Morgunblaðið - 31.05.1961, Side 2
2
MORGUNBLAÐIB
Miðvik'udagur 31. maí 1961
Norsk bdkasýning
BALDVIN Tryggvason fram-
kvæmdastjóri Almenna bókafé-
lagsins skýrði fréttamönnum frá
Hitnaði
í hamsi
ÞEIM FJÖLGAR stöðugt, sem
verða að leggja niður vinnu
af völdum verkfallsins. Hafa
verkfallsverðir gengið hart
fram í að stöðva alla flutninga
til iðnaðarins og var karpað
um þetta mál á nokkrum stöð
um í Reykjavík í gær. Nokkur
iðnfyrirtæki, sem hafa rekst
ur á fleiri en eimirn stað, hafa
haldið áfram flutningum á
þeim forsendum, að iðnverka
fólk annist flutningana svo
sem aðra starfsemi fyrirtækj
anna. Verkfallsmenn telja
hins vegar, að allir þeir, sem
annast flutninga, eigi að vera
í félögum bílstjóra eða verka
manna. Það var einkum á
tveimur stöðum, að mönnium
hitnaði í hamsi út af þessu:
Við Kassagerðina og Hörpu.
Þá var „lyftari“ frá Sindra
stöðvaður á Skúlagötu og i
kipptu verkfallsverðir nokkr
um kertaþráðum hreyfilsins
úr sambandi. Lyftarinn komst
þó leiðar sinnar. — Talsmað
ur verkfallsmanna sagði, að
stöðugt mundi nú hert á að
gerðum verkfallsmanna og
undanþágurnar „skornar nið
ur“. Síðustu ferðir í utanlands
flugi verða á föstudag og hef
ur Flugfélagið ákveðið auka
ferð kl, 11:30 um kvöldið, hálf
timá fyrir stöðvun til Skot-
lands og Danmerkur. — Ekki
bar ýkjamikið á hamstri í gær
að því er nokkrar verzlanir
tjáðu Mbl., en kartöfliur eru
til þurrðar gengnar.
letagerðarmenn
semja á Akureyri
AKUREYRI, 30. maí. — Neta-
gerðarmenn, sem mynda deild
innan Verkamannafélags Akur-
eyrar, hafa undirskrifað samn-
inga við Odda h.f. Samningar
þessir eru til eins mánaðar og
samkvæmt þeim hljóta neta-
gerðarmenn 11% launahækkun
næsta mánuðinn. Mesta anna-
tima sumarsins vinna þeir hins
vegar samkvæmt samningum
Þróttar á Siglufirði.
Mánaðarsamningurinn, sem
undirritaður var í dag, er í
meginatriðum sá, að þeir, sem
imnið hafa í þessari grein leng-
ur en 3 ár fá kr. 26,98 pr. klst.,
en þeir, sem unnið hafa skem-
ur, kr. 23.84 pr. klst.
Þá hafa nokkrir atvinnurek-
endur undirritað samning við
verkakvennafélagið Einingu þar
sem þeir skuldbinda sig til þess
að hækka kaupgreiðslur fyrir
hreingemingu.
því í gær, að Bókaverzlun Sigfús
ar Eymundssonar muni í dag
opna sýningu á norskum bókum
frá nokkrum af stærstu útgáfu-
félögum Noregs.
Sýning þessi er haldin í tilefni
afnkomu Ólafs Noregskonungs til
íslands og stendur hún yfir með
an hann dvelst hér á landi. Bóka-
sýningin er h-aldin til að vekja at
hygli almennings á norskum bók
menntum og norskri bókagerð.
Á sýningunni eru einvörðungu
verk eftir norsk skáld og rithöf-
unda og er hér um að ræða nær
eingöngu skáldverk en að auki
em nokkrar bækur varðandi
sögu Noregs og þjóðlíf.
