Morgunblaðið - 18.05.1961, Qupperneq 17
Fimmtudagur 18. maí 1961
MORGVNBLAÐIÐ
17
Með brotinn skrúfuöxul
við ísröndina
\ \
\ Ægir kom skipiíiu til hjálpar^
| og dró það til Reykjavíkur j
VARÐSKIPIÐ Ægir
með færeyska línuveiðarann
Skarvanes í togi til Reykja-
víkur síðdegis í gær. Skrúfu-
öxull línuveiðarans brotnaði
að kvöldi sl. fimmtudags
undan suðausturströnd Græn
lands og kom varðskipið
Ægir, sem var í rannsókn-
arleiðangri, hinu nauðstadda
skipi til hjálpar og dró það
til Reykjavíkur.
Blaðið hafði í gær tal
af Jóni Jónssyni, skip-
herra á Ægi og Hans Diderö,
skipstjóra á Skarvanesi, og fékk
ihjá þeim upplýsingar um óhapp-
ið.
Skarvanes fór frá Færeyjum
6. maí til veiða við Grænland,
en um kvöldið þann 11. maí
brotnaði skrúfuöxull skipsins
i>ar sem það var statt 34 sjómíl-
ur austur af Prins Kristjáns-
sundi. Hafði skipið þá samband
við loftskeytastöð í landi og bað
um að leitað yrði eftir aðstoð.
Var skipið við ísröndina, en veð-
ur var ágætt.
Ægi barst skeyti um þennan at-
burð laust eftir miðnætti og hélt
hann línuveiðaranum til hjálpar
en togararnir Pétur Halldórssori
og Apríi svo og norska hafrann-
sóknaskipið Johan Hjort voru
stödd á svipuðum slóðum og
kom sigldu þau einnig í áttina til
Skarvaness. Fór færeyski skip-
stjórinn þess á leit við Johan
Hjort að skip hans yrði dregið
til Færeyingahafnar. í>ví var þó
eigi við komið en þess í stað
buðust Norðmennimir til að taka
Skarvanes í tog til Reykjavíkur.
Var því boði hafnað í bili og
hélt Johan Hjort för sinni áfram
til íslands.
Þegar togarinn Apríl kom á
vettvang daginn eftir hafði línu-
veiðarann rekið inn í ísinn og
dró Apríl hann aftur út á auðan
sjó. Ægir kom á staðinn skömmu
seinna og var Skarvanes þá enn
komið inn í ísrekið, en auðveld-
lega gekk að koma taug á milli
skipanna og var síðan haldið tii
Reykjavíkur. Sögðu færeysku
sjómennirnir að skip þeirra hafi
verið í hættu, þar sem mikil
hreyfing var á ísnum sunnan og
norðan við skipið. Ferðin hingað
gekk vel, veður var gott, alla
leiðina, en í fyrrinótt var dimm
þoka vestur af landi og sá ekki
á milli skipanna. Skipherrann á
Ægi sagði, að rannsóknirnar
hefðu nokkurn veginn getað far-
Fimciu egg við
Jókuliungu
Akranesi, 17. maí.
‘'fVF.IR menn, Akurnesingur og
Vestmannaeyingur, fóru í Akra-
fjall í gær. Tíndu þeir í félagi
150 veiðibjölluegg. Þegar ílát
þraut, smeygði annar sér úr peys
unni, batt fyrir hálsmálið og
fyllti hana eggjum. Ekkert
fundu þeir á norðurf jallinu, en
er beir komu upp á suðurfjallið,
suður af Jókubungu (hæð á
miðju fjallinu) fanst eggjanám-
an. Þoka var á. — Oddur.
— Dennison
Framh. af bls. 1
fjarri, að hægt væri að kalla það
r.jMsnaflug.
Dennisson minntl á það, að
Bandaríkjamenn mundu ekkert
aðhafast í sambandi við varnar-
málin hér án samþykkis íslend-
inga. íslendingar og Bandaríkja-
menn væru bandamenn og allar
varnarráðstafanir væru gerðar
samkvæmt samkomulagi beggja
aðila.
Varnirnar mikilvægastar
Og hann tók það fram, að At-
lancshafsbandalagið væri ekki
aðeins hernaðarbandalag, því
samvinna bandalagsþjóðanna
væri margvísleg. Hins vegar
væru varnirnar mikilvægastar,
bandalagið hefði með styrk sín-
um komið í veg fyrir átök. En
það er ekki friðvænlegt í heim-
inum, sagði aðmírállinn. Það er
að vísu ekki barizt, en friðnum
er ógnað og eina trygging okkar
eru styrk varnarsamtök
Jóhannes Nordal
form. Hagfræði-
félags Islands
MIÐVIKUDAGINN 10. maí sl.
var haldinn aðalfundur Hagfræði
félags fslands. Jónas H. Haralz,
sem verið hefur formaður í tvö
ár, baðst undan endurkosningu. í
stjórn voru kjörnir: Jóhannes
Nordal, formaður, Valdimar
Kristinsson, varaformaður og
meðstjórnendur Þeir Bjarni
Bragi Jónsson, Einar Benedikts-
son og Ragnar Borg.
