Morgunblaðið - 23.07.1961, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.07.1961, Blaðsíða 5
Sunnudagur 23. júlí 1961 MORGVNBLAÐIÐ 5 DAGSm i Finnst yður Rússarnir ekki komnir fullnærri okkur, þegar þeir eru að flotaæfingum 125 km austur af íslandi. Jón Guðmundsson, bóndi á Keykjum: — Stríðsæsingamenn viðhafa hina undarlegustu til- burði og hundakúnstir þegar þeir álíta það nauðsynlegt. ;• Það er stað- reynd, að komm | inistar hafa þá íkoðun (trú) að Iþeirra stefna ein I ;é megnug að 'eysa allan /anda mann- Iskepnunnar á w þessari jörð. Því .. tniður fyrir þá er mikill hluti íbúa jarðar á ann- arri skoðun. Þess vegna hafa þeir tekið það ráð að troða stefnu þessari upp á saklaust fólk með igóðu eða illu. Af þessari viðleitni þeirra hafa hlotizt deilur og jafn vel styrjaldir með tilheyrandi morðum og manndrápum. Dæmi: Ungverjaland, Kórea. Árangur- inn af þessu hefir verið sá, að áhrifasvæði Vesturveldanna hef- ir minnkað en Sovétveldanna stækkað. Að þessu athuguðu er ástæða til að ætla, að Rússar setlist til þess að Atlantshafs- bandalagsríkin líti á nærveru her skipanna við ísland sem ógnun, er gæti skapað taugaveiklun meðal ráðandi manna og raunar alls almennings hins frjálsa (heims. Heimsókn dr. Stikkers til íslands hefir vafalaust gefið hin- um góðu viðskiptavinum fslend- inga í austri kærkömið tækifæri til að sýna klærnar, einkum og sér í lagi þar sem flotinn hefir tekið að sér yfirstjórn á vörnum íslands. Hannibal Valdemarsson, alþm.: • Ég hef ekkert j um þetta mál ] að segja. Ég held I að Stikker hafi fsvarað þessu um | daginn. Ég vísa Sbara til hug- I hreystingarorða ihans. Ég er lekkert authori- tet um þessa hluti. Ég verð að treysta Stikker í þessum efnum. Kristján Albertsson, rithöfund- ur: — Ekki veit ég hversu mörg- um mílum frá ströndum annara ríkja rétt þykir eða sæmilegt að stórveldi hafi flotaæfingar. En þessar skotæfing [ ar rússneska flot' ans undan strönd um íslands ættu að nægja til þess að landvætt ir hafi andvara á sér, ef þetta land er þá ekki heill- um hörfið vegna þeirrar eitrunar sem það hefur í sig drukkið frá allskonar sovét-pöddum og öllum þeim mörgu sem við þær gæla. Hinn tröllaukni vígbúnaður Rússa á hafinu undirstrikar, bet- ur en nokkur orð fá gert, alla flónsku hinna verstu og afskap- legustu einfeldinga, sem fram hafa komið í sögu lands vors síð- an á Sturlunga-öld, þeirra sem m. a. nýlega ráfuðu Keflavíkur- göngu til þess að nudda um það enn á ný, að ísland þyrfti um fram allt að vera óvarið land ef koma skyldi til nýrra blóðugra átaka um yfirráðin í heiminum. Má ég látá þess getið, að mér þykir Rússar líka köma of ná- lægt íslandi þegar þeir reisa hér Rúblu-höll, eða senda fjárgjafir til að styrkja pólitískar aðgerðir sem að því miða að grafa undan efnahagskerfi landsins, stofna til vandræða fyrir stjórn þess og koma óorði á ísland sem eina land álfunnar sem búi við stöðuga óvissu um verðgildi pen- inga sinna og hag og öryggi framleiðslu og þjóðarbús. Um allt þetta má segja líkt og skáldið kvað: Og glöggt er það enn hvað þeir vilja. Fjarlægðir milli landa