Af þeim mörgu skáldum og rit-
höfundum, sem eiga bækur á sýn
ingunni má nefna:
Henrik Ibsen Bjömstjerne
Björnson, Olaf Bull Alexander
Kielland, Jonas Lie, Johan Bojer
Sigrid Undset, Amulf överland,
Johan Falkberget, Nordahl Grieg
Sigurd Hoel, Johan Borgen. Her-
mann Wildenvey, Tarjei Vessaas,
Thor Heyerdahl og Fridtjof Nan-
sen. Auk þess eru bækur eftir
yngri skáld í Noregi. Þau útgáfu
fyrirtæki sem sendu bækur til
þessarar sýningar eru:
H. Aschehoug, J. W. Cappel-
ens Forlag, Gyldendal og Uni-
versitetsforlaget, en forstjóri þess
Tönnes Andenæs hefur átt mest-
an þátt í að undirbúa sýninguna
af hálfu Norðmanna,, og hafa for
ráðamenn ofangreindra fyrir-
tækja sjálfir valið bækurnar á
sýninguna.
Að sýningu lokinni verða all-
ar hinar norsku bækur til sölu,
og mun Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar taka á móti pönt-
unum á norskum bókum rneðan
á sýningunni stendur.
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi
SV-land til Vestfjarða og
SV-mið til Norðurmiða: Vest-
an gola, síðar SV kaldi, skýjað
Norðurland til SA-lands og
og sums staðar þokusúld.
NA-mið til SA-miða: Hæg-
viðri, skýjað.
AthöfniníFoss-
vogskirhjugarði
ÓLAFUR konungur mun í
dag leggja blómsveig að
minnisvarða Norðmanna í
Fossvogskirkjugarði. Hefst
athöfnin kl. 15,40 Með því
að sungið verður „Gud
signe várt dyre fedreland“.
Séra Harald Hope flytur
ræðu. Þá leggur konungur
blómsveiginn að minnis-
varðanum og þjóðsöngur
Norðmanna verðiur sunginn.
Karlakórinn Fóstbræður
mun annast sönginn.
Samræmclar hernadarað-
gerðir á Húsavík
HÚSAVÍK, 30. maí. — Eftir ósk
meirihluta bæjarstjórnar var
boðaður fundur kl. 18. Var þar
lögð fram tillaga og stóðu að
henni eftirgreindir bæjarfulltrú-
ar: Karl Kristjánsson, Stefán
Sörensson, Ásgeir Kristjánsson,
Jóhann Hermannsson og Guð-
mundur Hákonarson.
„Bæjarstjóm Húsavíkur telur
yfirstandandi verkfall óþolandi
ástand fyrir Húsavíkurkaupstað
um hábjargræðistíma sjávarút-
vegsins, sem er aðalatvinnuveg-
ur byggðarinnar og megin und-
irstaða atvinnulifs og efnahags-
afkomu á staðnum. Skorar því
bæjarstjórn á verkamenn og
vinnuveitendur staðarins að af-
létta verkfallinu nú þegar með
því að ganga frá samningum um
breytt kaup og kjör á þeim
grundvelli, sem fulltrúar Verka-
mannafélags Húsavíkur og full-
trúar vinnuveitenda höfðu náð
samkomulagi um sín á milli 28.
þ. m. og fulltrúar verkakvenna-
féagsins Vonar að síðustu tjáð
sig samþykka að kvöldi þess
dags.“
Eftir nokkrar umræður var
tillaga þessi amþykkt með 5
af 7 atkvæðum. Hjá sátu Einar
Fr. Jóhannesson og Þórhallur B.
Snædal.
Morgunblaðið gat þess í gær,
að í hinni samræmdu hernaðar-
áætlun Framsóknarmanna og
kommúnista væri gert ráð fyrir
því, að reyna að koma af stað
nægilega háum kauphækkunum
til að kollvarpa efnahagskerfinu
Til mdts viö „Norge“
Frá fréttamanni Mbl., Sverri
Þórðarsyni, um borð í Óðni, laust
eftir miðnætti:
Um miðnætti létti Óðinn anker
um þar sem hann lá út af Kefla-
vík og var siglt til hafs, með 12
mílna hraða. Við förum til móts
við konungsskipið Norge og her
skipið Bergen, sem er því til
fylgdar. Veðrið er blítt, sjór lá-
dauður, létt þoka til landsins, en
birta til hafs.
