Morgunblaðið - 03.05.1961, Side 23
^ Miðvikudagur 4. maí 1961
MORGUNBLAÐIÐ
23
Welch
- ' Frh. af bls. 1
hann samúð með verkfalli
ykkar?
■ — - J a.
F — Þið hafði samt ekki get-
að fengið löndunarmennina í
lið með ykkur, svo að ekki
virðast þeir hafa mikla sam-
úð með verkfallinu.
— Tilfinningar þeirra geta
breytzt. Þeir vilja vinna,
meðan skipin koma, en nú
koma bráðum ekki fleiri
skip. Langflestir, já, mjög
mikill meirihluti Grimsby-
búa styður okkur, og ég tel
líklegt, að löndunarmennimir
snúist bráðlega á sveif með
okkur.
►
-fc- Fullviss um sigur
— Getið þið haldið lengi
út í verkfallinu, ef engin
önnur verkalýðsfélög standa
J með ykkur?
.— Já, við getum sannarlega
lialdið það lengi út. Það er áreið
anlegt. Ég vona samt auðvitað,
að eigendurnir fallist á kröfur
okkar innan skamms, Þið Is-
lendingar eruð nú búnir að
binda öll skip þeirra við
bryggjur. Það tókst ykkur!
Ég vil taka það fram, að að-
jgerðir okkar byggjast á megin-
reglu, sem gildir jafnt um önn-
tir lönd og Island. Ef eitthvert
annað land ætlar að færa fisk-
veiðilandhelgi sína út á sama
■hótt og þið hafið gert, þá setj-
tun við skip þess einnig í bann.
Við erum fullvissir um sigur
okkar gagnvart ykkur.
fh
★ Vill koma til Reykjavíkur
— Hvað finnst yður um síð-
ustu aflasölur okkar og hið háa
yerð, sem við fáum í Grimsby?
—. Þær stórspilla fyrir ykkur.
J>ið eigið eftir að iðrast þess-
ara söluferða; þær hafa gert
fólk mjög beizkt í garð íslend-
inga. Þær eru einungis til ills
eins.
Svo vitum við líka, að sumt
af þessum fiski er veiddur langt
innan takmarka sjálfra ykkar,
uppi í landsteinum. Það á eftir
að valda ykkur áhyggjum. Ykk-
ar skip hafa veitt 16 sjómílur
innan takmarkanna. Það sýnir,
hve langt þið hafið seilzt út á
úthafið, sameign allra þjóða.
Annars langar mig að koma
til Reykjavíkur, þegar ég á frí.
Það er bara verst, að þið skul-
ið ekki hafa neinn her til þess
að verja mig!
Útþenslupólitík
— Við erum svo friðsamir
á íslandi. Við myndum ekki
gera yður neitt mein, og þér
gætuð verið hér óáreittur eins
lengi og þér vilduð.
— Haldið þér það í alvöru?
Þið friðsamir? Af hverju rekið
þið þá útþenslupólitík? Annars
vonast ég til, að við getum orð-
ið vinir, þegar þetta mál er úr
sögunni. Mig langar afarmikið
til þess að koma til Islands (I
would love to come). Vonandi
eiga þjóðirnar eftir að vingast
aftur. Við skjótum ykkur ekki,
þótt verið geti, að okkur langi
til þess stundum, nei, við ger-
um það ekki samt.
En það er nú þannig, að ljón-
ið hefur skott, og hvað gerist,
þegar snúið er upp á það? Það
reiðist!
Síðan fékkst Welch ekki til að
segja meira.
- Engin ályktun
á fundinn. Danskir áheyrend-
ur á fundinum virtust flest-
allir vera á móti afhendingu
handritanna.
Þess má að lokum geta, að
engin ályktun var gerð á fund
inum.
★
Annars staðar í blaðinu í
dag er minnzt á fund Stud-
enterforeningen og þess getið,
hverjir voru ræðumenn.
— T shombe
Framhald af bls. 1.
