Morgunblaðið - 30.08.1961, Page 1
2iv síður
48. árgangur 194. tbl. — Miðvikudagur 30. ágúst 1961 Prentsmiðja MorTrunblaðsins
Viðræður veröa undirbúnar
að diplómatískum leiðum
í hjarta Berlinar: Tvenn óáreitt. Ráða má af klæða-
hjón ræðast við yfir gaddavírs burði fólksins hvor hjónrin
. *. , . . , húa vestan megin girðingar-
girðinguna, sem kommunistar . £ ., ,, .r _
mnar. A bls. 11 er sogð onnur
hafa sett upp í borginni. Aust- saga um fólkið og gaddavír-
ur-þýzku verðirnir láta þau inn í Berlín.
Níu manns fórust
— er frönsk þota skar sundur hœstu
línubraut heims
London, Bonn, Washington,
29. ágúst — (ReuterJ —
AÐ ÞVÍ er upplýst var I
stjórnarbúðum Bretlands í
kvöld munu ríkisstjórnir
Vesturveldanna hafo orðið
sammála um, að fara að
diplómatiskum leiðum við
undirbúning viðræðna Vestur
veldanna og Rússa um Berlín
og Þýzkalandsvandamálið.
Því muni ekki líklegt að Vest
urveldin svari skriflega síð-
ustu orðsendingu Sovét-
stjórnarinnar um þau mál.
Hins vegar hefur fréttaritari
Reuters eftir áreiðanlegum heim
ildum í Washington, að Banda-
ríkjameon muni sennilega svara
þeirri orðsendingu skriflega og
verði svarið birt opinberlega
áður en Kennedy forseti heldur
Mannella á japönskum
Mibátum
Tðkíó 29. ágúst — (Reuter) —
RÚSSAR tóku í dag enn einn
japanskan fiskibát þrátt fyrir
kröfu Japana frá i gær um að
afhenda þegar í stað 13 fiski-
báta og áhafnir þeirra er þeir
hafa tekið undan Norður-Japan
sl. viku,
Vegna þessara aðgerða Rússa
er nú farið mjög að bera á
manneklu á fiskibátum, menn
þora hreinlega ekki að láta skrá
sig á bátana af ugg um að
verða handteknir. Verða fiski-
nienn að skrá konur sinar og
börn á báta til þess að komast
til veiða
fund með fréttamönnum á morg
un. —
Jafnframt þykir mega vænta
á næstunni yfirlýsingar um að
utanríkisráðherrar Vesturveld-
anna komi saman hið fyrsta til
að ræða Berlínarmálið. Ekki er
með vissu vitað hvar sá fundur
skuli haldinn, en líklegt þykir
að það verði í New York eða
Washington rétt áður en alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna
kemur saman.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum í Bonn, að Adenauer
kanzlari hafi sent Kennedy for-
seta persónulega orðsendingu um
Berlínarmálið og lagt áherzlu á
kosti þess að ríkisstjórnir Vestur-
veldanna og Rússa komi
saman til viðræðna um deiluna.
Er orðsending Adenauers sett í
samband við orðróm um að de
Gaulle Frakklandsforseta hafi
tekizt að vinna Kennedy á þá
skoðun sína, að það sýni merki
veikleika hjá Vesturveldunum
ef þau óski viðræðna við Rússa
of fljótt.
-------★
Dean Rusk utanríkisráðherra
Bandaríkjanna átti í dag fund
með Kennedy og flutti honum
skýrslu um undirbúning mögu-
legra viðræðna Vesturveldannaog
Rússa. Viðstaddir fundinn voru
helztu sérfræðingar Bandaríkja-
forseta um hermál og er talið
að önnur stórmál en Berlín hafi
þá einnig verið rædd.
Chamonix í Frdkklandi,
29. ágúst (Reuter-NTB) —
ÞAÐ slys varð í dag yfir dal
einum í Alpafjöllum, að níu
manns létu lífið og margir
særðust, er frönsk þota skar
í sundur aðallínuna í stærstu
línubraut hcimsins — braut-
inni yfir Mont Blanc frá
Chamonix í Frakklandi yfir
til Courmeyeur í ítalíu.
Þrír vagnar féllu niður í dal-
inn fimmtíu metra fall og særð-
ust margir við það auk þeirra
sem fundizt höfðu látnir er síð-
ast fréttist í kvöld. Alllengi
hengu 80 manns í vögnum uppi
Frh. á bls. 2
Síðustu fréttir
f síYustu fréttum frá NTB
segir, að í kvöld hafi ekki
verið bjargað 30—40 ferlða-
mönnum og sé því allt útlit
fyrir að þeir verði að sitja í
vögnunum sem hanga í línu-
brautinni í alla nótt. f vögn-
unum eru bæði konur, karlar
og börn og flestir fremur
fáklæddir. Reyirt hefur verið
að varpa til fólksins úr flug-
vél ullarteppum og mat, án
árangurs, pakkarnir lentu all-
ir á ísbreiðu í dalnum Valle
Blanche sem er 450 metrum
fyrir neðan línubrautina á
þessum stað.
Ohapp á síldarmiðunum:
■
Seley kafsigldi norsk-
an reknetabát
IVfianiibjörg varð
SEYÐISFIRÐI í gærkvöldi:
— Klukkan 9:45 í morgun varð
harður árekstur á milli norska
reknetjabátsins Sjövik I og
Seleyjar frá Eskifirði út af
Langanesi, með þeim afleiðing
um að Sjövik sökk á stundar-
fjórðungi. Skipshöfnin, níu
manns, komst um borð í
gúmmíbát, og kom Seley með
skipbrotsmennina hingað
skömmu eftir klukkan sjö í
kvöld.
Nánari atvik vöru þau, að
Norðmennirnir voru að draga
net sín um 75 mílur ASA af
Langanesi. Sáu þeir til ferða
Seleyjar, sem stefndi í átt til
þeirra, en reiknuðu með að
hún mundi beygja frá.
Vélin stöðvaðist strax
Allir skipverjar voru á
dekki utan skipstjóri, sem var
í brúnni og kokkurinn í eld-
húsinu. Vissu menn ekki fyrr
til en Seley sigldi á aftanverða
brú norska skipsins, braut
björgunarbátinn í spón og
myndaðist stórt gat á síðu Sjö-
vik við áreksturinn. Vél skips-
ins stöðvaðist strax þar eð
vélarrúmið fylltist af sjó.
Skipstjórinn á Sjövik sótti
björgunarbeltin þegar í stað,
kallaði tvo norska rekneta-
báta, sem hann vissi af í ná-
grenninu, til aðstoðar, og var
i
síðan settur út gúmmíbátur.
Voru Norðmennirnir komnir
um borð í Seley eftir 10—15
mínútur, en skipið sökk á
stundarfjórðungi eða svo.
Skipstjórinn á Seley lét
skjóta út léttibáti og var
gúmmíbátur Norðmannanna
dreginn að skipshlið.
Skemmdir urðu ekki miklar
á Seley, en eitthvað mun stefni
skipsins þó hafa laskazt. Skip-
stjórinn á Seley vill ekkert
láta hafa eftir sér um mál
þetta fyrr en sjópróf hafa farið
frarn, og verður það að líkind-
um á morgun.
Sjövik I var 120 brúttótonn,
byggð 1945. — Sveinn.
*
•»
\
>