Morgunblaðið - 08.06.1961, Page 1

Morgunblaðið - 08.06.1961, Page 1
20 siður 48. árgangur 125. tbl. — Fimmtudagur 8. júní 1961 Alvarlegt vopna- hléshrot í Laos 14 ríkja ráðstefnuimi í Genf enn frestað Genf og Vientiane í Laos, 7. júní. — (Reuter) 1 D A G bárust þær fréttir frá Laos, að herlið vinstri- manna og flokkar Pathet Lao-uppreisnarmanna hefðu með ákafri árás hrakið lið hægri-stjórnarinnar í Vienti- one úr aðalstöðvum sínum nálægt víginu Padong við suðurjaðar „Krukkusléttunn- «r“ svonefndu, sem er á valdi stjórnarandstæðinga og talin mjög mikilvæg hernað- arlega. Hörfaði stjórnarher- inn eftir mikil og mannskæð átök, sem lýst er sem einum harðasta bardaga, er um get ur síðan borgarastyrjöldin í Laos hófst. Það mun hafa verið vegna þessara frétta, að aflýst var boðuðum fundi á 14 ríkja Laos-ráðstefnunni í Genf í dag. Hefur ekki verið boð- aður nýr fundur, og munu fulltrúar nú væntanlega ráð færa sig við ríkisstjórnir sín- ar vegna þessa nýja vopna- hlésbrots í Laos. Helztu ráðgjafar bandaríska ut anríkisráðuneytisins í málefnum Suð-austur-Asiu voru í dag kall- aðir á fund í ráðuneytinu til þess að ræða ástandið í Laos og liorf- urnar á ráðstefnunni í Genf. — Dean Rusk, utanríkisráðherra, lét avo um mælt í dag, að ríkisstjórn In liti síðustu atburði í Laos og allt ástandið þar mjög alvarleg- Um augum. Hótabi Krúsjeff ? Washington, 7. júní. (NTB-Reuter). ÞA» VAR upplýst hér opin- berlega í kvöld, að sl. sunnu- dag hafi Kennedy forseta ver- ið afhentar í Vínarborg tvær yflrlýsingar frá sovétstjórn- innl — önnur um Berlínar- málið og hin varðandi sam- i komulagsumleitanirnar um bann við kjarnavopnatillög- um. — Salinger, blaðaðulltrúi forsetans, neitaði að segja nokkuð um innihald þessara yfirlýsinga. —•— Fyrr 1 dag höfðu borizt frétt ir frá Bonn, að blaðið „West- deutsche Allgemeine Zeitung" í Essen teldi sig hafa góðar heimildir fyrir því, að Krús- jeff hefði tjáð Kennedy í Vín arborg, að Sovétríkin væru staðráðin í því að gera sér- friðarsamninga við Austur- Þýzkaland þegar á þessu ári. • „Svivirðilegt brot“ Bandaríska sendinefndin á ráð stefnunni gaf út yfirlýsingu af þessu tilefni, þar sem segir, að hún telji hlé á fundum nauðsyn- legt, svo að hún geti ráðfært sig við Washingtonstjórnina vegna fréttanna um hina „alvarlegu bardaga og svívirðilegt brot á vopnahléssamkomulaginu í La- os“. Þá er minnt á það í yfir- iýsingu nefndarinnar, að Banda- ríkin hafi gengið til ráðstefn- Framhald á bls. 19. Jackie í Grikklandi AÞENU, 7. júní. (Reuter) — Jacqueline Kennedy, forsetafrú Bandaríkjanna, kom hingað með flugvél í dag. Mun hún dveljast vikutíma í Grikklandi og hvíla sig eftir annasama daga að undanförnu, er hún fylgdi manni sínum á för hans til Evrópu. Bretar svara loks mótmælum Dana vegna landhelgisbrotsins við Færeyjar á dögunurn LONDON, 7. júní (NTB/Reuter) — Brezka ríkisstjórnin hefir nú loks svarað mótmælaorðsendingu dönsku stjórnarinnar vegna þess atburðar á dö-gunum, er brezkur togari, sem framið hafði land- helgisbrot við Færeyjar, slapp frá danska varðskipinu Niels Ebbesen, fyrir tilverknað tveggja brezkra herskipa, en þau komu á vettvang eftir að varðskipið hafði skotið á togarann, er hann reyndi að komast undan á flótta. ★ Það var Joseph Godber, vara- utanríkisráðherra, sem afhen(i danska sendiherranum, Steensen- Leth, svar brezku stjórnarinnar. Málið óljóst, segja Bretar Talsmaður brezka utanríkis- ráðuneytisins neitaði í dag að segja nokkuð um efni svarsins. r Ibúar Bretlands- eyja 52,7 milljónir London, 7. júní (Reuter) SAMKVÆMT bráðabirgðatölum um fólksfjölda á Bretlandseyj- um, sem út hafa verið gefnar, hef ir íbúum fjölgað um 2% milljón síðan árið 1951. — Samkvæmt þessum tölum eru nú íbúar Eng- lands, Skotlands, Wales og Norð- ur-frlands samtals 52.675.094 — eða 2.449,870 fleiri en skráðir voru 1951. Mest hefir fjölgunin orðið í Englandi og Wales, og eru það nú þéttbýlustu svæði Evrópu, að Hollandi einu undanskildu. Hins vegar sagði Ritzau-frétta- stofan danska seint í kvöld, að brezka stjórnin harmi atburðinn í svari sínu, og dragi ekki í efa rétt danskra stjórnarvalda til að verja fiskveiðilandhelgina við Færeyjar. Hins vegar séu ýmis atriði málsins óljós, og treysti stjórnin sér því ekki til, að svo stöddu, að taka ákveðna afstöðu á grundvelli þeirra upplýsinga, sem fyrir liggi. — Enn fremur kveðst brezka stjórnin í svari sínu — að sögn Ritzau — eiga viðræður um málið við eigendur umrædds togara, „Red Crusad- er“ í Aberdeen, og ekki hafa að- stöðu til að bera fram neina til- lögu til lausnar fyrr en þeim viðræðum sé lokið. 