Morgunblaðið - 25.08.1961, Side 1

Morgunblaðið - 25.08.1961, Side 1
24 slður 48. árgangur 190. tbl. — Föstudagur 25. ágúst 1961 Prentsmiðja MrrguítblaðsiM Ný orbsending sovézku stjórnarinnar til Vesturveldanna: Samgöngum Vesturveldanna við Berlín dgnað Astandið enn ískyggilegra en áður Moskvu, 24. ágú§t. (NTB/Reuter) í ORÐSENDINGU, sem sovétstjórnin hefur sent Vestur- veldunum þrem, ber hún fram mótmæli yfir því að flug- leiðirnar milli Vestur-Þýzkalands og Berlínar hafi verið misnotaðar í þágu vestur-þýzkra hernaðarsinna. Er orð- sendingin litin mjög alvarlegum augum af vestrænum að- ilum, sem sumir hverjir telja að í henni felist vísbending um, að sovézka stjórnin hafi nú á prjónunum ráðagerðir um að skerða samgöngur vestrænna ríkja við Berlín. Þessi síðasta orðsending Sovét- veldisins var aíhent sendiherr- um Frakklands, Bretlands og Bandaríkjanna i Moskvu á mið- vikudag. Efni orðsendingarinnar í henni er þess krafizt, að Vest- urveldin geri þegar ráðstafanir til að binda enda á ólögmætar og ögrandi aðgerðir vestur-þýzku stjórnarinnar í Vestur-Berlín. Samningsákvæðin frá 1945 um bráðabirgðaflugsamgöng- ur Vesturveldanna við Berlín hafi verið margbrotin. Þar hafi einungis verið gert ráð fyrir birgðaflutningum til að sinna nauðþurftum vestrænna Iiðsveita í borginni — en ekki til þjónkunar við niðurrifstarf semi og hefndarþorsta vestur- þýzkra hernaðarsinna. Nú sé svo langt gengið í þessum efn um, að friðnum stafi hætta af. Opinberir fulltrúar vestur- þýzku stjórnarinnar og þingsins ikomi til Vestur-Berlínar eftir þessum flugleiðum og haldi síð- an uppi æsingum og hverskyns fjandsamlegu atferli gegn þýzka aTþýðulýðveldinu og sovézkum aðilum. Segist sovétstjórnin krefj ast þess, að Vesturveldin sjái um að lát verði á slíku. Fiskveiðitakmörkin 12 mílur við Noreg Ósló, 24. ágúst. (NTB) HIN N 1. sept. verða fiskveiðitakmörkin við Noreg færð út í 12 sjó- mílur. — Um leið verða þrjú varðskip til viðbót- ar tekin í notkun. Tvö af skipum þeim sem nú taka upp gæzlustörf, eru hvalveiðibátar, en 3 slíkir eru þegar við varð- gæzlu. Verða nýju skipin einkum notuð við gæzluna úti fyrir strönd Norður- Noregs. —■ Flugvélar eru einnig notaðar við gæzlu- störf, þ. á. m. nýir flugbát- ar af Alatross-gerð. I.itin alvarlegum augum f höfuðborgum vestrænna ríkja líta stjórnmálamenn yfirleitt mjög alvarlegum augum á orð- sendingu sovétstjórnarinnar. Kom sú skoðun einnig fram af opinberri hálfu í Lundúnum, þar sem talsmaður utanríkisráðu- neytisins sagði, að ef túlka bæri orðsendinguna sem ógnun við flugsamgöngur Vesturveldanna við Berlín, væri þar mikil alvara á ferðum. f Washington telja ýmsir, að orðsendingin kunni að vera fyrirboði þess, oð sovétstjórn- in hafi nú í hyggju að ganga á rétt Vesturveldanna til að halda áfram ótruflað flugferð- um til og frá Berlín. Með slíku rnuni Berlínar-málið komast á enn nýtt stig. Þar sem sovétstjórnin hafi gengið svo langt að mótmæla rétti Vesturveldanna til að leyfa ferðir þessara manna um flug- leiðirnar, verði Vesturveldin skýrt og afdráttarlaust að vísa staðhæfingum hennar á bug. Afstaðan endurskoðuð Fréttar. AFP-fréttastofunnar, Jean Lagarange, segir, að stjórn- málamenn í Washington búist við Framhald á bls. 23. Japanska stjórnin krefst Jbess að Sovétskip hætti ab taka japanska báta Tokyo, 24. ágúst (Reuter) JAPANSKA stjórnin mun krefj- ast þess, að sovésk eftirlitsskip hætti tökum japanskra fiskibáta að því er tilkynnt var hér í dag af hálfu stjórnarráðsins. • Eiga afkomu sína undir . . . Var það Masayoshi Ohira, ráðu neytisstjóri, sem skýrði frá þessu. Sagði hann