Morgunblaðið - 29.04.1961, Qupperneq 24
IÞROTTIR
Sjá bls. 22.
Lœknaskorturinn
Sjá bls 13.
95. tbl. — Laugardagur 29. apríl 1961
Kannski þurfum
við ekki norður
segir skipstjórinn á Guðmundi Þórðarsyni
GUÐMUNDUR Þórðarson
kom með fullfermi af síld
til Reykjavíkur í gær kl. 3.
Blaðamaður frá Mbl. náði
snöggvast tali af skipstjóran-
um, Haraldi Ágústssyni, í
gærkvöldi, meðan hann beið
þess að báturinn væri losað-
ur, svo hann gæti haldið út
aftur.
, — Við fengum 1000 tunnur
undir Jökli, þar sem síldin hef
ur veiðzt undanfarið, en svo
fengum við aðrar 1000 tunnur,
þegar við vorum á heimleið í
morgun, sagði Haraldur, um
tveggja og hálfs tíma siglingu
frá Reykjavík. (Nánar sagt:
25 míliur NVN frá Reykjavík).
Þetta er alveg nýtt í sögunni.
Ég veit ekki til að það hafi
nokkurn tíma veiðzt síld á
þessum slóðum fyrr, svona ná-
lægt Reykjavík, nema í Hval-
firði á sínum tíma.
— Hver fann þessa síld?
• 14 ÞÚSUND TUNNUR
— Það var Auðunn frá Hafn-
arfirði, sem rakst fyrst á hana,
en þetta er fyrsta veiðiferð hans
núna. Hann kastaði á hana, en
missti allt. Síðan köstuðum við
og fengum 1000 funnur, eins og
ég sagði áðan. Auðunn fékk svo
1750 mál síðar.
— Hvað hefurðu fengið mikla
síld undanfarið?
— Við erum búnir að fá 7000
tunnur síðustu 6 dagana, en frá
því í páskavikunni erum við bún
ir að fá 14000 tunnur.
— Eruð þið hæstir?
— Já, það hefur enginn feng-
ið meira, held ég. Heiðrún er
næst með 11000 tunnur frá því
í páskavikunni. Hún var með
1100 tunnur í dag.
• VIÐ BÆJARDVRNAR
— Veiztu hvað margir bátar
eru á síldveiðum núna?
— Við höfum verið 10 undan-
farnar vikur, en síðustu dagana
hefur bátunum fjölgað með hverj
um degi. Ég veit ekki nákvæm-
lega, hvað þeir eru orðnir marg-
ir. Það hafa aðeins fjórir verið
með nót í vetur: Eldborg, Heið-
rún, Sæljón og svo þessi. Við
höfum mest haldið okkur fyrir
sunnan, út af Reykjanesskaga og
undir Jökli, þangað til núna.
Núna eru allir síldveiðibátarnir
komnir við bæjardyrnar, og síld-
arleitarskipið Fanney líka.
• KANNSKE EKKI NORÐUR
— Hvað heldurðu um fram-
hald af þessu?
— Ég er ekki í vafa um að það
verður framhald af þessu, a.m.k.
til 20. maí. En ég gæti eins vel
trúað, að það mætti veiða hana
hér í allt sumar. Það er enginn
vafi á því, að það var fullt af síld
hér í fyrrasumar, meðan við vor
um á síldveiðum fyrir norðan,
þótt hún væri ekki veidd, nema
hvað handfærabátar urðu hennar
varir. Kannski þurfum við ekki
að fara norður í sumar.
— Hvenær ferðu út aftur?
— Strax og búið er að losa
hann.
— Ætlarðu að fylla hann aft-
ur?
Bifreiö ók á steinhús
Fjórir Akureyrajsjómenn slosuðust
AKUREYRI, 28. apríl: — Klukk-
an 3,30 sl. nótt var jeppabifreiðin
A-374 á Ieið niður Bjarkarstíg,
en það er alibrött gata og liggur
þvert á Munkaþverárstræti.
• Gat ekki skipt
Er bifreiðastjórinn ætlaði að
skipta niður í fyrsta gír, kom
eitthvað fyrir, svo hann gat það
ekki, og rann því bíllinn áfram.
