Morgunblaðið - 10.08.1961, Blaðsíða 8
6
MORCVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 10. ágúst 1961
XSLENZKI kristniboðslæknir-
inn, Jóhannes Ólafsson, hefur
gegnt störfum um eins árs
skeið í sjúkrahúsi norska
kristniboðssambandsins í hér-
aðshöfuðstaðnum Irgalem í
Suður-Eþíópíu. Þótti það nauð
synlegur undirbúningiur þess,
að hann tækist einn á hend-
ur læknisþjónustu í stöðvar-
umdæmunum Konsó og Gi-
dole.
Þegar Jóhanhes kom til Ir-
galem var þar fyrir norskur
læknir, Tausjö að nafni. Hafði
hann langa reynslu að baki
sér. Svo var aðsókn mikil að
sjúkrahúsinu, að Jóhannes og
Áslaug kona hans, sem er
Þjóðvegur skammt frá Irgalem. Inset-tré, svipar til bananatrés en ber ekki ávexti.
beltisgróður þar sem leynist urmull af fuglum og dýrum.
— Hita-
Glefsur úr bréfi frá íslenzkum
lækni í Suður-Eþídpíu
hjúkrunarkona, gátu engan
tíma tekið til málanáms. Við
sjúkrahúsið störfuðu þrjár
norskar hjúkrunarkonur, en í
sambandi við það er hjúkrun-
arskóli fyrir innlenda menn.
Einn hjúkrunarmannanna í
Konsó hefur fengið þar mennt
un sína.
Jóhannes hefur að hætti
lækna verið sparsamur á fré-
sagnir af starfi sínu. Hefur
hann ekkert um það skrifað
nema smá glefsur í einkabréf-
um.
Þau hjónin hafa fengið
reynslu fyrir því, að mikla á-
reynslu kostar að venjast ger-
breyttu umhverfi. í starfinu
sjálfu var flest mjög frábrugð
ið því, sem þau höfðu vanizt
hér heima. Byrjunarerfiðleik-
arnir voru miklir:
— Allt nýtt: Lyfjaheiti, sjúk
dómar, vinnuaðferðir og mála
glundroði. Lítill tími vinnst
til að lesa amharísku, svo ég
nú ekki tali um það sem ég
þyrfti að lesa starfs míns
vegna. Ekki gerir betur en að
tími vinnist til að fletta upp
því sem er mest aðkallandi
hverju sinni. — Við höfum
skipt með okkur störfum þann
ig, að dr. Tausjö hefur lækn-
ingastofuna en ég legusjúkl-
inga. Hann aðstoðar þó við
meiriháttar aðgerðir.
f ársbyrjun 1961 skrifar Jó-
hannes:
— Dr. Tausjö segir að aldrei
hafi verið önnur eins aðsókn
að sjúkrahúsinu og nú, það
er að segja af legusjúkling-
um. Undanfarnar sex vikur
hafa verið gerðir 120 uppskurð
ir, stórir og smáir. Á lækn-
ingastofuna koma 100 til 150
sjúklingar á degi hverjum.
Það er ekki í samræmi við
vestrænar kröfur að ætla ek'ki
hverjum sjúklingi meiri tíma
en við gerum. En með því
einu móti komumst við yfir að
hjálpa mörgum og það á jafn
ódýran hátt og þessu fátæka
fólki hæfir.
Annríki eykst um allan
helming, þegar annarhvor
læknanna fer frá, einhverra
orsaka vegna um lengri eða
skemmri tíma, — máske sótt-
ur til fjarlægra staða.
— Undanfarna daga hefur
hér verið óskaplegt annríki,
— fyrir hádegi á lækninga-
stofunni en síðdegis í sjúkra-
húsinu. Á miðvikudag gerði
. hér feiknmikla úrkomu og
hrundi þá nokkur hluti fanga
hússins. Fórust þá 9 fangar en
20 særðust mikið og voru flutt
ir hingað. Við lögðum þá inn
í ófullgerðan hluta sjúkrahúss
ins, skoðuðum þá og gerðum
að sárum þeirra langt fram á
kvöld.
— Svo virðist sem berkla-
veiki sé að aukast í Suður-
Eþíópíu. Við finnum daglega
ný tilfelli af lungnaberklum
á háu stigi. Því miður er skiln-
ingur fólks á lækningum svo
takmarkaður, að fæstir fást
til að fara að okkar ráðum
um að fcoma reglulega til með
ferðar. Flestir hætta eftir 2 til
3 vikur. Það <er líka reynsla
annarra lækna hér, að hafa
verið strangt eftirlit með
berklasjúklingum og jafnvel
sækja þá heim til þeirra, van-
ræki þeir að koma til meðferð-
ar. Þann hátt hafa Bretar haft
á sínum Health Centers víða
í nýlendunum.
Kristniboðslæknar taka sinn
þátt í prédikunarstarfi, að svo
miklu leyti sem þeir fá því
við komið. Bæði nafa þeir
guðræknisstundir i sjúkrahús
unum og tala auk þess stöku
sinnum á guðsþjónustum og
samkomum. Þannig segist Jó-
hannesi frá í einu bréfinu:
— Um helgina var hér mót.
Eg talaði á síðdegissamkom-
unni. Kirkjan var þétt skip-
uð, áheyrendur um 400, og
voru konur þó á samkomu út-
af fyrir sig á sama tíma.
Síðasta bréf Jóhannesar sem
hér verða birtar glefsur úr,
er skrifað 2. júli síðastliðinn.
— Tíminn líður ótrúlega
fljótt þegar nóg er að gera.
