Morgunblaðið - 11.08.1961, Síða 20
LÆ K N I S RAÐ
Sjá bls. 8.
rositttMáfrifr
IÞRÓTTIR
Sjá bls. 18. _
178. tbl. — Föstudagur 11. ágúst 1961
Fálka-Míiller rændi sex
valsungum
J Geymdi Jbó i sokkbolum og hugðist \
j temja — Ætlaði hann að smygla J
beim út?
Húsavík, 10. ágúst.
UM fálka. ngana og Þjóðverj
ann Egon Miiller, sem dval-
izt hefur í Flateyjardal, og
sagt var frá í blaðinu í gær,
hefur blaðið nú fengið eftir-
farandi upplýsingar hjá Jó-
hanni Skaptasyni sýslumanni
á Húsavík:
Um síðustu helgi fékk
sýslumaður þær fréttir hjá
refaskyttu, sem verið hafði í
Flateyjardal, að sex fálka-
ungar væru í haldi hjá út-
lendum manni, sem héldi
sig á Brettingsstöðum í Flat-
eyjardal. í dalnum er nú öll
byggð í eyði.
Hóf þá sýslumaður þegar
frekari athugun á þessu máli
Skjalatasko
fannst d
sjdvorbotni
UM HÁLF tvöleytið í gærdag
fann Andri Heiðberg, kafari,
sem var við vinnu á sjávar-
botni við Grófarbryggju,
skjalatösku allmikla, sem bíl-
tjakkur var bundinn við,
greinilega til að halda tösk-
unni niðri. Fékk rannsóknar
lögreglan töskuna til meðferð
ar, en ekki var unnt að kanna
innihald þennar að fulliu í gær
sökum þess hvað taskan var
morkin, enda hefur hún greini í
lega legið lengi í sjó. Vitað er^
þó, að í henni eru tóm launa
greiðsluumslög, a.m.k. eitt-
hvað af þeim frá Kirkjusandi,
og er ekki ólíklegt að taskan
sé frá gömlu innbroti, seom
upplýst var fyrir nokkru. Verðj
ur innihald hennar kannað
nánar í dag.
og hafði m.a. samband við dr.
Finn Guðmundsson, fuglafræð-
ing, til að fá upplýsingar um,
hvort honum væri kunnugt um
útlending, sem leyfi hefði til að
fanga fálka, en svo reyndist
ekki vera.
í gær fór svo sýslumaður í
leiðangur til að athuga málið
nánar, og var dr. Finnur í
þeirri för, en ferðin tók um 20
klst. frá því að sýslumaður lagði
af stað að heiman, og þar til
hann kom aftur til Húsavíkur í
nótt, og var þá með hinn seka
mann.
Dularfullar bjöllur
Leiðangursmenn komu að
Brettingsstöðum um kl. 2 í gær,
og var Þjóðverjinn þá ekki
heima við bæinn, en dót hans
var þar. Biðu þeir heimkomu
hans, og kom hann um kl. 7,30
í gærkvöldi. Meðan þeir biðu
mannsins, leituðu þeir fálkaung-
anna og sáu nokkra þeirra, sem
allir voru orðnir fleygir og
héldu sig í klettum skammt frá.
Við fætur fuglanna voru festar
litlar bjöllur, sem greinilega
heyrðist í, þegar fuglarnir
flugu upp. Bjöllurnar eru festar
á fæturna með leðuról, sem
Framhald á bls. 19.
Skúli Magnússon
með karfa
S K Ú LI Magnússon kom til
Reykjavíkur kl. 6 í gærmorgun
haeð 200 lestir af karfa frá V-
Grænlandsmiðum.
Sæmilegur reytingur út af
Langanesi og á Gerpisflaki
SÆMILEGUR reytingur var á|ll
miðunum í gær, bæði undan
Langanesi og út af Gerpi. Held-
ur dauft var á syðri miðunum;
þó miðlungsveiði, en minnkandi
afli fyrir Langanesi.
SEYÐIISFIRÐI í gær. — Hér er
heldur rólegt. Verið er að losa
úr síðasta skipinu í höfninni, en
nokkur skip hafa tilkynnt sig
inn í kvöld með 500 upp í 1000
mál. Síldin er tímabundið uppi,
stendur annars djúpt. Hún fæst
helzt á Gerpisflakinu sjálfu og
í suðurkanti þess. Annars er út-
litið fremur gott enn og sjómenn
bjartsýnir, þótt þeim finnist
ganga tregar að ná henni nú en
áður.
RAUFARHÖFN í gær. — Hér
hefur verið sæmileg veiði síðan
í nótt, þótt átulaust sé orðið.
Síldin heldur sig í stórum flétt-
um eða breiðum, en þær eru af-
ar grunnar, svo að mælarnir
taka hana varla. Því er erfitt að
kasta á hana. Hún heldur sig á
tveimur stöðum, 28 mílur og 40
mílur undan Langanesi. Nokkuð
margir komu inn í dag með 10—
þús. mál alls. Nokkuð er
saltað enn, þótt aðkomustúlkur
séu ýmist farnar heim eða til
Seyðisfjarðar. — E. J.
NESKAUPSTAÐ, 10. ág. — Enn
bíða hér nokkur skip, og er um
það bil sólarhringslöndunarbið.
Verksmiðjan geiigur mjög vel
og afkastar nú um 4000 málum
á sólarhring, þótt hún sé upp-
haflega ekki ætluð til að afkasta
meira en 2500. Enn er saltað á
tveimur plönum.
Hingað komu í dag til söltunar
stöðvarinnar Drífu: Hafaldan
með 450 tunnur og til Sæsilfurs.
Glófaxi með 300 tunnur, og einn-
ig hafði hann 300 mál í bræðslu.
