Morgunblaðið - 06.08.1961, Blaðsíða 8
8
MORCUNBT. AÐIÐ
Sunnudagur 6. ágúst 1961
" ............. - • - -
Leitað að flugmanni
Klukkan liðlega 2 eftir há-
degi þann annan ágúst s.l.,
heyrðu þeir sem hlustuðu á
Keflavíkurútvarpið, að útsend
ingu var skyndilega hætt í
miðju lagi, en þulurinn kom
Og las svohljóðandi tilkynn-
ingu: „Sveinn Eiríksson flug-
maður, er beðinn að hafa sam
band við flugturninn strax“.
Undirritaður brá fljótt við
og hringdi í turninn til að fá
vitneskju um hvað væri á
seiði.
„Það vantar vél i sjúkra-
flug“, svarar vaktstjórinn
Hörður Magnússon. „Það var
hringt úr Reykjavík og. við
beðnir að útvega vél. Minni
vélin hans Björns Pálssonar er
biluð, en flugvöllurinn er of
lítill fyrir stærri vélina.
Sveinn er staddur hérna með
sína vél, en hann finnst bara
ekki. Slökkviliðið segir að
hann sé í eftirlitsferð ein-
hversstaðar á flugvellinum.
Við erum að reyna að fá þyrlu
fra hernum, en hún þarf bara
að lenda á leiðinni og taka
benzín, þetta er svo langt“.
„Hvert á að sækja sjúkling-
inn“?
„Að Maríubakka, það er ein
hversstaðar fyrir austan
Kirkjubæjarklaustur", svaraði
Hörður.
Ég veit nokkurnveginn hvar
Kirkjubæjarklaustur er, en
Maríubakka veit ég ekkert
um. Þá er að fletta upp í skrá
flugmálastjórnarinnar yfir
flugvelli og lendingarstaði á ís
landi. Þar stendur svar á
hvítu: Maríubakki í Fljóts-
hverfi, V-Skaftafellssýslu,
hnattstaða 63 gráður 51
mínúta norður, 17 gráður 40
mínútur vestur, flugbraut
320x20 metrar, liggur frá norð
austri til suðvesturs. Með að-
stoð þessara upplýsinga tekst
mér að finna staðinn á Her-
foringjaráðskortinu.
Rétt í þessu kemur Sveinn
labbandi í rólegheitum inn í
flugvélaafgreiðsluna, tottandi
sína pípu og enginn asi á hon-
um.
„Hvað er þetta maður,
veistu ekki að það eru allir
að leita að þér, þú átt að fara
í sjúkraflug?", segi ég og er
ekki laust við að vera hróðug-
ur yfir að verða fyrstur að
færa Sveini fréttirnar.
Sveinn tekur þessu með
mesta jafnaðargeði, hringir í
turninn og fær staðfestingu á
beiðninni og kveðst reiðubú-
inn að fara ef hann fær frí í
vinnunni. Sveinn er nefnilega
eftirlitsmaður brunavarna hjá
slökkviliði flugvallarins, en
flugmaður í frístundum sín-
um.Að andartaki liðnu hefir
frí fengizt fyrir Svein og hann
segir sér ekkert að vanbúnaði,
nema að hann vanti aðstoðar-
mann. „Viltu skella þér með?“
segir Sveinn.
Ég lít út um gluggann, sól
skín í heiði og það er líka af-
mælið mitt i dag. Á svoleiðis
degi getur ekkert komið fyrir
Og ég flýti mér að grípa ljós-
myndavélina og skunda á eftir
Sveini út í farkostinn, sem er
Cessna 180,. kallmerki TF-
GVG.
Farkosturinn rennir sér blíð
lega á loft og stefna er tekin
á Reykjavík.
„Við verðum að lenda í
Reykjavík og taka sjúkrabör-
urnar“ segir flugmaðurinn.
Eftir örskamma stund fljúg
um við inn yfir Kársnesið og
GVG svífur inn á enda flug-
brautarinnar, rétt yfir höfði
nokkurra sóldýrkenda, sem
flatmaga í Nauthólsvíkinni,
þrátt fyrir norðanstrekking-
inn.
