Morgunblaðið - 23.08.1961, Qupperneq 13
Miðvikudagur 23. ágúst 1961
M O R C V N ** L A Ð / Ð
13
VIS ND CSOG TÆK.NI
V)
Efni, sem lamar vðxt
krabbameins, fundið
1 SÍÐASTA hefti brezka vís-
indablaðsins NATURE er
skýrt frá rannsóknun. vísinda
manna við Kjarnfræðastofn-
un Xndlands á efnum leiddum
af thiophene-dicarboxyl-sýru.
Efni þessi trufla sykurnýt-
ingu í æxlisfrumum.
Árangur tilrauna þeirra
var: Thio-diglycol sýra
fTDGA) getur drepið sum
æxli en dregið úr vexti ann-
arra.
TDGA var reynd á krabba-
æxlum, sem græða má í heil-
brigð dýr.
Þrjátíu og sex rottur
fengu innspýtingu með upp-
lausn af lífhimnuæxli (Yos-
hida sarcoma). Þær, sem ekk-
ert var gert við, dóu allar á
4. til 9. degi frá innspýting-
unni. Hinar fengu TDCA inn
í Jifhimnuholíð. Af þeim eru
16 lifandi ennþá. Tvær dóu
úr krabbameini á 35. degi, en
hætt var að gefa lyfið á 10.
degi.
Lífhimnuæxli þetta vex
mjög hratt og því má telja
öruggt, að lyfið hafi drepið
hverja einustu krabbameins-
frumu í þeim dýrum, sem
ennþá lifa, að öðrum kosti
væru þau orðin veilk aftur.
Tilraunir með annað æxli
gáfu ekki eins góðan árang-
ur. Æxlið var látið vaxa í
tólf daga áður en byrjað var
að gefa TDGA, það var svo
gefið í tólf daga, þá var dýr-
imum slátrað.
Æxlin í þeim dýrum, sem
fengið höfðu TDGA voru þá
um helmingi minni en í hin-
um, sem ekkert höfðu fengið.
Einnig var reynt, hvort
áhrifin væru sýrueiginleikum
TDGA að þakka, en svo
reyndist ekki. Eituráhrif á
dýrin urðu engin.
Þráðsjá
borð maga og þarma, sem
talið er fremra þeim tækj-
um, sem áður hafa verið
notuð. Höfundur þess er
bandarískur læknir, dr.
Hirschowitz.
VÖNDUR AF GLERÞRÁÐUM
Eins og kunnugt er, fer
ljósið ávallt í beina stefnu,
en mönnum hefur lærzt að
fara í kringum þennan eigin-
leika með því að láta ljósið
endurkastast innan í örmjó-
um glerþræði. Ef ljós skín
inn í enda slíks þráðar kemur
það aftur út um hinn endann,
jafnvel þótt þráðurinn sé
lagður í ótal beygjur og
krákustíga
Þetta fyrirbrigði hefur ver-
ið notað til að smíða tæki, er
nefnist þráðsjá (fiberscope).
Aðalhluti þess er vöndur af
glerþráðum, um það bil
150000 að tölu, og er hver
þráður einn hundraðasti hluti
úr millimetra á þykkt.
HJARTAÐ SKOÐAÐ
AÐ INNAN?
Vonast er til að í framtíð-
inni verði mögulegt að skoða
með því ýms hol líffæri, sem
ekki hefur verið hægt að at-
huga beint áður á lifandi
mönnum, án skurðaðgerða.
Sumir vona jafnvel, að hægt
verði að skoða hjartað með
því að innan, þegar búið er
að fullkomna tækið frekar.
nytt tæki til oct
Sjötug í dag: i sfcyggnasf inn i
Vilfaelmina Ingibjöig Filipnsdóttir
VILHELMÍNA Ingibjörg Filipp-
usdóttir, húsfreyja og ljósmóðir
á Hellum á Landi er sjötíu ára
í dag. — Hún er fædd á Hellum
23. ágúst 1891, dóttir merkis-
hjónanna Ingibjargar Jónsdóttur,
ljósmóður og Filippusar Guð-
laugssonar bónda þar. —
Vilhelmína lærði ljósmóður-
fræði árið 1914 hjá Guðmundi
Björnssyni, landlæfcni, og tók
við Ijósmóðurstörfum í heima-
sveit sinni árið eftir af m,óður
Árið 1922 giftist hún Magnúsi
Jónssyni, Þingeying að ætt, og
hafa þau búið allan sinn búskap
Vilhelmína virðist hafa til að
bera skilning á kenningum dr.
