Morgunblaðið - 09.07.1961, Blaðsíða 1
24 siðui
48. árgangur 151. tbl. — Sunnudagur 9. júlí 1961
Prentsmiuja Morgunblaðsíns
Banatil-
ræði við
sendiherra
SAIGON, Suður-Vietnam, 8. júlí.
(Reuter) — Ger® var tilraun
til að myrða sendiherra Banda-
ríkjanna hér í dag. Þegar sendi
herrann, Frederick Nolting, var
að aka heim til sín um hádegis-
bilið, ásamt lífverði sínum, óku
tveir menn á mótorhjóli skyndi
lega upp að bifreiðinni, og varp-
aði annar þeirra handsprengju
að henni. Sprengjan hraut upp
á þak bifreiðarinnar og síðan aft-
nr eftir því — og festist ioks
við ,rstuðarann“, án þess að
springa.
Liífvörður sendiherrans stökk
þegar út úr bifreiðinni með
byssuna á lofti. Tilræðismaður-
inn hafði þá snúið mótorhjólinu
og ók burtu á fullri ferð — en
félagi hans, sem hafði fallið af
hjólinu, bröltá á fætur og hvarf
í mannþröngina áður en lífvörð-
urinn gat miðað byssu sinni.
á móti
bragði
| DANSKA blaðið Information
f hefir það eftir heimildum úr
Íýmsum áttum, einkum þó í
Bonn, að í svari sínu við
Berlínaryfirlýsingu Krúsjeffs
muni Bandaríkjastjórn hóta
að segja upp Potsdam-samn-
ingunum frá 1945 — ef Rúss-
ar geri alvöru úr því að reyna
að knýja fram hina yfirlýstu
stefnu sína í Berlin og Þýzka-
landsmálunum.
Ef Bandaríkin ógiltu Pos-
dam-samkomulagið fyrir sitt
leyti, hefði það m. a. í för
með sér, að þau viðurkenndu
ekki lengur yfirráð Sovétríkj-
anna yfir hluta Austur-Prúss-
lands. Vmrætt landsvæði var
innlimað í Sovétríkin með
samþykki Bandaríkjanna,
Bretlands og Frakklands 1945.
Mesta námuslys á árinu
108 kolanámumenn fórust
b Tékkóslóvakiu er kviknaði
í gasi. í námugöngum
____________________________
PRAG, 8. júlí. — (Reuter) —
Ægilegt námuslys varð í
Tékkóslóvakíu í gær. Tékk-
neska fréttastofan CETEKA
skýrði frá því í dag, að 108
manns hefðu farizt, er skyndi
lega varð mikil sprenging í
kolanámu við Dukla, um 280
km austur af *Prag. Er talið,
að sprengingin hafi orðið
með þeim hætti, að kviknað
hafi í methangasi — en á
samri stundu og sprengingin
varð urðu öll námagöngin al-
elda.
— ★ —
Einn af stjórnendum kola-
námunnar sagði, að eldurinn
hefði farið með eldinganhraða
um göngin og hitinn hefði þegar
orðið gifurlegur. Björgunarráð-
stafanir voru gerðar þegar i stað,
og komu björgunarsveitiir fná
nærliggj andi þorpum og kola-
námum skjótt á vettvang. — En
óskaplegur reykur og hiti voru
mikill þrándur í götu alls björg-
unarstarfs. Þrátt fyrir litlax von
ir um björgim, var þó tilraun-
um haldið áfram fram á nótt.
Undir morguninn fyrirskipuðu
yfirvöldin svo að hætta björgun-
artilraunum, þar sem vonlaust
mætti telja, að nokkur námu-
mainnanna væri á lífi. Væri ekki
verjandi að halda áfram tilraun
um til að komast inn í námu-
göngin, þar sem það hefði í för
með sér mikla lífshættu.
* * *
Þetta er mesta námuslys, sem
orðið hefir á þessu ári. Ógur-
legasta námuslys, 9em sögur fara
af, varð í Mansjúríu árið 1942,
en þar fórust 1.549 manns.