Er hann reyndi að hemla tókst
það heldur ekki. Og þar með
missti bifreiðastjórinn að mestu
stjórn á bílnum, og rann hann
nú á fleygiferð niður götuna,
þvert yfir Munkaþverárstræti, og
stöðvaðist í glugga á steinhúsi,
Munkáþverárstræti 18. Hafði
hann þá mölbrotið girðinguna fyr
ir framan húsið.
• Fjórir slösuðust
Fimm ungir sjómenn af Ak-
ureyrartogurunum voru í bifreið
inni og slösuðust 4 þeirra, tveir
alvarlega. Bifreiðarstjórinn hlaut
mikinn skurð á höfði og einnig
skurði á fótum. Sá er sat við hlið
hans í framsætinu, fékk mjög
slæmt höfuðhögg. Hann kjálka-
brotnaði og annað eyrað skarst
af honum. Einnig hlaut hann
nokkur önur meiðsl.
• Eyrað fannst í bílnum
Eyrað fannst seinna í bílnum
og hefur nú verið saumað á sinn
stað. Tveir hinna piltanna, sem
slösuðust, hlutu ekki beinbrot,
en skurði á höfði og fótum. Þeir
voru allir fluttir í sjúkrahús í
nótt. Þeir sem voru minna slasað-
ir fengu að fara heim í morgun,
og bifreiðarstjórinn síðdegis í
dag, en verður þó að liggja rúm-
fastur. Sá sem kjálkabrotnaði
liggur enn í sjúkrahúsinu. Bif-
reiðin er mjög illa farin.
— St. E. Sig.
— Það vona ég.
— Hvað er gert við þessa síld?
— Hún fer mest í gúanó. Það
virðist ekki vera áhugi fýrir að
vinna hana, sem má þó merkilegt
heita, því markaður er enn nógur
fyrir unna síld.
Lögreglu-
þjónar á
Haraldur Ágústsson
Síldin við bæjar-
dyr Reykjavíkur
11 bátar með 11.800 tunnur
SÍLDARBÁTARNIR fengu
ágætan afla í fyrrinótt út af
Malarrifi og í gærdag norður
af svokölluðum Hraunum,
um 25 sjómílur NVN af
Reykjavík. —■ Ellefu bátar
fengu þarna samtals 11.800
tunnur í gærdag, og er blað-
ið náði sambandi við Jón
Einarsson, skipstjóra á síld-
arleitarskipinu Fanney, kl.
11.30 í gærkvöldi, voru bát-
arnir í óðaönn að kasta.
Heiðrún var þá lögð af stað
til lands með 950 tunnur, en
hún var fyrsti báturinn, sem
fékk síld aftur í gærkvöldi. —
Hinir höfðu verið að tínast á
miðin aftur fram á kvöldið, eft-
ir að hafa landað afla sínum.
Flestir þeirra höfðu fengið köst
aftur, er blaðið hafði tal af Jóni
Einarssyni.
Bátarnir voru á 5 sjómílna
svæði út með hrauninu, en
Fanney hafði einnig fundið þó
nokkrar torfur vestan við flot-
ann. Veður var hið blíðasta og
bjóst Jón við, að bátarnir fengju
góðan afla.
Þetta er mynd af brezka togar
anum Starella H 219, sem tek
in var að ólöglegum veiðum
1,7 sjómílur vestur af Geir-
fuglaskeri við Vestmannaeyj-
ar síðdegis á sl. miðvikudag.
Ré-ttarhöldum í Vestmanna-
eyjum í máli skipstjórans á
Starella lauk í gærdag, en
dómsúrskurður er ekki vænt-
anlegur fyrr en í dag.
Blaðinu var kunnugt um afla
eftirtalinna báta í gærdag: Guð-
mundur Þórðarson 2000 tunnur,
Auðunn 1750, Gjafar 1500, Sæ-
ljón 700, Eldborg 600, Heiðrún
1100, Haraldur 650, Höfrungur
II. 1500, Höfrungur I. 850, Víðir
II. 500 og Arnfirðingur II. 900
tunnur.
veiðum
Akranesi, 28. apríl.
