Morgunblaðið - 11.05.1961, Blaðsíða 22
22
M ORXZV y BL AÐIÐ
Fimmtudagur 11. maí 1961
BAK vi« hús KFUM í
Þingholtunum skeði það á
uppstigningardag 1911 að 14
stráklingar komu saman og
stofnuðu knattspyrnufélag. —
Þeir höfðu meðferðis knött,
sem oltið hafði undan skrif-
borði Jóns Sigurðssonar for-
seta. í dag eru 50 ár frá
stofnun félagsins. Þess minn-
ast Valsmenn nú í félags-
heimili sínu að Hlíðarenda.
Félag strákanna 14 telur nú
á annað þúsund félaga og
það . á knattspyrnuvelli, fé-
lagsheimili og eitt glæsileg-
asta íþróttahús landsins. Allt
þetta hefur skeð á 50 árum
og það er einkennileg tilvilj-
un að í fyrsta sinn frá stofn-
uninni á uppstigningardag
1911 ber afmæli félagsins nú
upp á uppstigningardag.
Stofendur Vals voru þessir:
Loftur heitinn Guðmundsson,
ljósmyndari, sem var fyrsti for-
maður, Hallur Þorleifsson og Jó
hannes Sigurðsson. Þeir mynd-
uðu fyrstu stjóm. Hinir voru
Filippus Guðmundsson, Guðbjörn
Guðmundsson, Páll Sigurðsson,
Helgi Björnsson, Einar Einars-
son, Guðmundur Guðjónsson,
sem enn starfar mikið fyrir Val,
Kristján Gíslason og Björn Bene
diktsson.
k Fegurð aðalatriði
Sr. Friðrik Friðriksson var
ekki í fyrstu sérlega hrifinn af
uppátaæki strákanna með þenn-
an félagsskap. En hann hafði
engin kynni haft af íþróttum,
en við þau kynni sem hann öðl-
aðist þá, breyttist skoðun hans
til félagsins og var fljótt stoð
og aðalstyrkur þess. í ræðu er
hann hélt við vígslu fyrsta vall-
ar Valsstrákanna 1912, sagði
hann m.a.: „Látið aldrei kappið
bera fegurðina ofurliði". Sr.
Friðfik hafði séð fegurðina í
íþróttunum og hvatti til að
leita hennar í iðkun þeirra.
Saga sorgar og dugnaðar
Saga knattspymuvalla í eigu
Vals er saga sorgar og dugnað-
ar. Fimm sinnum ruddu Vals-
drengir og Valsmenn sér velli.
Jafnoft voru vellirnir teknir
undir annað — núverandi Mela-
völl, Loftskeytastöð o. fl.
Árið 1939 eignaðist Valur land
til frambúðar, þar sem var jörð-
in að Hlíðarenda við Öskjuhlíð.
Ólafur Sigurðsson var aðal-
hvatamaður að þeim kaupum.
Við staðinn bundu Valsmenn
miklar vonir. Draumaborgir
urðu til í hugum þeirra —
draumaborgir, sem nú eru marg
ar hverjar orðnar að veruleika.
Fyrir óbilandi dugnað margra
manna, einkum þó Úlfars Þórð-
arsonar, Ólafs Sigurðssonar, Sig
urðar Ólafssonar, Andreasar
Bergmanns, Jóhannesar Berg-
steinssonar, Hrólfs Benedikts-
sonar og Braga Kristjánssonar,
hefur Val tekizt að reisa að
Hlíðarenda glæsilegt íþróttahús
með búningsklefum, koma upp
vistlegu félagsheimili, og gera
ágætan grasvöll og malarvöll til
æfinga. Það or þrekvirki sem
unnið hefur verið að Hlíðar-
VALUR minnist 50 ára af-
mælis síns með knattspyrnu-
leik í dag, sem fram fer á
Melavellinum og hefst kl. 2
síðdegis. Er þetta „fyrsti
stórleikur“ ársins, en til leiks
við sig hafa Valsmenn fengið
Akurnesinga.
ár Skagamenn sterkir
Miklar sögur fara nú af
leikni Skagamanna. Sl. sunnu-
dag unnu þeir Keflvíkinga létt
og leikandi með 6 mörkum gegn
engu. Verður gaman að sjá þá
1 dag á Melavellinum í fyrsta
sinn á þessu ári.
enda á 20 órum af fáum mönn-
um fyrir félítið félag.
ic Blómaskeið
Fyrstu ár Vals voru engin sig-
urár. Júlíus Havsteen, síðar
sýslumaður, varð fyrsti þjálfari
félagsins og fyrsti kappleikur-
inn var háður 1914 gegn Fram.
Fram vann með 3:2 og þótti
byrjunin góð hjá Val, því Fram
var þá ósigrandi félag að kalla.
