Morgunblaðið - 25.08.1961, Qupperneq 5
Föstudagur 25. ágúst 1961
MORGUNBLAÐIÐ
5
Hér á landi er staddur um
þessar mundir Alt^brt Ólafs-
son, skólastjó'ri í Oppdal í
Noregi, en hann hefur verið
búsettur ytra s.I. 40 ár. Al-
hert er hér á vegum norska
kennslumállaráðuneytisins til
að kynna sér skólakerfið hér
aðallega unglingaskóla, ríkis-
útgáfu námsbóka og skyldu-
nám í sundi. Mun hann gera
yfirlit yfir íslenzka skólakerf-
ið fram til gagnfræðaprófs
fyrir ráðuneytið.
Fréttamaður blaðsins hitti
Albert Ólafsson að máli fyrir
skömmu.
Eg ferðaðist talsvert um
lanaið til að kynna mér skól-
ana í dreifbýlinu, sagði Al-
bert. Ég fór ríbrður í land og
um Reykjanes og Snæfellsnes
og einhvern næstu daga mun
ég svo halda austur á land. ,
Mér þykir mjög vænt um að
hafa fengið tækifæri til að
sjá Reykjarvíkurkynninguna.
Það eru 11 ár síðan ég kom
síðast til íslands og aUgsýni-
legt hve hér hafa orðið mikl-
ar framfarir, ekki sízt hvað
snertir skólabyggingar, upp-
eldis- og fræðslumál. Fyrir
11 árum man ég ekki eftir
nema fjórum barnaskólum í
Reykjavik, en nú eru þeir 10
eða 11.
Ég hef fengið tækifæri til
að skoða Hlíðaskóla oig Voga-
skóla Og ég er viss um að þeir
verða hafðir til fyrirmyndar
í framtíðinni. Því að þeir sam
eina kösti lítilla skóla í stærri
heild .T.d. má nefna, að í
Vogaskólanum, gengur hver
bekkur beint inn í sina
kennslustofu. í Hlíðaskólanum
eru fötin geymd inní í kennslu
stofunum, en ekki á göngun-
um og veitir það heimilisleg-
an blæ.
— Hvað vakti mesta at-
hygli yðar á Reykjarvíkur-
kynningunni ?
— Þrjár stofur, þar sem
fræðslumálaskrifstofan sýnir
ýmislegt í sambandi við
fræðslu og uppeldismál, vöktu
athygli mína. Svo er það hita-
veitan, þegar maður er hálf-
gerður útlendingur, vekur
hún mikla athygli. En mér
finnst kynningin í heild mjög
myndarleg og glæsileg.
Sýningarsvæðið tel ég vera
mjög vel valið, því það er í
smíðum eins og borgin sjálf.
Á ég við Háskólabíóið, Bún-
aðarféiagshúsið og gatnagerð-
ina. ‘Þegar maður virðir fyrir
sér hinar miklu framfarir,
sem orðið hafa hér, verður
maður að hafa hugfast hve
fáir hafa unnið að þessu og
á hve stuttum tíma.
Mér finnst einna sérkenni-
legast við Reykjavíik hvað
borgin er hrein, en þar hjálp-
ast eðlilega heita vatnið og
hið tæra sjáarloft að. íbúðir
hér eru mjög fallegar eins
og vera ber í köldu landi, en
þær eru mjög dýrar. Þegar
gengið er inn í fallega stofu
með teppum út í horn, kem-
ur sú spurning ósjálfrátt upp
í hugann, hvort börnin fái að
leika sér á fallega teppinu.
En bærirín hlynnir að fjöl-
skyldunum og gleymir ekki
ungviðinu, má t.d. u.m það
nefna laugarnar, lesstofurnar
barnaheimilin, leikvellina,
skólana og margt flei-ra.
Það er óskandi að börnin
og ungmennin fái nægilegan
þroska til að meta gæðin,
sem þau búa við.
— Hvað viljið þér segja
um skólakerfið hér á landi ?
— Eftir því, sem ég hef
kynnst er það gott svo langt
sem það nær. Þjóðfélagið tek
ur miklum breytingum og
skólakerfinu þarf að breyta
í samræmi við þær. Mikil á-
herzla er lögð á að ungling-
arnir verði nýtir þjóðfélags-
þegnar, en mér finnst hér
skortur á alhliða verklegri
fræðslu fyrir þá, sem ekki
leggja fyrir sig langskólanám.
