Morgunblaðið - 27.04.1961, Blaðsíða 1
24 slður
wnbMbib
18. árgangur
93. tbl. — Fimmtudagur 27. apríl 1961
Frentsmiðja Morgunblaðsins
reisnm
um
Sigurinn eykur enn hr'óour
de Gaulle
París, 26. apríl — (Reuter-NTB)
J^T í morgun varð það ljóst, að uppreisnin í Alsír hafði
algerlega lognazt út af. Hafði hún þá haldið Frökkum og
Alsírbúum í stöðugum ótta í f jóra sólarhringa, því að fram
til hins síðasta var óttazt, að uppreisnarmenn gripu til þess
örþrifaráðs að gera árás á París.
y^ Samkvæmt upplýsingum talsmanna stjórnarinnar í
Algeirsborg hafa tveir menn fallið og tíu særzt í upp-
reisninni.
N 1 morgun höfðu foringjar upp
reisnarmanna boðaö til útifund-
ar frammi fyrir stjórnarráðs-
byggingunni í Algeirsborg. —
Mikill mannfjöldi safnaðist þar
saman, en þegar Challe hers-
höfðingi reyndi að ávarpa mann
fjöldann heyrðist ekki til hans,
|>ví að skorið hafði verið á
leiðslur hátalarakerfisins. — Um
líkt leyti stöðvuðust sendingar
útvarpsins, sem uppreisnarmenn
faöfðu þá enn í sínum höndum.
Er útvarpið hófst að nýju, voru
Sesnar tilkynningar frá hermönn
um stjórnarinnar. Var fólk beð-
ið að hverfa til heimkynna
6inna og bíða þar átekta, með-
an hreinsað vaeri til í ýmsum
embættum.
Skömmu síðar sást hvar
Challe hershöfðingi læddist ^út
úr stjórnarráðsbyggingunni og
reyndi að komast í bifreið sína.
Var hann þá þegar handtekinn
og fluttur með herflutningavél
til Parísar. Þar er talið að hans
Verkfailið
í Grimsby
orðið
algert
Einkaskeyti til Mbl. frá Lond
on. 26. apríl —
f kvöld er væntanlegvr í
höfn í Grimsby síðasti og
stærsti hinna 170 Grhnsby
togara og er þá verkfallið al
gert orðið. Það hefur nú stað
ið í þrjár vikur — hófst 5.
apríl sl. Yfirmenn á togurum
í Hull studdu verkfallið fyrst,
en hættu því eftir fimm daga.
Togareigendur hafa nú geng
ið milli stýrimanna, véla-
manna og skipstjóra og beðið
þá að snúa aftur til vinnu,
svo að samningaviðræður geti
hafizt á ný. Þeir segjast ekk
ert geta gert til þess að koma,
í veg fyrir, að islenzkir togar
ar landi afla sínum í Grimsby
— þvi sé verkfallið þýðingar
faust og geti einungis orðið
togaramönnum í óhag.
íslenzkir togarar halda á-
fram að landa afla sínum i
Grimsby og Hull og selja við
góðu verði. Þeir hafa nú fyllt
löndunarkvótann í bili og
verða að halda heim með eitt
hvað af aflanum.
bíði annað hvort dafiðadómur
eða lífstíðar fangelsi.
Hinir þrír aðalforsprakkar
uppreisnarinnar, þeir Raoul Sal-
an, Edmond Jouhaud og André
Zeller komust undan og er
þeirra ákaft leitað.
Stjórnir hinna ýmsu þjóða
hafa hyllt de Gaulle vegna
lykta þessa málsj sem þykir
mjög hafa aukið hróður hans.
Parísarbúar hafa fagnað sigri
og vori í dag og gert sér daga-
mun í kaffihúsum og á götum
úti.
Þótt allt sé með eðlilegum
hætti í Algeirsborg, er þar enn
útgöngubann eftir kl. 21 í kvöld.
