett, vil ég sérstaklega
nefna, vegna þess, hversu vel
Jóni hefur tekizt að klæða þessi
ágætu lög í fagran búning.
Handbragðið er slíkt, að athygli
vekur. Þá var þarna um nýjung
að ræða, sem gleðilegt var að
kynnast, en það voru lög Jóns
Nordals við gömul miðalda-
stef. Jón ér hér rammíslenzkur,
og hefur tekizt að skapa sinix
eigin stíl, sem í senn er pólyfón
og tilbreytingaríkur og á köfl-
um mjög fyndinn.
Ég vil að lokum þakka „Fóst-
bræðrum" þeirra mikla og
merka starf í þágu íslenzkrar
sönglistar um leið og ég óska
þeim allra heilla og mikillar
frægðar í framtíðinni.
Parel Sere-
brfakov
PAVEL Serebrjakov, píanóleik-
ari frá Leningrad hélt tón-
leika í Þjóðleikhúsinu í fyrra-
kvöld á vegum „MÍR“.
Það er skemmst frá að segja,
að hér er um mjög stórbrotinn
listamann að ræða, sem hefur
hljóðfærið svo í hendi sér að
hann ræður yfir hverri þess
hugsanlegri hræring. Og hann
er einn af „gömlu“ gerðinni meS
sál í kroppnum. Mundi ekki
Anton Rubinstein hafa leikið
líkt? Hann minnir á d’Albert Og
Friedman. Serebrjakov byrjaði
með „Carneval" Schumanns. —
Sjaldan hef ég séð þessar dásam
legu myndir Carnevalsins eins
ljóslifandi fyrir mér. Og hversu
blítt tók listamaðurinn ekki á
„Vögguljóði“ japanans Kijosa.
Og svo fítonskrafturinn og
djöfulskapurinn í „Negradansi“
Fernandez. Ja, þeir eru blóð-
heitir þarna í Brazilíu! Mér
fannst ég raunar vera kominn
til Cubu og vera staddur í miðri
innrásinni, og var farinn að
óttast um líf mitt, þvílikur
gauragangur!
Sónata nr. 2 eftir Lobkowskij
er fagurt verk sem gaman var
að kynnast. Sérstaka athygli
mína vakti „Dans brúðanna“,
7 píanólög eftir Sjostakovitsj.
Það er gott til þess að vita, að
slíkur meistari skuli hér tala
hinu einfalda músikmáli í stað
allrar þeirrar forskrúfunar sem
mest tíðkast nú, og fæstir hafa
gleði eða uppbyggingu af. Og
píanistinn handlék þessi sak-
lausu blóm með hinni mestu
Frh. á bls. 23
Afgreiðsla í Reykjavík hjá Bifreiðastöð íslands.
Simi 18911. — Geymið auglýsinguna.
ÓSKAR SIGURJÓNSSON, Hvolsvelli.
GISLAVED
HJÓLBARÐAR
670 x 15 hv'itir
kr 1.229,00
710 x 15 hvitir
kr 1.239,00
BÍLABÚfl SlS