Þetta hefur verið svipað í
Noregi, en nú er verið að ráða
bót á því. Kómiðhefur verið
á fót nokkrum unglingaskól-
um af nýrri gerð fyrir ungl-
inga á aldrinum 13-16 ára,
eru það reynsluskólar, sem
nefnast Linjedelteungdoms-
skoler og munum við reyna
þá í nokkur ár í bæjum og
sveitum. Námsskrá hefur þeg
ar verið gerð fyrir þessa
skóla og munu þeir skiptast
í tvær deildir. Önnur verður
fyrir unglinga, sem búa sig
undir menntaskólanám, en
hitt er alhliða verkleg deild,
sem skiptist í iðnaðardeild,
heimilisf ræðsludeild, s j ávar-
útvegsdeild, landbúnaðardeild
og verzlunardeild. Geta nem-
endur þá fengið undirbúning
undir að starfa við þá at-
vinnuvegi, sem stundaðir eru
í byggðarlagi þeirra. Á þenn
an hátt verður reynt að sporna
við því, að unglingarnir flykk
ist til borganna. Gert er ráð
fyrir að þetta kerfi verði lög-
skipað 1965.
Við rannsóiknir á hæfni
nemenda í Noregi hefur kom-
ið í ljós að um 40% eru hæfir
til að leggja fyrir sig mennta-
skólanám og svipaðar hlutfalls
tölur eru einnig í Svíþjóð. Það
verður einnig að taka tillit til
hinna 60 prósentanna Og fyr
ir þau eru almennu verklegu
deildirnar. Er reynt að veita
öllum að læra það, sem hæfir
þeim bezt.
Skyldunámstíim.anum mun
verða skipt í tvennt, fyrst
verður barnaskólinn frá 6-13
ára aldurs og síðan skólar
fyrir unglinga á aldrinum 13-
16 ára.
— Að lökum vildi ég taka
fram hve mikið mér finnst
til um hinar miklu framfarir
sem orðið hafa hér á landi og
hve hin fámenna þjóð hefur
getað áorkað miklu. f sam-
anburði við aðrar borgir á
Norðurlöndum, er Reykjavík
byggð af mjög fáum og á sér-
lega skömmum tíma. Þegar
ég fór fyrst utan fyrir 40 ár-
um voru allar götur gerðar
með haka og skólfu. Já, breyt
ingarnar eru gifurlegar, en
eitt er það þó, sem ekki hefur
breytzt hér á íslandi, það er
gestrisnin í bæjum og sveit-
um, hún er en sú sama.
Ég vildi mega færa fræðslu
skrifstofu Reykjavíkur og
fræðslumálastjóra mínar
beztu þakkir fyrir góða fyrir
greiðslu.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Garðari Svav-
arssyni, ungfrú Guðbjörg Helga-
dóttir, Hafnarfirði og Sverrir
Ingólfsson, Hafnarfirði. Heimili
iþeirra er að Köldukinn 30, Hafn-
arfirði.
1 Á laugardaginn verður Adam
Hoffritz, Selfossi 60 ára. Hann
dvelur um þessar mundir hjá
bróður sinum í Danmörku, en
(heimilsfang hans er: Finn Hoff-
ritz, Pord Motorkompani Asses.
I’yn, Danmark.
ríoftleiðir h.f.: 25. ágúst er Þorfinn
ur karlsefni væntanlegur frá NY kl.
06:30. Fer til Luxemborgar kl. 08:00
Kemur til baka frá Luxemborg kl.
24:00. Heldur áfrarh til NY kl. 01:30.
Leifur Eiríksson er væntanlegur frá
NY kl. 09:00 Fer til Osló, Khafnar og
Hamborgar kl. 10:30. Eiríkur rauði
kemur frá NY kl. 12 á hádegi. Fer til
Luxemborgar kl. 13:30. Kemur til
baka frá Luxemborg kl. 04:00. Fer til
NY kl. 05:30. Snorri Sturluson er vænt
anlegur frá Stafangri og Osló kl. 23:00
Fer til NY kl. 00:30.
Flugfélag íslands h.f.: Millilandaflug:
Hrímfaxi fer til Glasgow og Khafnar
kl. 08:00 í dag. Væntanleg aftur til
Rvíkur kl. 22:30 í kvöld Fer til sömu
staða kl. 08:00 í fyrramálið Skýfaxi fer
til London kl. 10:00 í dag. Kemur
aftur til Rvikur kl. 00:30 í kvöld. Fer
til Osló, Khafnar og Hamborgar kl.
10:00 í fyrramálið.
Innanlandsflug: I dag áætlað að fljúga
til Akureyrar (3 ferðir), Egilsstaða,
Fagurhólsmýrar, Hornafjarðar, Isa-
fjarðar, Kirkjubæjarkl. og Vestm.eyja
(2 ferðir). A morgun til Akureyrar (2
ferðir), Egilsstaða, Húsavíkur, Isa-
fjarðar, Sauðárkróks, Skógasands og
Vestm.eyja (2 ferðir).
