Morgunblaðið - 29.06.1961, Blaðsíða 2
2
MORGVTSBLAÐIÐ
Fimmtudagur 29. júní 196i
Verðbólga bitnar harð-
ast á hinum efnaminnstu
A L L T síðan núverandi
ríkisstjórn gerði viðreisn-
arráðstafanir sínar á sl.
ári hefur Tíminn ekki
þreytzt á að reyna að koma
því inn hjá fólki, að ver-
ið sé að innleiða hér á
landi algjörlega úrelt efna
hagskerfi, sem flestar þjóð
ir heims hafi lagt allt
kapp á að losa sig við.
Síðast er þessi vizka höfð
eftir miðstjórn Framsókn-
arflokksins skömmu fyrir
síðustu helgi. Og eftir að
Kennedy tók við embætti
Bandaríkjaforseta hefur
Tíminn sínkt og heilagt
klifað á því, að hann miði
efnahagsráðstafanir sínar
sérstaklega við að byggja
út ámóta „kreppukerfi“
og hér sé verið að taka
upp. Hefur jafnvel helzt
verið svo á Tímanum að
skiljá, að Kennedy hafi til-
einkað sér „framleiðslu-
stefnu“ Framsóknarflokks-
ins svo til óbreytta.
Sannleikurinn er hins
vegar sá, að auðvitað er
miklu nær að kalla efna-
hagsmálastefnu Framsókn-
arflokksins úrelta og rang-
snúna, (að svo miklu leyti
sem um stefnu er að
ræða, því að stefna hans
er fyrst og fremst sú að
viðhalda hér höftum og
verðbólgu og hefur það
sennilega aldrei komið bet
ur í ljós en einmitt nú að
undanförnu.
IWW
Erindi um
Japan
LANDFRÆÐIFÉLAGIÐ heldur
fund í hátíðasal Menntaskólans í
Reykjavík, föstudaginn 30. júni
n.k. kl. 20,30. Þar mun Mr. Ric-
hard H. Pongh frá Bandaríkj-
unum flytja erindi á ensku um
Japan, og jafnframt sýna lit-
skuggamyndir þaðan.
Mr. Pongh er verkfræðingur
að menntun, sem hefur aflað sér
alhliða þekkingar á náttúru-
fræði. Hafa náttúruverndarmál
verið aðalstarf hans um langt
skeið. í Bandaríkjunum eru öfl
ug samtök einstaklinga og félaga
sem vinna að náttúruvernd og
hefur Mr. Pongh unnið á vegum
slíkra samtaka.
Honum var boðið í fyrir-
lestraferð til Bretlands og er nú
á leið heim aftur. Á vegum Flug-
félags íslands og Ferðaskrif-
stofu ríkisins hefur Mr. -Pongh
ferðast um svipað og erlendir
náttúruskoðaðar hafa gert á veg
um þessara aðila. í kvöld heldur
hann erindi um náttúruvernd í
Bandaríkjunum í hátíðasal Há-
skólans og annað kvöld talar
hann um Japan, eins og að fram
an getur, á vegum Landfræði-
félagsins. ' ..
Á síðustu árum hafa öll þau
lönd, sem átt hafa við svipuð
vandamál að stríða í efnahags
málum og við íslendingar,
reynt að vinna bug á þeim
með áþekkum ráðstöfunum og
hér voru gerðar á sl. ári. í
þessu sambandi má t.d. nefna
Finnland, Frakkland, Grikk-
land, Spán og Tyrkland, sem
öll hafa á síðari árum gert
efnahagsráðstafanir, sem sér-
staklega hefur verið beint
gegn höftum og verðbólgu og
svipað mjög til viðreisnarráð
stafana íslenzku ríkisstjórnar-
innar. Hafa þær hvarvetna bor
ið hinn bezta árangur, og í
því landi, sem lengst er um
liðið síðan til þeirra var grip-
ið (Grikklandi, 1953), má
segja, að þær hafi valdið al-
gjörum straumhvörfum í efna
hagsmálum.
Það er svo auðvitað hrein
fjarstæða að bera saman efna
hagskerfi fslands og Banda-
ríkjanna. Þau byggjast á ólík
um lögmálum, og vandamál-
in, sem við er að etja í þessum
tveim löndum, eru gerólík að
eðli.
Bandaríkin eru háþróað iðn
aðarland, sem ekki hefur náð
eins miklum hagvexti og á að
geta orðið. Stefna Kennedys
hefur því fyrst og fremst mið
að að því að örva þennan vöxt.