Snör handtök
Benzínafgreiðslumaðurinn er
byrjaður að fylla á geymana
um leið og skrúfublöðin hætta
að snúast, Sveinn þýtur inn í
bragga og kemur út með bör-
urnar. Hann segir mér að fara
með börurnar út í vélina á
meðan hann skreppi upp á
veðurstofu og athugi veðrið á
leiðinni.
Síðasti dropinn er vart kom-
inn á geymana fyrr en Sveinn
er kominn aftur, setztur undir
stýri og hreyfillinn í gang og
svo af stað aftur.
Á meðan ekið er út á flug-
brautina gefur Sveinn flug-
turninum flugáætlun sína í
gegnum talstöðina.
„GVG sjúkraflug að Maríu-
bakka, sjónflug, flugtími aust-
■
Hinn tveggja ára gamli sjúkrafiugvöllur á Maríubakka í Vestur-Skaftafellssýslu notaður í
fyrsta sinn, til aS flytja Björn á Kálfafelli í Landsspítalann.
Hraunin á Hellisheiði eru
ótrúlega falleg þegar horft er
á þau úr lofti. Margbreytilegt
flúr hraunjaðarsins minnir
einna helst á baldíraðar rósir
Og hefir Jóka ekki sézt síð-
an.
Á meðan ég er í þessum hug
leiðingum mínum um Höfða-
brekku-Jóku hefir flugvélina
með Sveini Eríkssyni
ur klukkutími og fimm mínút
ur, stoppa í 5 mínútur, klukku
tími og korér til baka, flug-
þol 3Ms tími, varavöllur
Hella“.
Flugturninn kvittar fyrir
flugáætluninni og heimilar
okkur flugtak.
GVG þýtur eins og ólmur
gæðingur eftir flugbrautinni,
hjólin sleppa jörðinni og á
móts við afgreiðslu Loftleiða
erum við í 500 feta hæð, sett
er á stefnu og klifrinu haldið
áfram.
„Aðeins misjafnlega flatt“
Útvarpsmöstrin lita út eins
og eldspýtum hafi verið stung
ið í kollinn á Vatnsendahæð-
inni og Vífilfell er heldur lág
kúrulegt þegar litið er niður
á það. Yfir Sandskeiði erum
við komnir í 6500 feta hæð
og langt fyrir neðan okkur sjá
um við Douglasflugvél Flugfé-
lags íslands skunda í áttina til
Reykjavíkur. Hún hefir sjálf-
sagt verið að flytja bráðláta
þjóðhátíðargesti til Eyja.
á upphlutsbarmi ungrar heima
sætu frá æskudögunum. En
nú er ekki fínt að ganga í upp
hlu lengur og hraun Hellis-
heiðar minna víst engan á kjól
frá Dior.
Framundan er Hekla á hvít
um möttli, tignarleg og sak-
leysisleg á svipinn. Engan
skyldi gruna, sem horfir á
Heklufell að þetta fagra fjall
hafi valdið slíkum skelfingum,
sem orðið hefir raun á. Er-
lendir menn trúðu hér áður
fyrr að sálir fordæmdra
steyptu sér í fuglslíki í Heklu-
gjá, en þar væru dyr vítis
sjálfs. Og enda þótt að íslenzk
alþýða hafi aldrei verið sér-
lega trúuð á þessar sögur, þá
gat þó Hekla gamla komið að
góðu haldi þegar Magnús prest
ur kvað niður afturgönguna
Höfðabrekku-Jóku forðum, en
hún var hið mesta forað.
„Heklugjá er heljarkrá
henni gusar eldur frá.