Fyrsti sigurinn vannst ekki fyrr
en 1919, en þann sigur unnu
Valsmenn í 2. aldursflokki.
Upphaflega takmörkuðu stofn-
endur félagsins félagatölu við
28. Var það gert til að allir
kæmust allaf að á æfingum og
alltaf væri nægilega margir í
tvö lið. En þetta háði vexti fé-
lagsins. Síðar var stofnuð yngri
deild og félagatala hefur æ far-
ið vaxandi síðan.
Eftir nokkur ár hnignunar
hófst félagið aftur. Það voru
aðallega tveir menn, Axel Gunn
arsson og Jón núverandi borgar-
læknir Sigurðsson, sem voru
Lið Skagamanna verður þann-
ig skipað:
Helgi Daníelsson, Bogi Sigurðs
son, Helgi Hannesson, Sveinn
Teitsson, Kristinn Gunnlaugs-
son, Jón Leósson, Jóhannes
Þórðarson, Skúli Hákonarson,
Ingvar Elísson, Helgi Björgvins-
son og Þórður Jónsson.
Valsmenn tjalda sínu bezta og
er lið Vals svona:
Gunnlaugur Hjálmarsson, Arni
Njálsson, Þorsteinn Friðþjófsson,
Hans Guðmundsson, Halldór
Halldórsson, Ormar Skeggjason,
Bergsteinn Magnússon, Elías Her
geirsson, Björgvin Daníelsson,
Hörður Felixson og Steingrímur
Dagbjartsson.
hvatamenn og driffjöður að því.
Þeir létu gera ný lög, samein-
uðu Valsmenn undir nýtt merki
og efldu framgang þess á marg-
an hótt.
Árið 1927 fór Valur sína
fyrstu stórferð — til Akureyrar.
Sú för varð upphaf mikils
blómaskeiðs hjá félaginu. Hún
sameinaði góða krafta og 1930
blómstraði félagslífið og þá
vann Valur í fyrsta sinn íslands
meistaratitilinn í knattspyrnu.
11 menn léku það sumar allt í
liðinu —• engir aukamenn. —
Þetta voru Jón Kristbjörnsson,
sem síðar lézt af slysförum í
kappleik, Pétur Kristinsson, Frí-
mann Helgason, Ólafur Sigurðs-
son, Halldór Árnason, Hrólfur
Benediktsson, Jón Eiríksson,
Björn Sigurðsson, Jóhannes
Bergsteinsson, Hólmgeir Jónsson
og Agnar Breiðfjörð. Allir þess-
ir menn starfa enn meira og
minna fyrir Val. Þeir unnu ís-
landsmeistaratitilinn margoft eft
ir þetta og mynduðu eitt fræg-
asta knattspyrnulið, sem knatt-
spyrnusaga okkar geymir sögur
um.
Alls hefur Valur 12 sinnum
hlotið íslandsmeistaratign og 13
sinnum Reykjavíkurmeistaratign.
★ Utanfarir
Árið 1931 var farin fyrsta
utanförin. Var farið til Danmerk
ur undir stjórn sr. Friðriks. —
Tókst ferðin vel og varð lyfti-
stöng. Síðan hefur Valur farið
margar utanferðir með stærri
og minni hópa. Félagið hefur og
tekið á móti fjölmörgum erlend-
um knattspyrnuliðum og hand-
knattleiksmönnum og yrði of
langt upp að telja hér.
Einn frægasti leikur Vals var
1935 gegn þýzku liði er hingað
fcom. Jafntefli varð og tókst
Þjóðverjum að try.ggja það á síð-
ustu sekúndum leiksins. Sá sem
skoraði það úrslitamark fyrir
Þjóðverja varð svo hrifinn og
hrærður að hann hrópaði svo
heyra mátti víða um völlinn er
knötturinn lá í netinu: Heil Hitl-
er.
ÍC Deiidaskipting
Fyrir tveimur árum var féíag-
inu skipt í deildir, knattspymu-
deild, handknattleiksdeild og
skíðadeild. Starfar hver um sig
sjálfstætt að öllu leyti nema að
stærri fjármálalegum atriðum o.
þ. h. Aðalstjórn fer með sam-
eiginleg mál félagsins og yfir-
stjórn deilda. Með í ráðinu hefur
stjórnin fulltrúaráð sem skipað
er fjölmörgum eldri Valsmönn-
um og hefur það mjög eflt anda
félagsins og styrkt það til stór-
átaka.
