Morgunblaðið - 06.08.1961, Side 20
20
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 6. ágúst 1961
I
i Skyndibrúðkaup
Renée Shann:
í
í
i
i
i
að skrifa bréf, og var fegin þess-
um friði og næði, sem ríkti í
húsinu.
Hún var sem sé að skrifa
Clive. Hún hafði kviðið því, að
erfitt yrði að koma bréfinu sam-
an, en þegar til kom, veitti henni
það auðvelt.
„Ég er nú farin frá Brasted
fyrir fullt og allt, Clive, og ég bið
þig að gera enga tilraun til að fá
mig þangað aftur. Ég er búin að
tala ítarlega við ungfrú Soames,
og hún er fullfær um að stjórna
þessu með aðstoð Jill, þangað til
þú nærð í aðra. Ég er komin í
aðra vinnu og byrja á mánudag-
inn. Fyrst eftir að ég ákvað að
yfirgefa þig fyrir fullt og allt,
fannst mér ég verða að komast
eitthvað langt burt. Mér datt í
hug Suður-Afríka, en þegar ég
aðgætti betur, var það illa fram
kvæmanlegt. Og svo bauðqt mér
þetta tækifæri og ég tók því
hiklau«t.“
„Ég á að hafa umsjón með
mörgum búðum hjá fyrirtækinu,
en það þýðir aftur, að ég verð
að vera mikið á ferðalagi og fáa
daga á hverjum stað. Þetta er
allt öðruvísi vinna en ég hef hing
að til haft, en ég held ég muni
kunna vel við hana. Kaupið er
óvenju hátt, svo að þetta tæki-
færi er of gott til að sleppa því“.
„Ef til vill reiðistu mér fyrir
að vilja ekki vera áfram hjá
Hrasted til vikuloka, eins og ég
var búin að segja. En mér finnst
ég bara ekkert rígbundin við
það, sem ég ætlaði í fyrstu. Ef
út í það er farið, er komin lang-
ur tími síðan ég bað þig fyrst að
fá einhverja í minn stað, og þú
hefur enga tilraun gert í þá átt.
Ég þykist vita, að meðan ég er á
staðnum munir þú ekki gera
neina slíka tilraun, svo að þetta
verði látið dingla svona til eilífð
ar, ef ég ekki tek sjálf af skar-
ið“.
„En það er alls ekki ætlun mín
C ive. Það er hvorki heiðarlegt
gagnvart konunnj þinni né sjálf-
um þér, og ég er mest hissa á
því, að ég sfculi ek-ki vera búin
að herða mig upp í þetta fyrir
löng^ Er. þú veizt ástæðuna, Þú
veizt hve mjög og hve lengi ég
hef elskað þig. Mér þykir fyrir
því, að það skuli þurfa að enda
svona! Ég vona, að þú hugsir
ekki til mín með alltof mikilli
gremju. En af minni hálfu er
þessu lokið og ég helú, að það
verði líka bráðum hvað þig snert
ir.. ef því er þá ekki þegar lok
ið.
Vertu þá sæll, Clive og líði þér
vel.
Sandra".
Hún las bréfið yfir, setti það í
umslag og skrifaði utan á það
og gekk síðan út til þess að setja
það strax í póst, og henni létti
stórum er hún heyrði það detta
niður í kassann. Léttari í skapi
en hún hafði lengi verið, gekk
hún aftur heim, og hugsaði ekki
um annað en þetta nýja líf, sem
nú beið hennar.
Svo niðursokkin var hún í þess
ar bugsanir sínar að hún tók
ekki eftir því, að bíU stanzaði
við gangstéttina úti fyrir húsinu
og stór maður stóð við dymar.
Það var farið að bregða birtu,
svo að hún þekkti hann ekki al-
veg samstundis. En þá rak hún
upp gleðióp.
— Robin! Þetta var dásamlegt!
— Sæl, Sandra! Hann laut nið
ur og kyssti hana. — Ó mér
þykir svo vænt um að hitta þig.
Ég var orðinn hræddur um, að
enginn væri heima í húsinu.
