Morgunblaðið - 29.04.1961, Side 14
14
MORCVTShLAÐIÐ
Laugardagur 29. aprfl 1961'
Aðalfundur Húsmœðra
félags Reykjavíkur
Skátar meöal vanheilla barna
SKÁTAHREYFINGIN er tví-
mælalaust með beztu og heilbrigð
ustu aeskulýðshreyfingum heims.
Hún leggur megináherzlu á vin-
áttu og bróðurþel, og innan
hennar vébanda mætast hinar
ólíkustu þjóðir — hvítar, svart-
ar, brúnar og gular — ólík sjón-
armið, ólík trúarbrögð, sjúkir og
heilbrigðir.
Hversvegna geta svo allir þess-
ir ólíku aðilar mætzt þarna í
vináttu? Jú, það er af því að
það er lögð áherzla á að virða
það, sem hverjum og einum er
helgast. Það er unnið saman að
sameiginlegum vandamálum —
verkefnin leyst sameiginlega.
Þeir, sem hafa séð skáta frá
ýmsum löndum, vinna saman á
skátamótum — reyna að kenna
hver öðrum og hjálpa hver öðr-
um — þeir skilja þetta vel. Það
er gaman að sjá skáta frá fs-
landi og kolsvartan Afríkuskáta
velta vöngum yfir matartilbún-
ingi á ensku móti.
Vera í sama tjaldhorninu með
landkynninguna sína — hvít
gæruskinn, lýsislampa og alls-
konar ísl. minjagripi, og á hinu
borðinu ýmiskonar bast- og tága-
vinnu, perlufestar, klúta og hitt
og þetta, sem ómögulegt er að
muna. Sitja svo hlið við hlið á
tjaldgólfi með hver sitt Nýja
testamenti, fylgjast með þeim
texta, sem svo einhver foringi
frá þriðju heimsálfunni les, og
hlusta á, hvernig hann eða hún
útskýrir skátaheitið.
Þetta er örlítil svipmynd úr
skátalífi. — Og skátastarfið er
látið ná til þeirra, sem ef til
vi-11 eru blindir, heyrnarlausir,
bæklaðir, vangefnir o. s. frv.
Skátastarf meðal vanheilla
barna er svo til nýr liður í starf-
inu hér á landi.
Skátasveit Fatlaðra og Lam-
Vorlaukar
(hnýði)
Begoníur
Gladíólur
Anemónur
Dahlíui
Liljur
Bóndarósir
Ranúnclur
Fjölbreytt litaúrval
Gróðrastöðin við Miklatorg.
Símar 22-8-22 og 1-97-75
aðra var stofnuð s. 1. ár. Það
eykst stöðugt áhugi skátanna
fyrir því að reyna að hjálpa
þeim börnum, sem á einn eða
annann hátt eru vanheil, til þess
að þau geti tekið þátt í skáta-
starfi. Þar er þeim gefinn kost-
ur á að vera hlutgeng í félags-
skap heilbrigðra barna, þau
verða vinir þeirra og samstarfs-
menn, og báðir aðilar hafa mjög
gott af þessu samstarfi, engu
síður þau, sem heilbrigð eru.
Þó hér sé aðeins hafið skáta-
starf fyrir fatlaða og lamaða, þá
mun strax og tækifæri gefast
verða hafist handa um starf fyr-
ir önnur vanheil börn. Það er
trú margra, að einmitt í skáta-
starfinu geti þau fundið þann
félagsanda, sem veiti þeim kjark
og djörfung til þess að taka þátt
í leikum og starfi annarra barna
á þann hátt, sem þeim er fært.
Þar eignast þau vini, sem taka
þáu eins og þau eru.
Síðast liðið sumar fóru 2 skáta-
stúlkur úr Reykjavík til Dán-
merkur á námskeið og mót til
þess að kynna sér skátastarf
meðal vanheilla barna. í ráði er
að reyna öðru hvoru að senda
út foringja til slíkra námsferða.
Þetta hefur auðvitað töluverðán
kostnað í för með sér, þessvegna
hefur stjórn skátasveitar Fatlaðra
og Lamaðra tekið upp þann hátt
að efna til kaffisölu einn dag á
vori. Skátar og aðrir velunnar-
ar hjálpa með því að gefa kök-
ur þennan dag, ágóðanum er
svo varið til þessarar skátastarf-
semi fyrir vanheil börn.
I þetta sinn verður kaffidag-
urinn mánud. 1. maí í Skáta-
heimilinu við Snorrabraut. Hafi
einhver löngun til þess að ljá
þessu máli lið, er tækifæri til
að drekka eftirmiddagskaffið í
Skátaheimilinu 1. maí. Það verð-
ur opnað kl. 2 e. h.
(Fréttatilkynning).
AÐALFUNDUR Húsmæðrafé-
lags Reykjavíkur var haldinn
11. apríl sl. í Borgartúni 7.
Aðalfundarstörfin hófust með
því að ritari félagsins gaf yfir-
lit yfir fundi félagsins.