í bræðslu komu þessi: Hvann-
ey með 650 mál og Hannes lóðs
með 450 mál. — S. L.
Síld til Rússa?
Sumarferð Óðins
MÁLFUNDAFÉLAGIÐ Óðinn
efnir til ferðar í Þjórsárdal um
næstu helgi. Lagt verður af stað
úr bænum eftir hádegi laugar-
daginn 12. ágúst og ekið sem
leið liggur um Mosfellsheiði,
Grafning, Selfoss, Stokkseyri,
Ný framhaldssaga:
Tiegasöngvar
í dag. —
hefst í blaðmu
Bls. 16.
Gaulverjabæ, Skeið, um Hreppa,
í Þjórsárdal. Tjaldað verður í Ás-
ólfsstaðaskógi og höfð þar viðlega
um nóttina.
Á sunnudaginn verða svo skoð
aðir merkustu staðir í Þjórsár-
dal. Úr Þjórsárdal verður síðan
haldið upp Hreppa, um Brúar-
hlöð að Gullfossi og Geysi, það
an að Skálholti og staðurinn
skoðaður. Frá Skálholti verður
síðan ekið um Grímsnes, ölfus
og Hellisheiði til Reykjavíkur.
Farmiðar verða seldir á skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins. Þátt-
takendur þurfa að hafa tjöld og
annan viðleguútbúnað.
f GÆRKVÖLDI hafði Síldarút-
vegsnefnd ekki enn borizt svar
frá Sovétríkjunum við tilboði
nefndarinnar.
í tilefni af frásögn Mbl. í gær
um síldarsölu til Rússlands óskar
Sveinn Benediktsson að taka
fram, að hann og Gunnar Jó-
hannsson hafi flutt breytingartil-
lögu við tilkynningu síldarút-
vegsnefndar 21. júlí, þar sem þeir
vildu láta fella niður ummæli
nefndarinnar um það, að hún
teldi söluhorfur mjög slæmar.
Þessi tillaga var felld með 5 atkv.
gegn 2, og greiddi Sv. Ben. þá
ekki atkv. um aðaltillöguna með
hliðsjón af því, að uppi voru í
nefndinni háværar raddir um að
banna söltun algerlega, en þessi
tillaga gekk ekki lengra en svo
að vara saltendur við frekari sölt
un og tilkynna þeim, að hér eftir
yrði söltun algerlega á ábyrgð
saltenda sjálfra.
Fáum dögum eftir að nefndin
sendi út tilkynningu sína notuðu
Rússar heimild til að auka kaup
sín um 10 þús. tunnur, og sala
tókst til Vestur-Þýzkalands á 6
þús. tunnum síldar. Einnig kom
fram eftirspurn eftir síld úr ýms-
um öðrum áttum, Og nú síðast
en ekki sízt hefur Prodintorg,
innkaupastofnun Sovétríkjanna,
lýst sig reiðubúið til að semja
um frekari kaup á Austur- Og
Norðurlandssíld, en enn er ekki
fyrir hendi svar þeirra við tilboð-
um Síldarútvegsnefndar um
aukna sölu.
Þessi mynð var tekm norður
á Húsavík í gær. Til vinstri
er dr. Fiimur Guðmunds-
son, fuglafræðingur, en til
hægri „fuglavinurinn“ Egon
Múller. — Þeim þótt hann
sumum hálf-fálkalegur.
— Ljósm. Silli. i
Happdrætti
Háskóla Islands
FIMMTUDAGINN 10. ágúst var
dregið í 8. flokki Happdrættis
Háskóla Islands. Dregnir voru
1,150 vinningar að fjárhæð kr,
2,060,000.
Hæsti vinningurinn, 200,000
krónur, kom á hálfmiða núrner
59932, sem voru seldir í umboði
Frímanns Frímannssonar í Hafn
arhúsinu. Tveir eigendur áttu
sinn hvorn hálfmiðann, en báðir
þeirra áttu raðir, svo þeir hljóta
einnig aukavinningana.
100,000 krónur komu á fjórð-
ungsmiða númer 14275. Tveir
fjórðungar voru seldir á Blöndu
ósi, einn fjórðungur á Akur*
eyri og annar í Borgarnesi.
10,000 krónur: 810 5676 7963
9207 9797 9866 13084 15847 17540
24257 29178 31595 32708 33032
34947 35402 37384 38816 39569
40652 48015 53743 54072 54586
58185 58256.
Aukavinningar, 10,000 krónur:
59931 og 59933.
(Birt án ábyrgðar)
Sendiherra
til viðtals
THOR Thors ambassador verður
til viðtals í utanríkisráðuneytinu
þriðjudaginn 15. ágúst kl. 4—6
e. h.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
VerkíaU
iræSinga
FÉLAGSDÓMUR felddi
þann dóm í gær í máli
Vinnuveitendasambands
íslands gegn Stéttarfé- .
lagi verkfræðinga, að
verkfall Stéttarfélagsins
að því er tekur til yfir-
verkfræðinga þess, er
málið var höfðað út af,
sé ekki andstætt ákvæð
um kjarasamnings verk-
fræðinga, sem í gildi
var áður en verkfall
hófst í júlí sl. Jafngild-
yiirverk- j
lögmætt
ir þessi niðurstaða úr-
skurði um lögmæti verk
falls yfirverkfræðinga,
en vinnuveitendur hafa
haldið því fram, að
samkvæmt fyrrnefnd-
um kjarasamningi hefðu
yfirverkfræðingar ekki
verkfallsrétt. Einn dóm-
aranna taldi þó verkfall
yfirverkfræðinga ólög-
mætt.
Nánar verður skýrt
frá dómnum síðar.