Stofuna þá ég stefni þér á,
stað skaltu engan betri fá“.
borið óðfluga inn yfir óbyggð-
ir. „Við förum fjallabaksleið“,
segir Sveinn og eins og til að
staðfesta þetta sé ég bílför í
svörtum vikursandinum fyrir
neðan okkur. Gröndal segir að
ennþá sjái för Hannibals í
snjófönnum Alpafjalla og ég
velti því fyrir mér hvort þetta
muni vera slóðir Guðmundar
Jónassonar eða einhvers ann-
ars fjallakappa. Hætt er við
að vikursandurinn fylli þessi
spor, enda þótt Guðmundur sé
allt að því jafn frægur orðinn
og Hannibal var íorðum.
Nú er möttull Heklu orðinn
mógulur og slitróttur, en svart
ur og snjólaus kollurinn gnæf-
ir upp úr. Blámóða fjarskans
er horfinn og jafnvel Hekla
þolir ekki að litið sé niður á
hana úr flugvél nútímans.
Ég er að leita að Torfajökli,
en hann á að vera skammt und
an á vinstri hönd. Nokkrir
óhrenir hjarnskaflar eru það
eina sem eftir er orðið af þess-
um jökli. Lítilfjörlegur mundi
Torfa gamla í Klofa finnast
Brúargerðarmenn voru aftur teknir íil við brýrnar á Skaftá. Verkfallinu lauk þennan
sania morgun.
nafni sinn vera orðinn, ef
hann gæti skyggnzt yfir öxl
mér á þessu augnabliki.
Flugvélina ber ört yfir. Ný-
fallið hvítsnævi a kolli Mýr-
dalsjökuls á hægri hönd en
hraunorpnar Skaftártungurn-
ar framundan.
Brúargerðarmenn eru að
vinna við Skaftá. Verkfallinu
lauk í morgun.
Nú erum við komnir fram-
hjá Kirkjubæjarklaustri og
eftir er að finna flugvöllinn
á Maríubakka.
„Þarna er flugvöllurinn'*,
segir Sveinn. „Ég sé ekkert
nema mela og aurbleytur'*
svara ég.
Þetta er nú enginn
Keflavíkurflugvöllur svarar
Sveinn brosandi og stefnir
flugvélinni til jarðar. Og nú
sé ég vindpoka og flugbrautar
merkingar og fyrr en varir er
vélin lent og stönzuð.
Maður kemur að heiman frá
bænum og við spyrjum hann
eftir sjúklingnum.
„Hann er alveg að koma",
svarar maðurinn.
„Lenda hér oft flugvélar?"
„Þetta er í fyrsta skipti sem
flugvél lendir hér síðan völl-
urinn var byggður fyrir 2 ár-
um“, svarar heimamaður.
Og nú er ekki tími til fleiri
spurninga. Rússajeppi rennir
upp að flugvélinni og hinn
sjúki maður er settur á börurn
ar og þeim rennt inn í flug-
vélina. Hreyfillinn er ræstur
og GVG hefur sig á loft.
Nú var flogin önnur leið.
Landbrot, Nýja-Eldhraun,
Kúðafljót. Framundan er
Höfðabrekkujökull, óhreinn
og svipljótur, sem teygir
hramminn í áttina niður að
Hafursey. Yfir Eyjafjalla-
jökli þyrlast upp skjýjabólstr-
ar. Sveinn hækkar flugið upp
1 9000 fet og nær sambandi.
við flugstjórn í Reyk> vík og
fær flugheimild yfir skýjum.
Undir okkur sefur Kötlu-
gjá og keppir við Akrafjall
og Skarðsheiði í draumum Sig
urðar Þórarinssonar.
Yfir Hreppunum leysast ský
in upp í góðviðris mistur og í
Reykjavík lendum við klukku
tíma og tíu mínútum eftir að
við fórum frá Maríubakka.
Flugferðinni er lokið. Á flug
vellinum bíður sjúkrabíll til
að flytja Björn á Kálfafelli á
Landsspítalann. En um það bil
að ég ætla að þakka Sveini
fyrir ferðina, kemur afgreiðslu
maður Björns Pálssonar og
segir: „Það vantar vél í sjúkra
flug vestur á Arnarfjörð".
„Það er víst bezt að athuga
veðrið", segir Sveinn og kveik
ir í pípunni sinni. — B. Þ.