Morgunblaðið - 11.05.1961, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 11. maí 1961
MORGVNBr.AÐIÐ
23
— Vertibin
Framh. af bls. 1.
Óskar Sigurðsson. Alls öfluðu
bátarnir 948 tonn og var afli
frystur og saltaður. Bátarnir
hættu allir um síðustu mánaða-
mót. Búast þeir nú á humarveið-
ar.
Eyrarbakkí
Þar voru gerðir út 3 bátar.
Hæstur var Helgi með 237 tonn,
formaður Sverrir Bjarnfmnsson.
Alls öfluðu bátarnir 650 tonn.
Allir eru þeir hættir og búast á
humarveiðar. Þetta telst sæmi-
legur afli miðað við róðrafjölda
Og fiskleysið, sem víðast hefir
verið.
Þorlákshöfn
í Þorlákshöfn var hæsti bát-
urinn Þorlákur II. með 572 tonn,
formaður Karl Karlsson. Annar
var Friðrik Sigurðsson með 567
tonn og þriðji Páll Jónsson með
468 tonn. Alls öfluðu 9 bátar, sem
gerðir voru út frá Þorlákshöfn
3436 tonn. Þetta er aðeins um
60% af aflamagninu, sem á land
barst í fyrra, en þá var Friðrik
Sigurðsson hæstur með 1067
tonn. Línuafli var góður fyrri
hluta febrúar, en ógæftir voru
frá miðjum febrúar til miðs
marz. f net var reitingsafli frá
23. marz til miðs apríl.
Sandgerði
Þar eru bátar ekki hættir ver-
tíð enn og er búist við að hún
standi hjá um helming bátanna
út þessa viku. Hæsti báturinn er
Hamar með 970 tonn í 82 róðrum,
formaður Þórhallur Gíslason.
Annar er Smári með 824 tonn.
iVertíð er hér ekki talin verri en
í fyrra miðað við róðrafjölda og
hefir fram að þessu verið hærri
meðalafli í róðri en þá var. í
fyrra var hæsti bátur með 1056
tonn í 95 róðrum.
Keflavík
Bátar eru enn ekki hættir róðr
um þar. En búist er við að þeir
hætti flestir, sem enn róa um
næstu helgi. Ólafur Magnússon
er hæstur með 1034 tonn í 58
róðrum, formaður Óskar Ingi-
hersson. Sami bátur veiddi auk
þess 4143 tunnur síldar, er hann
hætti þorskveiðum um þriggja
vikna skeið. Vertíð er í Kefla-
vík ekki lakari en að vanda ef
miðað er við síldaraflann, sem
þar hefir bórizt á land. Ef síldin
er reiknuð með er afli sízt minni
á bát en var í fyrra. Þá var hæsti
toátur með 1070 tonn, en þá var
heldur engin síldveiði.
Hafnarfjörður
Enda þótt lokadagurinn sé í
dag munu bátarnir halda áfram
veiðum á meðan nokkuð fæst,
enda veitir ekki af eftir lélega
vertíð hjá vel flestum. Að vísu
hafa nokkrir bátar aflað ágæt-
lega, en margir mjög lítið. Núna
eíðustu daga hefir verið reitings-
afli, bátarnir verið með þetta
10, 20 og 30 tonn eftir tvær næt-
ur.
Þegar þetta er ritað, hefir vél-
toáturinn Héðinn frá Húsavík,
cem lagt hefur upp hjá Bæjarút-
gerðinni, fengið mestan afla eða
um 1060 t. (óslægt). Skipstjóri
Cg eigandi er Maríus Héðinsson.
iÞá er Fákur næstur með um
1030 tonn, skipstjóri Emil Þórð-
arson frá Keflavík. Af níu bátum,
sem gerðir hafa verið út hjá Jóni
Gíslasyni, er Fróðaklettur hæst-
ur með 723 tonn í 61 róðri,
Fjarðarklettur 697 í 61 róðri (báð
ir lögðu upp í Grindavík) og
Fram, sem lagði upp í Keflavík,
hefir nú fengið 668 tonn í 70 róðr
um. — Bátar, sem lagt hafa upp
fisk hér í vetur, munu vera um
20 talsins.