UNDANFARIÐ hefur verið l
saltað á síldarplönunum norð (
anlands svo að segja nott og
dag. En það er ekki á henni
að sjá þessari siglfirzku
blómarós að lítið sé um hvíld,
en erfiðið mikið. Það hjálpar
kannski til að silfur hafsins
færir lika skotsilfur í vas-
ann og kannski er hún að
hugsa um að hægt er að <
kaupa eitthvað fallegt fyrir 7
það. Myndin var tekin á síld- 1
arplani á Siglufirði fyrir I
nokkrum dögum. [
Krúsjeff
skákar Mao
SEOUU, S.-Kóreu, 8. júlí. (Reut-
er) — Hong II Kim, utanríkisráð
herra Suður-Kóreu lét svo nm
mælt í dag, að hinn nýi varnar
samningur, sem Sovétríkín gerðu
við Norður-Kóreu nú í vikunni,
sýiri það glöggt, að Krúsjeff
hafi tryggt sér sterkari aðstöðu
Misklíði n milli Bandaríkjanna og Formósu
í Norður-Kóreu en Mao Tse
Tung. — Sagði utanríkisráðherr
ann, að samningurinn sé tilraun
til þess að leiða N.-Kóreu frá
Bandaríkjastiórn lýsir yfir „öbreyttri stefnu"
gagnvart báðum, kínversku ríkisstjórnunum
EINS og sagt var frá í frétt
í blaðinu í gær, óttast For-
mósustjórn það nú, að Banda
ríkin hyggist taka upp nýja
stcfnu gagnvart kommúnista-
stjórninni í Peking — og að
þau kunni jafnvel að fallast
á aðild hennar að Sameinuðu
þjóðunum. — Það er líka
kunnugt, að Bandaríkjastjórn
hefir ihugað þann möguleika
að bera fram tillögu um það
á Allsherjarþinginu í haust,
að Pekingstjórnin fái inn-
göngu í SÞ — en þjóðernis-
sinnastjórnin á Formósu haldi
fyrri stöðu sinni innan sam-
takanna eigi að síður, hafi
m. a. áfram fast sæti og neit-
unarvald í Öryggisráðinu. —
Formósustjórn hefir vísað
slíkum hugmyndum alger-
lega á bug — og má nú segja
að grunnt sé á því góða milli
þessara tveggja stjórna. Sendi
herra Bandaríkjanna á For-
mósu er komin heim til Was-
hington til þess að ræða mál-
in við stjórnina.
★ Óbreytt stefna
Eftir ýmsum erlendum blöð
um að dæma ,hefir hugmyndin
um aðild beggja kínversku rík-
isstjórnanna mætt mikilli mót-
spyrnu innan sjálfra stjórnarher
búðanna í Wasliington — og
blaðafulltrúi bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins, Lincoln White,
sagði það eiginlega berum orð-
um sl. fimmtudag, að fallið hefði
verið frá hugmyndinni. Lagði
hann áherzlu á, að stefna Banda
ríkjanna gagnvart kínversku
ríkjunum væri óbreytt. Hins
vegar kvað hann nú rætt um,
hvernig snúast skyldi við þeim
tillögum varðandi sæti Kína hjá
SÞ, sem búast mætti við, að
kæmu fram á Allsherjarþinginu
í haust.
Aðeins timaspursmál
Eins og kunnugt er, hefir
mjög verið deilt um þetta mál á
Frh. á bls. 2
kínversku kommúnistalíminni og
efia þar með ítök Rússa í aust-
asta liluta Asiu.
* * *
Þessi samningur mun hafa sín
áhrif til þess að viðhalda skipt-
ingu Kóreu í framtíðinni, sagði
Hong utanríkisráðherra, — og
„ber vott um það, að Sovétrík-
in hafa hug á að koma ár sinni
sem bezt fyrir borð í norður-
hlutanum, jafnvel hernema hann,
gera innrás í Suður-Kóreu —
og gera landið allt að komm-
únísku leppríki sínu“.