Og sennilega er ekkert fjær
stefnu Bandaríkjastjórnar í
efnahagsmáium en einmitt
kauphækkunar- og verðbólgu
stefna Framsóknarflokksins.
Má glögglega sjá þetta á efna
hagsmálastefnuskrá hennar,
sem Kennedy lagði fyrir Full
trúadeildina í febrúar s.l. Þar
segir m.a. í kafla þeim, sem
sérstaklega fjallar um fram-
leiðni og stöðugt verðlag:
„Við verðum nú öll að gera
okkur ljósa þörfina fyrir efna
hagsstefnu, sem gerir banda-
rískri framleiðslu kleift að
keppa með árangri við er-
lenda framleiðslu. Við þolum
ekki óheilbrigðar laiuna- og
verðlagsbreytingar, sem valda
hækkun framleiðslukostnaðar
ins, veikja samkeppnisaðstöðu
okkar á alþjóðavettvangi,
þrengja um á vinnumarkaðin
um og stofna efnahagslífi okk
ar í voða“.
Og nokkru siðar:
„Við munum heidur ekki
kaupa skammvinna efnahags-
lega ávinninga því verði að
stofna til óhóflegrar hækkunar
á framfærslukostnaðinum —
Verðbólgan, sem ætíð er
hættulegust hinum efna-
minnstu, mundi nú áreið-
anlega hafa í för með
sér alvarlega greiðlujafnðar-
erfiðleika og þar með skaða
efnahagskerfi hins vestræna
heims.
Orsakir verðbólgunnar eru
margvíslegar. Nokkrum sinn
um eftir stríðið hefur verðlag
hækkað allverulega vegna
þess að heildareftirspurnin
var meiri en framleiðsiugeta
okkar.
Ríkisstjórnin vill ekki stuðla
að slikri þróun og við munum
beita hinum áhrifamiklu tækj
um fjármálastefnu ríkisins og
lánastofnana til þess að stöðva
hana, ef hætta verður á henhi
í framtíðinni".
Kennedy leggur þannig á-
herzlu á nauðsyn þess að kaup
gjald og verðlag sé stöðugt og
• varar við verðbólguþróun,
sem alltaf komi harðast niður
á hinum efnaminnstu. Á sama
tíma beitir Framsóknarflokk-
urinn sér fyrir því, að kaup-
gjald sé spennt upp úr öliu
valdi og verðbólgunni sleppt
lausri á hina efnaminnstu.
Ana /5 hnúlor\
j/y1 S V SOhnútar
X Snjókoma * úii wm V Skúrír K Þrumur msss X KutíatkH
H Hmt I
NOKKIJÐ hefur rignt af lægð
inni fyrir suðvestan landið.
Fer hún hægt yfir, svo að fyr-
ir norðan mun hlýna í bili.
Á norður- og vesturhluta
kortsvæðisins er fremur svalt
en hlýtt suðaustantil. Er 20
stiga hiti í London Og 21 í
París og þegar kemur sunn-
ar og austar í álfuna er enn-
þá hlýrra, t.d. 27 stig í Madrid.
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi
Sv-land, SV-mið og Faxa-
flóamið: Hvass austan og
rigning fyrst, SA stinnings-
kaldi og skúrir á morgun.
Faxaflói, Breiðafjörður og
Breiðafjarðamið: Austan stinn
ingskaldi og dálítil rigning
fram á nóttina, SA kaldi og
skúrir á morgun.
Vestfirðir og Norðurland og
miðin: Austan stinningskaldi
eða allhvasst, þurrt veður
fram eftir nóttu en lítils hátt-
ar rigning á morgun.
NA-land, Austfirðir og mið-
in: Austan gola Og síðar kaldi,
skýjað, sums staðar rigning
þegar líður á nóttina.
SA-land og miðin: Austan
stinningskaldi og rigning
fyrst. Sunnan kaldi og skúr-
ir á morgun.
Tiikynna skal flug yfir
landamœri A-Þýzkalands
Berlín 28. júní
(Reuter-NTB)
STJÓRN Austur-Þýzkalands til-
kynnti í dag, að frá og með 1.
ágúst yrðu allar erlendar flug-
vélar sem búnar væru loftskeyta
tækjum að fá leyfi austur-þýzkra
yfirvalda til flugs inn og út yfir
austur-þýzkt landsvæði.