Reads hins enska, þar sem aðal'
áhersla er lögð á að vekja traust
oig trú bonunnar á eðlilegri o.g
sjálfkrafa fæðingu, vitandi af
nærtækri hjálp, ef eitthvað ber
útaf, Og hún er sú eina ljósmóðir,
sem ég þebki, er lætur barnið
vera í rúmi móður sinnar nokk-
urn tíma fyrst eftir fæðingu, en
hvað er eðlilegra, ef gætt er
fyllstu varfærni.
Heimili hjónanna á Hellum hef
ur ætíð verið mannmargt; þar
var barnaskóli til mar.gra ára,
bæði börn og kennari í fæði og
húsnæði, má því nærri geta, að
oft hefur verið langur vinnudag-
ur húsmóður og mifcil umhyggja
fyrir slíku heimili, eigandi von
á kalli að nóttu sem degi vegna
1 j ósmóðurstarf sins.
Elzta dóttir mín dvaldi tvö
sumur á þessu góða heimili og
naut þar nærfærni sem dóttir
væri. — Við hjónin höfum því
bætzt í þann stóra hóp, sem er í
þafckarskuld við heimili Vilhelm
inu og Magnúsar, og því vildi
ég í dag senda afmælisbarninú,
Magnúsi manni hennar, Filippusi
syni þeirra, sem stendur traust-
an vörð um heill heimilisins, og
öðrum börnum þeirra hjóna,
hjartanlegar hamingjuóskir í til-
efni þessa merfcisdags.
Það er fagurt að líta heim að
likamann
NÝLEGA var fundið upp
tæki til að skoða innra
Magi rannsakaður að innan með þráðsjá.
IIILll.------------------------------------------------------------------------>1----------------------------------------1------------------------
J
Signal
á Hellum, eignast 4 efnileg börn, 2 dætur og 2 syni. — Þessa litlu umgjörð, sem ég hefi nú dregið um ævi aímælisbarnsins, þekkja allir vinir hjónanna á Hellum. Eg hafði skamma hríð starfað sem læknir á Suðurlandi er ég fcynntist Vilhelmínu. Hlýtt hand- •tak, snyrtimennska, festulegt og Ijúft viðmót, lýstu eiginleikum igóðrar ljósmóður, hún leizt mér þá þegar sem góð nærkona í þess orðs gömlu og góðu merkingu. — Hellum á sólþjörtum sumardegi, þar sem Skarðsfjall — í trölla- try.ggð sinni — skýlir bæjunum fyrir óvin alls gróanda, norðan- nepjunni, og jafnvel þótt dumb- ungslegt sé veður, þá lítur maður' samt hýru auga heim að Hellum, því að vissa er fyrir því, að bros á vör og hlýtt handtak bíður manns. Það líta margir hýru auga heim að Hellum í dag. Jón Gunnlaugsson.
Hin marg eftir spurðu
ítölsku ullarefni
eru komin
Dömu- og herrabúðin
Laugavegi 55
Nýtt tannkrem meö munnskol-
unarefni í hverju rauöu striki
Signal er fremra öllu öðru tannkremi
því aðeins það gerir tennur yðar skínandi hvítar
og gefur yður hressandi munnbragð
Sérhvert gott tannkrem hreJns
ar tennurnar, en hið nýja
SIGNAL gerir miklu meira!
Hvert og eitt hinna lauðu
strika S I G N A L S mniheldur
Hexa-Chlorophene. Samtímis
þvi sem hreinsunarefni SIGN-
ALS gætir og verndar tennur
yðar, blandast þetta kröftuga
• rotvarnarefni munnvatninu um
leið og það hreinsar munninn.
Burstið því tennur yðar reglu-
lega með SIGNAL og njótið
þar með bezta fáanlega tann-
kremsins, sem inniheldur hvort
tveggja í senn, ríkulegt magn
hreinsunar- og rotvarnarefna.
Látið alla fjölskyldu /ðar nota
þetta nýja undra-tannkrem,
með munnskolunarefni í hverju
rauðu striki. Byrjið að nota
S I G N A L strax 1 tíag.
Þetla ci' ástædan fyrir því, að
SIGNAL inniheldur munnskol-
unarefni í hverju rauðu strikl.
X-SIG 2/IC-64