Formaður félagsins flutti ýtar
lega skýrslu um námsskeiðastarf
semi félagsins á árinu. Bar hún
órækan vott um að unnið var
af miklum dugnaði á þessu sviði
eins og áður fyrr og kennslu-
kraftar góðir. — Á undanförn-
um 12 árum sem félagið hefur
starfað í þessu húsnæði hefur
starfseminni verið komið í fast
form og félaginu gert kleyft að
halda uppi mánaðarnámskeiðum
£ saumaskap frá því snemma á
haustinu fram á sumar, einnig
sýnikennslu í matreiðslu og hin
síðari ár bastvinnunámskeið. Öll
þessi námskeið voru vel sótt og
ánægjuleg og áreiðanlega til ó-
metanlegs gagns fyrir bæjarfé-
lagið á einn eða annan hótt. —
Því miður hefur þessu húsnæði
verið sagt upp, sem hefur verið
mjög ódýrt á okkar mælikvarða,
en kennslukraftar hins vegar
dýrir. Er því fyrirsjáanlegt að
félagið verður að hætta þessari
starfsemi nema til komi hentugt
húsnæði fyrir hana.
Gjaldkeri félagsins las upp
fjárhagsskýrsluna sem er tví-
þætt. Fyrst félagssjóðsins og svo
námskeiðssjóðsins.
Fjármagur félagsins er góður,
einkum þegar þess er gætt að
útgjaldaaukning var á árinu
vegna námskeiðastarfseminnar
og að félagið gaf í ráðhústeppið
3000 krónur og 1000 krónur til
vangefinna barna, átti hinn
ágæti bazar félagsins í haust
sinn drjúga þátt í svo góðrl út-
komu.
Næst fluttu fulltrúar frá
nefndum innan félagsins skýrsl-
ur sínar og sýndu þær glöggt
að félagið starfar þar vel og
má sín mikils, t.d. er formaður
félagsins formaður Mæðrastyrks
nefndar og varaformaður Banda
lags kvenna í Reykjavík.
Öll stjórnin var endurkosinr
Form. Jónína Guðmundsdóttir.
Aðrar í stjórn: Inga Andreasen
varaform., Soffía M. Ólafsdóttir
ritari, Margrét Jónsdóttir gjald-
keri, Þórdís Andrésdóttir, Þór-
anna Símonardóttir, Kristín
Bjarnadóttir.
Varastjóm: Guðrún Jónsdótt-
ir, Guðríður Jóhannesson, Guð-
finna Jóhannsdóttir. ' i
Endurskoðandi: Eygló Gísla-
dóttir. iij
Kosið var í ýmsar nefndir,
svo sem Bandalags-, Mæðra-
styrks-, Áfengisvarna- og Kven-
réttindanefndir. '-j
Að lokum sagði formaður fé-
lagsins, Jónína Guðmundsdóttir,
frá 40 ára móti danska hús-
mæðrafélagsins er hún sótti og
var haldið 15. og 16. mai 1960
í Oddfellow Palæet, Kaupmanna >
höfn. —. J
Selja síld
JÓN Trausti og Bjarnarey seldu
sílld, sem veiðzt hefur núna ný-
lega á Selvogsbanka, Jón Trausti j
seldi 88,3 lestir fyrir 35 þús.
mörk og Bjarnarey tæpar 96 lest- ,
ir fyrir 40 þúsund mörk.
Togarinn Sigurður selur þar
næstkomandi þriðjudag rúmiega
400 lestir af síld. ‘é
Sumarbústaður
í nágrenni Reykjavíkur óskast til leigu yfir sumar-
mánuðina. Tilboð merkt: „í sumar — 1106“ sendist
fyrir 3. maí á afgr. Mbl.
Sandgerðingar Sandgerðingar
Verð stödd í Sandgerði laugardag og sunnudag.
Til viðtals að Túngötu 18.
INGIBJÖRG INGVARS frá Siglufirði.
4. tonna Austin vorubíll
í góðu standi til sölu. Skipti á jeppa kæmi til greina.
Til sýnis á bifreiðaverkstæði Hálfdáns Hannessonar
Ármúla 26. Sími 35928.
N auðungaruppboð
sem auglýst var í 11., 12. og 13. tbl. Lögbirtingablaðsins
1961, á húseigninni nr. 60 við Suðurlandsbraut, hér í
bænum, eign Maríu Þórðardóttur, fer fram eftir kröfu
Vagns E. Jónssonar hdl., bæjargjaldkerans í Reykjavík
og Guðlaugs Einarssonar hdl. á eigninni sjálfri þriðju-
daginn 2. maí 1961, kl. 3% síðdegis.
Borgarfógetinn í Rcykjavík.
Bátavél
i
12—14 ha. Penta bátavél með ö.llu tilheyrandi j
til sölu. Upplýsingar í síma 35028 eftir kl. 5.
BAB-0 ræstiduft
spegilhreinsar
• . . allir þekkja
BAB-0