Morgunblaðið - 28.05.1961, Síða 11
SLíiLlfcSSí'
Sunnudagur 28. mai 1961
MORGVTSBLÁÐIÐ
11
fl
l&naSarhúsnœði
ca. 130 ferm. óskast á leigu frá júlí—ágúst n.k. að
telja. Æskilegt er, að viðkomandi húsnæði sé á
fyrstu hæð. — Tilboðum sé skilað í P.O. box 1324.
Tilkynning
frá Latigarási s.f.
íbúðir á kostnaðarverði. Nú er hver að verða síðastur
að tryggja sér hinar skemmtilegu og hagkvæmu
2ja herb. íbúðir sem fólk getur fengið keypt á
kostnaðarverði. Athugið að íbúðirnar henta sér-
staklega fyrir einstaklinga og fámennar fjölskyldur.
Allar uppl. að Austurbrún 4 og í sima 34471 alla
virka daga kl. 13—18.
’4r'
, Fréttaritari Observer skrifar frá
, Angola og Kongó): —
| ÞÆR ÞÚSUNDIR angólskra
flóttamanna, sem flykkjast yfir
landamærin til Kongó eiga ömur-
legan tíma fyrir höndum. Eftir
-> að hafa farið 120 mílna ferð yfir
■Á' kjarrstígana á landamærunum,
i hlýtur maður að skelfast hina ger
' samlegu vanhæfni yfirvalda ein-
stakra héraða í Kongó til að mæta
■J þeim erfiðleikum sem fylgja
. þessum flóttamönnum. í þessu
, villta landi skógivaxinna hæða er
ekki svo gott að henda reiður á
fjölda flóttamannanna. Fjöldi
þeirra er í hafnarborginni Matadi
og ennfremur margir í Songololo,
Kimpese og Moerbeke. Flestir
halda þeir sig þó í litlum þorpum
rétt við sjálf landamærin — þeir
tvöfalda og þrefalda íbúatölu
þorpanna á skömmum tíma og
skerða matarbirgðir þorpsbúa ó-
hugnanlega ört.
Ekki hafa verið gerðar neinar
tilraunir til að útvega sáðkorn
til þess að sá í akrana til nýrrar
uppskeru og héraðsstjórinn í
Songololo, sem er ungur maður
segir, að innan þriggja máííáða
muni hungrið taka að sverfa að
íbúum þar og í nærliggjandi hér
uðum.
Rauði krossinn í Kongó hefur
reynt að dreifa einhverjum mat-
vælum milli þorpanna og notað
til þess aflóga bílskrjóða. Hafa
þeir t.d. fengið þrjá gamla vöru-
foíla að láni hjá kongóska hern-
um og einni bifreið þeirra höfðu
starfsmenn Sameinuðu þjóðanna
áður varpað á haug sem ónot-
hæfri. Það eru því hundruð
þorpa, sem starfsmenn Rauða
ikrossins hafa aldrei komið til
©g eiga ekki eftir að kom-
ast til, að minsta kosti ekki
meðan þeir hafa ekki betri farar
tækjum á að skipa. Einn þessara
staða er þorpið Soyo, suðvestur
af Songololo, þar sem þúsundir
Angóla hafa setzt að í þorpi, þar
sem áður bjuggu tæplega eitt
þúsund manna og húskofar eru
einungis um eitt hundrað. Margir
flóttamanna hafa borið með sér
sjúkdóma t.d. blóðkreppusótt,
foerkla og holdsveiki og mikil
hætta er á, að farsóttir gjósi upp
hvenær sem er. En aumkunar
verðastir eru þeir særðu. Hundr
uð manna deyja á leiðinni gegn
um kjarrið frá Angóla yfir landa
mærin til frelsisins, en sú leið
tekur alltaf minnst tíu til fimm-
tán daga. Þeir, sem eftir lifa og
komast alla leið, eru oft og tíðum
meira og minna særðir og verður
þá að flytja þá á sjúkrabörum ým
ist gangandi eða á þessum aflóga
vörubifreiðum -— til sjúkrahúsa í
kongóskum bæjum. Meira en
helmingur slíkra sjúklinga eru
konur og börn,
í sjúkrahúsinu í Kimpese, sem
foandarískir og" brezkir Babtista-
trúboðar reka, fann ég sjö ára
gamlan dreng, sem að framan var
allur illa farinn af þriðju gráðu
toruna eftir sprengju. Hann hafði
verið fluttur til sjúkrahússins al
þakin leðju og sorpi. Á öðrum
cireng, átta ára, hafði önnur rass
kinnin verið skotin gersamlega
í burt. Honum varð naumlega
bjargað eftir að hann hafði horft
á föður^Sinn og bróðir skotna af
portúgölskum hermönnum. Tvö
smábörn lágu í einu rúminu með
höfuðsár eftir sprengju og þar
hjá lá öldruð kona með byssu-
kúlu í brjóstinu.
