Morgunblaðið - 09.07.1961, Síða 1

Morgunblaðið - 09.07.1961, Síða 1
24 siðui 48. árgangur 151. tbl. — Sunnudagur 9. júlí 1961 Prentsmiuja Morgunblaðsíns Banatil- ræði við sendiherra SAIGON, Suður-Vietnam, 8. júlí. (Reuter) — Ger® var tilraun til að myrða sendiherra Banda- ríkjanna hér í dag. Þegar sendi herrann, Frederick Nolting, var að aka heim til sín um hádegis- bilið, ásamt lífverði sínum, óku tveir menn á mótorhjóli skyndi lega upp að bifreiðinni, og varp- aði annar þeirra handsprengju að henni. Sprengjan hraut upp á þak bifreiðarinnar og síðan aft- nr eftir því — og festist ioks við ,rstuðarann“, án þess að springa. Liífvörður sendiherrans stökk þegar út úr bifreiðinni með byssuna á lofti. Tilræðismaður- inn hafði þá snúið mótorhjólinu og ók burtu á fullri ferð — en félagi hans, sem hafði fallið af hjólinu, bröltá á fætur og hvarf í mannþröngina áður en lífvörð- urinn gat miðað byssu sinni. á móti bragði | DANSKA blaðið Information f hefir það eftir heimildum úr Íýmsum áttum, einkum þó í Bonn, að í svari sínu við Berlínaryfirlýsingu Krúsjeffs muni Bandaríkjastjórn hóta að segja upp Potsdam-samn- ingunum frá 1945 — ef Rúss- ar geri alvöru úr því að reyna að knýja fram hina yfirlýstu stefnu sína í Berlin og Þýzka- landsmálunum. Ef Bandaríkin ógiltu Pos- dam-samkomulagið fyrir sitt leyti, hefði það m. a. í för með sér, að þau viðurkenndu ekki lengur yfirráð Sovétríkj- anna yfir hluta Austur-Prúss- lands. Vmrætt landsvæði var innlimað í Sovétríkin með samþykki Bandaríkjanna, Bretlands og Frakklands 1945. Mesta námuslys á árinu 108 kolanámumenn fórust b Tékkóslóvakiu er kviknaði í gasi. í námugöngum ____________________________ PRAG, 8. júlí. — (Reuter) — Ægilegt námuslys varð í Tékkóslóvakíu í gær. Tékk- neska fréttastofan CETEKA skýrði frá því í dag, að 108 manns hefðu farizt, er skyndi lega varð mikil sprenging í kolanámu við Dukla, um 280 km austur af *Prag. Er talið, að sprengingin hafi orðið með þeim hætti, að kviknað hafi í methangasi — en á samri stundu og sprengingin varð urðu öll námagöngin al- elda. — ★ — Einn af stjórnendum kola- námunnar sagði, að eldurinn hefði farið með eldinganhraða um göngin og hitinn hefði þegar orðið gifurlegur. Björgunarráð- stafanir voru gerðar þegar i stað, og komu björgunarsveitiir fná nærliggj andi þorpum og kola- námum skjótt á vettvang. — En óskaplegur reykur og hiti voru mikill þrándur í götu alls björg- unarstarfs. Þrátt fyrir litlax von ir um björgim, var þó tilraun- um haldið áfram fram á nótt. Undir morguninn fyrirskipuðu yfirvöldin svo að hætta björgun- artilraunum, þar sem vonlaust mætti telja, að nokkur námu- mainnanna væri á lífi. Væri ekki verjandi að halda áfram tilraun um til að komast inn í námu- göngin, þar sem það hefði í för með sér mikla lífshættu. * * * Þetta er mesta námuslys, sem orðið hefir á þessu ári. Ógur- legasta námuslys, 9em sögur fara af, varð í Mansjúríu árið 1942, en þar fórust 1.549 manns. UNDANFARIÐ hefur verið l saltað á síldarplönunum norð ( anlands svo að segja nott og dag. En það er ekki á henni að sjá þessari siglfirzku blómarós að lítið sé um hvíld, en erfiðið mikið. Það hjálpar kannski til að silfur hafsins færir lika skotsilfur í vas- ann og kannski er hún að hugsa um að hægt er að < kaupa eitthvað fallegt fyrir 7 það. Myndin var tekin á síld- 1 arplani á Siglufirði fyrir I nokkrum dögum. [ Krúsjeff skákar Mao SEOUU, S.-Kóreu, 8. júlí. (Reut- er) — Hong II Kim, utanríkisráð herra Suður-Kóreu lét svo nm mælt í dag, að hinn nýi varnar samningur, sem Sovétríkín gerðu við Norður-Kóreu nú í vikunni, sýiri það glöggt, að Krúsjeff hafi tryggt sér sterkari aðstöðu Misklíði n milli Bandaríkjanna og Formósu í Norður-Kóreu en Mao Tse Tung. — Sagði utanríkisráðherr ann, að samningurinn sé tilraun til þess að leiða N.-Kóreu frá Bandaríkjastiórn lýsir yfir „öbreyttri stefnu" gagnvart báðum, kínversku ríkisstjórnunum EINS og sagt var frá í frétt í blaðinu í gær, óttast For- mósustjórn það nú, að Banda ríkin hyggist taka upp nýja stcfnu gagnvart kommúnista- stjórninni í Peking — og að þau kunni jafnvel að fallast á aðild hennar að Sameinuðu þjóðunum. — Það er líka kunnugt, að Bandaríkjastjórn hefir ihugað þann möguleika að bera fram tillögu um það á Allsherjarþinginu í haust, að Pekingstjórnin fái inn- göngu í SÞ — en þjóðernis- sinnastjórnin á Formósu haldi fyrri stöðu sinni innan sam- takanna eigi að síður, hafi m. a. áfram fast sæti og neit- unarvald í Öryggisráðinu. — Formósustjórn hefir vísað slíkum hugmyndum alger- lega á bug — og má nú segja að grunnt sé á því góða milli þessara tveggja stjórna. Sendi herra Bandaríkjanna á For- mósu er komin heim til Was- hington til þess að ræða mál- in við stjórnina. ★ Óbreytt stefna Eftir ýmsum erlendum blöð um að dæma ,hefir hugmyndin um aðild beggja kínversku rík- isstjórnanna mætt mikilli mót- spyrnu innan sjálfra stjórnarher búðanna í Wasliington — og blaðafulltrúi bandaríska utan- ríkisráðuneytisins, Lincoln White, sagði það eiginlega berum orð- um sl. fimmtudag, að fallið hefði verið frá hugmyndinni. Lagði hann áherzlu á, að stefna Banda ríkjanna gagnvart kínversku ríkjunum væri óbreytt. Hins vegar kvað hann nú rætt um, hvernig snúast skyldi við þeim tillögum varðandi sæti Kína hjá SÞ, sem búast mætti við, að kæmu fram á Allsherjarþinginu í haust. Aðeins timaspursmál Eins og kunnugt er, hefir mjög verið deilt um þetta mál á Frh. á bls. 2 kínversku kommúnistalíminni og efia þar með ítök Rússa í aust- asta liluta Asiu. * * * Þessi samningur mun hafa sín áhrif til þess að viðhalda skipt- ingu Kóreu í framtíðinni, sagði Hong utanríkisráðherra, — og „ber vott um það, að Sovétrík- in hafa hug á að koma ár sinni sem bezt fyrir borð í norður- hlutanum, jafnvel hernema hann, gera innrás í Suður-Kóreu — og gera landið allt að komm- únísku leppríki sínu“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.