Að loknum aðalfundarstörfum
flutti Jóhannes Nordal framsögu-
erindi um þjóðhagslegt gildi ís-
lenzks iðnaðar.
ið fram samkvæmt áætlun þrátt
fyrir þessi atvik, enda voru at-
huganir gerðar á 25 stöðum á
heimleiðinni. Áhöfnin á Skarva-
nesi, sem er sautján menn, hafði
gert ráð fyrir að veiða í salt við
Grænland fram í júlílok og mun
skipið sigla aftur vestur þegar
viðgerð hefur farið fram.
Ægir fór í rannsóknarleiðang-
ur sinn 31. apríl og hafa fiski-
fræðingarnir rannsakað karfa-
útbreiðslu við Grænland. Hefur
veðurfar verið hagstætt og
starfið gengið vel. Norskir og
þýzkir fiskifræðingar hafa einnig
tekið þátt í þessum athugunum
á rannsóknarskipunum J ohan
Hjort og Anton Dohrn, og munu
íslenzkir, norskir og þýzkir fiski-
fræðingar bera saman bækur sín
ar hér í Reykjavík næstu daga.
Er Anton Dohrn væntanlegur
hingað í dag.
Frá því var skýrt í frétt í blaðinu í gær að tveir ungir
menn hefðu slasazt er bíll valt skammt utan við Akureyri
með þremur mönnum. Mynd þessi sýnir bifreiðina á slys-
staðnum. (Ljósm.: St. E. Sig.)
Árásír kommúnista stoína friöin-
um í Laos í voða,
— segir Dean Rusk
Genf, 17. maí. —• (Reuter) —
FJÓRTÁN ríkja ráðstefn-
unni um framtíð Laos var
haldið áfram í Genf í dag.
Tóku þar meðal annarra til
máls Dean Rusk utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna og
Andrei Gromyko utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna. Og
í hádegishléi á fundarhöld-
um áttu ráðherrarnir tveir
einkaviðræður. Hvöttu þeir
báðir til þess að allar þjóð-
ir kölluðu herlið sín burt
frá Laos. — Dean Rusk
að enn héldu Pathet Lao
kommúnistar uppi árásum á
sveitir hségri manna í Laos
og varaði við því að hættu-
legt ástand gæti skapast að
nýju í landinu, þrátt fyrir
samþykktir um vopnahlé.
Andrei Gromyko lagði fram tvær
tillögur á ráðstefnunni, aðra
varðandi hlutleysi Laos, hina
um brottflutning allra erlendra
hermanna úr landinu. Leggur
Gromyko til að Laos tilheyri
ekki lengur vemdarsvæði Suð-
austur Asíubandalagsins og að
alþjóða eftirlitsnefndin, sem nú
starfar í Laos, verði skipuð til
þriggja ára undir sameiginlegu
forsæti Breta og Rússa. Sagði
Gromyko að hefðu Bandaríkin
ekki látið Laos-málið til sín
sem allir aðilar geta veriS
sammála um.
2. Að koma á fót alþjóðastofn-
un, er tryggi að hlutleysi
landsins verði haldið.
3. Að efna til alþjóðlegrai
fjárhagsaðstoðar við Laos
undir stjóm hlutlausra ná-
grannaríkja.
Rusk sagði að friðinum í Suð
austur-Asíu stafaði ekki hætta
frá suðri til norðurs né heldur
handan Kyrrahafsins. Hættan
stafar frá norðri til suðurs,
sagði Rusk, og er margs konar.
Hann sagði að Bandaríkin hefðu
engar herstöðvar í Laos og ósk-
uðu ekki eftir neinum herstöðv-
taka, hefði ekki þurft að kalla um Bandaríkin hefðu engan á-
saman Laosráðstefnuna í Genf.
NEITUNARVALD
Einn af fulltrúum Bandarikj-
anna á ráðstefnunni, Roger
Tubby, ræddi nokkuð tillögur
Gromykos. Hafði hann helzt út
skýrði ráðstefnunni • frá því á >að að setja að þar er víða
minnst a neitunarvald, sem geti
valdið þriggja ríkja vopnahlés-
nefndinni miklum erfiðleikum.
Rusk sagði í ræðu sinni að
ráðstefnan yrði að ráða fram úr
þrem vandamálum varðandi
Laos:
1. Að samþykkja skýrgrein-
ingu á hlutleysi landsins,
huga á að gera Laos að mið-
stöð fyrir skemmdarverkamenn,
skæruliða eða njósnara. Bætti
ráðherrann því við að ef allir
viðstaddir fulltrúar á ráðstefn-
unni gætu gefið sams konar yf-
irlýsingu, væri þegar stórt skref
stigið í áttina til friðar í Suð-
austur Asíu.
