Morgunblaðið - 15.07.1961, Page 1
20 siður
48. árgangur
156. tbl. — Laugardagur 15. júlí 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Að æfingum uustan Islunds
Varnarliðið i
Keflavík fylgist
með rússneska
flotanum
EINS og frá var skýrt í bla8-
inu í gær, eru rússnesk her-
skip nú að æfingum á hafinu
austur undan Islandi. Vegna
þessara frétta sneri blaðið
sér til varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli og óskaði eftir
upplýsingum um flotaæfing-
arnar. Barst Mbl. stutt 'til-
kynning um þær frá varnar-
liðinu í gærkvöldi, og birtist
hrn hér að neðan.
★
Jafnframt hefir blaðið fengið
leyfi til þess að birta myndirnar
tvær hér á forsíð<unni, er sýna
tvö rússnesku berskipanna í flota
þeim, sem er á svæðinu milli
íslands og Noregs þessa dagana.
Myndirnar eru teknar úr eftir-
litsflugvélum af Keflavíkurflug-
velli, sem fylgzt hafa með æfing-
um Rússanna.
Upplýsingarnar, sem Mbl. fékk
í gær frá varnarliðinu eru á
þessa Ieið:
„Sovézki flotinn virðist nú
vera að minni háttar æfingum á
hinu alþjóðlega hafsvæði milli
íslands og Noregs. Flotastyrkur-
inn, sem í enu nokkur beitiskip,
tundurspillar, kafbátar og að-
stoðarskip, tók að safnast saman
á Atlantshafi fyrir um það bil
hálfum mánuði, og hefir hann
verið athugaður úr flugvélum
frá Keflavík. — Eftirlitsflugvélar
varnarliðsins á Islandi fylgjast
með gangi flotaaðgerðanna, um
leið og þær hafa venjulega gát
á öllum skipaferðum á Norður-
Atlantshafssvæðinu“.
Talsmaður NATO:
Engar upplýsingar
Mbl. gerði þegar í fyrradag
fyrirspurn til aðalstöðva Atl-
antshafsbandalagsins í París,
vegna fréttanna um flotaæf-
ingar Rússa, sem fyrst bárust
frá Ósló.
Seint í gærkvöldi barst loks
svar við fyrirspurn blaðsins.
Segir þar aðeins, að talsmað-
ur NATO í aðalstöðvum banda
lagsins vilji ekkert um mál-
ið segja.
Þetta stóra beitiskip er í hinni
rússnesku flotadeild, sem nú
er að æfingum austur af ís-
landi. Það er í stærðarflokki
þeim, er „Sverdlov" nefnist
— 689 feta Iangt, 70 fet á
breidd, og hámarkssiglinga-
hraði þess er 34,5 hnútar. —
Flest skip í þessum flokki
hafa verið smíðuð eftir 1951,
og á þeim eru um 1.050 sjó-
liðar. —
(Ljósm.: Varnarliðið)
Danskui krabbameinssérfræðingur um kenningu Dungals:
Ekki nægilega rðkstudd
Daninn veit ekki hið nýjasta,
segir prófessor Dungal
Þessl „Skoryi"-tundurspillir er elnnlg „nágranni" okkar þessa dagana, ásamt ca 250 sjóliðum,
sem vera munu þar um borð- Skipið er um 490 fet á lengd og getur siglt með 38 hnúta hraða.
KAUPMANNAHAFNAR-
BLAÐIÐ Politiken skýr5i
sl. fimmtudag lauslega frá
kenningum próf. Níelsar
Dungals um að reykt mat-
væli geti framkallað krabba-
mein. — I þessu sambandi
hefir blaðið svo spurt krabba
meinssérfræðinginn dr. med.
Johannes Clemmesen, yfir-
lækni, álits á kenningum
Dungals.
Samkvæmt frásögn Poli-
tiken telur dr. Clemmesen
þær athyglisverðar, og sé
ekki hægt að vísa þeim á
bug. En framframt segirhinn
danski sérfræðingur, að ekk-
ert sé raunverulega hægt um
efnið að segja, fyrr en kenn-
ingarnar hafi verið rökstudd-
ar miklu nánar en raunin sé
nú. Segir hann t. d., að at-
huganir hins íslenzka pró-
fessors á magakrabba hafi
I Framh. á bls. 19
Dean Rusk;
Neitunorvald
gegn ,þrístjórn‘
WASHINGTON, 14. júlí —
CNTB/AFP) — Bandarikin
höfnuðu í dag formlega hin-
um sovézku tillögum um að
leg>gja niður embætti fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna og koma í staðinn á
,,þristjórn“ samtakanna, þar
sem einn fulltrúi væri frá
kommúnistaríkjunum, einn
frá vesturveldunum og banda
mönnum þeirra og einn úr
hópi hlutlausra ríkja.
Dean Rusk, utanríkisráð-
herra, sagði í yfirlýsingu, sem
áður hafði hlotið samþykki og
staðfestingu Kennedys for-
seta, að Bandaríkin mundu
beita neitunarvaldi sínu, ef
slík tillaga væri lögð formlcga
fram. Hann sagði, að ef farið
yrði að vilja Sovétríkjanna í
1 þessu efni, væri það sama sem
að láta samtök SÞ „fremja
sjálfsmorð“.