Morgunblaðið - 02.08.1961, Side 16
16
MORGZJ'NBLAÐIÐ
Miðvikudagur 2. ágúst 1961
M. D. Anderson Hospital. Aðalv erkefni: Krabbameinsrannsóknir.
— Houston
Frh. af bls. 13.
þar hafi honum komið að góðu
haldi margt sem hann hafði laert
hiá Indíánunum. Upp úr þessu
varð Texas sjálfstætt lýðveldi og
Sam Houston var kosinn for-
seti lýðveldisins. Hann gerði
uppkastið að stjórnarskrá ríkis-
iris, sem er talin framsýnni og
viturlegri en flestar, aðrar stjórn
arskrár. En valdafíkn hans bar
ekki vitsmuni hans ofurliði og í
stað þess að gerast einræðis-
herra í Texas beitti hann sér
fyrir því að Texas gekk inn í
Eandaríkin og þótti mörgum
hann bregðast skyldu sinni þeg-
ar hann fékk því ráðið að Tex-
as varð eitt af ríkjum Banda-
ríkjanna og ekki lengur alger-
lega sjálfstætt, eins og það
hafði verið um hríð. Nú sjá
allir að Sam Houston var vitr-
ari én állir þeir sem svívirtu
hann fyrir landráð, og raunar
sáu menn það fljótt, að ekki
gekk honum valdafíkn til. Hann
var kjörinn fyrsti fulltrúi fyrir
Texas í Senat Bandaríkjanna og
naut þar svo mikillar virðingar,
að fullyrt var að hann hefði
getað orðið Bandaríkjaforseti,
ef hann hefði kært sig um, en
hann neitaði að gefa kost á sér.
Þessi maður átti skilið að fyrsta
höfuðborgin í Texas væri heitin
eftir honum. Auk þess var reist
stytta af honum á hesti og stend
ur hún í aðal-lystigarði borgar-
innar. Þár sem orustan við
mexikansk% herinn undir for-
ustu Santa Ana stóð, er nú
þjóðgarður mikill, San Jacinto,
og í honum heljarmikil súla til
minningar um sigur Sam Houst-
ons, sem frelsaði Texas. Þessi
súla er sögð vera hæsta súla í
heimi og kostaði 3 millj. dollara
að reisa hana.
Jesse Jones var uppi á þessari
öld og dó fyrir fáeinum árum.
Hann var að vísu ekki ríkasti
maðurinn í Texas, né heldur í
Houston, en það var ávallt tal-
að um hann eins og manninn
sem ætti Houston. Hann átti
miklar lendur, sem hann seldi
undir lóðir, og græddi ógrynni
fjár, þar sem borgin óx svo
fljótt. Hann átti meiri hlutann í
National Bank of Commerce,
ríkasta banka borgarinnar, en
sá banki á hæsta skýjakljúf
borgarinnar. Hann átti stærsta
blaðið, Houston Chronicle, þrjú
stærstu gistihúsin og útvarps-
stöðina KTHR, allt stórgróða-
fyrirtæki og bjó sjálfur á efstu
hæðinni á bezta hótelinu í miðri
borginni. Segja mátti að Jesse
Jones ætti allt í Houston, nema
virðingu samborgara sinna, því
að þar átti hann litlum vin-
sældum að fagna. Mætti heim-
færa upp á hann orð Lúthers,
sem sagði, að það væri ein-
kennileg ráðstöfun hjá guði, að
hann gæfi sumum mönnum
enga sérstaka hæfileika og
enga hamingju, en nóg af pen-
ingum.
Læknavísindi í Houston. Til
skamms tíma hafa Bandaríkja-
menn haft tilhneigingu til að
gera lítið úr vísindastarfsemi í
Texas, sem sé kúrekaland sem
ekki standi sérlega hátt menn-
ingarlega. En fyrir læknisfræð-
ina þurfa Texasbúar ekki að
bera neinn kinnroða, því að þar
standa þeir engan veginn að
baki öðrum ríkjum í Banda-
rikjunum. í Houston og Dallas
eru fyrirmyndar sjúkrahús og
valdir læknar sem standa fyrir
þeim. Þekktasti spítalinn er M.
D. Anderson spítalinn, þar sem
ég dvaldi, sem nýtur mjög
mikils álits í Bandaríkjunum og
er þekktur langt út fyrir þau.