Ámi GuSjónsson
hæstarétlarlögmaSur
Garðastræti 17
VETTVANGUR
Framhald af bls. 13.
„ríkjafylkingu sósíalismans“,
hinni „miklu sósíölsku sam-
heild“, ,hugsjónum sósíalskrar
alþjóðahyggju," og fleira í svip-
uðum dúr.
Ég varpa aftur fram sömu
spurningu: Hvert ætti og hvert
gæti hlutverk heimskommúnista
vestan megin jámtjalds verið ann
að en þjónusta við „ríkjasam-
heild sósíalismans“, þjónusta
við „sameiginlega hagsmuni
hinnar sósíölsku stefnu“? Er
nokkuð jafn fullkomlega eðlilegt
og það, að menn, sem aldrei
stinga svo niður penna, að þeir
bölvi ekki því þjóðskipulagi,
sem fóstrar þá, reyni allt, sem
þeir megna, til að sigrast á því
og koma á laggirnar hinu, sem
þeir þrá og eru sannfærðir um,
að er á allan hátt betra? Það
hlýtur að vera kvalafullt að búa
alla hundstíð sína við þjóðskipu
lag, sem maður hatar (eða er
þjóðskipulagið ekki jafn ban-
váent og þeir vilja vera láta?)
Hvers vegna skyldu þeir því
ekki beita öllum meðulum til
að flýta fyrir því að Sovét-
ísland komi, sá heimur, sem þá
dreymir um, bæði á götum úti
og liggjandi í rúmi sínu.
Það er leiðinlegt að eyða orð-
um að jafn sjálfsögðum hlut-
um. Hitt er þó enn leiðigjarn-
ara, að horfa upp á það hvert
árið á fætur öðru, hvernig yfir-
lýstir heimskommúnistar sperr-
ast við að halda raunveruleg-
um miarkmiðum sínum leyndum,
einkum vegna þess að þeir
hljóta að vita, að allur hinn
vetræni heimur skilur, hvað fyr
ir þeim vakir. Þetta tjásulega
sauðarreyfi, sem þeir eru ennþá
að steypa yfir sig — samtök
hernámsandstæðinga er eitt
dæmi þess — orkar aðeins bros
lega á fólk, og það er alls ekki
samboðið jafn herkænum mönn-
um og sumir hinna íslenzku
kommúnista eru, að endurtaka
hvað eftir annað svo máttlaust
herbragð. En líklega er þetta sem Atómstöðin heitir. Lýsir
eina bardagaaðferðin, sem þeir
geta einhvers vænt sér af um
þessar mundir, að minnsta kosti
forðast þeir að berjast undir
sínu rétta flaggi, og það mundu
þeir ekki gera, ef þeir héldu,
að það reyndist sigurvænlegt.
Þeir virðast hins vegar ekki
gæta þess, að það eru í sjálfu
sér talsverðar upplýsingar um
kommúnismann, að ekki skuli
lagt í að stríða gegn herstöðv-
um á íslandi undir merkjum
hans, hreint og beint. Hvers
vegna eru heimskommúnistar,
eins og Sigfús Daðason, Hannes
Sigfússon og fleiri, að skjóta
sér á bak við rómantíska ætt-
jarðarpólitík? Hafa mennirnir
svona takmarkalausa vantrú á
sannfæringarmætti sinnar eigin
hugsjónar? Skamma^t þeir sín
fyrir sitt eigið fagnaðarerindi?
□
Ekki alls fyrir löngu skrifaði
Halldór Kiljan Laxness bók,
hann þar meðal annars þeirri
blekkingarleiksýningu, sem hann
lætur nokkra stjórnmálamenn,
andsnúna sjálfum honum, setja
á svið um það leyti, sem land-
ið gerðist hlekkur í varnarkeðju
vestrænna þjóða. Það værimjög
ánægjulfegt, ef skáldið teldi sig
hafa tíma til að skrifa aðra
bók nú að rúmum áratug liðn-
um, með alveg sama sniði, en
nýrri hlutverkaskiptingu, þann-
ig að vildismenn hans væru nú
að baksa við að rjúfa þessa
varnarsamstöðu, í þágu hins
„sósíalska heimskerfis", en
kæmu, meðan á því stæði, jafn-
an fram fyrir þjóðina í ein-
hvers konar fjallkonugervi. Að
sjálfsögðu yrði þar kafli um
skáld þau, sem saklaus og
grunnhyggin, önnur allslóttug
og vitiborin, sem nú standa
gró fyrir járnum inni í Tróju-
hesti þeim, sem fimir dansarar
á línunni Moskva-Reykjavík
skírðu stirðu nafni: Samtök
hernámsandstæðinga.
Hannes Pétursson.