Morgunblaðið - 23.08.1961, Page 20
Mikojan í Japán
Sjá bls. 6
188. tbl. — Miðvikudagur 23. ágúst 1961
ÍÞRÓTTIR
eru á bls. 18.
í slagveðrinu I gær fór svona fyrir „stillads" við húsið nr. 26
við Stóragerði. Verið var að ganga frá húsinu að utan. Staf-
aði hætta af „stillads“ þessum, ef hann leggðist alveg saman
og var lögreglan kvödd til að afstýra vandræðum.
(Ljósm. Mbl.: K. M.)
Ráðizt á konu á
Bíeflavíkurvelii
Á ÁTTUNDA timanum á föstu-
dagskvöldið bar svo við, að drukk
inn sjóliði kom inn i sælgætis-
búð, sem eldri kona rekur í svo-
nefndu Seaweedhverfi á Keflavík
Kafft
hækkar
Verðlagsnefnd hefur ákveð
ið hækkun á brenndu og möl-
uðu kaffi frá innlendum kaffi
brennslum. Hefur hámarks-
verð verið ákveðið kr. 43.55
pr. kg, en hámarksverð í smá
sölu með söluskatti verður kr.
51.60 pr. kg., en var áður kr.
46.40.
urflugvelli, og baðst afgreiðslu.
Var maður nokkur fyrir í búð-
inni, en fór í þann mund er verið
var að afgreiða sjóliðann.
Er maðurinn var farinn fór
konan inn í lítið herbergi á bak
við búðarborðið, og segir hún
að sjóliðinn, sem var ungur að
árum, hafi elt sig þangað. Segir
hún að hann h'afi ráðizt á sig,
og slegið til sín nokkrum sinn-
um. Nokkru síðar komu að menn,
og forðaði sjóliðinn sér þá í
skyndi. Var þegar hringt á lög-
regluna og náði hún sjóliðanum
skömmu síðar. Við yfirheyrslu
hefur sjóliðinn borið að hann
rnuni ekki hvað gerst hafi, enda
hafi hann verið mjög drukkinn.
Konan mun hafa hlotið glóðar-
auga og skrámur í andliti.
ilÉRAÐSIMÓT
Sjálfstæðismanna
á Ólafsfirði
IÉRAÐSMÓT Sjálfstæðismanna verður á Ólafsfirði,
unnudaginn 27. ágúst, klukkan 20.30.
Á móti þessu munu þeir
Bjarni Benediktsson, dóms-
málaráðherra, og Bjartmar
Guðmundsson, alþingismað-
ur, flytja ræður.
Flutt verður óperan Rita
eftir Donizetti. Með hlutverk
fara óperusöngvararnir Þur-
tður Pálsdóttir, Guðmundur
Bjarni Guðjónsson, Guðmundur Jóns Bíartmar
son og Borgar Garðarsson,
eikari. — Við hljóðfærið F. Weisshappel, píanóleikari. —
lansleikur verður um kvöldið.
Ekki er öll nótt úti enn:
13 þúsund mál
á Kolkugrunni
39 skip fengu þar frd 180 til 1200 mdl í gær
í GÆRDAG var góð síldveiði á
svonefndu Kolkugrunni í Húna-
flóa og fengu þar 39 skip samtals
13 þúsund mál. Var afli skipanna
frá 180 og upp í 1200 mál. í
gærkvöldi tók að bræla á þess-
um miðum, og var eklki búizt við
veiði í nótt, enda hefur veiðin und
anfarna sólarhringa hafizt um
hádegi og lokið um miðnætti.
Skipin, sem þarna fengu afla
héldu til Siglufjarðar, Skaga-
strandar og Eyjafjarðarhafna. —
I gærdag fengu nokkur skip sæmi
legan afla um 60 mílur út af
Austfjörðum, en í gærkvöldi var
farið að bræla fyrir austan.
Hér fara á eftir frásagnir frétta
ritara:
Siglufirði: — Vitað er að mörg
skip hafa fengið dágóðan afla á
Kolkugrunni, 19 mílur nörður af
Skaga. Síðan kl. 11 í morgun hafa
39 skip fengið þar afla. Hringsjá
var aflahæst með 1200 mál.
Megnið af þessari síld fer trúlega
til Skagastrandar. Síldin er mis-
jöfn. Hingað komu í dag Draupn
ir með 400 mál og Einar Hálfdáns
með 300 mál. — Guðjón.
Neskaupstað: — í dag komu
hér tvö skip með síld í bræðslu,
Ljósafell með 650 mál og Gjafar
VE með 300 mál. Þessi síld veidd-
ist 80—90 mílur út af Austfjörð-
um. í dag fengu nokkur skip einn
ig sæmilegan afla um 60 mílur
AÐFARANÓTT sl. mánudags
var ráðist á ungan mann við
höfnina i Reykjavík, og hann bar
inn í óvit og síðan rændur ölföng-
um og peningum. Liggur maður
inn nú í sjúkrahúsi með áverka.
Einn maður hefur verið tekinn til
yfirheyrslu, og leikur grunur á
að þar sé árásarmaðurinn fund-
inn, en rannsókn málsins var ekki
lokið í gær.
Nánari tildrög vóru þau, að
maður sá, er fyrir árásinni varð,
var við skál í miðbænum um
þrjúleytið um nóttina. Gaf hann
sig á tal við nokkra menn á götu,
og atvikaðist síðan svo, að hann
fór með einum mannanna, sem
hann þekkti ekki niður að höfn.
