Morgunblaðið - 02.09.1961, Blaðsíða 19
7
Laugardagur 2. sept. 1961
MOWZUNBL4ÐIÐ
19
Sam vsnn utrytyg-
ingar 15 ára í g?ær
Ruslinu fleygf
út á Öldugötu
Sorpstyrjöld í Vesturbœnum
Samvinutryggingar voru 15
ára í gær. Samband ísl. sam-
vinnufélaga, undir forstjórn
Vilinrálms Þór, kafði forgöngu
um stofnun þeirra og lagði fram
fyrsta starfsfé.
Samvinnutryggingar hafa lát-
ið öryggismál mjög til sín taka,
t. d. með útgáfu tímarits og
bæklinga, brunavarnareftirliti,
verðlaunaveitingum fyrir tillög-
ur um meira öryggi í umferð
o. s. frv.
í árslok 1960 námu iðgjalda-
og tjónasjóair Samvinnutrygg-
inga 109,9 millj. kr. Hefur fyr-
irtækinu verið kleift að lána
allmikið fjármagn til einstakl-
inga og fyrirtækja víðs vegar
á landinu. Námu þau útlán til
ársloka 1960 62,4 millj. kr.
Stjórn samvinnutrygginga
hefur verið þannig skipuð frá
upphafi:
Vilhjálmur Þór, bankastjóri,
var fyrsti stjórnarformaður,
frá 1946—1954 Síðan hefur Er-
lendur Einarsson, forstjóri, ver-
ið formaður stjórnarinnar. Aðr-
ir stjórnarmenn hafa verið óslit-
ið frá upphafi: Jakob Frímanns-
son, kaupfélagsstjóri, Akureyri,
ísleifur Högnason, forstjóri,
Keykjavík, Karvel Ögmundsson,
útgerðarmaður, Ytri-Njarðvík,
og Kjartan Ólafsson frá Hafnar-
firði.
Framkvæmdastjórar Sam-
vinnutrygginga hafa verið þrír:
Erlendur Einarsson frá 1946 til
ársloka 1954. Jón Ólafsson hrl.
til 1. ágúst 1958, en síðan Ás-
— Bátsbruni
Frh. af bls. 20.
vélstjórinn og hásetinn blásið út
sex manna gúmmíbát, og undir-
búið að þurfa að yfirgefa skipið
í flýti.
• Rúður springa
Um það leyti að báturinn
kenndi grunns við Hnífsey var
hitinn og reykjarsvælan orðin ó-
Ibærileg í stýrishúsi. Var þá
gúmmíbátnum skotið út, og far-
angri skipsmanna fleygt þar í.
Fóru mennirnir þrír í bátinn, en
vindur stóð á eyna og rak þá
til lands. Um minútu eftir að
mennirnir tóku land á eynni,
sprungu rúðurnar í stýrishúsinu
af hitanum.
• Sást frá Staðarbakka
Reykurinn frá hinum brenn-
andi bát á grynningunum við
Hnífsey sást frá Staðarbakka og
var hringt þaðan í hafnsögu-
manninn í Stykkishólmi, Berg-
svein Jónsson, Og sótti hann skip
verja út í Hnífsey á trillubát um
eittleytið.
Sjópróf fóru fram í Stykkis-
hólmi í gær. Skýrði Haraldur
Jónasson fulltrúi Morgunblaðinu
•vo frá í gærkvöldi, að eldsupp-
tök væru enn ókunn, en málið
væri ekki að fullu rannsakað enn.
• Leitað á Húnaflóa
í ljós kom að skipstjóri kallaði
upp í talstöðina skömmu eftir að
íhann varð eldsins var, og skýrði
frá ástandinu um borð. Hætti
hann að kalla þegar ekki- var
svarað, en hinsvegar mun kallið
hafa heyrst að Brú í Hrútafirði,
sem gerði Slysavarnafélaginu að-
vart. Var talið að bátur væri í
nauðum staddur á Húnaflóa, og
hélt gæziuflugvélin Rán þangað
frá Reykjavík og leitaði lengi
dags, en varð einskis vísari.