Þarna var einnig tvítugur pilt
ur með fimmtán þumlunga lang-
an skurð á brjóstinu. Hann kvaðst
vera hinn eini af flokki ellefu
pilta, sem lífs komst af úr viður
eign við portúgalska hermenn.
Honum hafði ásamt hinum verið
sagt að standa með hendur fyrir
aftan bak — síðan var skotið á
hann aftan frá og honum hrundið
í fljót.
Af öllumþeim.sem ég átti tal
við sagðist aðeins einn hafa verið
þátttakandi í aðgerðum angólskra
uppreisnarmanna. Hann var tæp
lega gróinn sára sinna, en hugðist
þegar í stað halda inn í San Salva
dor héraðið til þess að koma boð
um til uppreisnarflokks, er þar
hefði aðsetur.
Hætt er við, að angólsku flótta
mennirnir eigi eftir að verða
fórnarlömb hins ótrygga stjórn
málaástands í Kongó. Átján skrif
stofum frelsishreyfingar Angola í
Kongó hefur þegar verið lokað og
segjast kongósk yfirvöld gera það
til þess að koma í veg fyrir, að
bardagar breiðist út á landamær
um Angóla og Kongó.
Fréttamönnum hefur verið
bannað að hafa nokkurt samband
við flóttamennifoa án sérstaks
leyfis og sjálfur hef ég orðið fyrir
því, að kongóskur liðsforingi frá
Thysville rak mig út úr héraði
einu í Neðri Kongó. Þess ber að
geta, að sumir aðilar kongóskra
yfirvalda hafa verulega og skyn
samlega ástæðu til þess að óttast
harðnandi sambúð við Portúgali.
Það mundi ræna þá síðasta hag-
stæða matvælainnflutningnum —
sem sé fiski, banönum og græn-
meti frá Angóla, sem Kongómönn
um er selt við tiltölulega vægu
verði. Einnig eru þeir hræddir
um sína eigin hermenn, hina ein
angruðu herflokka, sem gjarna
eiga það til að setja upp vegar-
tálma á þjóðvegum og skella
skollaeyrum við öllum aga - sem
Brotajárn og málma
kaupir hæsta verðl.
Arinbjörn Jónsson
Sölvhólsg. 2 — Sími 11360.
þó getur vart kallazt því nafni —
og gætu einnig ámminsta fyrir-
vara tekið upp á því að ráðast inn
yfir landamærin til Angólu og
ráðast þar á Portúgali.
Mikið er gert í Kongó til þess
að berja niður orðróm, að flótta
menn frá Angóla fái vopn hjá
Kongóska hernum eða öðrum aðil
um í Kongó. Þetta hefur tekizt að
nokkru en ekki alveg. Upp hefur
t.d. komizt um eina smávægilega
vopnasendingu til flóttamanna
um Kongó frá erlendu hlutlausu
ríki. Ekki hafa verið færðar sönn
ur á frekari vopnaflutninga. í
Kongó er hvergi að finna angólsk
ar æfingabúðir hermanna svo
sem sagt hefur verið, — né heldur
eigi uppreisnarmenn þar skot-
færa- eða matarbirgðir. Því verð
ur engan veginn fullnægt eftir
spurn þeirra eftir heimagerðum
riflum og vélbyssum, sem teknar
hafa verið herfangi af portúgölsk
um hermönnum.
(OBSERVER — 811 réttindi áskilin).