Hafði maðurinn meðferðis eina
flösku af áfengi og nokkrar flösk-
ur af bjór.
• Barinn i óvit
Maðurinn telur þennan ókunna
mann hafa ráðizt á sig á Faxa-
garði, og slegið sig hvað eftir
annað þar til hann féll í öngvit.
Þegar hann kom til meðvitundar
á ný, gat hann komizt um borð í
Vatnajökul og fengið aðstoð hjá
vaktmanninum þar. Var þá vín-
ið horfið og bjórinn, og sömuleið
is 100 krónur, sem verið höfðu
í vösum hans.
Maðurinn hélt heim til sín um
nóttina, en í fyrradag var hann
fluttur í sjúkrahús og liggur hann
þar enn.
Á mánudagskvöldið var hand-
undan landi, Og eru einhver
þeirra á leið til lands með afla.
Bræla er nú að koma á miðin.
Hér varð bræðslustopp í dag
vegna þess að lýsisgeymar eru
fullir orðnir. Væntanlega kem-
FRIÐRIK Ólafsson bar sigur úr
býtum á svæðamótinu í Mari-
anske Lazne, hlaut 12V2 vinn-
ing af 15 mögulegum eða yfir
83%. Næstir honum voru dr.
Filip frá Tékkóslóvakíu og
Uhlmann frá Austur-Þýzkalandi.
Lokaúrslit urðu annars þessi:
1. Friðrik Ól.,Islandi 12%v
2. dr. Filip, Tékkóslóv. 12
3. Uhlmann, A-Þýzkal. 10% -
4. Johannessen, Nor. 9% -
5. Ghitescu, Rúmeníu 9 »
6.—7. Ciric, Jjúgóslavíu 8% -
6.—7. Bobotzov, Búlgaríu 8% -
8.—9. Sliwa, Póllandi 7
8.—9. Szabo, Ungverjal. 7
10-11 Barendregt, Hollandi 6
10-11 Gragger, Austurríki 6 »
12. Milic, Júgóslavíu 5% -
13-14 Blom, Danmörku 5
13-14 Perez, Spáni 5
tekinn hér í bænum maður, sem
samkvæmt lýsingu lék grunur á
að væri árásarmaðurinn. Er mað-
ur þessi í geymslu, og hafa yfir-
heyrslur staðið yfir. Viður-
kenndi hann að hafa gengið með
þeim, sem fyrir árásinni varð,
en neitar að hafa slegið hann.
Allt bendir þó til að hér sé um
árásarmanninn að ræða, en mál-
ið er enn í rannsókn.
veiddust
ur það þó ekki að sök þar sem
nægilegt þróarrými er fyrir
hendi. Lýsisskip er væntanlegt í
vikunni. — Svavar.
Skagaströnd: — f nótt komu
hingað Bjarmi með 492 mál, Páll
Pálsson með 462 mál, Rán 310 og
Bergvík með 310 mál.
Allgóð veiði hefur verið í dag
í Húnaflóa og von er á eftirtöld-
um skipum hingað í kvöld: Hring
sjá með 1200 mál, Heiðrún 900,
Bjarmi 400, Jón Finnsson 700,
Skarðsvík 270, Ársæll Sigurðsson
500 og Baldvin Þorvaldsson 250,
— Þórður.
15. Nier'jela Finnlandi 4% •
16. Ljungquist, Svíþjóð 3 Vz «
Úrslit í síðustu umferðinni
urðu sem hér segir. Filip vann
Niemela, Sliwa vann Uhlmann,
Gragger vann Ljungquist og
Friðrik Ólafsson
Biom vann Perez. Jafntefli varð
hjá Friðrik og Ciric, Johannes-
sen og Ghitescu, Szabo g Bar«
endregt og Bobotzov og Milic.
Þrír efstu menn komast áfram
á millisvæðamótið, sem hefst i
Amsterdam 27. janúar nk. Kepp
endur verða þar 22. Sex efstui
menn á því móti keppa síðan á
svonefndu kandidatamóti ásamt
þeim Tal og Keres. Þar verður
loks gert út um það, hvaða skák-
manni gefst kostur á að heyja
einvígi við Botvinnik um heims-
meistaratitilinn.
Friðrik Ól&fsson segir i
skeyti til Morgunblaðsins að
Framh. á bls. 19
11ERAÐSMOT
Sfálfstæðismanna
á Kirk|ubæ|arklaustri
SJÁLFSTÆÐISMENN efna til héraðsmóts á Kirkjubæjar.
klaustri, laugardaginn 26. ágúst, klukkan 21.
Á móti þessu munu þeir
Ingólfur Jónsson, landbúnað-
arráðherra, og Sigurður Ó.
Ólafsson, alþm., flytja ræður.
Flutt verður óperan La
Serva Padrona eftir Pergo-
lesi. — Með hlutverk fara
óperusöngvararnir Sigurveig
Hjaltested. Kristinn Halls-
son og Þorgils Axelsson,
leikari. — Við hljóðfærið
Ásgeir Beinteinsson, píanóleikari. — Um kvöldið verður
dansleikur. —
Maður sleginn í
óvit og rændur
Friðrik Ólafsson
sigraði á svæðamótinu