Morgunblaðið - 30.04.1961, Blaðsíða 11
n
Sunnudagur 30. apríl 1960
MORGVNBLAÐIÐ
11
Vorhattarnir L~)<
HATTATIZKAN hefur oft
vakið leiðindi kvenna, og
margar halda því fram í al-
vöru, að tízkukóngarnir hafi
allt annað en kvenmann í
huga, þegar þeir eru að búa
til hattana sína.
En að þessu sinni hafa þær
ástæðu til að gleðjast yfir vor
höttunum nýju. Að vísu er að
finna skringilega hatta innan
um, sem eingöngu eru búnir
til með tilliti til tízkusýning-
anna. En að þeim undanskild
um úir og grúir af höttum,
sem mundu sóma sér vel á
hvaða kolli sem væri, eins og
t.d. þessi brúni stráhattur. Ó-
samhliða börðin eru mjög
klæðileg og fislétta silkimússu
línið, sem breitt er yfir börð
in og hnýtt saman í litla slaufu
bak við eyrað, gefur hattinum
sérstæðan svip.
Með smábreytingum myndi
hatturinn einnig klæða eldri
konur vel. (Frá Carven).
Ananas-
terta
3 egg, 300 g sykur, 1 dl heitt
vatn, 150 g hveiti, I tsk lyfti
duft.
Ananaskrem: 2 egg, 1 kúf-
full msk hveiti, 2 msk sykur,
2%dl ananassafi, 1 stór tsk
smjör.
Súkkulaðibráð: 150 g flór-
sykur, 4 msk kakaó, 3—4 msk
sjóðandi vatn.
Bakaðir tveir venjulegir
tertubotnar, má einnig nota
svampbotna. Allt sem fer í
kremið er sett í pott og soðið.
Svunlur fyrir
strókonu
Að þessu sinni birtum við
uppskrift af svuntu fyrir litla
drengi á öðru árinu. Svuntan
hlífir mjög vel og auk þess
er fljótlegt að sauma hana.
Svuntan er langröndótt, blá
og hvít, með rauðum legging
um og rauðu kattarhöfði. í
hana fer ca. 60 cm af bóm-
ullarefni.
Meðfylgjandi mynztur er
stækkað, þannig að hver fern
ingur er 6x6 cm. Svuntuefnið
er brotið saman, mynstrið lagt
ofan á efnið og klippt. 1 cm er
reiknaður í földun.
Svuntan er öll brydduð með
skábandi. Því næst er hnappa
gat saumað á hvora öxl, og
að lokum eru hæfilega stór-
Gæta skal þess að jafna hveit
inu vel saman við eggin, áður
en kremið er soðið. — Látið
kólna, og hrært vel í á meðan,
síðan sett á milli botnanna.
Súkkulaðibráðin er hrærð og
smurð yfir tertuna. Ef vill má
setja ananasbita í kremið og
skreyta tertuna með heilum
ananashringjum og sprauta
rjóma í miðju hvers hring.
Tertan verður þá mjög skraut
leg en fyrir bragðið mun dýr
ari.
ar tölur settar á axlaböndin.
Þá er röðin komin að vasan
um. Höfuðið er teiknað eftir
undirskál á einlitt rautt efni,
og eyrun klippt út eftir
mynstrinu ®em fylgir með.
Höfuð og eyru eru brydduð
með rauðu skábandi. Munn
ur og veiðihár eru teiknuð og
saumuð í svörtum lit, nefið
er svört flatsaumsklessa. Aug
un eru búin til úr tveim hring
flötum, öðrum hvítum og
hinum grænum, og er sá hafð
ur minni. Báðir fletimir eru
festir með hnappagatasaum.
Eyrun eru brotin saman, og
langhlið þess þríhyrnings,
sem þá myndast, er saumuð
föst við höfuðið, þannig að
þau rísa. Þá er kattarhöfuðið
tilbúið, og það saumað á svunt
una, nema hvað 12 em löng
rifa er skilin eftir efst.
Mynstrið er stækkað, þannig
að hver ferningur er 6x6 cm.
Gatalínan er miðja svuntunn.
ar. Þríhyrningarnir fyrir neð i||
an eru kattareyrun.
Glcymíð ekki
hönzkunum
Hanzkarnir eru lítill en þýð
ingarmikill þáttur í klæða-
burði hverrar konu. Danskir
gefa konum þau ráð að forðast
litsterka hanzka. Affarasælla
sé að velja látlausa hanzka,
eins og þá sem sýndir eru á
meðfylgjandi mynd. Þeir eru
úr mjúku hreindýraskinni. —
Hanzkalitirinir í ár eru ,beige‘
brúnir og ljósgráir litir.