— Þvi miður er ég nú bara
ein heima. En komdu inn. Þú
veizt ekki, hvað ég er feginn,
að þú skulir vera kominn. Og
þá verður Júlía það líklega ekki
síður!
Einhver vonbrigðasvipur kom
á andlitið á Robin. — Það hefur
nú sjálfsagt verið til ofmikils
atlazt. að hún sæti heima í róleg
lieitum.
— Það hefur húnj annars oft-
ast gert, en fyrir hreina tilviljun
fór hún út úr borginni um þessa
helgi.
— Guð minn góður, það eru
vonbrigði fyrir mig.
— Og þá verður það fyrir
hana. En hversvegna .léztu okk-
ur ekki vita, að þú værir að
koma? Þá hefðum við breitt
rauðan renning á gangstéttina og
dregið alla fána að hún!
Þau voru n-’ kominn inn í setu
stofuna. Robin leit. á hana bros-
ándi. — Ég losnaði nú ekki fyrr
en fyrir hálftíma, og þá fannst
mér é- verða að flýta mér ,til
þe a komið ykkur á ó-
va
hefur svei mér kom
ið ii. jvart.
— Ép hefði gjarnan viljað
koma Júlíu á óvart líka. Hvern
ig líður henni? Hvar er hún?
— ríenni líður vel, en hún hef
ur bara verið talsvert áhyggju-
full undanfarnar vikur af því að
hún frétti ekkert af þér. Hún
er úti í sveit hjá einhverjum
Daintonhjónum, skammt frá
Burnham.
— Hefurðu heimilisfangið?
Þetta er ekki mjög langt. Ég held
ég verði bara að skjótast þang-
að strax og finna hana. Þetta vina
fólk hennar segir vonandi ekki
neitt við því. Það skilur von-
andi og veit, hvað langt er síðan
við höfum sézt.
Sandra varð hálf-óróleg. Hún
vissi nákvæmlega ekkert um
Daintonhjónin nema aðeins það,
að þau voru kunningjar Lionels,
og hún vissi ekki, hvort heppi-
legt væri að minnast á það. Við
nánari athugun fannst henni rétt
að láta það ógert. Það kom ekki
til mála að neinn mundi móðg-
ast þó að Robin kæmi til konunn
ar sinnar, jafnvel þótt um miðja
nótt væri! Og það var reyndar
engin hætta á, að hann færi til
þess. Enn var ekki mjög áliðið
og hann gæti ekki orðið mjög <
lengi á leiðinni.
— Bíddu svolítið, ég ætla að
finna heimilisfangið.
Hun fann það innan um ein-
hver blöð við símann. — Ég sé,
að hér er símanúmerið. Vild-
irðu kannske nringja?
Robin leit á úrið. — Ég er á
talsvert hraðskreiðum bíl og verð
ekki lengi þangað. Hann glotti
— Heldurðu að hún verði fegin
að sjá mig, Sandra.
— Hvernig spyrðu maður!
— Jæja þá ætla ég að komast
af stað. Líklega hringi ég í þig
seinna. Ef ég get, ætla ég að ná
Júlíu frá þessum vinum hennar
og konu. með hana hingað aftur.
— Það ætti að verða auðvelt
fyrir þig.
Það var rnyrkur og rigning um
það leyti sem Robin kom til
Burnham. Hann spurðist fyrir
um kofa Daintonhjónanna, og
samkvæmt þeim upplýsingum,
sem hann hafði fengið, beygði
hann inn á mjóan stíg. Þegar
hann var kominn stíginn á enda,
sá hann að dyrnar opnuðust á
kofanum, og stúlka' kom hlaup-
andi út með tösku í hendinni, en
svo sást móta fyrir manni að
baki henni í dyrunum. Hún leit
hrædd kring um sig um leið og
hún hratt upp hliðinu og þaut
svo aftur áfram, og hrasaði af
flýtinum, því að sýnilega var
hún að reyna að komast sem
allra fljótast burt frá húsinu.
Robin rak upp óp og stöðvaði
bílinn, stökk út og hljóp til henn
ar. Því að hann hafði séð, að
þetta var Júlia, þegai bílljósin
skinu snöggvast á hana.