Þar er svo kveðið á, að stjórn
samtakanna í Kongó hafi leyfi til
að beita vopnavaldi, ef nauðsyn
beri til; að allir erlendir hernað-
arsérfræðingar fari frá Kongó,
utan þeir, sem eru í þjónustu
Sameinuðu Þjóðanna og að gagn
ger rannsókn fari fram á lífiáti
Lumumba.
— ★ —
Þá hefur stjóm Belgíu sent
Sameinuðu Þjóðunum tilmæli
um að hlutast til um að látnir
verði lausir belgískir hernaðar-
sérfræðingar, sem komu með
Tshombe til Coquilhatville. Voru
þeir þá þegar teknir höndum af
hermönnum stjórnarinnar í Leo
poldville og fluttir þangað.
— íþróttir
Framhald af bls 22.
aðstöðu fyrir KFR. Helgi Þor-
Bteinsson og Guðmundur mjaka
stigatölunni upp í 8 fyrir ÍR en
Ölafur Thorlacius jafnar fyrir
KFR. Helgi bætir fjórum stigum
,við fyrir ÍR og var önnur karfan
Igerð með glæsilegu sveifluskoti,
, 6em Helgi virðist hafa einka-
leyfi á. ÍR hafði nú náð forskoti,
, eem óx hægt en ákveðið út leik-
inn. Hálfleiknum lauk með 10
Btiga forskoti ÍR 81:21.
Síðari hálfleikur var endurtekn
Ing á þeim fyrri. Guðmudur Þor
Steinsson varð að víkja af leik-
velli snemma 1 síðari hálfleik.
Hann hafði átt mjög góðan leik
*>g skorað 11 stig auk þess sem
bann gerði Sigurð Helgason ó-
I virkan. Helgi tók nú stöðu Guð-
tnundar á miðjunni og skilaði því
hlutverki glæsilega. Hann skor-
#ði 14 stig og þar af mörg með
fcínum óverjandi sveifluskotum..
Enda þótt hann meiddist á hægri
Ihendi þá virtist hann jafnvígur
á þá vinstri.
*• Hólmsteinn Sigurðsson lék nú
#inn sinn bezta leik í mótinu.
Hann skoraði 22 stig. Þorsteinn
Uallgrímsson skoraði aðeins 13
6tig, en hann gætti líika Einars
Matthíassonar og fylgdi honum
eins og skuggi, enda fékk Einar
ekki næði til að skora nema 9
6tig fyrir KFR.
■ Af liði KFR var Ingi Þorsteins
ison stigahæstur með 12 stig,
JCarl Jóhannsson var með 9 og
Ólafur Thorlacius með 7 stig.
■ ÍRingar mættu til leiks með
Ékveðna leikaðferð (weak-side
iplay), sem þeim hafði gefist vel
Igegn ÍKF fyrr á mótinu. Skipt-
Singar þeirra voru hraðar og vel
Ihugsaðar og hjálparvörn þeirra
itókst betur en sézt hefir hjá öðr-
um liðum. í heild er liðið vel
Jjjálfað og samæf-t og þegar því
tekst upp, er það tvímælalaust
isterkasta körfuknattleiksliðið,
eem við eigum í dag.
i Dómarar voru Viðar Hjartar-
*on og Ingi Gunnarsson og
dæmdu þeir ágætlega
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðar-
för móður minnar
SÆFINNU JÓNSDÓTTUR
Fyrir hönd aðstandenda.
Eiríkur Ásbjörnsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför mannsins míns og föður okkar
EINARS GUDMUNDSSONAR
Breiðagerði 19.
Snæbjörg Ólafsdóttir og börn.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim, sem sýndu okkur
samúð við andlát og jarðarför móður okkar
ÓLAFÍU MARGRÉTAR BJARNADÓTTUR
frá Súðavík
Börnin
Móðir mín og tengdamóðir,
guðrUn sæmundsdóttir
frá Vindheimum
andaðist að heimili sínu Túngötu 30, aðfaranótt sunnu-
dagsins 30. apríl. — Jarðarför hennar fer fram frá
Fríkirkjunni, föstudaginn. 5. maí, kl. 2 e.h. Jarðsett
verður í gamla kirkjugarðinum. — Blóm eru vinsam-
legast afbeðin, þeim sem vildu minnast hinnar látnu,
er bent á líknarstofnanir.