Eimskipafélag íslands h.f.: Brúarfoss
er í Rotterdam. Dettifoss fór frá Akur
eyri í gærkvöldi til Hríseyjar. Fjall-
foss er 1 Rvík. Goðafoss er í Keflavík.
Gullfoss er í Khöfn. Lagarfoss er í
Antverpen, Reykjafoss er í Hamborg
Selfoss er í NY Tröllafoss er 1 Rvík
Tungufoss er í Rvík.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla fer kl.
18 á morgun frá Rvík til Norðurlanda.
Esja er væntanleg til Reykjavíkur i
dag að austan úr hringferð. Herjólfur
fer frá Hornafirði í dag til Vestmanna
eyja. Þyrill er á leið frá Ausfjörðum
til Rvíkur. Skialdbreið er í Rvík. —
Herðubreið er væntanleg til Rvíkur
á morgun að vestan úr hringferð.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er í Archangel Askja er væntan
leg til Leningrad á hádegi 1 dag
Skipadeild SÍS: Hvassafell er væntan
legt til Rvíkur í dag. Arnafell er í
Archangelsk. Jökulfell er væntanlegt
til Hornafjarðar í dag. Dísarfell fór í
gær frá Rvík til Akureyrar. Litlafell
er í olíuflutningum í Faxaflóa. Helga
fell er á Seyðisfirði. Hamrafell er á
leið til Batumi.
Hafskip h.f.: Laxá lestar á Vest
fjarðahöfnum.
„Þar sem háir hólar
hálfan dalinn fylla‘%
lék í Ijósi sólar,
lærði hörpu að stilla
hann sem kveða kunni
kvæðin ljúfu, þýðu,
skáld í muna og munni,
mögur sveita-blíðu.
Rétt við háa hóla,
hraunastalli undir,
þar sem fögur fjóla
fegrar sléttar grundir,
blasir bær í hvammi
bjargaskriðum háður;
þar til fjalla frammi
fæddist Jónas áður.
Brosir laut og leiti,
ljómar fjall og hjalli.
Lækur vætu veitir,
vökvast bakka halli.
Geislar sumarsólar
silungsána gylla,
þar sem háir hólar
hálfan dalinn fylla.
(Hannes Hafstein: Hraun í Öxnadal)
Kvenúr tapaðist
á þriðjudag í Austurbæn-
um. Uppi. í síma 23599.
Keflavík
Herbergi til leigu. Uppl. í
síma 2262.
Stúlka óskast
í bakaríið Austurver,
Skaftahlíð 24.
Þægileg 2ja herb. íbúð
óskast á hitaveitusvæði í
Austurbænum. Reglusemi,
engin börn. Tilboð sendist
Mbl. fyrir þriðjudag, —
merkt: „Fyrirfram 5412“.
A T H U G I Ð
að borið saman 5 útbreiðslu
er langtum ódýrara a9 auglýsa
í Morgunblaðiu u, en öðrum
blöðuríu —
íbúð
íbúð óskast í Mið- eða
Vesturbænum fyrir ein-
hleypa stúlkr Uppl. í síma
23006 eftir kl. 6 á kvöldin.
2ja til 3ja herbergja íbúð
óskast. Þrennt fullorðið í
heimili. Uppl. í síma 15367.
Notaður barnavagn
í góðu ásigkomulagi til
sölu strax. Hringið í síma
15506 frá kl. 3—0.
2 til 4 múrarar óskast
nú þegar til að múrhúða
einbýlisihús í Kópavogi, úti
og inni. Uppl. í síma 24759
milli kl. 12—1 og ef tir kl. 8.
Til leigu
tvö herbergi og bað í Eski-
hlíð. Leigist regltÆÖmum
stúlkum. — Sími 16453.
Stúlka
óskast til afgreiðslustarfa í bókabúð. — Eiginhandar-
umsókn með upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf, Ieggist inn á afgr. Mbl. merkt .•
„Bókabúð — 5411“.
5TÚLKA
ekki yngri en 18 ája, óskast til afgreiðslustarfa. —
Upplýsingar í dag kl. 2—4 e.h. og mánudag kl. 2—4
í verzlun Oculus h.f., Austurstræti 7.
Illiil
\u” Ltr > kAjkku^
^ SÍycLluöÝuf
SiguiTþóf Jór\ssor\ ðc co
11«Pruxir&lv'tuli h.
ÍBLÐ
til sölu á Sauðárkróki. Til sölu er nú þegar, 3ja herb.
íbúð í steinhúsi við Kirkjutorg á Sauðárkróki. —
Allar upplýsingar gefur
ÁBNI ÞORBJÖBNSSON lögfræðingur
Sími 60 — Sauðárkróki.