— Bíddu andartak. Flýttu þér
ekki svona mikið, Júlía elskan!
Júlía greip andann á lofti. Hún
þekkti þessa rödd. Nú leit hún
upp, steinhissa og ringluð og sá
þá framan í Robin. Ekki nema
ógreinilega að vísu, en hún vissi
samt fyrir víst að þetta var Rob
in. En hvernig gat það verið?
Robin var langt í burtu. Fyrir
tveim dögum hafði hún þótzt sjá
hann, en sá seinna, að þetta
hafði verið missýn. Og nú ætlaði
hún ekki að li.ta það sama henda
sig í annað sinn. Svo þungbær
höfðu fyrri vonbrigðin orðið
henni. Og nú yrðu þau ennþá
þungbærari.
En svo datt henni í hug, að
ef þetta væri nú ekki Robin,
hversvegna hafði hann þá kallað
á hana með nafni? Og nú kall-
aði hann aftui á hana með nafni.
— Júlía,.. elskan mín.. hvað
hefur komið fyrir?
Hún faðmaði hann að sér grát
andi og gat engu orði upp kom-
ið í fyrstunni. Hann hélt henni
fast í faðmi sínum og beið eftir
því, að hún segði eitthvað.
— Robin! 0 elskan mín! Ég
ge1 ekki trúað því enn. Segðu
mér, að þetta sé raunverulega
þú sjálfur. Hún rétti upp hend-
urnar og fór yfir andlitið á hon
um með skjálfandi fingrunum.
— Hvernig komstu hingað Hvern
ig hefur þetta gerzt? Ég get ekki
ennþá trúað þessu!
' — Gæsasteggurinn er með sár ] Eg hef nefnt hann „Afa stegg!“
é væng, en það lagast fljótlega. * Seinna.
| — Afi steggur er mjög fallegur — Ekki enn ... En eftir nokkra
| Markús . . . Getur hann flogið? J daga!
aitltvarpiö
9:10 Morguntónleikar: (10:10 Veðrufr)
1) Frá kirkjutónleikum í Basili-
que Saint Seutin 14. mai sl.t
a) Gaston Litaize leikur á
orgel verk eftir Couperin
og Bach.
b) Kammerkórinn í Pamp-
lona syngur tónverk eftir
Giorgi, Cabezon, Morales,
Guerrero og Vittoria. —»
Stjórnandi: Luis Morondo.
2) Frán tónlistarhátíðinni í
Stokkhólmi í júní sl.: Fílharm
oníska hljómsveitin í Lenin-
grad leikur tvö verk; Evgení
Mravinsky stjórnar.
a) Forleikur að „Brúðkaupi
Fígarós" eftir Mozart.
b) Svíta nr. 2 úr „Rómeó og
Júííu'í eftir Prokofjeff.
11:00 Messa í Dómkirkjunni (Prestur:
Séra Arngrímur Jónsson í Odda.
Organleikari: Dr. Páll ísólfsson).
12:15 Hádegisútvarp.
14:00 Miðdegistónleikar:
a) Moments Musicaux eftir Schu
bert (Claudie Arrau leikur á
pfanó.
b) Atriði úr óperunrti „Salóme'*
eftir Richard Strauss (Christ-
el Golz, Margareta Kenney,
Elsa Schurhoff, Julius Patzak.
Hans Braun og Anton Der-
mota syngja; Fílharmoníska
hljómsveitin í Vínarborg leik
ur. — Stjórnandi: Clemens
Krauss).
c) „Myndir frá Elsass", hljóm-
sveitarsvíta nr. 7 eftir Mass-
enet (Lamoureux hljómsveit
in leikur; Jean Fournet stjórn
ar).
15:30 Lög fyrir ferðafólk. — (16.30
Veðurfregnir).
17:30 Barnatími (Skeggi Asbjarnarson
kennari):
a) „Strokubörnin", leikrit eft
ir Hugrúnu; annar hluti. Leik
stjóri Ævar R. Kvaran.
b) ..Kópur í útlegð", saga eftir
Helgu Þ. Smára; fyrri hluti
(Elfa Björk Gunnarsdóttir).