Óðinn mætir konungsskipinu
fcl. 7^ fyrramálið undan Stóru
Sandvík á Reykjanesi. „Við heils
um ekki með því að hleypa af
skotum“, segir Eiríkur Kristófers
son, skipherra, í brúnni áðan —
„ en þegar við mætum Norge
mun norski fáninn blakta í fram
siglu Óðins“.
Klukkan sex í fyrramálið verða
allir ræstir hér um borð svo að
áhöfnin mun fylgjast vel með.
Hér eru allir í hátíðaskapi. Óð-
inn er líka nýmálaður og hvít-
skúraður — „og það fóru 48
lítrar af málningu á skrokkinn á
honum“, sagði Sigurður Sigurðs-
son, bátsmaður.
Eftir að Óðinn hefur heilsað
konungsskipinu mun hann sam-
kvæmt venju við slík tækifæri
lúta stjórn skipherrans á Norge,
Thoresen. Munu öll skipin fylgj
ast að inn á ytri höfnina í Reykja
vík, Norge fer fyrir, síðan Berg
en og þá Óðinn.
Það var aðfaranótt þriðjudags,
að fyrst heyrðist til Norge. Skip
ið kallaði þá í Seyðisfjarðar
radíó og bað um veðurlýsingu og
sagði loftskeytamaðurinn, að allt
gengi samkvæmt áætlun, skipið
yrði við Reykjanes kl. 7 á mið-
vikudagsmorgun.
Ásgeir Halldórsson, loftskeyta
maður á Óðni, heyrði til Norge
kl. 10:30 í kvöld. Loftskeytamað
ur norska skipsins hafði þá sam
band við Loftskeytastöðina í
Reykjavík og gaf upp staðar-
ákvörðun. Þá var skipið statt
undan Geirfuglaskeri. Ekki hefur
Óðinn haft neitt samband við
skipið og ekki er gert ráð fyrir
að Norge og Óðinn talist við fyrr
en skipin mætast.
Klukkan 11:15 í kvöld, eða
Framh. á bls. 23.
einhvers staðar þar, sem Fram-
sóknarmenn réðu fyrir vinnu-
veitendum. Nú hefur komið í
Ijós, að Húsavík hefur orðið fyrir
valinu þar sem kaupfélagið hef
ur boðið kauphæltkun til tveggja
mánaða. Þau mistök urðu samt
að tilboðið miðaðaist við að bæði
verkamenn og verkakonur sam
þykktu það. Dráttiur varð á því
að verkakonur gengju að samn
ingum. Yar það tilefni þess, að
Karl Kristjálnsson alþm. beitti
sér fyrir því að hæjarstjórn herti
á þvi að kauphækkunin næðifram
að ganga, enda var þá vitað, að
samningafundir væru að hefjast
í Reykjavík, þar sem búast mætti
við sáttatillögu.
Þegar símanum var lokað á
Húsvík, var ekki vitað hvort her
hlaupið mundi takast. En sönn
un er hins vegar fengin fyrir
samspili Framsóknarmanna og
kommúnista þar sem hinir fyrr
nefndu enu jafnvel enn ákveðn
ari i að láta einskis ófreistað til
að koma af stað víxlverkun kaup
gjalds og verðlags, en kommún-
istar.
KAÍRÓ, 30. maí. (Reuter) — Því
var lýst yfir opinberlega hér í
dag, að Arabiska sambandslýð-
veldið hefði slitið stjórnmálasam
bandi við Suður-Afríku, vegna
kynþáttastefnu Verwoerd-stjórn-
arinnar — Og mundi sambands-
lýðveldið ekki viðurkenna Suð-
ur-Afríku lýðveldið, sem förm-
lega verður stofnað á morgun.