En staðreynd er það að við
erum bráðum búin að vera
hér eitt ár. Okkur hefur liðið
þvi betur, þess lengur sem
við erum hér. Ekki fer hjá
því að við finnum stundum til
þreytu. En vitundin um að
vera mörgum til gagns vegur
'fyllilega upp á móti því. Mest
virði er okkur þó að verða
vör Guðs blessunar í starfimu.
— Á þeim 11 árum sem hér
hefur verið unnið að kristni-
boði hefur ótrúlega mikið
gerzt. Fréttir berast um að ný
ir samfélagshópar kristinna
manna hafi orðið til hér og
þar. í kristniboðsstöðvar um-
dæminu, sem heyrir undir Ir-
galem, eru 77 slíkir hópar sem
koma reglubundið saman á
hverjum sunnudegi til að
hlýða á Guðs orð. Flestir
þeirra hafa byggt sér sinn
eigin „kirkjukofa“, alveg við
sitt hæfi. Norska kristniboðið
forðast að láta þá verða sér
háða fjárhagslega og styrkir
þá mjög óverulega. Tveir
prestar þjóna þessum söfnuð-
T--------' — 1----‘ 1 ‘
að fá hinn þriðja. Kristniboðið
sér bæði prestum og innlend-
um trúboðum fyrir skóla-
menntun.
— Talsvert hefur borið á
því, að kristnir menn í Suður-
Eþíópíu sættu ofsóknum. Hér
í Irgalem sitja nokkrir menn
í fangelsi fyrir það eitt að
þeir eru kristnir. Skömmu eft-
ir uppreisnina fór nefnd krist-
inna manna á fund keisarans
og bar fram kvörtun vegna
skerðingar á trúfrelsi. Keis-
arinn tók nefndinni vel og
hét að láta málið til sín taka.
Nýlega var lúterska kirkjan
hér í landi viðurkennd að lög-
um. Er það talið vera mjög
þýðingarmikið. Söfnuðunum
er nú heimilt að kaupa lóðir,
reisa kirkjur, skólahús og aðr
ar stofnanir, og reka í sínu
nafni.
— Söfnuðirnir hafa unnið
að því að koma á fót skólum
úti á meðal almennings. Bene-
dikt Jasonarson, kristniboði,
hefir skrifað . um þetta í
Bjarma og nefnt það þorps-
fræðslu. Skólar kristniboðs-
stöðvanna gera sitt til að örva
þetta fræðslustarf og taka við
nemendum til framhaldsnáms.
Og hvílík þörf er ekki á því!
Sl. vor var haldin í Addis
Abeba ráðstefna á vegum
Sameinuðu þjóðanna um
menningarmál. Var þá upplýst
að Eþíópía væri meðal þeirra
þjóða, sem eru skemmst á veg
komnar í þeim efnum. Var frá
því skýrt í útvarpi og blöðum.
— Eg hef áður sagt frá því,
að aðalritari æðsta embættis-
manns Sidamohéraðs boðaði
helztu leiðtoga kristniboðsfé-
laga, sem starfa í héraðinu á
sinn fund og skýrði frá því
að öllum kristniboðum væri
frjálst að starfa hvar sem er í
héraðinu. Kristniboðum væri
heimilt að ferðast um og pré-
dika. Allt til þess höfðu þeir
ekki leyfi til að prédika eða
kenna annars staðar en á
kristniboðsstöðvunum. Þetta
boðar nýja tíma, nýja mögu-
leika.
— Enn hefur borizt frétt um
að fremstu leiðtogar hinna
fornkristnu Kopta hafi skorað
á evangeliska söfnuði í land-
inu, að taka saman höndum
um að hindra frekari út-
breiðslu Múhameðstrúar í
landinu. Við vitum ekki
hverju slíkt sætir. Hingað til
hefur koptiska kirkjan unnið
gegn evangelisbu kristniboði
eftir getu. Vera má að henni
sé farið að skiljast að ónóg sé
að skvetta vígðu vatni á fólk
til þess að það verði kristið.
Jóhannes Ólafsson, kristniboðslæknir, og fjölskylda: Áslaug t
Johnsen oer Ólafur Árni.
Rúmlega 7 millj.
jafnað niður
á Siglufirði
Allf að !8°/o útsvarslækkun frá
útsvarsstiga kaupstaðanna
SIGLUFIRÐI, 9. ágúst. — Bókin, í þeirri upphæð innifaldar 10
sem aliir lesa, en fáir dá, útsvars vanhaldaprósentur lögum sam-
skráin, kom fyrir sjónir bæjar-; kvæmt. Lagt var á samkvæmt út-
búa í gær. Alis var jafnað niður svarsstiga kaupstaðanna og öll
sjö millj. 156 þús. kr., og erui útsvor síðan lækkuð um 8%. Til
viðbótar verða þau útsvör, sem
greiðast fyrir fyrsta september,
lækkuð um 10% þannig að skil-
vísir greiðendur fá um 18% af-
slátt frá útsvarsstiga kaupstað-
anna.
Af félÖgum greiða hæst útsvör
Kaupfélagið 194 þúsund, Olíu-
verzlun íslands 112 þúsund Skelj
ungur 87 þúsund, Kjötbúðin
80,200 krónur. Af einstaklingum
bera hæst útsvör Vigfús Frið-
jónsson, 60,100, Þráinn Sigurðs-
son 59,100, Jón Jóhannsson 41,800
og Gestur Fanndal 40,900 krónur.
Hér greiða nú 754 einstaklingar
og 51 fyrirtæki útsvör.
— Stefán.
HADERSLEV, Danmörku, 9. ág.
(Reuter) Níu hermenn særðust í
gærkvöldi, er bifreið var ekið á
fullri ferð beint inn í hóp gang-
andi hermanna.