Morgunblaðið - 26.05.1961, Síða 6
6
r MORGVTS RI AÐ1Ð
FÖstudagur 26. maí 196i
v.
\
Vertíðarlok í Keflavík
r *.
Oskar Ingibergsson aflakóngur
in (sem kosta 5 kr. £ Stykkis-
'hólmiT lágiu um allt.
• Fuglalífið að lifna
í>ó ég sé ákaflega ófróður
um sjófugla, fannst mér stór.
‘koetlegt að fcoma úit í eyjiar á
þessum tíma árs. Ritan situr á
VERTÍÐARLOK í Keflavík voru
15. maí þá voru allir bátar hættir,
Heildar fiskaflinn nam alls 23.907
lestum og auk þess bárust 3.835
lestir af síld, svo að samanlagður
afli verður 27.742 lestir, af 49
bátum.
í fyrra var þorskaflinn 27.286
lestir af 56 bátum. Síldveiðin var
aðallega á tímabilinu janúar—
febrúar, 21 þúsund tunnur og í
apríl—marz 17.350 tunnur.
Vegna þessa góða síldarafla er
þorskmagnið minna en á fyrra
ári, en meðalafli í róðri og á
bát mjög svipað.
Veður var yfirleitt hagstætt
nema fyrrihluta marzmánaðar,
sem var með algjörum frátökum.
Skipstjóraverkfallið tafði einn-
ig veiðar um nokkra daga.
Óskar Ingibergsson, skipstjóri á
Olafi Magnússyni er aflakóngur á
þessari vertíð. Afli hans er 1034
lestir af þorski og 414 lestir af
síld. Allur afli hans hefur verið
með afbrigðum góður og vel með
farinn. Láta mun nærri að há-
setahlutur hans verði um 100
þúsund krónur.
10 hæstu bátarnir
Ólafur Magnússon .. 58 1034 414
Helgi Flóventsson .. 74 925
Jón Finnsson 60 851
Hilmir RE 7 67 840 350
Jón Guðmundsson .. 80 825
Eldey >.... 47 807 68
Árni Geir 60 776 571
Manni 76 757
Guðfinnur 81 701
Fram 73 694
Vel hefur rætzt úr þessari ver-
tíð, þótt illa horfði um tíma, veið-
arfæratjón orðið lítið og öll með-
ferð aflans góð og batnandi.
Stöðvun frystihúsanna vegna
verkfalls kvenna olli engum töf-
um á veiðum, þó af því hlytust
ýmsir örðugleikar. — Helgi.
íslenzkur stúdent
boðinn til
KEFLAVÍK, 19. maí. — Karla-
kór Keflavíkur mun dagana 26.,
27. og 29. maí n.k. halda sína
árlegu söngskemmtun, í Nýja
Bíó í Keflavík. Kórinn mun ein-
göngu syngja fyrri styrktarmeð-
limi sína, 26. og 27. maí, en 29.
maí gefst öðrum kostur á að
hlusta á kórinn.
Kórinn hefur æft reglulega
tvisvar í viku í vetur, undir ör-
uggri handleiðslu, hins ágæta
stjórnanda Herberts Hriberschek,
en han hefur starfað hjá kórn-
um sl. 3 vetur og hefur þessi
ungi kór tekið miklum framför-
um á því tímabili. Raddþjálfun
kórsins hefur annast Vincenzo M.
Demetz söngkennari. Báðir þess-
ir menn eru orðnir vel þekktir
í tónlistarmálum hérlendis.
Á söngskránni eru lög eftir Jón
Leifs, Skúla Halldórsson, Pál ís-
ólfsson, Jónas Tómasson, Friðrik
Bjarnason, Sigvalda S. Kalda-
lóns, Bjarna J. Gíslason, Árna
Björnsson, Edward Grieg, Schu-
bert, Carl M. V. Weber, H. Kjer-
ulf, Toni Ortelli, George Gers-
hwin o. fl.
Undirleik hjá kórnum annast
ungfrú Ragnheiður Skúladóttir.
Einsöngvarar verða þeir sömu og
sl. vor, þeir Böðvar Pálsson, Guð-
jón Hjörleifsson og Sverrir Olsen.
Það er alltaf viðburður í byggð
arlaginu þegar Karlakórinn held-
ur söngskemmtun og ættu sem
flestir bæjarbúar, að styrkja
þetta menningarmál og ljá þeim
mönnum þannig lið, sem leggja
á sig þrotlausar æfingar allan
veturinn og auka á þann hátt
hróður bæjarins.
í Karlakór Keflavíkur eru nú
36 félagar. — hsj.
LAUST FYRIR síð'ustu helgi
voru nokkrir verkamenn við
fiskaðgerð vestur í hrað-
frystihúsi ísbjarnarins. Páil Guð
mundsson verkamaður, greip þar
meðaistóran þorsk og brá hnífn-
um á hann, og stóð hann sam-
stundis á hörðu. Er fiskurinn
hafði verið ristur á kviðinn val-t
stærðar steinn úr maga fisksins.
Steinn var settur á vigt og
reyndist vera 1186 grömm að
þyngd. Þetta var ósköp venju-
legur þorskur, sagði Pá.ll, sem
hér heidur á steininum stóra.
Júgóslavíu
STÚDENTARÁÐI Háskóla fs-
lands barst nýlega boð frá Júgó-
slavnesku stúdentasamtökunum
að senda fulltrúa sinn til Júgó-
slavíu til að kynnast landi og
þjóð og sérstaklega starfsemi
stúdentasamtakanna þar í landi.