Hafa menn fengið tilmæli um
að afhenda vopn sín í dag, en
á morgun verður gerð hjá þeim
húsleit.
• Nauðsyn að vera vel á verði.
De Gaulle hélt tveggja klst.
stjórnarfund í dag og tilkynnti
ráðherrum, að hann hyggðist enn
um sinn halda því valdi, sem
hann hefði tekið sér meðan á
uppreisninni stóð. Kvað hann það
nauðsynlegt þar til ákveðin hefði
verið refsing uppreisnarmanna
og áhrif þeirra þurrkuð út.
Frh. á bls. 2
Moise Tshombe handtekinn
Var á heimleið frá Copuilhatville eftir
ráðstefnu stjórnmálaforingja
Leopoldville, Coquilhatville
og Elisabethville, 26. apríl
(Reuter-NTB).
MOISE Tshombe, forsætisráð-
herra Katangafylkis var tekinn
höndum í dag ásamt ollu fylgd-
arliði. Voru þar aS verki her-
menn Mobutus ofursta. Tshombe
var i þann mund að halda heim-
leiðis með flugvél til Elisabeth-
ville frá Coquilhatville, en þar
hefur hann setið ráðstefnu með
öðrum stjórnmálaforingjum í
Kongó og rætt með þeim fram-
tíðarskipan Kongólýðveldisins.
Vúpnaðir hermenn Mobutus
röðuðu sér með fram veginum að
flugvellinum og vöru fylgdar-
menn Tshombes handteknir jafn
óðum. Tshombe og Kinnba utan-
ríkísráðherra voru handteknir
rétt í því, að þeir voru að stíga
upp í flugvélina.
Fréttamenn sem staddir voru
á flugvellinum, er atburðir þessir
gerðust, fengu skjóta fylgd vopn
aðra hermanna inn í borgina og
var einn þeirra, Willam Ander-
son, bandarískur fréttaritari frá
UPI, tvisvar sleginn í höfuðið
með riffilskefti er hann sýndi
hermönnunum mótþróa.
# Brösótt samkomulag
Engar frekari upplýsingar hafa
fengizt um Tshombe og félaga
Síðusfu fréftir
Elisabethviile, 26. apríl —
Reuter. Útvarpið í Elisabeth
ville tilkynnti í kvöld, að
Tshombe, sem tekinn var hönd
um af hermönnum Mobutus i
dag muni halda flugleiðis
heim til Elisabethville á morg
un.
hans og ekki er vitað hversu
mikil alvara liggur að baki hand
töku hans. Þó er óttazt að hún
sé afleiðing þess, að sífellt hefur
versnað samkomulag hans og
Leopoldville stjórnarinnar síð-
ustu viku.
í gær gekk Tshombe í f ússi af
fundi sökum þess, að Kasavubu
neitaði að fallast á þá kröfu
Frh. á bls. 23
Það færist nú mjög í vöxt að
ungir drengir stundi sjóinn, á
skólabátum, eða öðrum bát-
um. Hér á myndinn sjást tveir
ungir sjómenn á Aloureyri, og
hafa þeir sannarlega hitt þann
g-nla. Þeir eru að landa eftir
róðurinn, og er þorskurinn
litlu minni en þeir sjálfir.
— StE.Sig.
ittast árekstra
vegna afhendingar
Sæmundar-Eddu
Einkaskeyti til Mbl.
frá Páli Jónssyni,
Kaupmannahöfn, 26. apríl
EKSTRABLADET skýrir frá
því í dag, að vænta megi
harðra mótmæla vísinda-
manna gegn afhendingu hand
ritanna til Islands, þegar há-
skólaráð Kaupmannahafnar-
háskóla kemur saman í dag.
Einkum segir bla&ið líklegt,
að mótmælin beinist gegn af-
hendingu Sæmundar-Eddu og
Flateyjarbókar.
Birklund ríkisbókavörður seg-
Frh. á bls. 2