Morgunblaðið - 29.04.1961, Blaðsíða 17
Laugardagur 29. apríl 1961
MORCVNBLAfílÐ
17
Thomas Möller fyrrverandi
póstafgreiðslumaður
MINNISSTÆÐUR maður, kær
og traustur vinur, Thomas Möll-
er, er til moldar borinn í dag
vestur í Stykkishólmi, þar sem
íhann ól aldur sinn í hálfa öld.
Hann var kominn af merku
íólki og hlaut ágæta hæfileika í
arf. Heimili foreldra hans á
©lönduósi var orðlagt fyrirmynd
arheimili, og þótti Thomas
! snemma afbragð annarra ungra
j imanna um dugnað og myndar-
| ekap. í Verzlunarskóla íslands
sótti hann námið með mikilli
rýði, og að prófi loknu fluttist
ann til Stykkishólms og settist
ar að. í starfi sínu um langan
aldur sem póstafgreiðslumaður
og simstjóri vann hann sér vin-
Eældir og einstætt traust fyrir
festu, skyldurækni og alúð. Þess-
dr eiginleikar komu og skýrt
tfram í öllum þeim þýðingar-
aniklu trúnaðarstörfum, sem hon-
um voru falin varðandi héraðs-
mál og stjórnmál, sem honum
stóðu jafnan hjarta nær.
Fáa menn hef ég fyrir hitt jafn
traustvekjandi og Thomas Möll-
er. Allt sem hann mælti, stóð
jjafnan sem stafur á bók. Dugn-
aðurinn, starfsorkan, lifsfjörið
sindraði af honum, og vináttan
var traust sem bjarg. Öll þau
imiklu og löngu kynni, sem ég
Ihafði af honum, voru á eina leið:
(Þau mótuðust af drengskap hans,
(vinfesti og hreinlyndi.
’ Við brottför Thomasar Möllers
ikveð ég þakklátum huga hinn
góða vin og einstaka öðlings-
mann og sendi frú Margréti,
ibörnunum og venzlamönnum
einlægar samúðarkveðjur.
Gunnar Thoroddsen.
kvæntan Arnfríði Kristinsdóttur
kaupm. Magnússonar í Rvík, Jó
hann, skrifstofustjóra hjá O.
Johnson & Kaaber, kvæntan
Elísabetu Árnadóttur kaupm. og
útgerðarm. Sigfússonar frá Vest
í DAG verður gerð útför Thom
asar Möllers frá Stykkishólms-
kirkju. Hann andaðist aðfaranótt
mánudagsins 17. þ.m. að heimili
sínu Eskihlíð 18 í Reykjavík.
. Thomas var fæddur á Blöndu
’ósi 6. apríl 1885. Foreldrar hans
voru Jóhann Georg Möller kaup
maður þar og kona hans Alvilda
l Vilhjálmsdóttir Thomsen. Var
r-Aíöllersheimilið á Blönduósi róm
að fyrir gestrisni og höfðings-
skap. Naut Thomas og systkini
hans góðs uppeldis í hvívetna,
enda báru þau þess vitni, að góð
ar og traustar ættir stóðu að
|)eim. í framkomu allri voru þau
systkin hæversk, en þó skemmti-
j leg, svo að manni leið ávallt vel
í návist þeirra. Ég minnist Thom
asar með þakklæti og virðingu
tfyrir 50 ára náin kynni — kynni
sem voru mér mikils virði, enda
var hann mikill drengskaparmað-
ur Og hafði holi og bætandi áhrif
4 unga menn, sem ólust upp í
Stykkishólmi á þeim áratugum,
sem hann starfaði að ýmsum á-
hugamálum ásamt skyldustörfum
sínum. Hann var óvenju skyldu
rækinn embættismaður — og svo
ástúðlegur heim að sækja, að
ekki var á betra kcjsið, enda
tfjölskyldan öll samhennt um að
gera dvöl gesta sem á heimilið
ikomu sem ánægjulegasta.
t Að loknu námi við Verzlunar-
skóla íslands vorið 1907 flutt
ist Thomas til Stykkishólms og
gerðist starfsmaður hjá verzlun
Sæm. Halldórssonar. Árið 1910
var honum veitt póstafgreiðslu
Btarfið í Stykkishólmi — og er
síminn var lagður 1912 var hon
um veitt símstjórastarfið. Þessum
Störfum gegndi hann af mikilli
. alúð og skyldurækni til 1. apríl
1954, en þá treysti hann sér ekki
til að rækja þau, eins og hugur
hans stóð til, og baðst lausnar.
;■ Thomas var tvíkvæntur. Fyrri
fcona hans var Kristín Sveins-
dóttir Jónssonar trésm.m. í Stykk
Ishólmi, bróður Björn Jónssonar
ráðherra. Andaðist hún 1926.
ISignuðust þau þrjú börn: Guð-
■únu skrifstofustúlku við Lands
•ímana 1 Rvík, Óttar, fulltrúar
hjá Eimskipafélagi íslands.
mannaeyjum. Seinni kona Thom
asar, Margrét Jónsdóttir bónda
á Suðureyri við Táknafjörð, lif
ir mann sinn. Eignuðust þau
þrjú börn: Agnar, verzlunarm. í
Rvík, kvæntan L.eu Lárusdóttur
hafnarv. Elíassonar í Stykkis-
hólmi, Kristínu, kvænta Krist-
jáni skrifstofum. Ragnarssyni
kaupm. Jakobssonar frá Flateyri
— og Wilhelm, sem enn dvelur
í heimahúsum.
Eins og að líkum lætur, þegar
í hlut átti jafn viljasterkur og
skyldurækinn maður og Thomas
var í öllu dagfari, hlutu að hlað
ast á hann mörg opinber störf.
Hann mun hafa verið í hrepps-
nefnd Stykkishólmshrepps í nær
20 ár, í sáttanefnd og yfirkjör-
stjórn í 36 ár, í hafnarnefnd um
20 ár, lengst af formaður, í skatta
nefnd 6 ár og í stjórn Sparisjóðs
Stykkishólms í nokkur ár. Þá var
hann form. Sjúkrasamlags Stykk
ishólms það árabil sem það félag
starfaði — og átti hann sæti í
nefnd þeirri, sem á vegum hrepps
nefndar Stykkishólmshrepps
samdi við St. Fransiskusregluna
um byggingu hins glæsilega spít
ala í Stykkishólmi.
Thomas var glæsimenni að vall
arsýn, söngelskur og listhneigður
— og hafði mikla ánægju að
blanda geði sínu við gott fólk og
glaðvært — og var hann þá sjálf
ur hrókur alls fagnaðar. Hófs-
maður var hann mikill og reyndi
í hvívetna að hafa bætandi áhrif
á ungmenni um meðferð áfengis
og prúmannlega framkomu. Tel
ég það mikið lán fyrir hvert
byggðarlag, að eiga menn eins
Og Thomas innan sinna vébanda,
því óneitanlega stafar frá þeim
göfgandi áhrif í þroska- og upp
eldismálum, þar sem þeirra nýt
ur við. Hann var sæmdur ridd-
arakrossi hinnar íslenzku Fálka
orðu.
Til Reykjavíkur flutti Thom-
as með fjölskyldu sína í sept.
1957. Var mikill sjónarsviptir fyr-
ir byggðarlagið að sjá á bak þess-
ari ágætu og vinsælu fjölskyldu
— en þetta er því miður um of
hlutskipti strjálbýlisins. Veit ég,
að ég mæli fyrir munn allra
Stykkishólmsbúa og margra ann
arra Snæfellinga, að fáir menn
hafa notið jafn almenns trausts
og Thomas Möller í þá hálfa öld,
sem hann dvaldi í Stykkishólmi.
Hugur hans mun jafnan hafa
verið hér vestra þessi síðustu ár,
sem hann dvaldi í Reykjavík,
enda minningarnar margar í
löngu og farsælu lífsstarfi bundn
ar við Stykkishólm. Eftir að
Thomas var fluttur til Reykja
víkur ágerðist sjúkdómur hans
og naut hann í ríkum mæli hjúkr
unar og ástúðar sinnar ágætu
eiginkonu.
Ég þakka vini mínum Thomasi
fyrir vináttu alla og áratuga sam
starf, og votta eiginkonu, börn
um og venslafólki innilega sam
úð mina við fráfall hans.
Sig. Ágústsson.
t _
W Th. Möller er látinn. Þar með
er lokið einni ágætri íslendinga-
sögu, sögu sem er einstæð að
mörgu leyti og þannig skrifuð
að til fyrirmyndar er. Sérstæð
ur maður og persónuleiki horfinn
af sjónarsviðinu, maður sem all-
ir er sáu veittu eftirtekt. Það
var eitt hvað í fasi hans og fram
komu sem dró athygli samferða
mannanna að honum og margir
voru þeir sem komu á heimili
hans í Stykkishólmi, áttu þar
unðasríka stund og margar minn
ingar sem rifjaðar verða upp þeg
ar þessari ágætu sögu lýkur og
seinasta blaðið hefir verið skrif
að.