Prófessor William O. Russell,
sem er forstöðumaður meina-
fræðideildarinnar, hefir unnið
mikið að krabbameinsrannsókn-
um og staðið fyrir mörgum
merkum rannsóknum, sem frá
stofnun hans hafa komið. Dr. L.
Dmochowski hefir t. d. fært
miklar líkur að því, sem stappa
nærri fullri sönnun, að hvít-
blæði orsakist af virus. Og
ýmislegt, sem þarna hefir ver-
HAFNFIRDINGAR léku á heima
velli sínum á sunnudagskvöldið
gegn Valsmönnum, sem stilltu
upp nokkuð tilraunakennt að
þessni sinni, höfðu sett Þorstein
Friðþjófsson i stöðu innherja,
Ilalldór Haildórsson í stöðu bak-
varðar og átti hann sinn bezta
leik það sem af er sumarsins;
Guðmundur Ögmundsson hinn
ungi varnarleikmaður Vals lék
nú sem miðvörður, sem er hans
staða og átti hann mjög lofsverð-
an leik og á eflaust eftir að skilja
fleiri spor eftir sig í þeirri stöðu.
Völlurinn var heldur slæmur
yfirferðar og á til að trufla fyrir
mönnum er þeir reyna samleik.
Samt sem áður er völlurinn ekki
svo slæmur að hann afsaki leik-
inn á sunnudaginn, sem var mjög
lélegur.
Yfirleitt skeði lítið í leiknum,
og fyrri hálfleik lauk án nokk-
urra markverðra atburða, utan
að Albert átti laglegt skot úr
aukaspyrnu rétt fyrir utan víta-
teiginn, en Björgvin varði meist-
aralega. Fyrri hálfleikuriún var
því hvorki fugl né fiskur og bæði
liðin áttu álíka fá tækifæri á að
skora mark, eða nálega engin.
f síðari hálfleik var heldur
meira um tækifæri og má segja
að Valur hafi oftar verið að
verki, en þó komust Hafnfirðing-
ar nærri að skora, en náðu þó
ekki virkilega hættulegum fær-
um.
Fyrra mark Vals kemur á 8.
mínútu. Björgvin Daníelsson,
hinn markheppni framherji Vals
skorar eftir að fá heldur ódýran
bolta yfir miðvörðinn og leggur
knöttinn fyrir sig og skýtur
hörkuskoti af vítapunkti, óverj-
andi fyrir Karl markvörð.
30. mínúta færir seinna markið
með þeim hætti að Matthías tek-
ur aukaspyrnu á vítateig og Karl
ver gott skot en missir út og
Björgvin Daníelsson skorar enn,
ið unnið, bendir til þess að
fleiri krabbamein stafi af
virus. Þegar tiltekin efni, eins
og t. d. carcinogen í reyk, geta
valdið krabbameini, þá gæti það
verið vegna þess að þau brjóti
niður mótstöðu vefjanna, svo að
virus, sem annars gerir þeim
ekkert, nói fótfestu í þeim,
ryðjist inn í frumurnar og setji
vöxt þeirra í gang.
Það var mjög ánæ'gjulegt og
lærdómsríkt að kynnast lækn-
unum á M. D. Anderson Ho-
spital, sém hver haf ði sitt
áhugaefni sem hann vaxin að
með hjálp aðsloðarmanna og
kvenna. Dr. RuSsell . stjórnaði
allri þessari miklu stofnun með
hjálp fjögurra einkaritara og
var gaman. að sjá og heyra
hvernig hartn gat látið stúlk-
umar gera upp á eigin spýtur
ýms vandasöm verk, sem' þær
höfðu lært að gera. Ameríku-
menn hafa betur en' nokkur
önnur þjóð lært að dreifa vinn-
unni þannig, að lærðu menn-
irnir þurfa ekki að fást við
hversdagsleg störf, sem aðrir
geta unnið, en geta gefið sig
eingöngu að því sem mestu
máli skiptir, hvort heldur er í
viðskiptum eða vísindum.
Dr. Russell býr í stóru, mjög
fallegu húsi, sem er að mestu
2:0 fyrir Val.