Var boði þessu tekið ög dvelur
Grétar Br. Kristjánsson, varafor-
maður stúdentaráðs, nú þar í
landi ásamt fulltrúum frá stúd-
entasamtökunum á öllum hinna
Norðurlandanna. Stendur heim-
sóknin yfir í 10 daga og munu
þátttakendur fara víða um Júgó-
slavíu.
Karlakór Keflavíkur
heldur hljómleika
Þessi mynd var tekin í fyrri
viku norður á Akureyri og
er af flugþernuefnum á nám
skeiði Flugfélags íslands.
Brugðu hinar tilvonandi
fliugþernur sér norður í lok
námskeiðsins.
— Ljósm.: St. E. Sig. (
Skógræktar-
félag Stykkis-
hólms
Stykkishólmi, 24. maí.
AÐALFUNDUR Skógræktarfé-
lags Stykkishólms Var haldinn í
gær. Á sl. ári voru plantaðar á
vegum félagsins yfir 6000 plönt-
ur bæði í Sauraskógi og eins í
girðingu félagsins við Stykkis-
hólm. Auk þess hefur félagið út-
vegað fjölda manns plöntur til
gróðursetningar. Fyrir liggur að
girða viðbótarsvæði í Sauraskógi
fyrir starfsemina. Stjórn félags-
ins skipa: Guðmundur Bjama-
son, Lúðvík HalldórssOn og Þór-
ólfur Ágústsson. — Fréttaritari
• Vorhretið seinf
á ferðinni
Vetur konungur hefur enn
sýnt að hann hefur ekki
alveg sleppt takinu á okkur
hér norður frá og send-
ir okkur sína síðustu köldu
kveðju. Þó það vilji gleymast
þegar vel vorar og sumarhlýja
hefur rí'kt um skeið, er alltaf
von á kuldakiasti, a. m. k. fram
um mánaðamótin maí-júní.
Þetta veit Hiafliði garðyrkju-
stjóri bæjarins af margra ára
reynslu og lýsti því yfir við
fréttamann blaðsins einn hlýj
an sólskinsdag fyrir tveimur
vikum, að alls ekki væri óhætt
að planta út í bæjargarðam
fyrr.
Þann dag virtist þetta hrein
asta svartsýni. — Stúlkurnar
sprönguðu 'léttklæddar um
Austurstræti, piltarnir á göt-
unúm voru margir hverjir
orðnir sólbrúnir og krakkam-
ir hoppuðu í París. En Hafliði
vissi hvað hann söng, ekki síð-
ur en gömlu mennirnir, sem
tala um páskahxet, spóahret
og fardagahret.
• Ungviðið fær
kaldar kveðjur
Verst er þegar 'hretið kem-
ur rétt í þann mund sem a-llur
gróður er að lifna og ungviðið
að koma veikburða í heiminn.
Um hvítasunnunja ók ég út
á land, og var einmitt að
hugsa um það hve gaman það
væri þegar veður og færð
leyfði ferðir út á landsbyggð-
ina á þessum tíma árs.
Á hverju túni hér sumnan-
lands hlupu háfætt, lítil lömb
við hlið mæðra sinna, sum
dálítið óstyrk á fótunum, enda
að byrja að standa á þessum
óþjálu spírum, eða lágu á
'hnjánum, hálf á kaifi inn undir
ullinni með dindilinn iðandi
svo varla varð auga á fest, af
einskærri ánægju yfir mjól'k-
ursopanum sínum. Á einum
stað í Borgarfirðinum flaug
þröatur upp af litlu eggjunum
sínum undan fótum okkar og
flögraði 1 kring. Bleiku vetr-
arblómin stungu kollunuim á
stöku stað upp úr litlausri
jörðinni. Úti í Breiðafjarðar-
eyjum var æðarfuglinn að
byrja að verpa og hlú að
eggjum sínum með dúni. Og
grændröfnóttu svartsbaksegg-
☆
skeri, tignarleg í fasi og teyg-
ir gula nefið upp í loftið,
skrautlegi tjaldurinh leggur
fagurrauðar lappirnar aftur
með svörtum vængjunum á
fluginu, „prófasturinn" situr
virðulegur á syllu og segir ú-
ú-ú með virðulega kónganef-
inu sínu og breiðir úr bring-
unni og dröfnótt æðarkolla
vaggar þunglamalega í flæð-
armálinu í fylgd með sínum
fallega svarta og hvíta maka.
Og úti fyrir bylta selir sér í
sjónum.
Mest sáum við þó aif selum
í Daliasýslunni, þeir lágu unn-
vörpum á hverju skeri með-
fram Fellsströndinni og
ströndinni fyrir botni
Hvammsfjarðar og glytti 4
blauta skrokka þeirra í sól-
inni, þar sem þeir lágu
hreyfingarlausir, nema hvað
þeir lyftu höfðunum öðru
hverju. — Á nokkrum
stöðum lágu kæpur með
litlu kópana sína. En þó sel-
irnir virtust liggja þarna hin.
ir makindalegustu og kæra
sig kollótta um það sem gerð-
ist í kringium þá, voru þeir
fljótip að stinga sér niður af
skerjunum, ef maður nálgað-
ist á ströndinni á móti. Og
bar þá fljótt í burtiu á sundi,
annað hvort í kafi eða með
hausinn upp úr, eins og þar
væri maður á sundí.
Og nú í kuldlanium veröur
mér 'hugsað til alls þessa ung-
viðis, sem ég sá um hvítas'unn
una. —