jafnframt, að rann- sókn mundi fara fram á töku fiski skipanna tólf, sem 3 sovézk eftir litsskip tóku á dögunum. Hann kvað vandkvæðum bundið, að Samgöngutruflanir verða taldar; Árásaraðgerðir, sem Sovétveldið ber ábyrgð á — segir í tilkynningu frá Hvíta húsinu Washington, 24. ágúst (NTB-Reuter) BANDARÍKIN lýstu yfir því í kvöld, að litið yrði á það sem árás, sem sovézka stjórnin bæri alla ábyrgð á, ef sovézk eða austur-þýzk yfirvöld hindr uðu frjálsar samgögur vest- rænu ríkjanna við Vestur- Berlín. FALSKAR FORSENDUR í yfirlýsingunni, sem gefin var út í Hvíta húsinu, eftir að Kennedy forseti hafði kynnt sér síðustu orðsendingu Sovét stjórnarinnar, er tekið fram, að um sé að ræða hátíðlega alvarlega aðvörun til sovézku stjórnarinnar. Lögð er áherzla á það í yfirlýsingunni, að for- sendurnar fyrir ásökunum þeim, er orðsendingin felur í sér, varðandi notkun flugleið- anna — séu falskar og það viti sovétstjórnin mætavel. NÝTT ÁRÓÐURSSKREF Augljóst sé, að orðsending sovétstjórnarinnar sé aðeins nýtt skref í þeirri baráttu, sem hún heyi nú til þess að villa mönnum sýn og vekja hjá þeim ótta, í von um að geta þannig dregið athygli fólks frá óförum Sovétveldisins og magnað úlfúðina í heiminum. banna sjómönnum að stunda veið ar, á miðunum, þar sem árekstr arnir hafa orðið, því að lífsaf- koma þeirra væri gjörsamlega háð þeim veiðum. • Vopnaðir um borð Áhafnir þeirra fiskibáta, sem undan komust, þegar ofangreind- ir atburðir áttu sér stað, sögðu frá því í dag, að sovézku eftir- litsskipin hefðu skotið áð þeim blysum og sprautað á þá vatni úr slöngum. Nokkrir vopnaðir menn fóru síðan um borð í fiskiskipin og tóku yfirstjórn þeirra. Héldu þeir þannig áfram koll af kolli. • Hafa tekið 901 fiskiskip Upplýst hefur verið hjá slysa- varnaþjónustunni að frá lokum síðari heimsstyrjaldar og fram í maí-mánuð sl. hafi Rússar tekið 901 fiskibát með alls 7.798 manna ÍBERLÍN og LUNDÚNUM, 24. ágúst (NTB/Reuter) «. BRET AR hafa ákveðið að auka her-l styrk sinn í Vestur-Þýzkalandi og verður stórskotalið búið eldflaugavopnum flutt þangað í seinni hluta september. Eru liðsflutningar þessir á vegum Atlantshafsbandalagsins. Mjög ófriðlega þykir nú horfa á svæðamörkunum í Berlín og kom til minniháttar ýfinga þar í dag — en alvar- legri árekstrar urðu ekki. Myndin hér að ofan sýnir brezkan skriðdreka af Ccn- turion gerð skammt frá aust- xur-þýzku mörkunum, — við mikilvæga samgönguæð. áhöfn. Af hinum handteknu mönnum hefur 7.703 verið skilað aftur til Japan. Biskup ar a fundi PARÍS, 24. ágúst. (NTB). — Norræni biskupafundurinn var settur í Lærkkulla-lýðháskólan- um í Karis 1 dag. Setningarræð- una flutti finnski erkibiskupinn, llmari Salomies. Fundinn sitja 29 biskupar frá Danmörku, Finn landi, Noregi, íslandi og Sví- þjóð. — Búizt er við að hjá SÞ verði Bizerta-máliö af~ greitt í kvöld NEW YORK, 24. ágúst (NTB — Reuter) — Fulltrúar Araba- og annarra Afríku-ríkja héldu uppi hörðum ásökunum í garð Frakka á fundi Allsherjarþings Samein- uðu þjóðanna í dag, en þar var þá haldið áfram umræðum um Biz erta- málið. Tillagan á dagskrá Fleiri þjóðir lýstu einnig yfir bví. að bau mundu styðja tillögu Afríku- og Asíu-þjóðanna, sem felur í sér kröfu um að deiluað ilar hefji þegar viðræður sín í milli um lausn deilunnar og að Frakkar verði á brott með her lið sitt frá Túnis. Er einnig við urkennd í tillögunni lögsaga Tún is yfir flotastöðinni í Bizerta. Enn eru margar þjóðir á mæl endaskrá, en þó er búizt við, að umræðunum ljúki á morgun og atkvæðagreiðsla fari fram á föstudagskvöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.