Guðrún Þórðardóttir, Eggert Kristjánsson
• HJÖRTUR JÓNSSON
andaðist 28. apríl sl. að heimili sínu Grenimel 10. —
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn
4. maí kl. 1,30 e.h.
Ása Jóhannsdóttir, Sigurjón Guðmundsson
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðar-
för,
ÓLAFS KLEMENSSONAR
Borgarnesi
Sérstaklega þökkum við öllum, sem gerðu allt til að
lina þjáningar hans, og öðrum, er styttu honum stundir
með heimsóknum í veikindum hans..
Hjörtfríður Kristjánsdóttir
Kristolina Ólafsdóttir, Jón Benediktsson,
Jón Ólafsson, Erna Guðmundsdóttir
Kristján Ólafsson, Agnar Ólafsson,
1
Litla dóttir okkar,
HJÖRDlS ARNARDÓTTIR
lézt á Ríkissjúkrahúsinu í KaupmEmnahöfn 1. mai
örn Sigurjónsson, Inga Guðmundsdóttir
Maðurinn minn og faðir
STEFÁN RUNÓLFSSON
frá Hólmi
andaðist að heimili okkar Hvassaleiti 153, 30. apríl.
Olga Bjarnadóttir, Gunnhildur Stefánsdóttir
Systir mín
KRISTJANA GESTSDÓTTIR
andaðist 18. apríi sL í Montreal, Kanada.
Kristján L. Gestsson
Móðir okkar
ANNA LOVfSA KOLBEINSDÓTTIR
Vesturgötu 41
andaðist að heimili sínu hinn 1. maí.
— Kolbeinn Finnsson,
Kristín Finnsdóttir,
Björgvin Finnsson.
Konan mín
RAGNHILDUR JÓNSDÓTTIR
andaðist að heimili okkar Bergstaðastræti 24 B, að
kvöldi hins L maí.
Einar Tómasson
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi, ^
CARL NIELSEN
andaðist í Landsspítalanum 28. þ.m.
Ingibjörg Nielsen, Hans Nielsen,
Bryndís Annasdóttir, böm og barnaböm.
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir.
ýp KRISTMANN JÓNSSON
Tangagötu 29, Isafirði
andaðist í LandsspítEilanum, föstudaginn 28. apríl.
Jarðað verður á ísEtfirði. — Kveðjuathöfn fer íréun
fimmtudaginn 4. mEÚ frá Dómkirkjunni kl. 2 e.h.
Björg Jónsdóttir, synir og tengdadætur.
Faðir minn
KRISTINN BRYNJÓLFSSON
Ráðagerði
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn
4. maí kl. 10,30. — Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Guðríður Kristinsdóttir
Móðir okkar og amma
STEINUNN ÖGMUNDSDÓTTIR
Þórarinsstöðum
lézt þann 28. apríl sl. — Útför hennar fer fram frá
Hrunakirkju, laugardaginn 6. maí n.k. kl. 1,00 e.h.
Jóhanna Guðmundsdóttir,
Ögmundur Guðmundsson
Steinunn Þorstoinsdóttir
Móðir mín,
ANNA SOFFlA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Raufarhöfn,
sem andaðist að Elliheimilinu Grund, 27. aprfl, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 4. mai
kl. 10,30 f.h. — Athöfninni verður útvarpað.
-■**" Sigurður Árnason.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináftu við andlát
og jEurðarför móður okkEir,
SOLVEIGAR HELGADÓTTUR
Sigurbjörg Sigurðardóttir, Valdimar Sigurðsson.
Okkar alúðarfyllstu þakkir færum við öllu frændfólki,
vinum og kunningjum, er sýndu okkur sEimúð og hlut-
tekningu við andlát og jarðarför föður okkar og tengda-
föður,
JÓNS ÞORSTEINSSONAR
söðlasmiðs
Haraldur Jónsson,
Þorsteinn L. Jónsson,
Júlía Matthíasdóttir.