Um langt skeið var Möller
einn af sterkustu og beztu for
ystumönnum Stykkishólms og
barðist fyrir heill og velgengni
hans. Mál sem komust í hendur
hans höfðu fengið góða forystu
og það brást ekki að ef Möller
veitti þeim fylgi þá komust þau
fram. Hann krufði þau vel til
mergjar og að kjarnanum var
kömizt. Síðan var haldið áfram
og ekki eirt fyrr en öllu var kom
ið heilu í höfn. Það var ekki
spurt um fyrirhöfn og aldrei hef
ég heyrt að Möller hafi spurt
um þóknun þegar hann veitti
forystu einhverju velferðarmáli,
síður en svo. Han þóknun var
ánægjan yfir vel unnu verki og
gleði hans hrein og fölskvalaus
yfir að hafa getað veitt góðu
máli lið. Hann var ötull í hafnar
nefnd kauptúnsins og sjást þar
lengi merki hans góða hugar og
víðsýnis. Sjúkrahúsmálunum
lagði hann allt sitt lið og svo
ótal mörgu sem ekki verður hér
talið. En Möller var strangur við
sjálfan sig. Aldrei var það geymt
til morguns sem hægt var að
gera í kvöld og aldrei var skilið
við eigið verk í annars hönd.
Nei, viljinn og áræðið og skyldu
ræknin þoldi slíkt ekki. Það var
því gaman að starfa með honum.
Hann fór aldrei á bak við neinn.
Kom hreint fram og menn vissu
alltaf hvar þeir höfðu hann þeg
aj; hann hafði kveðið upp úr með
sína skoðun. Heilsteyptari mann
hefi ég aldrei þekkt. Ef hann lof
aði einhverju þurfti ekki að efa
að það stóð eins og stafur á bók.
Það þurfti aldrei að skjalfesta
loforð hans, þau voru eins og
þingfest skjöl. Reglusemi hans
var einstök og eiga Hólmarar
mörg dæmi um það. Unga fólkið
skildi Möller vel. Hann fylgdist
vel með skólanum og hverjum ár-
angri börnin náðu þar. Gladdist
þar eins og annarsstaðar yfir
hverri framför. í embættisferli
sínum var hann þannig að aldrei
var skilizt svo við að loknum
vinnudegi að ekki væri allt í röð
og reglu og endurskoðun kveið
hann aldrei fyrir, síður en svo.
Enginn yfirboðari hans hafði
þá sögu að segja að kröfur eigin
hags væru á oddinn settar. Nei,
hann var vissulega ekki með
miklar kröfur fyrir sjálfan sig og
hvernig hann fór með þau verð
mæti sem honum var trúað fyrir
gæti verið góður skóli þeirra sem
nú á eyðslu og sóunaröld eiga erf
itt að greina á milli eyðslu og
sparnaðar. Hann var í öllu fyrir
myndarmaður.
Ég á honum mikið að þakka.
Ég kom til Stykkishólms fyrir
19 árum og þekkti þá engan
mann. Ég varð svo heppinn að
eignast vináttu þessa ágæta
manns og fjölskyldu hans. Þar
var opið hús fyrir mig. Ég man
það lengst hversu hann á allan
hátt bjargaði hverjum vanda sem
ég var í og leiðbeindi og hjálpaði
og hvernig hann reyndist mér
alla tíð síðan. Slíkur drengskap
ur gleymist ekki. Það eru fleiri
en ég sem eiga slíkar minningar
um Möller. Menn fundu það líka
vel hér að þegar hann kvaddi
Stykkishólmsbúa 1957 að það var
eins og reisn staðarins minnkaði.
Það stóð autt sæti eftir sem
mörgum fannst vandfyllt. Hann
var svo samgróinn Stykkishólmi
og svo einlægur Hólmari að það
er til marks að ef hann brá sér
til Reykjavíkur þá var hann ekki
búinn að vera nema nokkra daga
þar er heimþráin greip hann
þeim tökum að hann varð að fara
heim. Og heima leið honum alltaf
bezt.
I félagslífi staðarins var hann
sem annarsstaðar duglegur. Og
menningarbragur skyldi á þeim
samkomum er hann var fyrir.
Ég á því margar minningar um
þennan einstæða og góða vin
minn sem munu lengi lýsa mér
og hjálpa þegar leið verður myrk
og sporin þung. Við slíkar minn
ingar er gaman að dvelja. Og nú
á þessari kveðjustund er þakk-
lætið efst í huga. Þökk fyrir
það að leiðir okkar lágu saman
og hversu ég á allan hátt hefi
auðgazt af okkar kynnum. Það
gat ég aldrei launað sem skyldi
og stend þar í óbættri skuld. Ég
kveð því þennan ágæta vin minn
Síðasta blaðsíðan hér í lífi
er skrifuð. Hann gat sagt með
Þorsteini: Mig langar að sá enga
lýgi þar finni sem lokar að síð
ustu bókinni minni. Það hefir
hann fengið uppfyllt. Gætu þeir
sem erfa eiga landið skrifað sína
bók með slíkum ágætum sem W.
