Morgunblaðið - 28.05.1961, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 28.05.1961, Blaðsíða 5
Sunnudagur 28. maí 1961 MORGUNBLAÐIÐ 5 MFNN 06 * = MALEFNI= ,* • Málverkasýning: Jóhanns 9 Briem hefur staðið yfir í eina |1 viku í Bog-asal Þjóðminjasafns 1 ins. Á sýningunni eru 26 i| myndir, en henni lýkur í kvöld. Blaðið hafði tal af lista manninum í vikunni og ræddi við hann um sýninguna. — Myndirnar eru allar mál aðar á tveimur síðustu árum. Mótívin eru flest sótt í sveita- lífið og einkum eru það minn ingarnar frá bernsku árunum, sem endurspeglast í þeim. Eg hefi haft þann hátt á, að vinna allar myndir mínar innanhúss, þar sem ég tel óhjá'kvæmilegt að hafa mótívið ekki fyrir aug- unum þegar myndin er gerð, því að það er svo erfitt að gera upp á milli aðal- og auka atriða í náttúrunni. Þess vegna er það auðveldara að mála mynd ,þegar langur tími hefur fullskapað hana í hug- anum. Náttúran er í eðli sínu ekki listræn heldur er það aðeins eftir túlkun ákveðins manns sem ákveðið viðfangsefni verð ur listrænt — það sýnir höf- undinn sjálfan. Listamaður, sem gerir mynd ir sínar innan fjögurra veggja verður auðvitað að hafa opin augu og fylgjast með breyt- ingum — annað væri stöðnun. — Hafið þér ekki orðið fyr- ir áhrifum frá verkum ann- arra málara? — Þegar ég var í Dresden við nám, settu expressionist- arnir svip sinn á listina í Þýzkalandi og það má ef til vill finna einhver áhrif frá þeim í myndunum mínum, en impulsinn er sóttur í náttúr- una sjálfa, en ekki í verk ann arra. Það sem hægt er að læra af öðrum eru aðeins teknisk atriði — en ekki viðhorfin sjálf. Eg hefi aldrei komið til Parísar og hefi þess vegna ekki orðið fyrir neinum frönsk um áhrifum. — Altaristaflan í kirkju Ó- háða safnaðarins er máluð að yður? — Já, ég gerði hana sam- kvæmt óskum séra Emils og þetta er stærsta altaristafla, sem máluð hefur verið á land- inu — hún er nokkru stærri en taflan eftir Mugg í Bessa- staðakirkju. Eg hefi gert nokkrar altaristöflur og svo málað nokkuð margar myndir úr íslenzku þjóðlífi og þjóð- sögum. f Laugarnesskólanum eru 22 slíkar. Annars eru þetta langmest fígúrur og ég gerði mikið af því fyrr á árum að mála and- litsmyndir, en nú er ég alveg hættur því — hefi ekki tekið það að mér, þó ég væri beð- inn um það. — Listasmekkur íslend- inga? — Hann er alltof einstreng ingslegur eins og oft vill verða með smáþjóðum. Það er ekki rúm fyrir mörg viðhorf í fá- menninu og þess vegna eru listamenn stórþjóðanna ekki nærri eins líkir hver öðrum eins og þeir íslenzku. — Nöfnin á myndunum eru mörg ansi sérkennileg. . Er það? Já, fólki finnst kannski eitthvað sérkennilegt við „Græna folaldsmeri og slokknaða sól“ eða „Kvöld- roða bak við dottinn skúr“. Eg gerði þá mynd fyrst í Þýzkalandi, en svo týndist hún og ég gerði aðra hér heima eftir minni. — En hvað segið þér þá um „Grænan vörubíl með rekaviðardrumba á leið upp brekku“? — kann- ski var vörubíllinn ekki grænn. og kannski voru engir rekavið ardrumbar á honum. Jóliann Briem — Þú getur ekkl flúið til mín, elskan, því að ég er að flytja frá skepnunni honum föður þín- um heim til ömmu þinnar. 1 — Ég er búin að kaupa mér al veg dásamlegt sjónvarpstæki, sagði þerna á hóteli við samstarfö stúlku sína. — Ó, ég myndi aldrei eyða pen Inguni í slíkt, sagði hin, fyrir mig er ekkert betra en gott skráargat. ‘As Henrik og Jón höfðu drukkið talsvert mikið og voru á heim leið. — Sérðu þarna, sagði Hen- rik við vin sinn, þarna er ljós. Ég læt þig fá 300 kall og þú skalt kaupa eina flösku af rommi. l. — Sjálfsagt, sagði Jón og hélt í áttina til Ijóssins. Nokkrum dögum síðar fékk Henrik bréf frá Jóni, en í því stóð: — Fyrirgefðu hve ég befi ver ið lengi, ljósið var nefnilega aft an á vörubíl. Enginn hefur með orðum einum veginn verið. Vertu svo mikill á borði, sem þú ert í orði. Mildari er margur í orðum en út- látum. Sjaldan koma ótöluð orð á þing. Töluð orð og tapaður meydómur verða ekki aftur tekin. Orða sinna á hver ráð. Allir