Morgunblaðið - 25.08.1961, Blaðsíða 23
Föstudagur 25. agúst 1961
MORGUNBLAÐIÐ
23
Skrifstofum kommúnista
í Vestur-Beriín lokað
BERLÍN, 24. ágúst (NTB —
Reuter) — Borgarstjórnin í
Vestur-Berlín lét í dag loka
öllum skrifstofum kommún-
istaflokksins í sínum hluta
borgarinnar og gaf starfs-
mönnum þeirra fyrirmæli um
að verða á brott úr Vestur-
Berlín. Skal svo vera, þar til
samgöngur verða frjálsar á
ný-
Þessar aðgerðir fela ekki í sér,
að kommúnistaflokkurinn sé
Ibannaður. >ær eru gagnráðstaf
amr vegna lokunar kommúnista
á skrifstofum sósíaldemókrata-
flokksins í Austur -Berlín fyrir
nokkrum dögum.
Fundur kommúnista
Opinberir aðilar hafa ákýrt frá
þvi, að frekari ráðstafanir vegna
aðgerða austur-þýzku stjórnarinn
ar séu í athugun.
í Vestur-Berlín er hermt, að all
ir kommúnistar í Vestur-Berlín
hafi fengið fyrirmæli um að
Ikoma til fundar á austursvæðinu
ó föstudag.
Bússur mesta
nýlenduveldið
— segír Menzies
CANBERRA, 24. ágúst (Reut-
er) — Robert Menzies, forsæt
isráðherra Ástraliu, sagði í
dag, að Sovétríkin væru mesta
nýlenduveldi í heiminum og
Ihnepptu þau menningarþjóðir
í þrælkun. — í ræðu, sem
Menzies hélt við stuttar um-
ræður um Berlínar-málið á
þingi, deildi hann fast á komm
únista fyrir þann „fádæma
skrípaleik þeirra, að þykjast
vera fylgjendur frelsis og
sjálfsákvörðunarréttar".
Eftirlit við svæðamörk
Lögregla^. í Vestur-Berlín hef
ur tekið upp eftirlit við allar sam
gönguæðar milli borgarhlutanna,
til þess að koma í veg fyrir ferðir
óæskilegra manna vestur yfir. —
Willy Brandt, borgarstjóri, sagði
á fimmtudag, að borgarstjórnin
kærði sig ekki um að nokkur full
trúi kommúnista kæmi yfir til
Vestur-Berlínar, meðan jafnvel
mæðrum á vestui.«,væðinu væri
meinað að heimsækja börn sín
fyrir austan svæðamörkin.
Námsstyrkur úr
Minningarsjóði
Olavs Brunborgs
Ú R Stud. oecon. Olav Rrun-
borg Minnefond verða árið 1962
veittar 3000 norskar krónur í
styrk til íslenzkra stúdenta og
kandídata, sem óska að stunda
nám við háskóla eða aðrar æðri
menntastofnanir í Noregi. Skrif-
stofa Háskóla Islands tekur við
umsóknum til 15. sept. 1961.
Æskilegt er, að umsækjendur
geri sem fyllsta grein fyrir
námi sínu og högum og styðji
umsóknir sínar með vottorðum
kennara.
Reykjavíkur-
kynningin
Föstudagur 25. ágúst
Kl.
14.00 Sýningarsvæðið opnað.
20.00 Lúðrasveit leikur.
21.00 Tízkusýning í Hagaskóla í
umsjá Tízkuskólans.
Stjórnandi: Sigríður Gunn-
arsdóttir.
22.00 Kórsöngur í Melaskóla.
Karlakórinn Fóstbræður.
Stjórnandi: Ragnar Björns
I son.
16 konur og menn heiðurs-
félagar Reykvíkingafélagsins
1 gær tilkynnti stjórn Reyk-
víkingafélagsins kjör 14 heið-
ursfélaga í tilefni af afmæli
bæjarins. Þetta eru elztu með
limir félagsins, stofnendur og
svo þeir, sem lagt hafa af
mörkum frábært starf í þá.gu
félagsins.
