Morgunblaðið - 01.09.1961, Page 1
24 síður
>
Hefja ú ný tilraunir með
kjnmorkuvopn
Yfirlýsingti Sovétstjórnarinnar tekið með ugg og
fordæmingu um víða veröld. Kína — eitt ríkja
— styður þá ákvörðun
London, Washington, París, Bonn, Kaupmannahöfn, Ósló,
Stokkhólmur, Belgrad, 31. ágúst. — (Reuter/NTB/AFP).
^ Stjórn Sovétríkjanna gaf í gærkvöldi út opinbera tilkynningu um, að hún hefði á-
kveðið að láta hefja að nýju tilraunir með kjarnorkuvopn í Rússlandi. Sakar Sovétstjórn-
in Vesturveldin um að hafa knúið sig til þessarar ráðstöfunar.
Tilkynning Sovétstjórnarinnar hefur vakið ugg og undrun um gervallan hinn frjálsa
heim og almenna fordæmingu. Hefur hver þjóðin af annarri, jafnt þær sem hlynntar eru
Vesturveldunum og þær, sem halda hlutleysisstefnu — lýst furðu sinni og hryggð yfir
tilkynningunni, sem muni færa mannkynið í ófyrirsjáanlega hættu.
Tilkynningin kom sem reiðarslag yfir marga þjóðaleiðtoga, er komu til Belgrad í
inorgun til þess að sitja ráðstefnu 24 þjóða er ekki heyra til hernaðarbandalögum, hinna
svonefndu „hlutlausu“ þjóða. Eru þeirra á meðal margir hörðustu andstæðingar kjarn-
orkuvopnatilrauna. Almenna furðu vekur að yfirlýsingin skuli birt svo rétt í þann mund
er ráðstefnan hefst.
^ Velta menn fyrir sér, hvort Krúsjeff hafi gefizt upp á að tala um fyrir hinum „hlut-
lausu“ og reyni nú að sýna þeim vöndinn — og sumir telja sig finna kló hins kommún-
íska Kína að baki yfirlýsingar Rússa.
■Ar Aðeins ein þjóð heims — KÍNA — hefur lýst sig samþykka ráðstöfun Rússa og segir
hana „öfluga vakningu þeim þjóðum heims, er berjist fyrir friði“. En dagblöð í Austur-
Þýzkalandi segja frá ákvörðun Rússa undir fyrirsögnum sem slíkum: „Ráðstöfun til
verndar friði — Rússar hefja að nýju tilraunir með kjarnorkuvopn“.
Talsmenn sósíalískra stjórnmálaflokka víða um heim og forystumenn samtaka á
Vesturlöndum, er barizt hafa gegn kjarnorkuvopnum, hafa fordæmt ákvörðun Rússa og
hvatt þá til þess að endurskoða hana.
★ Tilkynnt í gærkvöldi
Rússar tilkynntu í gærkvöldi,
að þeir hefðu ákveðið að hefja
aftur tilraunir með kjarnorku-
vopn. Væri sú ákvörðun tekin
vegna ógnunar Vesturveldanna
við heimsfriðinn og stöðugrar við
leitni þeirra til að efla vígbúnað-
arkapphlaupið. — í tilkynningu
Sovétstjórnarinnar segir, að John
F. Kennedy Bandaríkjaforseti
hafi frá valdatöku sinni unnið
markvisst að eflingu vígbúnað-
arkapphlaupsins á öllum sviðum.
Hin opinbera fréttastofa kín-
verska alþýðulýðveldisins —
Nýja Kína — segir í dag, að
áikvörðun Rússa sé „öflug vakn-
ing öllum þjóðum er vinni að
eflingu friðar í heiminum".