Á vertíðinni 'í fyrra hafði Haf-
ðrnin mestan afla eða rúmlega
1100 lestir og var vertiðin þá með
betra móti.
Reykjavík
í Reykjavík hafa verið gerðir
út á þorskveiðar um 40 bátar í
vetur, en allmargir á síld. Minni
bátarnir eru að hætta um þessar
mundir. Afli hefir verið tregur á
grunnmiðum Faxaflóa. Þetta eru
allmiklu fleiri bátar en gerðir
voru út í fyrra. Hæsti báturinn
er Helga með 1012 tonn, formað-
ur Ármann Friðriksson.
Akranes
Bátar eru ekki hættir þar enn
nema 4. 4 eru á síld, 20 á netum
og 2 á línu. Aflahæsti báturinn
I er Sigurður AK með 658 tonn,
I formaður Einar Árnason. Hefir
hann verið aflahæstur undanfarn
ar tvær vertíðir. Heildarafli
Akranesbáta var um síðustu
mánaðamót 40% lakari en í
fyrra.
llellissandur
Aflabrögð eru þar rýrari en var
í fyrra. Þá .var aflahæsti bátur-
inn með 1200 tonn. Nú er Skarðs
vík hæst með 905 tonn, formaður
Sigurður Kristjánsson, næstur er
Arnkell með 750 tonn. Flestir eru
bátarnir nú hættir veiðum.
Ólafsvík
Þar voru flestir bátar á sjó í
gær enda ekki búist við að al-
mennt verði hætt fyrr en um
næstu helgi. Efstir og jafnir eru
nú Baldvin Þorvaldsson, formað-
ur Tryggvi Jónsson og Valafell,
formaður Jónas Guðmundsson
með 800 tonn hvor. f fyrra var
hæsti báturinn með 1270 tonn
en þá var vertíðin óvenjugóð hjá
Ólafsvíkurbátum. Gæftir hafa
verið sæmilegar en fiskur minni
en áður.
Grundarf j örður
Þar voru gerðir út 8 bátar í
vetur. Hæstir eru Farsæll, for-
maður Sigurjón Halldórsson og
Runólfur, formaður Guðmundur
Runólfssön báðir með 600 tonn.
Bátar eru þó með allt niður fyrir
400 tonna afla. Vertíð er mun .
verri nú en var 1959 og talsvert e
lakari en í fyrra, en þá var
hæsti bátur með 760 tonn. Marz-
mánuður var erfiðastur sakir
gæftaleysis.
Stykkishólmur
Þaðan voru gerðir út 6 bátar
Og öfluðu þeir alls tæp 3000 tonn,
Víðir var hæstur með 720 tonn,
förmaður Njáll Gunnarsson. Afli
telst ekki lakari en í fyrra, ver-
tíðin er styttri en telst þó sæmi-
leg.
Patreksfj örður
Þar hætta bátar ekki veiðum
fyrr en um næstu helgi. Gerðir
voru út 6 bátar í vetur og telst
vertíð ágæt. Þar er afla-
hæsti báturinn Dorfi, förmaður
Finnbogi Magnússon, sem veitt
hefir bæði á línu og í net. Er afli
hans orðinn 1040 tonn. Var hann
á sjó í gær.
Langhæsti línubáturinn á Pat-
reksfirði er Andri. Hefir hann
fengið 806 tonn, formaður er
Jón Magnússön, bróðir Finnboga.
- NATO
Framhald af bls. 1.
framkoma ríkisstjórnar Sovét-
ríkjanna hefur skapað nýja erf-
iðleika í þessu máli. Lýsa ráð-
herrarnir þeirri von sinni að
Rússar taki fljótlega þá stefnu
að koma á samningum um bann
við kjarnorkutilraunum en það
sé fyrsta sporið í áttina til af-
vopnunar. Eitt helzta vandamál
vorra daga er aðstoðin við van-
þróuð ríki og hvernig á að bæta
lífskjör íbúanna. Þetta er verk-
efni, sem ráðherrarnir lögðu
mikla áherzlu á. Þeir lýstu
ánægju sinni yfir því hve fram-
lag hins frjálsa heims hefur ver-
ið mikið og hétu því að auka
það enn.