— Úr ýmsum áttum
Framh. af bls. 12.
helgaði sig þó eingöngu
starfi sínu. Og þegar „götu-
virkja-uppreisnin“ brauzt út
í Alsír í janúar 1960 undir
forustu Pierre Lagaillade,
leysti hann störf sin af hendi
með þeim sóma að hann var
enn talinn einn af tryggustu
fylgismönnum de Gaulle.
Hann lýsti hernaðarástandi í
Alsír og innan fárra daga
tókst honum átakalitið að fá
uppreisnarmenn til að gefast
upp. Þótt hann væri skoð-
unum uppreisnarmanna fylgj
andi kæfði hann byltingar-
tilraunina, því hann taldi þá
að það væru uppreisnarmenn
Serkja sem ætti að berjast
við en ekki franska stjórnin.
En þegar franska stjórnin
kallaði fallhlífaliðsforingjann
Jaques Massu heim til Frakk
lands eftir uppreisnina, lagði
Challe fram mjög ákveðnar
kröfur í sambandi við málið,
og urðu þær til þess að
binda endir á starf hans í
þjónustu de Gaulle.
Vikið frá
De Gaulle var fullkunn-
ugt um skoðanir Challe. Á
dögum 13. maí uppreisnar-
innar, sem leiddi til valda-
töku de Gaulle 1958, gekk
Challe á fund Guy Mollet
þingforseta og skýrði honum
frá skoðunum sínum og frá
anda þeim er ríkti í hernum.
Mollet, sem þá var vamar-
málaráðherra lét þá þegar
víkja Challe úr embætti. En
þegar de Gaulle tók við völd
um, lét hann Challe taka aft-
ur sæti sitt í herforingja-
ráðinu
Tveim árum siðar, í mai
1960, var Challe skipaður
yfirmaður alls herafla Atl-
antshafsbandalagsins í Suður
Evrópu og sæmdi de Gaulle
hann við það tækifæri æðsta
heiðursmerki Frakklands, stór
krossi heiðursfylkingarinnar.
En Challe var ekki sam-
mála de Gaulle varðandi yf-
irstjóm hersins. Vildi Challe
að franski herinn yrði al-
gjörlega innlimaður í sam-
eiginlegan her Atlantshafs-
bandalagsins og var það í al-
gjörri andstöðu við stefnú
forsetans. Þessi ágreiningur
varð til þess að Challe lét
af störfum hjá Atlantshafs-
bandalaginu eftir aðeins níu
mánaða þjónustu. En þegar
hann fyrir þrem mánuðum
bað um að verða leystur úr
herþjónustu, var það ekki
vegna ágreinings um Atlants
hafsbandalagið. Almennt var
litið á lausnarbeiðnina sem
mótmæli gegn þróuninni í
Alsír, eftir að þjóðaratkvæða
greiðsla hafði samþykkt
stefnu de Gaulle. En svo
virðist nú sem lausnarbeiðn-
in hafi einnig verið lögð
fram til þess að Challe gæti
tekið við öðru herstjórnar-
embætti.
(Lausl. >ýtt)
Úr Berlingske Tidende
iimw
kvengulliír tapaðist
við eða á Röngendeild Lands-
spítalans eða frá Rauðarárstíg
niður í miðbæ. Sími 34487 Ak
urgerði 36.
Vorlaukar
(hnýði)
Begoníur
Gladíólur
Anemónur
Dahlíux
Liljur
Bóndarósir
Ranúnclur
Fjölbreytt litaúrval
Gróðrastöðin við Miklatorg.
Símar 22-3-22 og 1-97-75
BÚSÁHÖLD
Flestar gerðir búsáhalda í
fjölbreyttu úrvali. Kaupið til
eigin nota og kaupið til gjafa
nytsöm og smekkleg búsáhöld.
Biisáhöld
Kjörgarði — Sími 2-33-49.
Þorsteinn Bergmann
Laufásvegi 14 — Sími 17-7-71.
Sumarbústaður
Sumarbústaður í Vatnsendalandi við Elliðavatn er
til sölu. Tvö herbergi, geymsla og eldhús. Ræktuð
lóð. Góðar strætisvagnaferðir. — Upplýsingar £ síma
10641, sunnudag og mánudag kl. 2 til 6.
Tilkynning
Athygli innflytjenda skal hérmeð vakin á því, að
samkvæmt I. kafla auglýsingar viðskiptamálaráðu-
neytisins, sem birt var í 124. tölublaði Lögbirtinga-
blaðsins frá 31. des. 1960, þá fer önnur úthlutun
gjaldeyris- og/eða innflutningsleyfa árið 1961 fyrir
þeim innflutningskvótum, sem þar eru taldir, fram
í júnímápuði næstkomandi. Umsóknir um þá út-
hlutun skulu hafa borizt Landsbanka Islands eða
Útvegsbanka Islands fyrir 1. júní næstkomandi.
LANDSBANKI ÍSLANDS
ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS.