Morgunblaðið - 23.08.1961, Qupperneq 8
8
MORGVNBLAÐ1Ð
Miðvilíudagur 23. ágúst 1961
MYNDIR
FRA
BERLÍN
Bandaríska herliðið á leið inn í Austur-Þýzkaland hjá Helmstedt á leið til Vestur-Berlínar. í
baksýn sjást rússneskir landamæraverðir.
Lyndon Johnson, varaforseti Bandaríkjanna, og Willy Brandt,
borgarstjóri, aka um Vestur-Berlín.
Johnson varaforseti og Brandt borgarstjóri taka á móti bandaríska herliðinu við komu þess til
Vestur-Berlínar frá Helmstedt.
Austur-þýzk brynvarin bifreið á verði við landamærin í Berlín.
Austur-þýzkir hermenn og brynvarin bifreið loka landamærunum milli Austur- og V-Berlínar.
Aðalfundi Skógræktar-
félagsins lokið
AÐALFUNDI Skógræktarfélags
íslands á Hallormsstað lauk
Iaust eftir hádegi á sunnudag.
Á sunnudagsmorguninn var far-
ið í skógargöngu um þann hluta
af skóginum, sem beitir Lýsis-
hólar en þar á að leggja sér-
staka stund á viðhald og ræktun
birkiskógar. lYæddi Sigurður
Blöndal fulltrúana á fundinum
um skógræktina og skógrækt-
artilraunir á Hallormsstað.
Lauk göngunni með keppni um
það hver snjallastur væri að
segja til um hvernig grisja
skyldi greniskóg o,g var Guð-
mundur Marteinsson, form. Skóg
ræktarfélags Reykjavíkur hlut-
skarpastur í þeirri grein. Þá var
gengið frá samþykktum og
fundi slitið.
Eftir hádiegi á laugardag var
skoðuð gróðrarstöðin og Mörkin
í Hallormstað, en þar gefur að
líta margar tegundir á ýmsu
vaxtarskeiðí sem gefa hugmynd
um vaxtarmöguleika hinna
ýmsu tegunda. Skógræktarfélag
Austurlands bauð fundarmönn*
um upp á bressingu
Á laugardagskvöldið var
kvöldvaka með skemmtiatriðurn
og stjórnaði Guðmundur Karl
Pétursson, yfirlæknir, henni.
Þórarinn Þórarinsson, skóla-
stjóri á Eiðum flutti greinargott
og skemmtilegt erindi um Fljóta
dalshérað og íbúa þess. Veitt
voru tvenn verðlaun fyrir sér-
staklega góða frammistöðu I
skógiræktarmálum. Hlaut Magn-
ús M. Simson frá ísafirði önnur
en Eyþór Þórðarson, kennari j
Neskaupstað hin.