Bingó
Bingó
VERÐUR í SJÁLFSTÆÐISHÚSINU
föstudaginn 12. maí kl. 8,00.
Meðal vinninga:
12 manna matarstell — Málverk
Ávísun á permanent
og margir fleirri góðir vinningar-
Sætamiðar verða afhentir í Sjálfstæðishúsinu
fimmtudaginn 11. marz kl. 9—10 s.d. og verða borð
tekin frá á sama tíma.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Ókeypis aðgangur
Starfsmannafélag mjólkursamsölunnar
/\0MigAmsi/eguR 50\
ím ■> Nýff
Kjólaefni ensk
glæsilegir litir
Amerisk felpukjólaefni
faiieg og ódýr
Vinnufataefni
Skyrtuefni
fjölbreytt úrval
Strigaskór
mjög ódýrír
ILÆKJARBIÍÐI,
• . SIMI 32555 . # •
Eiginkona mín og móðir okkar,
ANNA PÁLSDÓTTIB
Bræðratungu 37, Kópavogi,
andaðist að St. Jósefsspítala aðfaranótt 10. mai. Jarðar-
förin auglýst síðar.
iHelgi Ólafsson og börnin.
Elskulegur eiginmaður minn
JÖN EINAR JÓNSSON
sjómaður, Hátúni 4, Reykjavík,
andaðist 9. þ.m. á Landsspítalanum í Reykjavík.
Bósa Bjarnadóttir.
Jarðarför móður minnar
RAGNHEBDAR GUÐMUNDSDÓTTUR
sem andaðist í sjúkrahúsi Akraness laugard, 6. maí fer
fram frá Innra-Hólmskirkju laugard. 13. mai kl. 2.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu
minnast hennar er bent á sjúkrahús Akraness.
Bílferð verður frá Hvítanesi.
Guðmundur Jónsson, Innra-Hólmi.
Jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa
VILHJÁLMS PÁLSSONAR
Bakkakoti,
fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 12. maí kL
10,30 f.h. — Jarðarförinni verður útvarpað.
Páll Vilhjálmsson, Árni Vilhjálmsson, *
tengdadóttir og bamabörn.
Jarðarför móður okkar
GUÐNÍJAR KRISTJÁNSDÓTTUR
frá Skammbeinsstöðum,
fer fram í Marteinstungu laugardaginn 13. maí kl. 3 e.h.
Kveðjuathöfn verður í Fossvogskirkju sama dag kl.
10 f.h. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Börnin
Konan mín
SIGURBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði n.k.
föstudag kl. 2 s.d.
Fyrir mína hönd, barna okkar, foreldra og systkina.
Hjálmar Eyjólfsson,
Tjörn, Herjólfsgötu, Hafnarfirði.
Jarðarför móður okkar
JÓDlSAR ÁMUNDADÓTTUR
fer fram frá Fríkirkjunni föstudaginn 12. þ.m. kl. 2 e.h.
Börain.
Útför mannsins míns,
ÓLAFS VIGFÚSSONAR
Laugavegi 67,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. maí kl. 1,30
eftir hádegi.
Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda.
Jakobina Bjaraadóttir.
I
Þökkum innilega auðsýnda vináttu og samúð við
andlát og jarðarför litlu dóttur okkar
HPÖRDÍSAR ARNARDÓTTUR
Öra Sigurjónsson, Inga Guðmundsdóttir.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát
og jarðarför
JÓNS VlDALÍN HINRIKSSONAR
Hlíðarbraut 17, Hafnarfirði.
Fyrir hönd vandamanna.
Guðrún H. Einarsdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andláf
og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu
ÖNNU LOVlSU KOLBEINSDÖTTUR
Vesturgötu 41.
Kristín Finnsdóttir,
Kolbeinn Finnsson, Laufey Ottadóttir,
Björgvin Finnsson, Kristín Ólafsdóttir,
og barnabörn.
Þakka innilega auðsýnda vináttu og samúð við andlát
og jarðarför
ALBERTS HELGASONAR
Guðbjörg Eiríksdóttir.