1ÞRÁTT fyrir háalvarlegar í samræður þeirra Kennedys Bandaríkjaforseta og Krús- jeffs, forsætisráðherra Sovét- rikjanna, í Vínarborg á dög- unum, gáfu þeir sér þó tíma til þess að slá hvor annars frú nokkra gullhamra í fundahlé- um. — Hér er mynd af „Jackie“ Kennedy og Krús- jeff — og verður ekki annað séð en vel fari á með. þeim. — í blaði nokkru, sem birti þessa mynd, var textinn með henni svohljóðandi: Algerar andstæður — hin fagra og grannvaxna frú Kennedy, og hinn litli, sívali Krúsjeff . . . r Olafur kommgur kominn heim Stafangri, 7. júní (Reuter) ÓLAFUR konungur kom í morg- un til Stafangurs á skipi sinu „Norge“, eftir opinbera heim- sókn sína á íslandi. Var fjöldi fólks saman kominn við höfnina til þess að fagna konungi, er hann steig á land. Ólafur konungur hélt síðan á- fram til Oslóar með herflugvél. Frentsmiðja Morgunhlaðsins s Japans- stjórn lét undan Tókíó, 7. júní (Reuter) JAPANSKA ríkisstjórnin neyddist í dag til þess að fresta afgreiðslu frumvarps síns, sem miðar að því að koma í veg fyrir pólitískar ó- eirðir og uppþot — en frum- varp þetta leiddi einmitt til mikilla og alvarlegra óeirða í gær, sem einnig hafa haldið áfram í dag, þótt þær hafi ekká verið eins heiftúðugar og áður. Það mun hafa ráðið úrslit- um um það, að stjórnin ákvað að leggja frumvarpið til hliðar í bili, að nokkrir foringjar úr flokki hennar, Demókrata- flokknum, lýstu þvi yfir, að þeir myndu segja af sér, ef stjórnin héldi frumvarpinu til streitu óbreyttu. Belgum bolað úr foringjastöðum í Katangaber Leopoldville, 7. júní (Reuter) SEAN Mackeown, hinn írski yf- irhershöfðingi Sameinuðu þjóð- anna í Kongó, skýrði frá því í dag, að foringjar úr liði SÞ myndu brátt leysa af hólrni þá Belgíumenn og aðra Evrópu- menn, sem haft hafa á hendi her- stjórn í landvarnaliði Katanga- fylkis.Kvað hershöfðinginn þetta vera fyrsta skrefið í ráðgerðri endurskipulagningu Kongóhers — og í samræmi við samþykkt öryggisráðs SÞ frá 21. febrúar sl., þar sem svo var lagt fyrir, að allir erlendir liðsforingjar og ráðgjafar Kongóhersins skyldu fara úr landi. Norskur höfuðsmaður úr liði SÞ, Björn Egge, mun hafa um- sjón með framkvæmd þeirra breytinga á herstjórninni í Kat- anga, sem nú á að gera. Hélt hann flugleiðis til Elisabethville í dag. — Talið er, að 300—350 evrópskir liðsforingjar, aðallega Belgíumenn, þjóni nú í Katanga- hernum. Flateyjarbók afhent 17. júní? Talið, að beiðni um að fresta staðfestingu handritalaganna nái ekki fram að ganga Kaupmannahöfn, 7. júní Einkask. frá Páli Jónssyni Almennt er nú talið, að hinn 17. júní muni Jörgen- sen menntamálaráðhcrra af- henda Islendingum Flateyj- arbók sem eins konar tákn og staðfestingu á handrita- „gjöfinni“. Flateyjarbók er í Konungsbókhlöðu, og snertir tregða stjórnar Árnasafns að afhenda handritin hana því ekki. Hafnar eru tilraunir til að fá 60 þjóðþingsmenn til þess að skrifa undir tilmæli um, að frest að verði konunglegri staðfestingu laganna um afhending<u íslenzku handritanna, þar til frumvarpið hafi verið staðfest öðru sinni eft- ir nýjar þjóðþingskosningar. Slíka beiðni þarf, lögum sam- kvæmt, að afhenda í síðasta lagi þrem virkum dögum eftir sam- þykkt viðkomandi laga vlð þriðju umræðu. __•— Talið er ólíklegt, að nægilega margir — 60 eins og fyrr segir — fáist til að skrifa undir þessa frestunarbeiðni. Almennt er gert ráð fyrir, að báðir stjórnarflokk- arnir standi óskiptir með frum- varpinu ,svo og Sósíalíski þjóð- arflokkurinn og a. m. k. tveir vinstrimenn og tveir íhaldsmenn (Kraft og Thestrup) — en 30 íhaldsmenn, 13 vinstri og 6 ó- háðir kunni að undirrita beiðn- ina um frestun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.