Morgunblaðið - 23.08.1961, Qupperneq 3
Miðvik'udagur 23. ágúst 1961
MORGVl\TtT/AÐ1Ð
3
I
Enginn er verri
þótthannvökni
Þetta er nú ekkert miðað við
veðrin á veturna, segir annar,
og regnið drýpur úr augna-
brúnunum, ofan hökuna og
niður á stakkinn.
Þið hangið ekki inni í skúr
í óveðrinu?
— Við höngum aldrei inni
í skúr í vinnutímanum, segir
verkstjórinn.
EKKI MYND
1 GALLANUM
í Safamýrinni klofum við
gegnum drulluna ' að hús*
grunni, þar sem ungur maður
og kona eru að rogast með
skolprör á milli sín. Þið eruð
að byggja? Hvað sýnist þér?
Megum við taka mynd af ykk
ur með rörið? Nei, eruð þið
vitlausir, haldið þið að ég
vilji fá mynd af mér í Mogg-
anum í þessum galla, segir
unga frúin, og reynir að
hlaupa í hvarf frá myndavél-
inni.
STAKSTEINAR
Af hverju ikki
vigtarmanninn?
Eysteinn Jónsson hefur tekitf
sér það fyrir hendur að reyna að
sanna landslýð að kaupliækkan-
irnar í sumar svari til 1% af
útflutningsverðmæti afurða. Við
þessar kátbroslegu tilraunir hef-
ur hann sett í gang allt ,,fræði-
kerfi“ eysteinskunnar, en það
er sem kunnugt er: falsanir,
ósannindi og þegar bezt lætur
hálfsannleikur. Að þessu sinni er
röksemdafærslan á þann veg, að
einn kostnaðarliður útflutnings-
framleiðslunnar er tekinn út úr,
þ.e.a.s. bein vinnulaun í frysti-
hiisum. Bæði er svo skrökvað til
um hækkun vinnulaunanna og
eins um hundraðstölu þá, sem
vinnulaun eru af kostnaði við
fiskvinnslu. Loks er svo þver-
summu lyginnar deilt inn í út-
flutningsverð afurða og út kem-
ur 1%.
ÞO VERRA
NIÐUR HRYGGLENGJUNA
— Ég er alinn upp í sveit,
en vann síðan í Vestmanaeyj-
um alla algenga útivinnu, seg-
ir bílstjórinn okkar, en hann
er bráðum búinn að aka á
B.S.R. í þrjátíu ár.
Ertu vatnshræddur, spyrj-
um við bílstjórann. Blaðamað
urinn mundi, hvað hann öfund
aði bílstjórana mikið í rign-
ingu, þegar hann var í vega-
vinnu á árunum.
Maður venst því nú fljót-
lega að vinna i rigningunni.
Bara ef maður hefur góðan
stakk og bússur. Bílstjórinn
félLst þó á það að lokum, að
það væri þægilegra að horfa
á vatnið skvettast undan þurk
unum, en finna það renna
niður hálsmálið.
HELDUR f SKÓLANN
Á Miklatorginu ökum við
fram á veurbarinn sendisvein
á hjóli með rukkaratöskuna á
maganum.
Af hverju ertu ekki í regn-
kápu?
Það er ómögulegt að hjóla í
svoleiðis.
Þeim einum fannst gaman að sulla.
— Ertu að sendast?
— Ég er að sendast hjá bæj-
arútgerðinni. Annars er ég í
Miðbæjarskólanum á veturna.
Það er gaman að sendast í sól.
Hvort viltu heldur sendast
í rigningu eða byrja í skólan-
um?
— Þá vil ég miklu heldur
byrja í skólanum.
STRÁKARNIR
HREKKISVÍN
Mamma skammar okkur, ef
við erum að sulla, segja börn-.
in á Snorrabrautinni, en það
gerir ekkert til, hún skamm-
ar okkur ekkert mikið. Ég
má alltaf vera úti í rigningu,
ef ég hef sjóhatt, segir ein
stelpan, Það eru bara bílarn-
ir, sem skvetta á okkur, segir
vinkona hennar, og svo strák
arnir. Þeir eru hrekkisvín.
HRESSILEGRI
GUSUR Á HALANUM
Niður á Faxagarði er verið
að Ijúka við löndun úr Pétri
Halldórssyni. Hann var að
koma frá Grænlandi með 100
tonn af karfa. Þeir eru að
skola lestarnar og bæta upp
rigninguna með vatnsslögun-
um. Menn kippa sér ekki upp
við nokkrara vatnsgusur við
höfnina.
Það þýðir ekkert að spekú-
lera í smá rigningu, segja karl-
arnir. Það verður að skipa
karfanum upp. Það voru nú
hressilegri gusurnar á Halan-
um á árunum, segir gamall sæ-
garpur. Þeir kunna líka að
klæða af sér vatnið héma við
sjóinn. í stakk og bússum,
með sjóhatta og gúmmívettl-
inga.