Handknattleiksmenn félagsins
hóifa verið mjög sigursælir eink-
um áður fyrr. Hafa Valsmenn
unnið íslandsmeistaratitil í karla
flokki oftar en nokurt annað fé-
lag eða 8 sinnum. Skíðamenn
hafa lítið keppt en þeir hafa
komið upp gæsilegum skíðaskála
í Sleggjubeinsdal og þar hefur
félagslíf Valsmanna styrkzt
mjög
•k Albert frægastur
í viðtali sem Sveinn Zoega for-
maður Vals átti við fréttamenn
í fyrradag skýrði hann að ekki
væri hægt að minnast svo á sögu
Vals að ekki væri mirmst á Al-
bert Guðmundsson sem alizt
hefði upp í Val en orðið frægast-
ur ísl. knattspymumanna og um
skeið einn frægasti knattspyrnu-
maður Evrópu. Væru Valsmenn
stoltir af að einn af þeirra drengj
um hefði hlotið slíka frægð.
ic Erfiður rekstur
Sveinn Zoega sagði að rekstur
á félagi eins og Valur er væri
mjög erfiður. Lágmarkskostnað-
ur við rekstur væri á ári hverju
200 þúsund krónur. Þessa fjár
verður að afla með einhverjum
ráðum. Við þökkum bæ og ríki
veittan stuðning, en við teljum
að við spörum bæ og ríki enn
meira fé en styrkurinn nemur;
Spörum það á því að ella þyrftu
þessir aðiljar að leggja mun
meira fram til tómstundastarf-
semi æskunnar. íþróttafélögin
eru uppeldisstöðvar fyrir hið op-
inbera. Þannig ber að líta á þat
og eftir því ber að styrkja þau
til nytsamra starfa.
k Afmælisblað
Valsmenn gefa nú út myndar-
legt afmælisblað, sem er 140 síð-
ur. Er Einar Björnsson ritstjóri
og aðalskrifari. Hann hefur með
miklum sóma haldið úti Vals-
blaði síðan 1958 Val til mikillar.
sæmdar. — A. St.
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ Val-
ur tekur á móti gestum í dag í
félagsheimilinu að Hlíðarenda
kl. 3,30—5,30 e. h. í tilefni af 50
ára afmæli félagsins, sem er í
dag. —
Landsli
í æfinga-
leik
í FYRRAKVÖLD var efnt til
æfingar að forgöngu landsliðs-
nefndar. Hafði hún valið saman
landsliðsmenn og fékk Hafnfirð-
inga til að leika gegn þeim og
styrktu þeir lið sitt lítilsháttar.
Svo fór að landsliðið sigraðii
með 9 mörkum gegn 3.
í landsliðinu voru Helgi Daní-
elsson Akranesi, Hreiðar Ár-
sælsson KR Helgi Jónsson KR,
Sveinn Teitsson, Helgi Hannes-
son IA og Garðar Ámason KR,
örn Steinsson KR, Ingvar Elís-
son IA, Þórólfur Beck KR, Ellert
Schram KR og Helgi Björgvins-
son IA. ^
Boðaðir höfðu verið Hörður
Felixson, Rúnar Guðmundsson,
Kristinn Gunnlaugsson og Þórð-
ur Jónsson, en þeir voru allir
forfallaðir.
Moldrok var mikið og völlur-
inn slæmur. Ekki virtist þetta
landslið ná saman sem skyldi.
Skíðamót
ÁFORMAÐ er að 5. Skarðsmótið
verði haldið á Siglufirði um hvíta
sunnuna. Þar er keppt í stórsvigi
karla og kvenna og gert ráð fyr-
ir mjög mikilli þátttöku víðs
vegar af landinu, enda hafa vor-
mót í vetraríþróttum verið afar
vinsæl. Ágætur skíðasnjór er þar
sem mótið verður haldið nálægt
Sigluf jarðarskarði, en þar er sér-
lega fagurt og heppilegt lands-
lag.
í gær var hafinn snjóruðning-
ur af Siglufjarðarskarði og búist
við að samband verði við bæinn
á hvítasunnunni.
Hary
hættur
ÞÝZKI spretthlauparinn J
heimsfrægi Armin Hary sem I
sigraði í 100 m hlaupi á Ol- £
ympíuleikunum hefur lýst því t
yfir að hann ætli að hætta
keppni í hlaupum.
Hary meiddist illa á hné í
bílslysi í nóvembermánuði sl.
Lætur hann fylgja yfirlýsingu
sinni, að meiðsli séu megin-
ástæðan fyrir þeirri ákvörðun
hans að hætta keppni.
Hary, sem er 23 ára gamall,
var dæmdur frá keppni í 4
mánuði í janúar sl. vegna þess
að hann var sekur fundinn /
um að hafa hrotið áhuga-1
mannareglurnar. Það keppnisfi
bann rann út sl. sunnudag. §
Valsmenn mæta
Akurnesingum
Afmælisleikur á Melavellinum i dag