Morgunblaðið - 04.08.1961, Síða 8
8
MORCVNBLAÐ1Ð
Föstudagur 4. agúst 1961 \
50 ára 1 dag:
Pétur Símonarson
frá Vatnskoti
PÉTUR SÍMONARSON frá
Vatnskoti í Þingvallasveit er
fimmtugur í dag 4. ágúst.
Pétur Símonarson
Pétur þarf ekki að kynna nán
ar, hann er fyrir löngu þjóðkunn
ur fyrir hugvit sitt og verklega
' snilli, og að framkvæma eitthvað
skemmtilegt eða gagnlegt á með
an við hin aðeins ræðum um.
hlutina.
Sagðar eru af Pétri ótál furðu
sögur sem hafa á sér þjóðsagna-
kenndan blæ, en enginn efar þó
að séu réttar. Frægastur varð
hann þó forðum er hann á vél-
sleða sínum knúnum flugvéla-
mótor, heimsótti skíðamótið í
Hveradölum árið 1937, er Helgi
HjöVvar lýsti atburðinum í út-
varpinu.
Ekki er rúm til að minnast
meira að sinni á sportævintýri
Péturs, áláði, legi eða lofti, en
sennilega hefur smekkvísi og
hæfni Péturs náð hámarki er
hann teiknaði og smíðaði núv. bú-
stað sinn að Austurbrún 31. Litlar
ýkjur er að segja að hann hafi
reist það hús einn, með kraft-
blökkum og vogarstangarafli. Á-
samt góðri konu sinni, Fríðu ÓI-
afsdóttur, hafa þau skapað sér
fallegt heimili sem er ein listræn
samfella full af smekkvísi.
Pétur lærði rafvélavirkjun í
Danmörku þar sem hann var öll
stríðsárin en nú rekur hann sjálf
stæða vinnustofu og iðnað.
Hinir mörgu ættingjar og vinir
Péturs óska honum til hamingju
með afmælið og langrar ánægju
legrar ævi.
— V. O.
Þurrkurinn vel notaður
MYKJUNESl, 30. júlí. — í síð-
ustu viku var hér bezti hey-
þurrkurinn er komið hefur á
þessu sumri. Fimm daga var
brakandi þurrkur og verður
ekki annað sagt en hann væri
vel notaður, enda ekki vanþörf,
þar sem lítið hefur verið um
heyþurrk, það sem af er slætti.
Yfirleitt áttu því bændur mikil
hey úti, ekki þó hrakin, þar
sem yfirleitt iiefur verið hægt
að sæta upp því sem slegið hef-
ur verið. En þessir fimm dagar
hafa gjörbreytt heyskapnum, því
yfirleitt lögðu menn nótt við
dag. Það var breitt og hart sleg
ið og sett upp í galta, þannig
að víða er búið að bjarga mestu
af fyrri slætti, ýmist í hlöður
eða undir striga. Spretta á tún-
um er yfirleitt ágæt, en búast
má við að háarspretta verði
með lakara móti þar sem túnin
hafa verið heldur seint slegin
og oft er heldur kalt í veðri, því
að margar nætur í sumar hefur
hitastigið farið niður undir frost
mark um nætur.
Hér í Holtum hefur verið
unnið að allmiklum útihúsa-1
byggingum í sumar, einkanl'ega
heyhlöðum og víða er töluvert
land brotið til ræktunar. — 1
ráði er nýbýlisstofnun á einum
stað og eru framkvæmdir að
hefjast. Enda hlýtur að því að
draga, að hið mikla útstreymi,
sem verið hefur úr sveitunum
hætti. Virðist margt benda til
þess að þar sé breyting í nánd.
1 vor voru Holtamanna- og
Landmannaafréttir opnaðar aft-
ur til afnota eftir næstum 20
ára lokun. Notuðu ýmsir sér
það og var flutt fé á báðar,
t.d. mun á annað þúsund fjár
hafa verið flutt á Landmanna-
afrétt af Landinu og úr Holta-
hrepþi. — M. G.
W»MKJAVINS)USTOFA
0G VIÐT/tKJASAlA
s c lcfi/e crtckr*
?i/o/ vffidc/ t..
