Morgunblaðið - 16.08.1961, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.08.1961, Blaðsíða 6
M ORCV /V BT/AÐ1Ð Miðvllcudagur 16. ágúst 1961 ^ 6 Jóhann Hannesson prófessor Fréttir frá Noregi S/ys/ð SVO sem skýrt var frá hér í blaðinu í gær, lenti 74 ára gömul kona úr Reykjavík, Steinrunn Sigurðardóttir, í bíislysi í Kaupmanahöfn s.l. sunnudag með þeim afleiðing um, að hún Iézt samstundis. Hafði hún verið í heimsókn hjá dótturdóttur sinni í Sví- þjóð, en brugðið sér til Hafn- ar. Þegar slysið var, var hún í bíl með hjónumim Knúti Björnssyni lækni í Kristine- hamn (Svíþj.) og Önnu Þor- járnbrautagerð. Nú hefir þó kom ið til sögunnar eitt sérkennilegt mannvirki til viðbótar, „gormur inn“ frægí í Bragernessásnjum I. UPÞELDISMÁL, Það kann að virðast undarlegt í augum fslendinga að uppeldis- mál séu á hvers manns vöruim. Þó hefir þetta verið þannig hér í landi um nokkurð skeið. Tals- verð breyting hefir orðið í skóla löggjöf Norðmanna. Og menn ræða sín á milli hvort hinn fyrir hugaði samfelldi 9 ára skóli (En hetsskolen) sé breyting til batn- aðar eða ekki. Sérfræðingarnir láta sér ekki nægja að ræða mál- in, heldur gera margvíslegar rannsóknir, skrifa nýjar bækur halda námskeið og verja dokt- orsritgerðir varðandi uppeldis- mál. í sumar hafa verið hald- in mörg námskeið og hafa þau verið vel sótt af kennurnum. Hér kemur líka eitt enn til greina: Með aukinni menntun hækka laun kennara. Þess vegna nota margir kennarar sumartímann til þess að sækja ákveðin námskeið, sem ráðuneytið viðurkennir. Um þær mundir, sem éitt af þessuim námskeiðum var haldið í Staf- angri, heimsótti ég þessa gömlu menningarborg og fékk tækifæri til að fylgjast með fyrirlestrum í uppeldisheimspeki. Voru þar tek in fyrir mörg veigamikil mál, sem eru mjög á dagskrá nú á dög um í menntaheiminum. Grunur minn er sá að mörgum íslenzk- um menntamönnum hefði þótt efnið nokkuð þungt og hafði ég ekki búizt við svo mikilli þekk- ingu í heimspeki meðal kennara sem þar kom fram. En norska kennarastéttin er vel menntuð og er sífellt að auka þekkingu sína. Vilji norskir stúdentar taka kenn arapróf, þá koma aðeins þeir til greina, sem hafa fremur háar einkunnir á stúdentsprófi og verða þeir að stunda nám við kennaraskóla í tvö ár, enda telja menn að kennarastéttin sé ein hin þýðingarmesta í þjóðfélag- inu. Fróðlegt er einnig að kynna sér menntun djákna í Noregi, því þeir eru mjög eftirsóttir menn Og gegna þýðingarmiklum stöð- um í þjóðfélaginu. Keppast félög, söfnuðir og ríkisstofnanir mjög wn að ráða djákna í þjónustu sína. Mér var tjáð að norskir djáknar séu dreifðir um flest lönd jarðarinnar (í hinium frjálsa heimi), en þannig stendur á því að þeir starfa bæði að kristni boði og velferðarmálum sjó- manna í fjarlægum löndum í hafnarborgum, enda eru Norð- menn meðal fremstu siglinga- þjóða í heimi. H. SKÓGURINN OÖ SKÓG- RÆKIARMÁL Þótt erindi mitt hér í Noregi sé einkum að kynna mér nýjungar í kennimannlegri guðfræði, þá gat óg ekki látið hjá líða að renna hýru auga til skóganna. Hér í landi eru líka tveir Islandsvinir, sem frægir eru fyrir aðstoð þá, sem þeir hafa veitt oss í þess- uæa málum, þeir sr. Harald Hope og hr. Braaten útgerðarmaður. Sjálfur hef ég hlúð að trjágróðri á tveim stöðum í veröldinni — og vill svo einkennilega til að Þjóðverjar eyddu skóginum á öðrum staðnum, en Japanir á hinum, en það er á eyju við suð urströnd Kína og þar unnum við að endurreisn mannvirkja og skógrækt eftir