Styðji Kínverjar heilshugar á-
kvörðun Rússa, sem sýni glöggt
einingu sósíalista um að halda
vöku sinni gegn hinni alvarlegu
styrjaldarógnum heimsvelda-
sinna. Og fréttastofan bætir við:
Heimsveldasinnar skulu vita að
leiði þeir kjarnorkustyrjöld yf-
ir mannkynið verður afleiðing-
in sú, að hugmyndakerfi stefnu
þeirra þurrkast út af jörðinni.
★ Ótti í stað skynsemi
John F. Kennedy, Bandarikja
forseti segir í yfirlýsingu, sem
birt var síðdegis 1 dag að af-
loknum fundi ríkisstjórnarinnar
og helztu ráðgjafa forsetans, að
hann taki heilshugar þátt í von-
brigðum alls heimsins vegna yfir-
lýsingar Rússa. Yfirlýsingin sé
til þess ætluð, að ótti verði ráð-
andi í alþjóðamálum í stað skyn-
semi.
f yfirlýsingu fyrr í dag sagði
forsetinn ,að ákvörðun Rússa
væri svik við mannkynið. Ekki
hefur hann látið í ljósi, hvort
eða hvenær Bandaríkjamenn
hyggist fara að dæmi Rússa. Þyk-
Borgarastyrjöld
í Brasilíu?
Buenos Aires og Rio de
Janeiro, 31. ágúst. —
(Reuter — NTB).
TALIN er hætta á borgara-
styrjöld í Brasilíu, sem af-
leiðing af stjórnarkreppunni
í landinu, eftir að Janio
Quadros sagði af sér forseta-
embætti.
Óstaðfestar útvarpsfregnir frá
Argentínu herma, að loftárás
hafi verið gerð á hafnarbæinn
Porto Alegre.
Jaoa Goulart kom flugleiðis
til Buenos Aires í kvöld og tók
á móti honum nefnd manna frá
Brasilíu — þrír þingmenn og
þrír liðsforingjar, er reyndu að
fá hann til að bíða átekta í
Buenos Aires. Goulart tjáði
fréttamönnum þar, að hann
hyggðist alls ekki afsala sér for-
setaembættinu. Væri þá ekki
lengur lýðræði í Brasilíu ef
liðsforingjamir fengju bugað
hann.
★
í morgun samþykkti þjóðþing
ið með yfirgnæfandi meirihluta
að Goulart skyldi taka við for-
setaembættinu, en jafnframt er
í athugun að breyta og minnka
Framh. á bls 2
ir líklegt, að þeir bíði átekta
og sjái hverju fram vindur. Um
skeið hafa ýmsir aðilar í Banda-
ríkjunum lagt mjög að ríkisstjórn
inni að hefja tilraunir að nýju
vegna hinnar óskiljanlegu fram-
komu Rússa á Genfarráðstefn-
unni um bann við kjarnorku-
vopnatilraunum. Til þessa hefur
Krúsjeff
stjórninni tekist að standa af sér
þær kröfur og reynt til hins
ítrasta að koma á tilraunabanni,
— en lítill vafi þykir leika á því,
að þeir telji sér ekki fært að
sitja hjá mikið lengi ef Rússar
hefja tilraunir svo einhverju
nemi. — Hins vegar sagði Kenne-
dy 1 yfirlýsingu sinni í dag, að
kjarnorkuvopn Bandaríkjamanna
væru enn nægilega öflug til þess
að þeir gætu varið sig sjálfa og
hinn frjálsa heim.
Líklegt þykir nú, að Kennedy
muni ávarpa allsherjarþing Sam-
einuðu þjóðanna er það kemur
saman.
í aðalstöðvum Sameinuðu þjóð
anna átti Adlai Stevenson fund
Frh. á bls. 23
Nafn-
laust
brét
til Reuters
LONDON, 31. ágúst. —
(Reuter) — 1 dag barst
aðalskrifstofu Reuterfrétta-
stofunnar í Lundúnum
nafnlaust bréf frá einhverj
um, sem kvaðst hafa með
höndum málverkið af her-
toganum af Wellington
eftir Goya, sem stolið var
fyrir nokkru. — Seg-
ist bréfritarinn fús að láta
málverkið af hendi fyrir
140 þúsund sterlingspund,
sem skuli greidd til fá-
tækra —- en það var sú
upphæð sem listasafn
brezka ríkisins greiddi fyr-
ir málverkið er það var
keypt af bandarískum auð
jöfri.