áqúst (wál.3
, tu nnsjry
1 Oi'æíslur t td
J-t;l juli /olrs' '
ISaltsíld (iurtru/r)
t,[ jútftoka
1156 7957 195$. J9S9 1961
Á SUMRIN er um fátt meira
rætt hér á landi en hvernig
síldveiðarnar gangi norðan-
lands og austan. Er þá á hverj
um tíma fyrst og fremst mið-
að við árið á undan. En eins
og allir vita, þá geta veiðarn-
ar gengið treglega, jafnvel
þótt þær gangi alivel borið
saman við „árið á undan“.
Línuritið, sem hér er birt
sýnir sumarsíldveiðarnar 1956
—’61. Neðsti hluti hverrar
súlu sýnir hve saltað hefur
verið í mörg þúsund tunnur
og siðan kemur bræðslusíldin
í þús. málum, hvort tveggja
miðað við júlílok, eða um það
bil. Við þetta er'svo bætt veið
inni í ágúst fþús. tunn.ur og
máf). Á árinu 1956 veiddist
sama sem ekkert í ágústmán-
uði, en 1957—’60 munaði veru
Iega um ágústveiðarnar. Hver
raunin verður í ár er að sjálf
sögðu hin mikla spurning í
happdrætti síldveiðanna.
Rauða-Kína
WASHINGTON, 2. ágúst (NTB
—AFP) — Kennedy forseti hef
ur ítrokað þá afstöðu bandarískui
stjórnarinnar, að standa gegn a'(S
ild Rauða-Kína að samtökum
Sameinuðu þjóðanna. Var þetta
tekið fram í fréttatilkynningu um
nýafstaðnar viðræður Kennedya
forseta og Can Chengs, vara-
forseta kínverskra þjóðernissinnai
á Formósu, sem fram fóru I
Washington. Báðir aðilar lýstu
því yfir um leið, að þeir styddi*
aðild allra þjóða, sem uppfylltu
kröfur sáttmála Sameinuðu þjóð
anna.
MEÐFYLGJANDI mynd var
tekin af hljómsveit Guðmund-
ar Ingólfssonar frá Keflavík
Og söngvUrum fyrjr nokkrum
dögum er þeir voru að leggja
af stað heimleiðis frá Sjálf-
stæðishúsinu á Siglufirði —
en þar voru þeir félagar að
skemmta Siglfirðingum og síld
arfólki í tæpan mánuð.
Nú um verzlunarmannahelg
in verður hljómsveitin að
leika að H\ oli, Hvolsvelli,
laugardags og sunnudagkvöld,
einnig munu þeir féagar leika
og syngja í síðdegiskaffitíman
um á sunnudag á sama stað. Á
heimleiðinni munu þeir koma
við í Reykjavík og enda verzl
unarmannahelgina með því að
leika fyrir Reykvíkinga á
mánudagskvöld í Vetrargarðin
um.
Þar sem Keflvíkingarnir
fara nú að leika í samkomu-
húsi Njarðvíkur eftir skamm
an tíma, er óvíst hvort þeir
leika aftur utan Keflavíkur á
næstunni.
Hljómsveitin er skipuð þess
um mönnum: Guðmundur Ing
ólfsson, gítar, Þráinn Krist,
jónsson, víbrafón, Þórir Bald-
ursson, píanó, Erlingur Jóns-
son, bassi og Páll Ólafsson,
trommur. Söngvarar eru þeir:
Engilbert Jensen og Þorsteinn
Eggertsson.
TRULOFU NARHRINGAR
afgreiddir samdægurs
HAllCCR
SKÓLAVÖRÐUSTÍG
Magnús Thorlacius
næstaréttarlögmaður.
Málflutningsskrifstofa.
Aðalstræti 9. — Sími 1-1875.
Jóhannes Lárusson
héraðsdómslögmaður
lögfræðiskrifstofa-fasteignasala
Kirkjuhvoli — Sími 13842.
Nýkomnir hollenskir
BARNASKÓR
PÓSTSENDUM
UMI ALLT LANU
SKOSALAN
LAUGAVEGI 1
Sóistón
Njótið sólarinnar í sólstólnum
Tfekla
Austurstræti 14 Sími 11687