Valsmenn áttu eitt tækifæri
enn, sem flestir hefðu skorað úr,
en Einar Sigurðsson bjargaði þar
skemmtilega á marklínu eftir að
Matthias hafði leikið á Karl mark
vörð og átti aðeins Einar eftir,
sem stóð á marklínu.
Þannig lauk leiðinlegum leik
með sigri skárra liðsins. Bæði lið-
in geta sýnt mun betri knatt-
spyrnu og hafa sýnt; í leikinn
vantaði alla leikgleði og stórir
kafjar einkenndust af baráttu-
leysi.
Valsmenn voru betri og sigr-
uðu. Markvörður liðsins, Björg-
vin Hermannsson er mjög góður,
bakverðirnir og miðvörðurinn
sömuleiðis. Elías Hergeirsson lék
nú aftur með en er ekki samur
og áður, en Ormar hafði yfirleitt
mun betur en rriótspilarinn, Al-
bert Guðmundsson, enda í fullri
þjálfun gegn engri þjálfun Al-
berts. Framlína Vals er heldur
kraftlítil. Björgvin er harðastur
að sækja, — hann skorar líka
mörkin. Þorsteinn í stöðu inn-
leyti úr gleri, utan við borg-
ina. Þægilegt var að koma
heim með honum og fara í sund
laugina meðan við vorum að
bíða eftir matnum, einkum
þegar heitt var í lofti. Dr.
Russell hefir yfir milljón ísl. kr.
í laun, sem er engan veginn
mikið á ameríska vísu og sér-
staklega ekki í Texas, og til að
auka tekjur sínar rekur hann
stórt kartöflubú í Idaho, þar
sem hann framleiðir kartöflur
fyrir $250.000, og þótt ekki
verði nema 10% af því í hrein-
an ágóða, þá er það góð uppbót
á launin.
Dr. Russell, sem er ættaður frá
Kaliforníu, er rneðal þeirra
Ameríkumanna sem ég hafði
mesta ánægju af að kynnast á
ferðalagi mínu, því í honum
fer hvorttveggja saman, ágætur
vísindamaður og mikil persónft,
skemmtilegur ’ og mikill maður,
velviljaður og hjálpsamur, sem
í hvívetna lætur gott af sér
leiða, enda ber öll stofnun hans
keim af því.
Af öllum þeim fjórtján borg-
um, sem ég heimsótti í Norður-
Ameríku, er Houston mér
minnisstæðust og það af mörg-
um ástæðum, eins og nokkuð
má sjá af því sem hér hefir
verið sagt, en ef til vill mest
vegna Dr. Russells.
herja er heldur undarleg ráðstöf-
un, þar eð Þorsteinn er að komast
í raðir beztu bakvarðanna hér
og er nú fyrirvaralaust settur f
framlínu þar sem hann mun ekki
hafa leikið áður. Þó slapp hann
sæmilega frá leiknum, en ætti
hiklaust að setjast í sína gömlu
stöðu aftur. Matthías átti ágætan
leik, en hættir til að halda boit»
anum of lengi. ij
Hafnfirðingar heyja hetjulega
baráttu fyrir 1. deildar-tilveru
sinni. Albert Guðmundsson leik-
ur nú með sínum gömlu læri-
sveinum, en ekki virðist það ætla
að duga til, enda eru gloppurnar
í liðinu miklar, þó einstaka leik-
menn séu ágætir, t.d. markvörður
inn, sem hefur átt mjög góða
leiki í sumar, Sigurjón Gíslason,
miðvörður í þessum leik, og
raunar nokkrir fleiri. Albert lék
innherja, lék meira sem stjórn-
andi en leikmaður, enda er hann
greinilega ekki í neinni æfingu.
Þó mátti enn sjá margt laglegt
til Alberts, Og vissulega veit hann
■hvað knattspyrna er, maðurinn
sá, og synd til að vita að ekki
skuli hægt að nota krafta hans
meðal „stærri spámanna".
Dómari var Þorlókur Þórðar-
son, Víking, og dæmdi ágætlega,
enda leikurinn allur rólegur og
prúðmannlega leikinn. — jbp.
Hafnfirðingar sjá
fram á fall nidur í
2. deild
Töpuðu 2-0 tyrir Val á heimavelli
tJr leik Hafnfirðinga og Vals. (Ljósm.: Sv. Þorm.) ,