Morgunblaðið - 11.05.1961, Blaðsíða 24
Próf — Einkunnir
Sjá bls. lí
IÞROTTIR
Sjá bls. 22.
104. tbl. — Fimmtudagur 11. maí 1961
78 farast í flugslysi
Paris, 10. maí. (Reuter)
FRÖNSK farþegaflugvél með
69 farþega og 9 manna áhöfn
hrapaði í dag til jarðar á
Sahara-eyðimörkinni, og fór-
ust allir, sem í vélinni voru.
Flugvélin var af Superstar-
liner-gerð, var eign franska
flugfélagsins Air France.
Flugvélin var á leið frá
Brazzaville, höfuðborg Kongó
Tekur áfram
við síld
í FYRRINÓTT tók Síldar- og
fiskimjölsverksmiðjan á Kletti á
móti liðlega 100 lestum af síld
og mun halda áfram að taka
síld til vinnslu eftir því sem
hægt verður. Tveir togarar eru
væntanlegir með karfa, þorskafl
inn hefur og verið það mikill,
að verksmiðjan hefur vart haft
undan, enda þótt hún geti unn-
ið úr sem svarar 400 lestum af
síld á sólarhring.
Brátt hafizt
handa í Eyjum
VESTMANNAEYJUM 10. maí. —
Nú er ákveðið að hefja fram-
kvaémdir mjög bráðlega við
byggingu nýrrar flugbrautar í
Eyjum. Flugmálaráðherra, Ing-
ólfur Jónsson, og flugmálastjóri
ásamt öðrum forráðamönnum
flugmálanna komu hingað fyrir
nokkrum dögum til þess að
kynna sér aðstæður, en athugan-
ir hafa staðið um langt skeið.
Flugmenn Flugfélagsins hafa og
gert aðflugsæfingar með tillití til
nýju brautarinnar. Er þess að
vænta, að flugsamgöngur við
Eyjar batni til muna við tilkomu
annarrar brautar.
lýðveldisins, til Parísar. — Hún
kom við í Bangui í Mið-Afríku-
lýðveldinu og í Fort Lamy í
Chad, en eftir það fréttist ekk-
ert af henni. Hún átti að koma
til Marseille í Frakklandi
snemma í morgun. Þegar vélin
kom ekki fram á réttum tíma
var hafin leit að henni úr lofti
og tóku bæði herflugvélar og
farþegavélar þátt í henni. Flak
farþegavélarinnar fannst loks í
Suðvestur-Alsír skammt frá
borginni Edjeleþ. Eins og fyrr
er. sagt fórust allir, sem í vél-
inni voru ,78 manns.
ÞETTA eru álftahjónin við
Eiði á Seltjarnarnesi. Birgir
Kjaran tók myndina af þeim
í gær og er ekki annað að sjá
en vel fari um þau hjónin,
enda er sumarið framundan
og engin ástæða til að vera
svartsýnn.
M
Ekki samkomulag um ver
á karfanum til Rússa
Heimsmarkaðsverð á karfa hækkaði
um 30-40% síðustu 5 árin
Flótta-
maíSurinn
farinn
MORGUNBLA»IÐ hefur afl-
að sér upplýsinga um, að aust-
ur-þýzki flóttamaðurinn, Pet-
er Klatt, sem í miðjum desem-
bermánuði síðastliðnum baðst
hér hælis sem pólitískur flótta
maður hafi farið með austur-
þýzkum togara.
Klatt hefur að undanförnu
starfað hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur, sem 2. mat-
sveinn á togaranum Þorsteini
Ingólfssyni og getið sér ágætt
orð þar um borð, að því er
Morgunblaðið hefur fregnaö.
Samt átti hann í talsverðum
erfiðleikum hér heima, enda
ekki auðvelt að koma í ókunn
ugt umhverfi ungur pólitískuc
flóttamaður.
Morgunblaðinu er ókunnugt
um ástæður fyrir því, að Klatt
hverfur nú aftur heim til Aust
ur-Þýzkalands, en þess má að
lokum geta, að í samtali við
hann, sem birtist hér í blaðinvi
16. desember sl. skýrir hann
frá því, að hann eigi í Austur-
Þýzkalandi foreldra, bróður
og tvær systur.
Peter Klatt er 21 árs að
aldri.
A Ð undanförnu hafa farið
fram viðræður milli íslenzkra
stjórnarvalda og rússneskra
um áframhaldandi sölu hrað-
frysts karfa til Rússlands. —
Samningar hafa ekki tekizt.
• Allt frá því að íslendingar
hófu að selja Rússum karfa hefur
verðið verið svo til óbreytt. Þessi
viðskipti hófust 1953 og fyrstu
árin var verðið óbreytt, 118 ster-
lingspund fyrir tonnið. Fyrir
skemmstu náðist samkomulag
um hækkun, upp í 125 pund —
og á síðasta ári varð smáhækk-
un, upp í 128 pund.