og heimsálfa styttast óðfluga ár frá ári, verða að mark leysu fyrir vaxandi hraðfleygi bæði manna og morðvopna. Hvers vegna skyldu Rússar verða feimnari við okkur en t. d. Eist- lendinga, ef ísland skyldi ein- hvern tíma liggja vel við höggi — eftir langan, margvíslegan og rækilegan undirbúning innlendra svikara og bjána? Hvers vegna má ísland ekki fá að vera frjálst land í frjálsu varnarbandalagi við aðrar frjáls- ar þjóðir heimsins? Hvers vegna liggur hirð Krúsjeffs á íslandi og rússneskum söfnuði í Reykja- vík svo óskpalega á, að þræla íslandi undir djöfuldóm hins versta Oks, sem nú þekkist á !i::::ii:"-" ........ •>„ 'N. —- Þú ættir að sýna karí- mennsku þína og kvarta undan því hve skórnir þrengja að þér. '' Moskvubúi nokkur, fvan að nafni, sem var mjög feiminn, kom dag nokkurn inn tii for- stjóra verksmiðjunnar, sem var kona og stamaði: — Frú forstjóri, get é,g ekki fengið frí eftir hádegið, því að ég hef fengið miða í óperuna? Hún hrópaði: — Ivan, hvernig vogarðu þér að ávarpa mig frú forstjóra, þú átt að segja félagi forstjóri. Hvaða ópera er það annars, sem þú hefur fengið miða á? — Félagi Butterfly, svaraði Ivan. —k— Kona nokkur kom með björn í aðgöngumiðasölu í kvikmynda- húsi. — Nei, heyrið þér nú frú mín, þetta gengur ekki, sagði miða- sölustúlkan, það er stranglega bannað að fara með villidýr inn í salinn. — Ó, sagði frúin og stundi, getið þér ekki gert undantekn- ingu þetta eina sinn? Björninn minn var nefnilega svo hrifinn af sögunni, sem myndin er gerð eftir. jörðinni — oksins sem Austur- Þjóðverjar eru nú að flýja þús- undir hverja viku, áður en það kann að verða um seinan — í viðbót við þær milljónir sem áður höfðu flúið viðurstyggð kommúnismans? Verri blóðeitrun hefur aldrei þekkzt á íslandi. Eiríkur Hreinn Finnbogason, cand. mag.: — Ég býst varla við að það skipti miklu máli hvort þeir eru 125 km undan landi eða t. d. 500 km-fjarlægðirnar eru orðnar svo lítilvægar. En þetta ætti eigi að síður að minna okkur á þann vanda, sem að okkur steðj ar: Algert öryggisleysi andspæn- is hinu volduga einræðisveldi, ef við nytum ekki styrks frá vest- rænum varnarsamtökum;. mikill Og vaxandi áhugi kommúnista á málefnum Okkar; áhrifamikill kommúnistaflokkur innanlands; efnahagsástand; sundurþykk lýð ræðisöfl. Andspænis þessu stöndum við, og má ætla, að viturlega þurfi að breyta, ef ekki á að hljótast verra af. Ekki mun þjóðinni a.m.k. hollt að láta skeika að sköpuðu; í slíku útliti ekki held- ur að gefa sig á vald öfgum Og áróðri. Ætli reyndist ekki haldbezt hér sem endranær, að hver og einn reyndi að brjóta málin til mergj- ar eftir beztu getu Og breytti svo í samræmi við það. Erfið- leikar okkar innanlands verða ekki leystir með öðru en þegn- skap og sanngirni lýðræðisafl- anna — af öðrum er slíks ekki að vænta. Og kommúnismann sigrum við ekki með öðru en sannleika. Pétur Benediktssou, banka- stjóri: — Sumir skilja ekki fyrr en skellur í tönnunum, Og flota- æfingar Rússa rétt austur af fs- landi ættu að geta sýnt þeim |fram á, að Rúss- |ar eru þess al- #.,búnir að hefja jk \ . ^hernaðaraðgerð ** > ,ir í námunda við ísland ekki síður V.WJ en annars staðar. Annars hélt ég ekki, að það væri neitt leyndarmál, hvílík hætta heiminum stafar af drottnunar- stefnu Rússa — ef menn líta á málin opnum augum og nenna að hugsa. Heræfingar fimmtu her deildar Rússanna í íslenzkum efnahagsmálum undanfarnar vik- ur er þó það, sem okkur stafar mest bein hætta af í bili. Læknar fjarveiandi Árni Björnsson til 2. ágúst (Stefán Bogason). Bergsveinn Ólafsson óákv. tíma. — Staðg.: Augnl. Pétur Traustason, heim ilisl. Þórður Þórðarson. Bjarni Bjarnason óákv. Staðg.: Al- freð Gíslason. Bjarni Jónsson frá 24. júlí í mánuð. Staðg.: Björn Þórðarson. Bjarn Konráðsson til 1. ágúst. Stað- gengill: Arinbjörn Kolbeinsson). Björn Gunnlaugsson til 8. ágúst. — Staðg.: Jón Hannesson, Austurbæjar- apóteki. Björn L. Jónsson, læknir, verður fjarverandi til júlíloka. Staðg.: er Páll V. G. Kolka. Björgvin Finnsson 17. júlí til 14. ágúst. Staðg.: Arni Guðmundsson. Brynjólfur Dagsson, héraðslæknir í Kópavogi til 1. okt. (Staðg. Ragnar Arinbjarnar, viðtalstími kl. 2—4, laug ardaga kl. 1—2 í Kópavogsapóteki, sími 10327). Friðrik Björnsson, 18. til 30. júlí. Staðg.: Eyþór Gunnarsson. Gísli Ólafsson um óákv. tíma (Stefán Bogason Laugavegsapóteki kl. 4—4,30. sími 19690). Guðjón Klemensson í Njarðvíkum trá 17. júlí til 7. ágúst. (Kjartan Olafs son). Guðmundur Björnsson 3. júlí — ó- ákveðið. Staðg.: Augnl Pétur Trausta son, heiml.: Björn Guðbrandsson. Guðmundur Eyjólfsson til 1. ágúst. Staðgengill: Erlingur Þorsteinsson. Gunnar Guðmundsson um óákv. tíma (Magnús Þorsteinsson). Gunnar Benjamínsson 17. júlí til ágústloka. Staðg.: Jónas Sveinsson. Gunnlaugur Snædal 2—3 vikur frá 10. júlí. Staðg.: Jón Hannesson. Hannes Þórarinsson óákv. tíma. — Staðg.: Olafur Jónsson. Haraldur Guðjónsson óákv. tima Karl Jónasson). Hjalti Þórarinsson til 10. ágúst. — Staðg.: Olafur Jónsson. Grímur Magnússon 13.—18. júlí. — Staðgengill: Jóhannes Ðjörnsson). T ívoli Opnað í dag kl. 2. Fjölbreytt skemmtitæki Fjölbreyttar veitingiy. TIVG~_ TIVOLI I. DEILD AKRANES í dag kl. 5 Hatnarfjörður—Akranes AKUREYRI í dag kl. 5 KR—Akureyri Laugardalsvöllur Á morgun ( mánudag) kl. 8,30 Valur—Fram II. DEILD Úrslitaleikur — Laugadalsvöllur í kvöld ( sunnudag) kl. 8,30. ísafjörður—Keflavík Dómari: Baldur Þórðarson. Línuverðir: Jón Þórarinsson, Haraldur Baldvinsson. Hvort þessara liða verður í I. deild næsta suniar? Alþýðusamband íslands tilkynnir: Fundur verður haldinn með verkfallsmönnum hjá Vegagerð rikisins í kjallara Alþýðuhússins við riverfisgötu, mánudaginn 24. júlí kl. 8,30. Rætt verður um verkfallsmálin. Alþýðusambandið Lokað vegna sumarleyfa frá 24. júlí til 8. ágúst n.k. G. Ólafsson & Sandholt Laugavegi 36 Sakaskrá — Sakavottorð Sakaskrá ríkisins hefir verið flutt af Fríkirkjuvegi 11 í skrifstofu saksóknara ríkisins á Hverfisgötu 6, 3. hæð, sími 16620. — Afgreiðslutími sakavottorða verður fyrst um sinn á virkum dögum kl. 10—12 árdegis og 2—4 síðdegis nema á laugardögum kl. 10—12 árdegis. Saksóknari ríkisins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.