M.b. Ármann va rrúmlega 37
brúttótonn, eign Ægis h.f. Bátur-
inn var byggður á Akureyri 1947
af Nóa Kristjánssyni, úr eik og
furu.
Talið er að báturinn hafi brunn
Ið ofan í kjöl, því flóð var er
hann tók niðri, en síðan fjaraði
út. M.b. Ármann var tryggður
fyrir 1,3 milljón, sem er um helm-
ingur þess, sem nýr bátur af sömu
gerð mundi kosta.
geir Magnússon, cand. jur. Auk
hans eru í framkvæmdastjórn
deildarinnar Björn Vilmundar-
son frá brunadeild og Jón Rafn
Guðmundsson frá sjódeild. Aðr-
ir deildarstjórar eru: Ólafur
Kristjánsson fyrir bifreiðadeild
og Valur Arnþórsson fyrir end-
urtryggingadeild.
í tilefni 15 ára afmælis Sam-
vinnutrygginga hefur stjórn
þeirra ákveðið að gefa kr. 50
þús. til Blindraheimilis í Reykja
vík.
274 hvalir
AKRANESI, 1. sept. — 274
hvalir hafa alls veiðzt á þessari
vertíð, sagði skrifstofustjórinn í
Hvalstöðinni í dag. Tveir búr-
hvalir og einn sæhvalur veidd-
ust á hvalveiðibátana i gær og
verið er að skera þá í dag.
— Oddur.
— Belgrad
Framhald aí bls. 1.
uðu að taka upp að nýju til-
raunir með kjarnorkusprengjur
og gaf í skyn að æskilegt væri
að þeir Krúsjeff og Kennedy
kæmu saman til viðræðna.
Sukarno, forseti Indónesíu,
lýsti því yfir að Vestur-Berlín
ætti ekki að verða gerð að vett-
vangi valda- og skoðanabaráttu
stórveldanna. Hvatti hann til
þess að bæði Austur- og Vest-
ur-Þýzkaland yrðu viðurkennd
sem sjálfstæð ríki og sagði að
íbúar Vestur-Berlínar ættu að
fá að lifa í friði án erlendra af-
skipta og að umferð til borgar-
innar og frá ætti að vera þeim
frjáls.
Mikið áfall
Nasser forseti var eini ræðu-
maðurinn á ráðstefnunni. sem
beinum orðum minntist á
ákvörðun Sovétríkjanna um að
hefja að nýju tilraunir með
kjarnorku. Sagði hann þessa
frétt hafa verið jafnmikið áfall
fyrir sjálfan hann og alla aðra
menn hvar sem væri í heimin-
um. Og ekki skipti máli hver
væri ástæðan fyrir þessari
ákvörðun Rússa, hitt skipti
meira máli að ákvörðunin hefði
bein áhrif á hið hættulega
ástand í heiminum.
Nasser sagði að nú væri ekki
lengur unnt að velja milli samn
ingaviðræðna og styrjaldar. —
Samningar væru eina leiðin til
friðar, sem byggður væri á rétt-
læti. Friður gæti ekki byggzt á
eldflaugum búnum kjarnorku-
sprengjum.
Þá réðist Nasser á Frakka
fyrir kjarnorkutilraunir þeirra
í Afríku, og sagði að með þeim
sköpuðu þeir sér andúð allra
þjóða. Nasser taldi að breyting-
ar yrði að gera á skipulagi Sam
einuðu þjóðanna og kvaðst ekki
skilja. hvernig á því stæði að
Kína, þar sem byggi fjórðung-
ur mannkyns, væri haldið utan
samtakanna.
Hlutlaust svæði
Forseti Súdan, Ibrahim Ab-
boud, lagði til að Afríka öll
yrði lýst „hlutlaust svæði, þar
sem bönnuð væri öll kjarnorku-
vopn og tilraunir með kjarn-
orku“. Abboud lagði einnig til
að stofnskrá Sameinuðu þjóð-
anna yrði tekin til ítarlegrar
endurskoðunar, með eftirfarandi
breytingar fyrir augum:
1. Mikla takmörkun og helzt
algjört afnám neitunarvalds-
ins.