Bréfritari skýrir frá
ýmsum einkennum á mál-
verkinu til sönnunar því,
að um rétta mynd sé að
ræða. Segir hann jafn-
framt, að málverkið sé
ekki til sölu heldur verði
að greiða andvirði þess fá-
tækum. — Sé þetta gert
til þess að létta ofurlítið
vasa þeirra sem hafi meiri
áhuga á listaverkum en !
þeim sem lifa við skort.
Atburðirnir i Berlín hafa haft
djúp áhrif á samvizku mannkynsins
segja forustumenn „Frjálsrar menn-
ingar" i bréfi til Brandts borgarsljóra
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
izt bréf frá Nicolas Nabokov,
framkvæmdastjóra „Congress
for Cultural Freedom“, sem er
lalþjóðasamtök menntamanna í
lýðfrjálsum löndum. fslenzka
deildin er „Frjáls menning". í
bréfi sínu segir Nabokov m. a.:
„Hjálagt er afrit af svarbréfi
sem sent hefur verið til Willy
Brandts borgarstjóra í Berlin frá
áhrifamönnum í mörgum lönd-
Skattar
fjármAlaráðherra
ræddi mikilsverðar breyt-
ingar á skatta- og tollalög-
gjöf á fundi Kaupmanna-
samtakanna í gær. — Sjá
blaðsíðu 6.
um um víða veröld . . . Þeir eru
að svara bréfi sem Willy Brandt
sendi Denis de Rougemont,
stjórnarformanni „Congress for
Cultural Freedom". f bréfi sínu
hvatti Brandt samtökin til að
vekja athygli almennings í heim
inum á hinu háskalega ástandi
sem skapast þegar níðzt er á
þeim rétti manna ,,að yfirgefa
ríki þar sem ekki er neitt frelsi
og þar sem þeir vilja ekki búa.“
Brandt sagði í bréfi sínu:
„Ef fólki, sem sérstöku stjórn
arfari hefur verið þröngvað upp
á, er neitað um rétt til áhrifa á
borgaraleg örlög sín, þá verður
a. m. k., að leyfa því að halda
réttinum til persónulegrar sjálfs
ákvörðunar — réttinum til að
fara burt. Á þetta ber að líta
sem grundvallarréttindi, hafin
yfir allar pólitískar umræður."
Bréfið til Brandts.
Umrætt svarbréf fer á
eftir:
„Jafnvel í veröld, sem er orð
in vön því að sjá ómannúð í
ýmsum myndum, hafa fréttim-
ar og ljósmyndirnar frá Berlin
vakið viðbjóð karla og kvenna
í öllum löndum. Kúgun og
óánægja eru til í öllum heims-
álfum, og harmleikur útlegðar-
innar hefur orðið hlutskipti
margra þjóða og kynstofna. Eigi
að síður hafa atburðirnir á
markalínunni í borg yðar haft
djúp og uggvekjandi áhrif á
samvizku mannkynsins. Það er
út af fyrir sig nógu uggvænlegt,
þegar ákveðið stjórnarfar þving
ar þegnana í milljónatali til að
ieita hælis annars staðar. Hitt
cr enn hryllilegra, þegar und-
ankomuleið þeirra er lokað með
múrum og gaddavír um þver
borgarstræti, þegar þeim er
ógnað með nöktum byssustingj-
Framh. á bls. 3
kostar kr. 55,00 á innanlands-
markaði.
Auglýsingaverð:
Kr. 30,00 pr. eind. cm.
j