Morgunblaðið - 03.09.1961, Qupperneq 11
i Sunnudagur 3. scpt. 1961
MORGVIS BLAÐIÐ
11
Jón Þorláksson
kominn með nýtt
mastur
í GÆR íór togari Bæjarútgerð-
arinnar, Jón Þorláksson, í
reynsluferð eftir að 12 ára klöss
un hafði farið fram á honum
og gekk skipið prýðilega. Auk
þess sem skipið var tekið alveg
í gegn til grunna, var gerð á
því sú breyting að gamla mastr-
ið var tekið af því og sett
grennri og léttari stöng aftan á
skorsteininn. Mun þetta eiga að
gera skipið sjóhæfara.
Vélsmiðjan Héðinn annaðist
verkið, sem hófst 30. nóv. sl.,
en gír í aðalvélina, sem sendur
var til Englands, olli nokkrum
töfum, þar sem stóð á honum.
Togarinn er nú að fara á veið
®r á heimamiðum.
Togarinn Hallveig Fróðadótt-
ir. eign Bæjarútgerðarinnar, er
nú að fara í samskonar klössun
og Jón Þorláksson, og mun Vél-
smiðjan Héðinn einnig sjá um
hana.
— Krúséff
Framh. af bls. 6
— að vera fær um að „kasta
fyrsta steininum" — verði nokkr
um kastað.
En eins og áður er Bandaríkja
mönnum — með tilliti til stefnu
þeirra — engin nauðsyn að eyða
gífurlegum fjármunum í þessu
skyni. Bandaríkjamönnum fór
meira fram með smíði Minute-
man eldflaugarinnar frá smíði
Atlaseldflaugarinnar en Rússum
nú, en það hefur tiltölulega litla
þýðingu. Hin nýja eldflaug Rúss
anna verður þeim fullt eins nota-
drjúg og Minetuman Bandaríkja
mönnum.
Fregnin um hið nýja flugskeyti
er í sjálfu sér mjög athyglisverð
eins og mikilvæg framfaraskref
í vopnabúnaði Sovétríkjanna eru
ávallt. En sú fregn hefur einnig
aðra þýðingu, sem varðar minna
gerð vopnsins sjálfs — en það er
Ihvernig Krúsjeff bregzt við. í
Viðræðum við stjórnmálaleiðtoga
Vesturveldanna hefur Krúsjeff
yfirleitt komið fram eins og gagn
fræðaskólastrákur, sem hefur
eignazt nýjan vélbát eða riffil —
með vanþroska stolti. Þar við
bætizt, að hann hefur nýlega lýst
yfir því, að það væri „óraun-
sætt“ og „rangt“ — meira að
segja ,siðlaust“ að neyta ekki
meðan á nefinu stendur til þess
að koma ár sinni betur fyrir
borð í Berlínarmálinu. Þessi stað
hæfing ai „siðferðilega“ hljóti
hann að reiða högg að Berlín gef
ur tilefni til mjög alvarlegrar
spurningar.
Hversvegna bauð honum ekki
„siðferðilega" að reiða þetta högg
árin 1953 — ’55 — ’56 — eða 1957?
Svarið liggur í framförum í
vopnabúnaði Sovétríkjanna, og
stöðugum áætlunum Krúsjeffs
þar að lútandi.
Hann trúir því í raun og veru,
að þegar Rússar stígi stórt skref í
vopnaframleiðslu sé „siðlaust“ að
notfæra sér það ekki til þess að
ávinna sér bætta stjórnmálað-
stöðu í heiminum. Gæti hinir
sjálfumglöðu Vesturlandabúar
þess ekki að viðhalda jafnvægi í
hernaðarmætti stórveldanna mun
Krúsjeff verða „siðferðilega“
knúinn til þess að halda áfram á
sömu braut og í Beilín.
Þegar leiðtogi máttugs hernað-
erríkis — eins og Krúsjeff nú —
hefur slíka afstöðu verður hverju
skrefi framfara 1 vopnabúnaði
íylgt eftir með ráðstöfunum til
þess að ná stjórnmálalegum á-
vinningum, svo framarlega sem
honum er ekki veitt viðnám.
Það hefur lengi verið beðið eft
ir þessari nýju eldflaug í Sovét-
ríkjunum, enda er hún á eftir á
setlun. En úr því sem komið er
verða Bandaríkjamenn að gera
allar þær ráðstafanir sem unnt er
til þess að vogarskál hernaðar-
máttarins hallist þeim í vil —
vilji þeir koma 1 veg fyrir frekari
„siðferðilegar“ ráðstafanir Krú-
sjeífs.
________________________________>
Nýtt Nýtt
ítalskar nælon-poplin regnkápur fyrir
dömur, fisléttar og sterkar.
Verð er aðeins kr. 898.— og kr. 1098.—
Eygló
Laugavegi 116
HEF OPNAÐ
Lögmannsskrifstofu
í AUSTURSTRÆTI 3
Skrifstofutími fyrst um sinn
kl. 4—6. — Sími 10223.
BENEDIKT BLÖNDAL
héraðsdómslögmaður
Ódýrt! Ódýrt!
Sisal gólfdreglar og mottur
í ýmsum breiddum. —
Sterkir og fallegir.
Lægsta fáanlegt verð.
Málaraverzlun PÉTURS HJALTESTED
Snorrabraut 22 — Sími 15-7-58
CANBRIT
útvegar fólki skóla og úrvalsheimili í Englandi.
Á heimilunum er yfirleitt ungt fólk, sem gerir nem-
endum kleift að æfa talmálið við beztu skilyrði utan
skólatímanna. Fyrir þÁ, sem taka vilja námið alvar-
lega, eru haust og vetrarmánuðimir ákjósanlegastir.
Hagstætt verð. — Upplýsingar gefur Sölvi Eysteins-
son, sími 14029.
— Stór útsala —
Allar vörur verzlunarinnar eiga að seljast,
því Varðarhúsið á að f jarlægja af lóðinni.
Allt nauðsynjavara, sem selst undir inn-
kaupsverði:
Vinnufatnaður — Regnfatnaður,
Skyrtur — Nærfatnaður
Herrafrakkar — Kvenfrakkar
margar gerðir, sérstaklega ódýrir.
Ennfremur margskonar smávarningur.
Hér er tækifærið til að gera góð innkaup,
áður en þessar vörur hækka.
Sjóklæði & Fatnaður
Varðarhúsinu — Kalkofnsveg
IHerkið er • • T . •,-VV..TT77T-
SEBRA
SEBRA ANORAKINN
er aðeins framleiddur ~ AtW!
úr 1. flokks popplini.
íltsölustaðir í Reykjavíb -
eru; ..
Verzlunin Valborg
Austurstræti 12
Verzlunin Sóley
Laugavegi 33 Verzlunin Sísí
Laugavegi 70 f «
Verzlunin Stakkur
Laugavegi 99 ÉjJm
SEBRA ANORAKINN
fæst í stærðunum
2 — 4 — 6 — 8 — 10
Litaúrval.
SEBRA ANORAKINN
er kjörin flík í skólann. " -sbhBh
Framleiðendur.
Mmm