styrjöldina. Þegar íslendingar öfunda Norð menn af skóginum, þá ættu þeir ekki að gleyma því að skógum var útrýmt í Vestur-Noregi í stór um stíl á 13. og 14. öld. Komu Hansa-kaupmenn þar mjög við sögu. Mikið af þeim barrskógum, sem nú vaxa í Vestur-Noregi, er gróðursettir af manna höndum á síðustu áratugum. Sr. Harald Hope tjáði mér að vöxturinn á trjáplöntum í Haukadal væri sambærilegur við vöxt á jafn- gömlurn trjám í Noregi. Skóg- fróður maður í Suður-Noregi tjáði mér að nálega öll tré, sem menn gróðursetja þar í fjallahlíð um, séu barrtré. Sagði hann að birkið dreifði sér sjálfkrafa. Ekki taldi hann nauðsynlegt að girða landið gegn sauðfé nema þar sem skóglaust var með öllu. Þar þurfti girðingar í nokkur ár. Á 18. öld prédikuðu prestar hér í landi um gagnsemi kartöflurækt ar og hlutu viðurnefni að launum og voru kallaðir kartöfluprestar. En það varð þeim ekki til skamm ar, því með aukinni kartöflurækt breyttist ástandið smátt 'og smátt á þá lund að menn hættu að deyja úr hungri. Meðal alþýðu • Pöddur og sniglar Velvakandi ætlar í dag að ræða um mataræði og íslend- inga. Við fyrstu sýn virðist honum íslendingar hafa verið einhver sérvitrasta þjóð jarð ar í þeim efnum, ef frá eru skildir ýmsir frumskógaþjóð- flokkar, syndandi í hjátrú og göldrum upp fyrir herðablöð. Orsakir þessarar sérvizku eru Velvakanda ekki kunn- ar, en nefnir í fljótu bragði fordóma, þekkingarleysi, framtaksleysi eða allt í senn. Frægar eru gamlar furðu- sagnir íslenzkar af mataræði Frakka og Kínverja. Frakkar éta pöddur, snigla og gorkúlur og Kínverjar eta hunda og ketti alveg hikstalaust, sagði fólk, og skéllti á lær. Á sama tíma og fólk féll úr hungri hérlendis, snertu menn ekki skelfiskinn í fjör- unni, og það gerir fólk ekki ennþá. íslenzkur skelfiskur er þó úrvalsvara og gefur er- lendum skelfisk lítið eftir. Hvort mönnum þótti skelfisk- urinn ógeðslegur hér áður fyrr, eða hvort það var bara af framtaksleysi, að skelfisk- gengu allskonar kviksögur um þann skaða, sem kartöfluátið gæti gert; sögðu sumir að menn gætu orðið holdsveikir af því að borða kartöflur. Hér í Noregi hafa auk hinna gömlu presta, ýmsar stéttir manna unnið að eflingu skógrækt aráhugans. Standa þar kennarar og rithöfundar framarlega í fiokki og á þessari öld sérfróðir menn Og kennararnir við bænda- skólana og við hina sérstöku skógræktarskóla. Æðri menntun í skógvísindum tekur 6 ár að loknu stúdentsprófi; þar af er tveggja ára verklegt núm. — Skemmra nám tekur eitt ár fyrir þá sem unnið hafa eitt ár í skógi og hafa gagnfræðapróf eða hlið- stæða menntun. Rithöfundurinn Kr. Gjerlöff hefir skrifað ágæta bók um skóg inn og þjóðina (1923), en sú bók er því miður ófáanleg. Eg kynnt ist þessum mæta manni í Hong Kong fyrir allmörgum árum. Kom þá upp úr kafinu að hann var góður kunningi Guðmundar Hannessonar prófessors, sem ég hafði, mér til mikillar ánægju, haft að kennara í læknisfræði um stund. in. MANNVIRKI Norskir verkfræðingar hafa fyrir langa löngu gert garðinn frægan, einkum með byggingu rafstöðva og vegalagningu og inn rak út með næstu fjöru, um það vill Velvakandi ekki dæma. En framtaksleysið er þó freystandi dómur, því að Velvakandi man eftir barlóm miklum í gömlum annál, þar sem sagt er að hungur hafi verið í landi, vegna þess að ekki var hægt að veiða fisk fyrir síld. • Síld og lystarleysi Og þá er síldarát eða öllu heldur síldarfasta íslendinga — kapítuli út af fyrir sig. Hér er allt árið um kring á mark- aðinum