2. Veita Allsherjarþinginu úr-
slitavald.
3. Stöðva alla vopnaframleiðslu.
4. Auka starfsvið og völd sér-
stakra nefnda SÞ.
Á ráðstefnunni eru mættir
sem áheyrnafulltrúar sendiherr-
ar Sovétríkjanna og Bandaríkj-
anna í Belgrad.
SORPHREINSUN bæjarins og
Haukur Clausen tannlæknir
elda nú grátt silfur og er deilu-
málið hvort hreinsað hafi verið
úr öskutunnum Hauks sl. mánu
dag. Segir sorphreinsunin svo
vera, en Haukur segir að húsi
sínu við Öldugötu hafi verið
sleppt, er sorphreinsunarmenn
voru þar siðast á ferð. Voru
ailar tunnur Hauks fuliar svo
út úr flóði í gær, og auk þess
stóðu að húsabaki nokkrir
pappakassar fullir af ruli.
Klukkan fimm í gærdag gerð-
ist það í máli þessu, að Haukur
fór með alla pappakassana og
fleygði þeim út á Öldugötu. —
Kvaðst hann hafa rætt málin
við viðkomandi yfirvöld' en tal-
að fyrir daufum eyrum. Væri
þetta því næsti leikur hans í
málinu og léti hann duga í bili
að setja aðeins kassana út á
götu.
Af hinni hlið málsins er það
að segja, að á skrifstofum borg-
arverkfræðings er fullyrt að mál-
ið hafi ekki verið borið þar upp,
Mexikani opnar
málverkasýningu
I DAG opnar mexíkanski mál-
arinn Bernabé González Chapa
málverkasýningu í Ásmundar-
sal við Freyjugötu. Þar sýnir
hann 41 olíumálverk, sem hann
hefur málað heima í Mexíkó,
í New York og á Islandi. Sýn-
ingin verður opin í eina viku,
kl. 2—22 e. h.
HÁSKÓliABÍÓ. — Athugasemd:
Mbl. greindi frá því í gær, að
Háskólaráð hefði endanlega á-
kveðið, að hið nýja kvikmynda-
hús háskólans á Melunum skyldi
í framtíðinni kennt við skólann
— svo sem flestir munu hafa
gert síðan bygging þess komst
á rekspöl. — Til þess að forða
misskilningi, skal tekið fram, að
ákveðna greininum var bætt við
nafnið af Mbl. og nær ákvörð-
un Háskólaráðs ekki lengra en
— að kvikmyndahúsið skuli
bera heitið Háskólabíó.
né heldur á skrifstofum borgar-
stjóra, og sorphreinsunin fullyrð-
ir að hreinsað hafi verið úr tunn-
um Hauks sl. mánudag.
— Yngstu börnin
Framhald af bls. 3.
spurði allt í einu rauðhærður
snáði frammi í ganginum, sem
rétt áður hafði sagt okkur að
hann væri kominn í 8 ára
bekk. Honum fannst bersýni-
lega kominn tími til að ein-
hver annar en við færi að
spyrja. Það varð eitthvað lítið
um svör, og fyrr en varði voru
samræðurnar komnar út í það,
hvað sá rauðhærði gerði nú
helzt.
— Eg reikna.
Það leyndi sér svo sem ekki,
að hér var enginn byrjandi
1 skólanum á ferðinni.
— Og hvað gerirðu svo
fleira?
— Eg stroka oft út það sem
er rétt, til þess að reikna það
aftur.
Nú fór málið að vandast.
— En færðu þá ekki alltaf
sömu útkomu.
— Eg veit það ekki.
Og ekki vissum við það.
Rífur blaðið í tætlur
Það var nú farið að fækka
til muna á göngunum, svo að
við ákváðum að halda á braut.
En sá rauðhærði í átta ára
bekknum vildi fá að vita dá-
lítið:
— Kemur mynd af mér í
blöðunum?
— Ætli það.
— Eg vil ekki hafa neinar
myndir af mér í blöðunum.
Og ef það kemur, þá ríf ég
blaðið í tætlur.