— Flugslys
Frh. af bls. 24
en var í leiguflugi á vegum flug
félags í Venezúela. Fór þotan frá
Rómaborg í gærkvöldi, lenti
fyrst í Madrid, síðan í Lissabon
og ætlaði þaðan fyrst til Santa
Maria á Azor-eyjum, en þaðan til
Caracas. Fjórum minútum eftir
að þotan hóf sig til flugs af
flugvellinum í Lissabon, rofnaði
skyndilega allt samband við
hana. Fóru þá leitarflugvélar á
vettvang, bæði frá Lissabon og
Azor-eyjum. — Samkvæmt far-
þegalista voru í vélinni 16 manns
frá Venezúela, einn Frakki, tólf
Spánverjar, fimm Portúgalar,
einn Chilebúi og tólf farþegar,
Við 6 vikna verkfall 19 55 fékkst 3% hækkun
EINS og getið var um
hér í blaðinu í gær nem-
ur tjónið af verkfallinu
á viku sem svarar 2%
árstekna. Árið 1955 var
6 vikna verkfall, þar
sem loks var knúin fram
3% meiri kauphækkun
en upphaflega var hægt
að semja um. Tjónið af
verkfallinu nam aftur á
móti sem svaraði 12%
ársteknanna eða 3% á
ári í 4 ár.
Enda þótt þessi kaup-
hækkun hefði verið var-
anleg kjarabót, sem fór
víðsfjarri eins og kunn-
ugt er, hefði það samt
tekið verkamenn fjögur
ár að vinna upp tapið
af þessu langa verkfalli.
Fljótt á litið finnst
mönnum ef til vill ekki
mikið til um þær raun-
verulegu kjarabætur,
sem efnahagslífið getur
staðið undir, en hvað
finnst þeim þá um þau
3%, sem f jögur ár tekur
að vinna upp, áður en
menn standa í sömu
sporum og þeir voru
þegar verkfall hófst, en
verða auk þess að bera
nýjar skattabyrðar.
Þeirri spurningu verða
allir þeir að svara, sem
raunverulega vilja
kjarabætur, en ekki
kjaraskerðingu póli-
tískra verkfalla.
sem báru ítölsk og spænsk nöfn,
án þess kunnugt sé um þjóðerni.
Áhöfnin var hollenzk, að undan
teknum tveim úr þjónustuliðinu,
sem voru frá Venezúela. Einn
Portúgalanna var sagður þing-
maður.
Tvær rannsóknarnefndir
Tvær rannsóknarnefndir, hol-
lenzk og portúgölsk, eru þegar
teknar til við að grafast fyrir
um orsakir þessa hörmulega flug
slyss. — Þess má geta, að í lok
síðasta mánaðar fórst flugvél frá
Venezúela, af gerðinni DC-3, —.
með svipuðum hætti og þessi.
að því er virðist. Sprakk hún á
flugi um 160 km frá Caracas. Að
eins tveir komust lífs af úr þessu
slysi. — Rannsóknarmenn hafa
síðan látið þá skoðun í ljós, að
slysið hafi orðið vegna þess, að
einn farþeganna, rússneskur mað
ur, hafi haft meðferðis sprengju
til þess að svipta sig lífi. Ekki
hefir verið kveðið nánar á um
þetta.
★ Þotan var spánný
Flugvélin, sem fórst í dag, var
spánný. Talsmaður KLM kvað
félagið hafa fengið hana frá
Douglas-verksmiðjunum í þess-
um mánuði. Hinn 10. þ.m. fórst
frönsk flugvél af gerðinni Super
Constellation yfir Sahara, á leið
frá Brazzaville við Kongófljót
til Marseilles. Þar fórust 78
Stúdentar 1931 — Hittumst í
Tjarnarkaffi á morgun, fimmtu-
dag kl. 5 e.h.