Verða flugvélarnar að tilkynna
stjórnarvöldunum áður en þær
fljúga inn yfir landsvæðið og
verður þá aftur tilkynnt, hvort
þeim sé það heimilt. Sama máli
gegnir þegar flugvélar fljúga út
yfir landamærin. Jafnframt mun
stjórnin taka 50 austur-þýzk
mörk sem leyfisgjald fyrir að
fljúga inn yfir landið.
Talsmaður vestur-þýzku stjórn
arinnar í Bonn sagði í dag, að
yj Jr, S
Verður Sigurður
fiskrannsóknaskip?
FISKVEIÐIÞJtolR leggja nú
mikið kapp á rannsóknarstörf
varðandi fiskveiðar og fiskverk-
un. Á bls. 6 í blaðinu er sagt
frá nýju fiskirannsóknarskipi,
sem Bretar eru að byggja. Mbl.
hefur fregnað að Einar Sigurðs
son, útgerðarmaður, hafi boðið
íslenzku ríkisstjórninni togarann
Sigurð fyrir fiski- og hafrann-
sóknarskip.
Togarinn er sem kunnugt er
einn af stærstu togurunum, um
1000 lestir að stærð, rúmar 500
lestir af fiski og hefur kæliút-
búnað. Vandaðar íbúðir eru í
skipinu fyrir 48 menn, eins
tveggja og fjögurra manna her-
bergi. Skipið hefur 2300 hestafla
dieselvél með skiptiskrúfu og
Snjór í Skarðs-
heiðinni
FREGNIR að norðan bera með
sér að í kuldunum undanfarið
hafi snjóað í fjöll. í gær mátti sjá
héðan úr Reykjavík, að nýfallinn
snjór var efst í Skarðsheiðinni.
gekk I6V2 sjómílu í reynsluferð.
Skipið er útbúið öllum togút-
búnaði og margháttuðum sigling
ar- og fiskleitartækjum skv. nýj
ustu kröfum og hefur skipið m.a.
svokölluð stór síldarleitartæki.
Flogið í dag
EKKERT var flogið innanlands í
gær, en í dag áætlar Flugfélag
íslands að fljúga milli Egilsstaða
Og Keflavíkur. Upppantað er í
flugvélina báðar leiðir. Óráðið er,
hvort flogið verður á morgun.
ákvæði þetta mundi ekki hafa
bein áhrif fyrir Vestur-Þýzka-
land, því það eru aðeins banda-
rískar, brezkar og franskar flug-
vélar, sem annast áætlunarflug
til Berlínar.
Jafnframt er haft eftir áreið-
anlegum heimildum í Vestur-
Berlín, að ákvæðia gildi ekki um
herflutninga og vöruflutninga
herja Vesturveldanna í borginnL
Drætti frestað hjá
Krabbameinsfél.
SÖKUM HINS óeðlilega ástands
í atvinnumálum, hefur sala í
siðasta happdrætti félagsins geng
ið mun tregar en áætlað var.
Hefur Krabbameinsfélag Rvíkur
því fengið leyfi viðkomandi ráðu
neytis til þess að mega fresta
drætti í rúman mánuð, eða til 2.
ágúst n.k.
Vér treystum bæjarbúum til
að styðja málefni vort, þrátt fyr
ir þessa töf, með því að kaupa
miða við happdrættisbílinn að
Laugavegi 7.
Krabbameinsfél. Reykjavíkur.
Ný fiskbúð
HAFNARFIRÐI: — f dag verður
Opnuð ný fiskbúð að Hverfis-
götu 56, þar sem áður var Palla-
búð. Eigendur eru þeir Albert
Magnússon og Oddur Jónsson, er
áður ráku „Turninn". Hafa þeir
félagar látið innrétta búðina á
smekklegan hátt og er þar öllu
haganlega fyrir komið.
Auk fisks munu þeir hafa á
boðstólum ýmiss konar niður-
suðuvörur og kartöflur.
Slysið við Hofsós
VEGNA fréttar í blaðinu á þriðju
dag um bifreiðarslys, sem varð
rétt fyrir sunnan Hofsós á laug-
ardagsmorgun, hafa tveir þeirra,
er í slysinu lentu, komið að máli
við blaðið. Telja þeir of sterkt
til Orða tekið í frásögn blaðsins
af slysinu, og meiðsli þess, er
skarst í andliti, vera minni en
frásögnin gefur til kynna. Enn
fremur telja þeir bifreiðina hafa
orðið fyrir mun minni skemmd-
um en blaðið segir. Megi það
teljast mildi forsjónarinnar, að
ekki fór verr en skyldi um slys
á mönnum. Þriðji maðurinn mun
enn dveljast í sjúkrahúsinu á
Sauðárkróki.