Morgunblaðið - 20.06.1961, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 20.06.1961, Qupperneq 1
24 síður 48. árgangur Fyrsti síldardagurinn Saltað á öllum stöövum á Siglufirði FSestir fengu síld — samtals 17 þusund tunnur I G Æ R var saltað í öllum söltunarstöðvum á Siglufirði. Síldarskipin streymdu inn, því um 40 skip fengu sam- tals um 17 þúsund tunnur síldar þennan fyrsta „síld- veiðidag“ sumarsins. Þetta var stór og jöfn síld og veiddist mestöll í Reykjar- fjarðarál, um 25 mílur aust- an við Horn. Tvö skip fengu Stöðugur sfraumur flótta- manna BERX.ÍN, 19. júní (Reuter): — Flóttamannastjórnin í Vestur 'Berlín tók í síðustu viku á móti 4.770 flóttamönnum frá Austur Þýzkalandi, eða að meðaltali nærri 700 á dag'. Alls hafa um fjórar milljón ir manna flúið frá Austur til Vestur Þýzkalands, en íbúa- tala Austur Þýzkalands er nú um 16 milljómr. Járnbrautarslys PARÍS, 19. júní. (NTB) — Að minnsta kosti 24 fórust og 100 xnanns særðust er hraðlestin Strasbourg-París ók út af tein- unum á sunnudag. Tíu vagnar ultu út í mýrarfen og margir íarþeganna drukknuðu. Ekki er vitað um ástæðu fyr- ir slysinu. Lestin ók með um 130 km hraða, en það er eðli- legur hraði á þessu svæði. Rannsóknarnefnd vinnur að því að finna orsök slyssins og Robert Buron, umferðarmála- ráðherra, fór í dag á slysstað- inn. — síld um 15 mílur norð-aust- ur af Kolbeinsey. * * * Langmestur hluti sxldarinnar var saltaður, töluvert fór til fryst ingar, en minnst í bræðslu. Síld- in, sem veiddist austan við Horn mældist hafa 11—14% fitumagn, en síldin frá Kolbeinseyjarmið- unum var feitari 17—18%. Aflahæstu skipin, sem Mbl. hafði fregnir af, voru með 800 tunnur. Þetta voru Gjafar og Snæfell. Seint>í gærkveldi frétt- ist, að Páll Pálsson hefði einnig fengið 800 tunnur, en hann var þá enn að háfa úr nótinni. ♦ * * Nokkur skipanna, sem sfld fengu á sunnudagskvöldið, fengu aftur síld í gær, en þá munu flestöll síldveiðiskipin, sem kom- in eru norður, hafa fengið eitt- hvað Guðbjörg ÍS fékk 200 tunn- ur á sunnudag, fór með það til ísafjarðar, Og var í gærkveldi aftur á leið til lands með 600 tunnur. Það voru Helgi Flóventsson og Gunnar SU, sem síldina fengu við Kolbeinsey, Helgi 700 tunn- ur Og Gunnar 350. Stærstur hluti bátaflotans var í gærkveldi á leið vestur að Horni, en allmörg fóru hins vegar út að Kolbeinsey. Hafði fundizt þar töluverð síld, stóð hún djúpt, en sjómenn töldu góðar veiðihorfur, ef veður spillt- ist ekki. Saltað var á Siglufirði, eins og fyrr getur, en síld barst einnig til söltunar og frystingar til Ólafsfjarðar, Dalvíkur og ísa- fjarðar. * * * Þessi skip fengu síld í gær og í fyrrinótt: Tálknfirðingur 200, Hringver 400, Heiðrún 300, Guðm. Þórðar- son 400, Hrafn Sveinbjarnarson II 400, Keilir 250, Ágúst Guð- mundsson 500, Eldey 600, Jón Finnsson 450, Gjafar 800, Stapa- fell 450, Guðmundur á Sveins- eyri 150, Árni Þorkelsson 250, Helgi Flóventsson 700, Guðrún l Þorkelsdóttir 250, Sigurður S1 Frh. á bls. 23. Nýstúdentarnir Elsa Petersen og Guðrún Agnarsdóttir Ieggja blómsveit frá Reykvíkingum á gröf Jóns Sigurðssonar að morgni 7. júní. Forseti bæjarstjórnar, frú Auður Auðuns, og borgar- stjóri, Geir Ilallgrímsson, ganga þeim að baki. (Ljósm.: Sveinn Þormóðsson) Kenningin um að reyktur matur valdi krabbameini vekur athygii Styrkja Bandaríkjamenn rannsóknir hér? PRÓFESSOR Niels Dungal kom um helgina úr tveggja mánaða fyrirlestrarferð um Bandaríkin, þar sem hann flutti 8 fyrirlestra á 13 stöð- um, þann fyrsta á þingi 1000 sérfræðinga í meinafræði í Chicago. Fjölluðu fyrirlestr- arnir m. a. um kenningu hans um að reyktur matur geti vel valdið krabbameini og jákvæ&ar tilraunir, sem hann gerði með að fram- kalla krabbamein í rottum er fóðraðar voru á reyktum silimgi og hangikjöti. 10% kauphækkun þýðir 103 millj. kr. útgjaldaaukningu ríkissjóðs og hana verður almenningur að horga SAMKVÆMT útreikning- um, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, þýðir 10% launahækkun, að heildar- útgjöld ríkissjóðs hækka um 103,1 millj. kr. Svarar því hvert 1% í launa- hækkun til rúml. 10 millj. kr. útgjaldaaukningar rík- issjóðs. Þessa fjár verður að sjálfsögðu að afla aft- ur frá borgurunum eftir einhverjum leið'um. Hækkun útgjaldanna skiptist þannig, að út- gjaldaaukning vegna hækk aðra fastalauna og ann- arra launagreiðslna, sem sjálfkrafa hækka, mundi nema 48,7 millj. kr. Hækk un framlaga til almanna- trygginganna vegna 10% launahækkananna næmi 32,4 millj. og loks mundu fjárfestingarútgjöld þurfa að hækka um 22 millj. kr. Framhald á bls. 3. Vöktu tilraunir þessar geysi- mikla athygli vestra, ekki sízt þar sem aldrei hefur verið sann- að að magakrabbi orsakaðist af neinum mat. Stendur til að Bandaríkjamenn styrki áfram- haldandi rannsóknir hér. Þó verð ur það ekki endanlega ákveðið fyrr en seint á árinu. Fréttamenn áttu í gær tal við próf. Dungal. Sagði hann, að þair sem magakrabbi væri ákaflega mikill hér á landi í samanburði við ýmis önnur lönd hefði verið hafizt handa um að leita orsak- anna. Skýrslur, sem safnað var, sýndu að fiskneyzlan gat ekki verið orsökin, þar sem krabbi er algengari í sveitum en meðal sjómanna úti við sjávarsíðuna. Framh. á bls. 15

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.