Af því að okkur þykir auð-
vitað dálítið vænt um Morgun
blaðið, lögðum við alls ekki
út í, að birta mynd af þessari
hetju sögunnar.
í dag byrjar svo nám 7 ára
barnanna fyrir alvöru. Þau
eiga að mæta kl. 3. Og þá
verður haldið áfram að stafa:
A...F ...Q...X...
B . . . D . . . ,
2,5 milljónii
boðnor í togorn
Stykkishólmi 1. sept.
í DAG klukkan þrjú fór hér
fram uppboð á togaranum Þor
steini þorskabít, eign Þórólfs
Mostraskeggs h.f. Fór uppboð-
ið fram að kröfu Jóns Ingi-
marssonar fyrir hönd lífeyr-
issjóðs togaramanna, en við-
staddir söluna voru auk hans
lögfræðingarnir Sigurður Óla-
son, sem mætti fyrir hönd
fjármálaráðuneytisins og 1
Björn Ólafs fyrir hönd stofn- |
lánadeildar og Landsbankans.
Auk annarra kröfuhafa. Upp-
boðið fór fram í skrifstofu
sýslumanns í Stykkishólmi og
var hæstbjóðandi Sigurður
Ólason fyrir hönd ríkissjóðs.
Bauð hann tvær og hálfa
milljón og lcrafðist útlagningar
um leið. Næsta boð átti Bjöm
Ólafs fyrir hönd stofnlána-
deildar sjávarútvegsins. Var
það 2 millj. 350 þús.
— Utan úr heimi
Frh. af hls. 10.
raska sænsku hlutleysisstefn-
unni, og það er rétt, að Sví-
þjóð hefur mikilvægum verk
efnum að gegna á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna og víð-
ar. Mikilvægt er, að Svíar
sjái sér fært, að ganga til
samninga um efnahagssam-
starf, svo að ekki rísi nýir
tollmúrar milli Noregs, Svi-
þjóðar og Danmerkur. Ef
það tekst, verður smám sam-
an hægt að koma á skandin-
avískri fríverzlun, og það
veitir einnig möguleika til
lausnar á þeim sérvandamál-
um, sem Finnar eiga við að
glíma.
Ekki gleyma Finnum
Erlander: — Það er nú
ekki margt eftir til að ræða
um eða deila. Ég held, að
Krag hafi tekizt að benda á
heppilegan jarðveg fyrir sam
starf Norðurlandanna við nú-
verandi aðstæður. Við höfum
nálgast hvor annan. Ég
ímynda mér, að viðræðumar
sem í hönd fara innan Sam-
eiginlega markaðsins muni fá
svip af þessu. Þegar við setj-
umst að samningaborðinu
skulum við ekki gleyma
Finnlandi. Það geta Svíar
ekki.
. Krag: — Ég hef þegar
minnzt á, hvern ávinning við
teljum í því, að Finnar skuli
vera þátttakendur í samstarfi
Norðurlandanna.
Utanríkisráðherrann lét síð
an í ljós vonir um áfram-
haldandi samráð milli
Norðurlandanna, þrátt fyrir
það að þær gengju ekki sam-
einaðar til samninga, þegar
eitt eða tvö landanna væru
aðilar Sameiginlega markað-
arins og það þriðja aukaað-
ili. Norðurlöndin hefðu stað-
ið öflugar að vígi, ef áður
hefði náðst samkomulag um
norrænan markað.
Finna þarf Ieiðir
Erlander: — Ég er ekki
þeirrar skoðunar, að málið
snerti þrjú lönd — við bæt-
ist m.a. Finnland. Og ég efast
um málefnalegan styrk okk-
ar, ef við hefðum haldið til
viðræðnanna í einu lagi —
því að Noregur og Danmörk
eru í Atlantshafsbandalaginu
en Svíar hlutlausir.
— I þessu er fólginn veik-
leikinn í markaðsmálinu,
sagði sænski forsætisráðherr-
ann að lokum í þessari út-
varps- og sjónvarpsdagskrá.
— Það er áríðandi fyrir okk-
ur að finna leiðir.
Ráðning á gátu dagsins: BKOX.