Þetta var tilkynnt á fundi í
félaginu í gær í Breiðfirðinga-
/ búð og gerði það Sveinn Þórð-
J arson, varaformaður félags-
\ ins. Formaður frá upphafi hef
i ur verið séra Bjarni Jónsson,
en það var stofnað hernáms-
daginnr 10. maí 1940.
Heiðursfélagarnir eru allir
yfir áttrætt, sá elsti þeirra er
Ágúst Jósefsson, fyrrv. heil-
brigðisfulltrúi, 87 ára gam-
all, fæddur þjóðhátíðarárið.
Heiðursfélagarnir eru þessir:
séra Bjarni Jónsson, Björg
son, Þórður Magnússon,
Guðný Jónsdóttir, Ragnheið-
ur Zimsen, Ágúst Jósefsson,
Jónína Guðnadóttir, Guðjón
Jónsdóttir og Guðrún J.
Brynjólfsson.
Heiðursfélagarnir gátu því
miður ekki allir verið viðstadd
ir, en hér á myndinni eru
þeir, sem sóttu fundinn, ásamt
stjórn félagsins. Frá vinstri í
fremri röð: Ágúst, Ólafur, frú
Guðrún Brynjólfsson, séra
Bjarni, frú Guðrún Gísladótt-
ir, Þórður og Björg. Aftari röð
frá vinstri: Gottfred Bernhöft,
Einar, Sveinn Þórðarson,
Magnús, Guðjón, Gunnar Ein-
arsson og Guðrún Árnadóttir.
Á minmi myndinni sézt
Sveinn Þórðarson afhenda
séra Bjarna heiðursfélaga-
skjalið. —
Magnúsdóttir, Einar Erlends-
son, Guðrún Gísladóttir, Guð-
rún Indriðadóttir, Magnús S.
Magnússon, Ólafur Þorsteins-
Æskulýðsmóf að
Jaðri um helgina
Jagan segir Frousóknor-
liokk sinn ekki kommnnískan
Brezka Cuiana sjálfstceð í maílok?
SAMBAND islenzkra ungtempl-
ara verður með þriðja ársþing
sitt að Jaðri við Heiðmörk í
kvöld og á morgun, en á morg-
un hefst hið árlega mót samtak-
anna þar og mun það standa til
sunnudagskvölds.
Ársþingið verður sett f kvöld
kl. 8.30 af formanni íslenzkra
ungtemplara, séra Árelíusi Niels
6yni. A þinginu mun Ólafur >.
Kristjánsson, skólastjóri; flytja
erindi, sem nefnist: „Skólaæsk-
an og áfengið". Ráðgert er að
þinginu ljúki seinnihluta laug-
ardags.
Tjaldbúðir
Mótið verður sett seinnihluta
laugardags og síðan mun verða
íþróttakeppni. Tjaldbúðir verða
og mun svæðið verða flóðlýst.
JJm kvöldið verður skemmtun
inni að Jaðri. Sýndir verða þjóð
dansar. Mun ný fimm manna
hljómsveit ungra manna leika
fyrir dansinum. Söngvari verður
með hljómsveitinni.
Útisamkoma
Á sunnudag verður útisam-
koma, sem hefst með guðsþjón-
ustu kl. 2.30. Síðar um daginn
verður skemmtidagskrá, m. a.
verður fyrsta íslenzka geimfar-
anum skotið upp frá JaðrL
Jaðarsdrottningin
Mótinu mun ljúka með kvöld-
vöku og dansi að Jaðri á sunnu
dagskvöld. Verður þá kjörin
Jaðarsdrottningin úr hópi þeirra
stúlkna, sem mótð sækja, og
sem þykir bera af í háttvísi og
góðri framkomu í hvívetna. —
Mun frú Sigríður Gunnarsdótt-
ir, forstöðukona Tízkuskólans í
Reykjavík, velja Jaðarsdrottning
una.
Ferðir verða að Jaðri frá
Góðtemplarahúsinu báða dag-
ana, sem þingið stendur.
GBORGETOWN, 24. ágúst (NTB.
Reuter) — CHEDDI JAGAN, sem
að öllum líkindum mun mynda
nýja stjórn í brezku Guiana, lýsti
því yfir hér í dag, að hann mundi
fylgja hlutleysis-línunni á sama
hátt og Indland og Ghana. Hann
lagði um leið áherzlu á það, að
flokkur sinn, Framsóknarflokkur
inn, væri ekki kommúnistaflokk-
ur.