ALLIR fuglar eru friðaðir nm
þessar mundir, nema hrafn o;
veiðibjalla. En þó bar svo’
kynlega við, að á miðvikudags
morgun sl. sáust tveir lög-'
regluþjónar staðarins laumasi'
*vestur með bökkum vií
Krókalón. Þeir voru báðir'
yopnaðir, annar skammbyssu
:og hinn riffli. Voru þeir á
gæsaveiðum, og skutu þrjár.
'Tvær þeirra lágu á eggjum,
og skiutu þeir aðra þeirra á
eggjunum. Einni gæs tókst að
forða lífi sínu með því að felaj
sig'inni í kassa.
Sagan er þó ekkl nema hálf
sögð enn. Frú Guðrún, hús-
freyja á Krókatúni 14, á gæsa
bú, hið eina sem hér er. Gæs-
irnar voru fjórar. Tvær lágu
á eggjum, en auk þess á frú-
in 20 gæsaegg í útungunarvél.
Gæsirnar eru aðsópsmiklar og
hávaðasamar, og hvað eftir
annað hafa þær sloppið úi
úr búrinu. Þarna á Króki
er bannað að hafa gæsir
éins og annars staðar í bæn-j
um, og börnin í næstu húsum
voru hætt að þora út fyrir
hússins dyr af ótta við gæs-j
irnar. Lögreglan var marg-
[búin að aðvara frúna, en ár-i
jangurslaust. Tók lögreglan þá
til sinna ráða og fór vopnuð í
yeiðiför, eins og áður sogir.
Gg þá er sagan öll. — Oddur.
Snör handtök
f GÆRDAG, er Auðunn frá
Hafnarfirði var á leið til HHafn
arfjarðar með íullfermi af síld,
bað skipstjórinn, Þóirður H<(r-
mannsson, Reykjavík að hlusta
eftir bátnum á næstunni, þar
sem nokkur leki væri kominn
að honum. Skömmu síðar til-
kynnti skipstjórinn, að allt væri
í stakasta lagi með bátinn. Skip-
stjórinn skýrði Mbl. svo frá í
gær, að ástæðan til lekans hefði
verið sú, að í flýtinum við að háfa
og ganga frá hinum góða síld-
arafla, hafði sjómönnunum láðst
að ganga nógu tryggilega frá
boxalokunum þar sem sildinni
er hleypt niður. Skipverjar
höfðu snör handtök, er sjór
komst í lestina og ruddu síld af
þilfarinu til að komast að boxa-
lokunum. MÍkill sjór var kominn
fram í, sem óðara var dælt út-
byrðis aftur. Hélt Auðunn síðan
til Hafnarfjarðar og landaði þar
rúmum 1700 tunnum. Var enn
verið að losa hann um kl. 11 í
gærkvöldi, en síðan átti Auðunn
að halda út aftur.
f framhaldi af þessu er vert
að geta þess, Auðunn hefur land-
að 1750 tunnum af síld og 15
S
* < ^
tonnum af fiski á einum og sama
sólarhring. Hann kom að landi
kl. 7,30 í fyrrakvöld, landaði
fisknum, lagði þorskanetin á land1
og síðan bjuggu skipverjar skipið
til síldveiða og fóru út á veiðar
kl. 3 um nóttina og fundu fyrstir
síld á þeim slóðum, sem hún
veiðist nú. (Sjá nánar í síldar-
frétt í blaðinu). Auðunn er gerð«
ur út af Auðunsbræðrum í
Hafnarfirði.
Sænsk graflistar-
sýning opnuð í
Bogasalnum
f DAG kl. 2 verður opnuð opin-
berlega í bogasal Þjóðminja-
safnsins sýning á sænskri nú.
tímagraflist (grafik). Við það
tækifæri flytja menntamálaráð-
herra og sæ-nski sendiherrann I
Reykjavík ávarp. Klukkan 4 e. h,
verður hún opnuð almenningi og
opin daglega frá 1.30 til 10 í
7—10 daga.
Sýningin er haldin á vegum
Svenska Institutet í Stokkhólmi,
sem vinnur að menningarskipt-
um Svíþjóðar og annarra landa,
í samvinnu við menntamálaráðu-
neytið og ambassador Svía f
Reykjavík. Á sýningunni eru 68
myndir eftir 32 listamenn og eru
þær allar til sölu.
Varðarkaffi í Valhöll
i dag kl. 3-5 síðd