úrvalssíld, tiltölulega mjög ódýr. Þrátt fyrir það þrjóskast landslýður enn við að neyta þessarar hollu og góðu fæðu að einhverju ráði. Velvakandi. var staddur í Finnlandi í vor. Var honum þar boðin síld og þau orð látin fylgja með, að þar eð hann væri íslendingur hlyti hann að vera mikil síldaræta, og hún ekki ókresin. Gestgjaf- arnir afsökuðu sig með því, að því miður væri það bezta, ís- landssíld, ekki fáanleg, en hann yrði að gera sér finnska síld að góðu. Þegar Velvak- andi upplýsti, að hann og landar hans væru litlar síld- arætur, og persónulega þætti Velvakanda sjálfum síld vond, þá voru Finnarnir á báðum áttum, og það var sem þeir segðu: Er maðurinn vitlaus eða er hann að gera grin að okkur. • Rækjur og humar Það var vízt heldur en ékki uppi fótur og fit á ísafirði hérna um árið, þegar það barst út, að norskur maður þar væri farinn að veiða rækjur, og þótti fólki það undarlegt, að hann ætlaði því að leggja sér krabba til munns. Þessi tími er nú liðinn og nú eru rækju- og humarveiðar þriflegur at- vinnuvegur hérlendis. En einhverja sérvizku þurfti landinn þó að leggja sér til í sambandi við rækju og humar. f útlöndum þykir það hin mesta íþrótt að snæða þessi dýr beint úr skelinni og álitið hálfgert gabb að neita fæðunnar úr dós eða frystr- ar og pillaðrar. Hér er ekki hægt að fá ferskan humar / Höfn láksd. — Varð slysið á þann hátt, að Knútur, sem var við stýrið, ók bíl sínum úr hliðar götu út í umferðina, en þá bar þar að danskan bíl. Skipti það engum togum, að hann lenti af miklu afli á framhliðina á bíl Knúts, þar sem Steinunn sat. Valt bifreið Knúts og eina 20 metra eftir götunni, á þak- inu, áður en hún stöðvaðist. — Á myndinni sést bíllinn eft- ir áreksturinn. hjá Drammen. En sú borg áttl 150 ára afmæli s.l. vor. Hafði þá komið til orða að gera veg upp Framhald á bls. 18. eða rækju nema með ærinni fyrirhöfn. • Nokkur orð um kjötsúpuna Velvakanda hefur alltaf þótt landar sínir leggja litla rækt við matargerð, hina eðlu list, Er þar skemmst að minnast soðningar og yfirleitt með« höndlun fisks. Honum er bara hent í pottinn og svo beðið. Þetta er steinaldaraðferðin, að henda hráefninu í vatn, sjóða og eta. Velvakandi bauð eitt sinn. grískum manni til snæðings hér í bæ. Hugðist hann gæða honum á ósviknum íslenzkum mat og lét bera honum kjöt- súpu. Eftir skamma stund lýsti Grikkinn yfir ánægju sinni með matinn og þótti sér mikill sómi sýndur með þvi að bera honum þjóðarrétt frumstæðra bænda í Make- dóníu, lambakjöt og rófur, soðið í vatni. Hann fræddi gest gjafa sinn á því, að þessir frumstæðu bændur hefðu beitt þessarri matarlagning- araðferð frá ómunatíð og væri hún svo fábrotin vegna leti þeirra og fávizku. Sem betur fer hafði Vel- vakandi, þegar hér var komið sögu, ekki upplýst, að hér væri um þekktan og vinsæl- an íslenzkan rétt að ræða, og svo fór, að hann lét hjá líða að láta þess getið. • íslenzka hraustmetið harða oss geri Ekki er þó hægt að skilja við þetta efni, án þess að geta þess, að íslenzk matargerðar- list hefur þó getið af sér fá- gæt góðgæti, þar sem er harð* fiskur, hákarl, reyktur rauð- magi, súr hvalur. Þessa rétti á að flytja út og selja dýrum dómum. Það er enginn vafi á þv|, að t. d. harðfiskur og hákarl yrðu eftirsótt munað- arvara erlendis, ef vel er hald- ið á spöðunum. Er hugsanlegt að íslenzkur hákarl verði einhverntíma ixefndur í sömu andránni og rússneskur kavíar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.