18:30 Miðaftantónleikar: Hollywood
Bowl sinfóníuhljómsveitin leik-
ur hljóðláta hvíldartónlist; Carm
en Dragon stjórnar.
19:00 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr.
19:30 Fréttir.
20:00 Erindi: tTr Indlandsför (Birgir
Thorlacius ráðuneytisstjóri).
20:30 Lög af ýmsu taki: Guðmundur
Jónsson við fóninn.
21:15 „Með segulband í siglingu**, I.
Austur um haf (Jónas Jónasson).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:05 Danslög. — 24:00 Dagskrárlok.
Mánudagur 7. ágúst
8:00 Morguftútvarp. (Bæn. — 8:05 Tón
leikar. — 8:30 Fréttir. — 8:35 Tón
leikar — 10:10 Veðurfregnir.
12:00 Hádegisútvarp (Tónl.. — 12:25
Fréttir og tilkynningar).
12:55 Lög fyrir ferðafólk. (Fréttir kl.
15:00 og 16:00 og veðurfregnir kl.
16:30).
18:55 Tilkynningar — 19:20 Veðurfr.
19:30 Fréttir.
20:00 Einsöngur: Þuríður Pálsdóttir
syngur.
20:20 Erindi: Fyrsta kaupkona á Is-
landi (Sigfús H. Andrésson cand.
mag).
20:45 Tónleikar: „Rökkur", idyll op.
39 eftir Fibich (Tékkneska fíl-
harmoníusveitin leikur; Karel
Sejna stjórnar).
21:00 Frídagur verzlunarmanna: As-
mundur Einarsson blaðamaður
tekur saman dagskrá að tilhlutan
Landssambands ísl. verzlunarm.:
a) Viðtöl við Egil Guttormsson
stórkaupmann, Egil Asbjörns-
son verzlunarstjóra og Harald
Olafsson forstjóra.
b) Upplestur: „Harri" smásaga
eftir William Saroyan, 1 þýð-
ingu Halldórs Kiljan Laxness
(Erlingur Gíslason leikari).
c) Gamanvísur eftir Guðmund
Sigurðsson (Heígi Skúlason
leikari).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Danslög, þ.á.m. leikur danshljóm
sveit Björns R. Einarssonar.
01 K)0 Dagskrárlok.
Þriðjudagur 8. ágúst.
8:00 Morgunútvarp. (Bæn. — 8:05 T6n
leikar. — 8:30 Fréttir. — 8:35 Ton
leikar — 10:10 Veðurfregnir.
12:00 Hádegisútvarp (Tónl.. — 12:29
Fréttir og tilkynningar).
12:55 „Við vinnuna": Tónleikar.
15:00 Miðdegisútvarp (Fréttir. — 15:09
Tónleikar. — 16:00 Fréttir og til-
kynningar. — 16:05 Tónleikar -•
16:30 Veðurfregnir).
18:30 Tónleikar; Þjóðlög frá ýmsum
löndum.
18:55 Tilkynningar — 19:20 Veðurfr.
19:30 Fréttir.
20:00 Tónleikar: „Pulcinella", ballett-
svíta eftir Stravinsky, byggð á
tónlist eftir Pergolesi (Hljóm.
sveit franska útvarpsins leikur;
Igor Markevitch stjórnar).
20 Erindi: Uppgangur og hrun
þriðja ríkisins (Vilhjálmur Þ,
Gíslason útvarpsstjóri).
20:45 Tónleikar: Sónata nr. 3 i c-moll
fyrir fiðlu og píanó op. 45 eftir
Grieg (Yehudi Menuhin og Ro-
bert Levin leika.)
21:10 Ur ýmsum áttum — (Ævar R,
Kvaran leikari)
21:30 Einsöngur: Carlos Puig syngur
þjóðlög frá Mexikó.
21:45 Glímuþáttur: Fyrirspumir tfl
glímumanna og um glímumenn.
(Helgi Hjörvar rithöfundur).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Lög unga fólksins (Kristrún Ey-
mundsdóttir og Guðrún Svafan
dóttir).
23:00 DagskrárloÞ