Morgunblaðið - 15.08.1961, Síða 1
24 síðuv;
48. áreranrur
181. tbl. — Þriðjudagur 15. ágúst 1961
Prentsmíðja Morgunblaðsint
JARNTJALDID FELLUR
RISAVAXNAR FANGABIÐIR
segir dr. Adenauer um Austur Þýzkaland
Samgöngur til V. Betlínar stöðvaðar
- Mótmælaaðgerðum mætt með tóragasi
og kylíum af hálfu austur - þýzkra
'• SNEMMA á sunnudagsmorgun var landamær-
unum milli Austur- og Vestur-Berlínar og Austur-
og Vestur-Þýzkalands nær algerlega lokað fyrirvara-
laust höfðu stjórnmálamenn á Vesturlöndum búizt
við því, að kommúnistar gripu til þess örþrifaráðs,
en þó kom fréttin mörgum í opna skjöldu.
• Fréttin um lokun landamæranna kom í kjöl-
far síaukins straums flóttamanna frá Austur-
Þýzkalandi til Berlínar. Sólarhringinn næstan á
undan höfðu 2.400 austur-þýzkir flóttamenn komið
til Vestur-Berlínar og hafa þeir aldrei verið jafn
margir — ekki einu sinni þegar austur-þýzkir verka-
menn gerðu uppreisn gegn kommúnistastjórninni
1953.
• í yfirlýsingu, sem Varsjár-bandalagið gaf út um
helgina er m. a. komist svo að orði> að landamær-
unum hafi verið lokað í því skyni, „að fæla lítils-
sigldar manneskjur í Austur-Þýzkalandi frá því að
svíkjast undan merkjum.“
• Willy Brandt borgarstjóri Vestur-Berlínar
sagði hins vegar, að ákvarðanir kommúnista „sýndu
algera uppgjöf þeirra manna, sem farið hafa með
völd á hernámssvæði Sovétríkjanna í Þýzkalandi
Frh. á bls
Gagnráð-
stafanir
undir-
búnar
Bonn, París, Washington,
Berlín (Reuter-NTB)
ADENAUER, kanzlari V.-
Þýzkalands, komst svo að
orði í ræðu í gærkvöldi, að
eftir síðustu aðgerðir austur
þýzkra yfirvalda væru Aust
ur-Þýzkaland og Austur-
Berlin engu líkari en risa-
stórum fangabúðum. Væri
framferði kommúnistastjórn-
arinnar þar glæpur við mann-
kynið. — Mótaðgerðir af
hálfu vestur-þýzkra stjórn-
arvalda eru í undirbúningi og
í dag er búist við að Frakk-
land, Bretland og Bandaríkin
sendi frá sér sameiginlega
mótmælaorðsendingu, þar
sem m. a. verði krafist, að
samgöngubanninu í Berlín
verði þegar aflétt.
Roskinm maður, sem ásamt konu sinni reyndi að komast yfir
svæðamörkin til Vestur-Berlínar, sézt hér ásamt austur-þýzku
öryggisvörðunum, sem hindruðu för þeirra.
• Ræða Adenauers
í ræðu sem Adenauer kanzlari
flutti á kosningafundi í Regens-
burg í gærkvöldi, komst hann
svo að orði, að þessar síðustu að-
gerðir kommúnista væru glæpur
við mannkynið.
Eftir að samgöngur til V.-
Berlínar hefðu verið bann ðar
á sunnudag, væru Austur-
Þýzkaland og Austur-Berlín
engu líkari en risastórum
fangabúðum .— Sagði Adenau
er, að vestræn ríki yrðu að
endurskoða bæði viðskiptaleg
og menningarleg samskipti sín
við kommúnistarikin í þessu
nýja Ijósi.
Þá sagði kanzlarinn, að vest-
ræn ríki yrðu að halda áfram að
styrkja aðstöðu sína á hernaðar-
sviðinu. Viðræður vestur-þýzkra
stjórnarvalda við fulltrúa Banda-
ríkjanna, Bretlands og Frakk-
lands munu halda áfram á morg-
un, sagði Adenauer, og bætti við:
„Ég veit að samstaða ríkja um að
gripa til ráðstafana, sem austur-
þýzka stjórnin mun verða vör
við.“
• Kommúnistaríkin í við- v
skiptabann
Ræddi Adenauer um þann
möguleika, að setja öll komm
únistarikin í algjört viðskipta-
bann, ef Rússar kæmu í veg
fyrir lausn Berlinar-málsins.
„Við munum ekki veita efna-
hagslegan stuðning til fram-
Framhald á bls. 23.
AUSTUR-þýzkur öryggisvörð-
ur með vélbyssu gengur með-
fram gaddavirsgirðingunni,
sem á sunnudaginn lokaði
leið Austur-Þjóðverja til
frelsisins í vestri.
j