Á ÞINGMANNSSKÓM
í þann mund, að blaðamað-
urinn og ljósmyndarinn hafa
flúið undan rigningunni í bíl-
inn, hallar veðurbarinn sæ-
garpur sér inn um gluggann
og segir:
— Hafiði eld handa mér,
Framhald á bls. 19.
I husgrunm i Safamyri. — Ekki mynd af mer í gallanum, sagði frúin.
Tii gamans vill Morgunblaðið
benda Eysteini Jónssyni á, að
hann getur líklega reiknað þessa
tölu niður í í/c með nákvæmlega
jafn haldgóðum rökum, þ va.s.
ef hann tekur til dæmis laun
vigtarmannsins eins út úr og fer
um þau höndum á þann veg, sem
hann hefur gert með einrn kostn-
aðarliðanna,
Sá sannsögli
Fyrir skömmu sat Eysteinn
Jónsson fundi í stjórn síldar-
verksmiðja ríkisins norður og
austur á landi. Þar var það upp-
lýst, að verð á síldarlýsi hefði
lækkað úr 59 sterlingspundum
fyrir tonirið í febrúarmánuði og
niður í 49 pund nú. Jafnframt
hafði svo síldarmjöl lækkað all-
mikið á heimsmarkaðnum. Verð
á þessum afurðum hefur sem
kunnugt er verið mjög Iágt og
töluverðar sveiflur á því. Þegar
Eysteini Jónssyni hafði verið
skýrt frá þessu, hraðaði hann sér
suður til Reykjavíkur. Þar iét
hann samþykkja ályktun um að
allt væri í himnalagi, þar sem
verðlag væri hækkandi,
Lítil samlíking
Eftirfarandi birtist í Iangri
grein í Þjóðviljanum í gær, þar
sem ofbeldisverkum vinanna í
Austur-Berlín er sungið lof og
dýrð.
„Lítil samlíking.
Ráðstöfun þessari má líkja við
tvíbýli á bæ, þar sem annar
bónrdinn hefði haft fyrir sið að
reka rollur sínar í tún hins, en
him\ siðan reist girðingu við tún-
mörkin. Þá mundi fara líkt og í
Berlín. Sá fénaður, sem vanur
var túnstöðunni, mundi standa
jarmandi við girðinguna í nokkra
daga, en bálreiður eigandinn
steyta hnefann í átt til nábúa
síns.“
íslenzku kommúnistarnir eru
þannig sýnilega ekki minni gadda
vírsunnendur en flokksbræður
þeirra fyrir austan tjald. Þeim
finnst í bókstaflegri merkingu, að
gaddavírinn eigi að gegna því
hlutverki að hjálpa valdhöfuir-
um til að meðhöndla fólkið á
sama hátt og skynlausar skepn
ur. Að þeirra áliti á að fara með
almenning eins og sauðfé. Hann
skal fóðra, meðan hann gegnir
hlutverki í þágu valdhafanna.
Hannr má girða inni og sjálfsagt
líka slátra honum, ef svo býður
við að horfa.
Þá vil ég heldur byrja í
skólanum.
HANN byrjaði að rigna kl. 7
í gærmorgun með landsynn-
ingi.
VIÐ IIRINGJUM Á
VEÐURSTOFUNA UPP ÚR
HÁDEGINU
— Er það veðurstofan, já
góðan daginn, er Páll Berg-
þórsson við? Augnablik.
Halló, Páll? Komdu blessaður,
það er á Morgunblaðinu, þar
er góða veðrið í dag. Sæmi-
legt, segir Páll, hraustum
mönnum.
Hvernig lítur þetta út?
Ætli þetta gangi ekki yfir,
býzt við því. Það er SA átt
um allt land núna, verst hérna
fyrir sunnan, 7 vindstig, en
skánar sennilega á morgun
með SV átt. Hitinn var 10
stig um hádegið. SA áttin er
yfirleitt hlý og oft lítill mun-
ur á hitanum á sumrin og
vetrum. Jú ætli hann skáni
ekki. Það er næstum þv{ ó-
hætt að lofa því að veðrið hef-
ur skánað um það leyti, sem
blaðið fer í pressuna hjá ykk-
ur.
ALDREI INNI í SKÚR
í VINNUTÍMANUM
Blaðamaður og ljósmyndari
Mbl. voguðu sér út í rigning-
una í gær, reyndar í bíl, og
hittu margt veðurbarið fólk á
förnum vegi. Víðsvegar var
verið að vinna við byggingar
og gatnagerð, en mönnum
leizt greinilega illa á veður-
farið, og tóku sér ríflegan
kaffitíma, þ.e.a.s. þeir, sem
voru svo hepnir, að verkstjór-
inn stóð ekki yfir þeim með
svipuna á lofti.
Uppi á Miklubraut er vinnu-
flokkur frá bænum að mal-
bika. Við skjétumst til þeirra
út í rigninguna og spyrjum
galgopalega, hvort ekki sé
þægilegt að vinna í bleytunni.
Hressilegur ungur maður
maður tekur vel í það, en
einn eldri mannanna hnussar
og segir, að þetta sé bölvaður
óþverri, sérstaklega í tjörunni.