Ekkí er gott að gera saman-
burð á karfaútflutningnum til
Rússlands og til Bandaríkjanna.
Rússlandsfiskurinn er í stórum
pökkum, en til Bandaríkjanna er
Landbún-
aZardeilan
leyst
í DAG lauk í Danmörku
tveggja daga landbúnaðar-
verkfalli. Samningar náð-
ust eftir 10 stunda samn-
ingafund þar sem ríkis-
stjórnin féllst á að veita
hændum um 460 milljónir
danskra króna í skattafrá-
drætti og uppbótum (2.532
millj. ísl. kr.)
Kaupmannanhöfn, 10. maí
(Reuter)
Verkfallið náði til 11.000
starfsmanna sláturhúsa Og
5.000 landbúnaðarverka
manna. Varð það til þess að
öll deifing stöðvaðist á land-
búnaðarvörum og verð á kjöti
hækkaði um 50%.
Á morgun (fimmtudag)
hefst dreifing mjólkur að
nýju, en vinna við sláturhús-
in verður komin í eðlilegt
horf á mánudag. Tilboð rík-
isstjórnarinnar verður rætt í
danska þinginu á föstudag. ^
fiskurinn seldur í smápökkum og
krefst sú framleiðsla meiri
vinnu.
Hins vegar hefur karfaverðið
hækkað um 30—40% í V.-Evrópu
og Bandaríkjunum síðustu fimm
árin, eða á sama tíma og útflutn
ingsverðið til Rússlands hefur
nær staðið í stað.
íslenzki fiskiðnaðurinn telur
sig nú þurfa að fá söluverðið á
karfanum til Rússlands hækkað
verulega svo að hægt sé að gera
skipin út á þessar veiðar. Er þá
haft til hliðsjónar verðfall það,
sem orðið hefur á fiskimjöli á
heimsmarkaðnum, því um 75%
af karfanum, sem á land berst,
fer til mjölvinnslu. Nýting karf-
ans er töluvert lakari en nýt-
ing annarra fisktegunda og kem-
ur verðlækkun á fiskimjöli því
ver við karfavinnsluna, en t.d.
þorskvinnslu, því aðeins um 60%
þorskaflans fara til mjölvinnslu
— að meðaltali.
Jolntefli eftir
122 leiki
TUTTUGASTA skákin i ein-
vígi þeirra Botnvinniks ©g
Tals var enn tefld áfram í
Moskvu í gærkvöldi. Úrslit
urðu þau, að Tal varð að
sætta sig við jafntefli eftir 122
leiki. Staðan í einvíginu er
þá 12 gegn 8 Botnvinnik í vil,
og þarf hann því aðeins eitt
jafntefli í viðbót.
21. skákin verður væntan-
Iega tefld á morgun og hefir
þá Botnvinnik hvítt.
Þess má geta, að eftir 20
skákir í fyrra var staðan 12
gegn 8 Tal í hag og tryggði
hann sér þá titilinn heims-
meistari í skák með jafntefli
í 21. skákinni.
Ljúka þjálfun
f FYRRINÓTT fór Cloudmaster
Flugfélags íslands í fjórðu ferð-
ina til Meistaravíkur. Þetta var
fyrsta ferðin, sem vélin var und-
ir íslenzkri stjórn, því sænskur
flugstjóri hefur að undanförnu
flogið með Flugfélagsmönnum.
Nú hafa fjórir flugmenn Flug-
félagsins lokið þjálfun á Cloud-
master-vélinni.
17 stig á Húsavík,
en vegir ófærii
HÚSAVÍK, 10. maí. —. I dag er
17 stiga hiti á Húsavík og finnst
mönnum sem sumarið sé kom-
ið. Ekkert hefur snjóað síðustu
þrjár vikurnar, en hitinn hefur
samt sjaldnast komizt upp fyrir
5 stig þar til í dag. Snjór er
töluverður í fjallinu og jörð
ekki farin að grænka. Vegir eru
mjög blautir og ekki akfærir
og það, sem af er mánaðarins,
hefur áætlunarvagninn ekki ek-
ið á milli Húsavíkur og Akur-
eyrar. Hins vegar hefur mikið
verið flogið hingað, enda er
flugvöllurinn með bezta móti.
Trúnaðarráð
Óðins
FUNDUR verður haldinn i trún-
aðarmannaráði Óðins í kvöld kl.
8,30 í Valhöll við Suðurgötu.
r
Arnessýsla
AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs
Sjálfstæðismanna í Árnessýslu,
verður föstudaginn 12. maí n.k.
í Iðnaðarmannahúsinu á Selfossi
og hefst kl. 21.
Aiuk venjulegra aðalfundar-
starfa verða kosnir fulltrúar á
Landsfund S já I f stæöisflokksins
og eru Sjálfstæðismenn hvattir
til að fjölmenna á fundinum.