Sjálfstæði næsta ár
Á blaðamannafundi, sem Jagan
hélt, sagði hann einnig frá því,
— Kjötið
Framh. af bls. 24.
arcafé, fimmtudaginn 24. ágúst
gerir eftirfarandi ályktun:
Með því að Sláturfélag Suður-
lands og Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga hafa ákveðið að hefja
sölu dilkakjöts á morgun þrátt
fyrir það, að eigi ihefirverdð orðið
við sanngjörnum kröfum kjöt-
verlzana um sölul. sem nægileg
væru til greiðslukostnaðar við
dreifinguna og þar með viður-
kennt að félög þessi geti og ætli
að greiða það, sem á vantar til
greiðslukostnaðarins af heildsölu
eða framleiðsluverði, telur fund-
urinn eftir atvikum rétt að leggja
til við félagsmenn sína að hefja
sölu, í trausti þess að heildsölu-
eða framleiðsluverð diklakjötsins
verði lækkað það mikið að smá-
söluverzlunin geti fengi eðlileg-
an dreifingarkostnað greiddan.
að hann gerði ráð fyrir að brezka
Guiana öðlaðist sjálfstæði hinn
31. maí næsta ár, þegar Vestur-
Indíur verða sjálfstæðar.
Vill bandarískt lán
Þá upplýsti Jagan, að hann
væri þess fýsandi, að land sitt
fengi lán frá Bandaríkjunum til
langs tíma og með lágum vöxt-
um. Jagan sagði, að brezka
Guiana þarfnaðist í svipinn fjár
er jafngildir um 25 milljörðum
íslenzkra króna.
Tryggvi
býður hæst í Keili
FYRIR SKÖMMU var b.v. Keil
ir auglýstur til sölu. Hafa þrjú til
boð borizt í hann og er það
hæzta frá togaraútgerð Tryggva
Ófeigssonar, kr. 2,1 milljón. Hin
eru frá Bjarna Pálssyni, Rvík 2
millj. kr. og Björgun h.f. 1,7
millj.
>að er ríkissjóður, sem hefur
söluna með höndum.
Lausar stöður
YFIRSAKADÓMAR-
I N N í Reykjavík hefur auglýst
laust til umsóknar stöðu skrif-
stofustjóra og tvær ritarastöður
við embættið. Er umsóknarfrest-
ur til 10. september n.k. og stöð-
urnar verða veittar frá 1. október.
Happdrættisbíll
farinn
HAPPDRÆTTISBÍLL Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur er geng
inn út. Varð nokkur bið á að
eigandi vinningsmiðans gæfi
sig fram, en nú hefur hann sótt
Volkswagenbifreið sína.
— Berlin
Frh. af bls. 1
því, að íhlutun sovétstjórnarinn-
ar í réttindi Vesturveldanna til
flugsamgangna við Berlín, muni
leiða af sér algjöra endurskoðun
á afstöðu bandarísku stjórnarinn
ar til þeirra atburða, sem átt
hafa sér stað í Berlín síðan 13.
ágúst s.l. að austur-þýzka stjórn-
in bannaði samgöngur vestur á
bóginn.
Það er rif jað upp í sambandi
við orðsendiirguna, að meðan
samgöngur til Berlínar á landi
voru hindraðar árið 1948 hafi
Sovétveldið aldrei dregið
minnstu dul á rétt Vesturveld
anna til frjálsra samgangna.
Hin umfangsmikíla „loftbrú"
til Berlínar hefði því ekki ssett
neinum hindrunum af þeirra
hálf.u.
Kröfugerð undirbúin
Meðal vestrænna sendimanna
í Moskvu er það útbreidd skoð-
un, að orðsendingin sé undirbún-
ingur undir kröfur, sem sovét-
stjórnin hyggist setja fram í við-
ræður um Berlínar-vandamálið,
þegar þær verða. Einn þeirra
lýsti útgáfu crðsendingarinnar
sem grjótkasti úr glerhúsi.