F élagslíf
E.Ó.P.-mótiff 1961
verður haldið á íþróttavellin-
um fimmtud. 4. júní nk. —
Keppt verður í eftirtöldum grein
um:
80 m hlaupí sveina
60 m grindahlaupi sveina
100 m hlaupi unglinga
110 m grindahlaupi fullorðinna
100 m hlaupi
400 m hlaupi
1500 m hlaupi
1000 m boðhlaupi
Kúluvarpi
Sleggjukasti
Langstökki
Hástökki
Tilkynningar um þátttöku send-
ist í pósthólf 1333 í síðasta lagi
þriðjud. 30. maí.
Frjálsíþróttadeild K.R.
Lán
Vil taka að láni 25.000,00
krónur til eins árs. Örugg
trygging. Þeir sem vildu lána
sendj tilboð fyrir miðvikudag,
merkt: „öruggt — 1901“.
Kona
reglusöm með góða menntun,
óskar að kynnast manni 40— i
50 ára, eða eldri, sem hefur
húsnæði og hug á að stofna j
heimili. Þagmælska. Tilboð á j
afgr. Mbl. sem fyrst, merkt
, 1391“.
J eppakerrueigendur
Kúlu beizlislásar
fyrir sex manna bíla fyrir-
liggjandi. Uppl. í síma 18352.
húseigendur húsbyggjendur
sparið tíma og erfiði í leit
að heppilegum byggingarefnum
upplýsingar og sýnishorn frá 56 af
helztu fyrirtaekjum landsins
opið alla virka daga kl. 1— 6
laugardaga kl. 10—-12
miðvikudagskvöld kl. 8—10
Dyggingaþjónusta a.í.
laugavegi 18a s: 24344
Staðarfellsskóli
HÚSMÆÐRASKÓLANUM að
Staðarfelli í Dalasýslu var sagt
upp sunnudaginn 14. maí. Hófst
athöfnin á því, að gengið var
í kirkju. Þar söng messu sr. Ás-
geir Ingibergsson, prestur í
Hvammi, en sr. Ingiberg J. Hann
esson, prestur að Hvoli í Saurbæ,
þjónaði fyrir altari. Aðalræðuna
við skólaslitin flutti frú Kristín
Guðmundsdóttir, forstöðukona.
Alls hafa 24 námsmeyjar notið
kennslu í skólanum á liðnum
vetri um lengri eða skemmri
tíma. Fullskipaður getur skólinn
tekið við 28—-30 nemendum allan
veturinn. Heiísufar var ágætt í
skólanum. Fæðiskostnaður var
kr. 21. pr. dag. Handavinnusýn-
ing námsmeyja var opnuð á
laugardag. Var þar sýnt margt
eigulegra og fagurra muna.
Hæstu einkunnir við burtfarar-
próf hlutu Anna Sigríður Jóns-
dóttir, Akureyri, 9.34, Guðrún
Björnsdóttir, Akureyri, 9,26 Og
Svanhildur Jónsdóttir, Skálanesi,
Barðastrandarsýslu, 8,74. —
Kennarar við skólann eru auk
forstöðukonu, frk. Ólöf Hulda
Karlsdóttir, er kennir vefnað
o. fl. og frk. Guðrún Jensdóttir,
matreiðslukennari, en hin síðar-
nefnda hefur starfað við skólaryt
í 11 ár af miklum dugnaði <jg
skörungsskap. Auk hinna föstu
kennara kenndi frú Björg Þor-
leifsdóttir söng um tíma. — VÍð
skólaslit flutti sr. Ásgeir Ingi-
bergsson ávarp og árnaði kenn-
araliði og hinum brautskráðu
námsmeyjum allra heilla. Aúk
sr. Ásgeirs eru í skólaráði frú
Elínbet Jónsdóttir, Innri-Fagra-
dal, frú Steinunn Þorgilsdóttir,
Breiðabólstað, Einar Kristjáris-
son, skólastjóri, Laugarfelli óg
Sigurður Ágústsson, alþingis-
maður. — Staðarfellsskóli starf-
ar í sjö og hálfan mánuð á ári
hverju, en auk þess er þar einníg
kennt í styttri námsskeiðum, syo
sem vefnaður o. fl. — F. Þ.
Ei
BÍLALÐGAM
{jeig\um bíla
an ökumanns
sími \87lt5