eiga leiðrétting orða sinna. Ekki velja allir orð að annars skapi. Lifa orð lengst eftir hvern. Enginn fitnar af fögrum orðum. Sá, sem hugsar aldrci um annað en eigin hagsmuni, gerir heiminum greiða, þegar hann deyr. Ilamingjan er heimafengin og verður ekki tínd í garði annarra. Göfugur maður er hófsamur í orð- um, en eldlegur í starfi. Tárin hindra sorgina frá því að snú- ast upp í örvæntingu. Öll meistaraverk virðast óframkvæm anleg í upphafi. Berðu daglega einn malarpoka á sama staðinn og þú hrúgar upp heilu fjalli. Hversu fáar eru ei vorar sönnu þarf ir, en óendaniega margar hinar ímynd uðu. Hafskip h.f.: Laxá fer í dag frá Akur eyri til Snæfellsneshafna. Jöklar h.f.: Langjökull var f Vestm. eyjum í gær. Vatnajökull fór frá Norð firði í gær á leið til Grimsby. Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: Katla er í Archangel. Askja er í Grange- móuth. í gær voru gefin saman í hjóna band af séra Garðari Þorsteins syni ungfrú Guðrún Ársælsdótt ir Jófríðarstaðavegi 12, Hafnar firði og Steinmóður Einarsson, Fornhaga 15, Rvík. Heimili hjón anna verður (að Túnhvammi 4, Hafnarfirði. í gær voru gefin saman í hjóna band ungfrú Gunnhildur Kjart ansdóttir, Hringbraut 115 og Kristján Einarsson, Glaðheimum 8. Heimili þeirra er að Mosgerði 8. Á hvítasunnudag voru gefin saman í hjónaband af séra Bergi Björnssyni ,ungfrú Ingibjörg Sig urðardóttir, skrifstofustúlka Framnesvegi 63 Rvík og Helgi Björgvinsson, bifreiðastjóri, Suð urgötu 94 Akranesi. 60 ára er í dag frú Dagbjört Ólafsdóttir, Suðurlandsbraut 18. f gær voru gefin saman í hjónaband ungfrú Gunnhildur Kristjánsdóttir, Hringbraut 115 og Kristján Einarsson, Glaðheim um 8. Tveggja herb. íbúð til leigu í nokkra mánuði, húsgögn geta fylgt. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „A 1616“. Sængur Endurnýjum gömulu sæng urnar. Eigum dún og fiður helt ver. Seljum æðardúns- og gæsadúns-sængur. Fiðurhreinsunin, Kirkju- íeig 29. — Sími 33301. Stúlka Fullorðin stúlka eða kona óskast til afgreiðslustarfa part úr degi. uppl. í síma 10365 kl. 5—7 í dag. Glassfiber vatnabátur sem nýr til sölu^ ásamt ut- anborðsmótor. Mjög hag- stætt verð. Uppl. í síma 18496. Skrúðgarðaeigendur Úðun trjái.na er að hefjast. Pantið í síma 35077. S'. avar F. Xjærnested. Múrarar Tilboð óskast í utanhúss- múrverk á húsi á Seltjarn- arnesi. Uppl. í síma 38057 alla virka daga frá kl. 9—12 f. h. og 4—7 e. h. Akranes Ibúð óskast til leigu sem næst Sementsverksmiðj- unni. Tilboð ásamt uppl. sendist Mbl., merkt: — „Reglusemi — 1971“. Sérlega vel með farinn Silver Cross barnavagn — stærsta gerð, til sölu á Hávallagötu 7. Stúlka óskar eftir 1—2 herb. og eldhúsi, sem næst Reykja- víkurflugvelli. Uppl í síma 19106 frá kl. 1—7. Til leigu í 6—8 mánuði 5 herbergja íbúðarhæð í Hlíðunum ná- lægt Hafnarfjarðarvegi. — Sérinngangur. Tilboð send- ist blaðinu merkt: „1. júní 1992“. Uppþvottavél Notuð sambyggð uppþvotta vél og vaskur með kvörn (General Electric) er til sölu fyrir hálfvirði. Sími 13166 eða 33918. Svefnsófi til sölu á Nesvegi 8 (kjall- ara). Uppl. á staðnum. 2—6 í dag. í Vatnsendalandi er til sölu gott land undir sumarbústað. Uppl. í síma 23315. Stúlka með barn, óskar eftir ráðs- konustöðu. Uppl. í síma 50344. Mótatimbur Notað mótatimbur ca. 400 fet óskast. Ennfremur verk færaskúr. Uppl. í síma 23968 kl. 6—8 e. h. sunnu- dag og mánudag. A T H U G I Ð að borið saman '5 útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu, en öðrum blöðum. — Veiðiréttindi — Berjaland Til sölu jörð í Önundarfirði, jörðinni fylgja veiði- réttindi ásamt mjög góðu berjalandi. Skipti á ný- legum 6 m. fólksbíl koma til grein. Upplýsingar í síma 10156 sunnudag og mánudag. Húseígendur Vegna okkar fullkomna vélakosts, getum vér boðið yður hinar sterku og álerðarfallegu HELUUR vorar i aðeins kr. 26,70 stk. ,s n í®irÁiE3rMEn.iE KAUOARÁRSTÍC 25 REYKJAVÍK SÍMAR 1255.1 t 1Í7S1 gr4 \ Símar 12551 og 12751

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.