Th. Möller þarf okkar ágæta
þjóð engu að kvíða. Guð blessi
minningu hans.
Árni Hclgason.
Starfsstúlkur óskast
að Kópavogshæli í eldhús og á ganga.
Uppl. hjá yfirhjúkrunarkonu og mat-
ráðskonunni í símum 19785 og 19084.
Byggíngarverkamaður
Vanur járnamaður óskast að stórbyggingu hér í bæn
um. Þeir sem hefðu áhuga á þessu vinsamlega sendi
afgr. blaðsins nöfn sín merkt: „Stórverk — 1105“
fyrir n.k. þriðjudagskvöld.
Opel Caravan
Vil skipta á OPEL CARAVAN model 1960 og RENO
DAUPHINE eða VOLKSWAGEN model 1960—1961.
Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins fyrir mánudags-
kvöld merkt: „Opel — 477“.
Félagslíi
Ármann — Glímudeild Síðasta glímuæfing innanhúss verður í kvöld í íþróttahúsinu við Lindargötu. Glímumenn, eldri sem yngri, eru beðnir að fjöl- menna. Foreldrum og öðrum aðstand- endum drengjanna, sem tekið hafa þátt í námskeiði glímudeild arinnar í vetur, er sérstaklega boðið að koma á þessa æfingu sem gestir. — Æfingin hefst kl. 7 s.d. Á sunnudag kl. 2 s.d. verð- ur fyrsta útiæfing glímudeild- arinnar á íþróttavelli Ármanns við Samtún
Knattspyrnufélagið Víkingur Knattspyrnudeild Æfingar verða fyrst um sinn sem hér segir: 5. flokkur A: Mánudaga kl. 8—9, Miðvikudaga kl. 8—9 Laugardaga kl. 6,30—7,30 5. flokkur B: Mánudaga kl. 7—8, Miðvikudaga kl. 7—8, Laugardaga kl. 5,30-6,30 Byrjendur mæti í þessum tímum. Þjálfarar.
Skíðaferðir um helgina Laugardaginn kl. 2 og 6. Sunnudagsmorgun kl. 9 og kL 10 og kl. 1 e. h. Skíðafólk, sem óskar eftir ferð á mánudaginn vinsaml. hafi samband við B. S. R. Munið eftir Steinþórsmótinu kl. 4 á laugardaginn í Hamragili við í. R. skálann. Skíðafélögin í Reykjavík.
Knattspyrnudeild K.R. Æfingar verða sem hér segir: 5. flokkur (drengir, sem verða 12 ára á þessu ári og yngri) Þjálfari: Gunnar Jónsson. Mánudaga kl. 7. Þriðjudaga kl. 7. Miðvikudaga kl. 7. Fimmtudaga kl. 7.
4. flokkur (drer.gir, sem verða 13 og 14 ára á þessu ári) Þjálfari: Guðbjörn Jóngson. Mánudaga kl. 8. Þriðjudaga kl. 8. Miðvikudaga kl. 8. Fimmtudaga kl. 8.
3. flokkur (drengir, sem verða 15 og 16 ára á þessu ári) Þjálfari: Ragnar Guðmundsson. Þriðjudaga kl. 8. Miðvikudaga kl. 8. Fimmtudaga kl. 8. Föstudaga kl. 8.
2. flokkur Þjálfari: Óli B. Jónsson. Mánudaga kl. 9. Miðvikudaga kl. 9. Föstudaga kl. 7.30.
1. og meistaraflokkur Þjálfari: Óli B. Jónsson. Mánudaga kl. 7.30. Miðvikudaga kl. 7.30. Föstudaga kl. 9.
I. O. G. T. St. Svava nr. 23 Fundur á morgun. Munið æfing- una í dag. Gæzlumenn.
Somkomur K.F.U.M. á morgun kl. 10.30 f. h., sunnud.skólinn, kl. 1.30 e. -h., drengir, kl. 8.30 e. h. samkoma. Rasmus Biering-Prip talar. Allir velkomnir.
Kristniboðshúsið Betanía, Laufásvegi 13. Á morgun: Sunnudagaskólinn kl 2 e. h. öll börn velkomin. — Síð* asta sinn.
Hjálpræðisherinn í kvöld kl. 20.30: ÆskulýSs- samkoma.
Zion Óðinsgötu 6 A. Á morgun. Almenn samkoma kl. 20.30. Allir velkomnir. Heimatrúbið leikmanrva.