Morgunblaðið - 06.09.1961, Page 17
Miðvikudagur 6. sept. 1961
MORGUNBLAÐIÐ
17
Um súgþurrkun — dýrar
byggingar á búum
gróðursetning 80 mill-
jóna plantna — verðlag
búsafurða
HÉR kvarta menn um erfitt tíðar
far það sem af er sumrinu, hey-
skapur erfiður og nýting slaem.
Svipað er að segja um norður-
hluta landsins, en austanfjalls er
heyskapur talinn góður og horfur
með kornuppskeru góðar. Korn-
skurður hófst hér á Jaðri upp úr
miðjum ágúst en þó eigi nema á
stöku stað og enginn skriður á
til þessa — 21. ágúst.
Horfur eru á góðri uppskeru af
kartöflum og öðrum rótarávöxt-
um austan fjalla og í Suðurland-
inu, en hið sama verður ekki sagt
um héruðin vestanfjalla, og
Þrændalög né norðurfylkin.
—O—
Súgþurrkun hefir ekki náð
neinni verulegri útbreiðslu í
Noregi. Er sagt frá því sem tíð-
indum að á tilraunabúinu Apels-
vold á Upplöndum var allt þurr-
hey súgþurrkað í sumar. Að
loknum slætti í vothey var túnið,
um 7 ha, slegið í súgþurrkun og
þeim slætti og hirðingu lokið á
10 dögum. Slegið lá grasið (hey-
ið) á jörð 1 %—3 daga og var
snúið þrisvar sinnum með múga-
vél, en því næst ekið í hlöðu
á traktorvögnum (sem málhaltir
menn heima kalla „heykló" og
„heygreip“ og víst fleiri jafn
hörmulegum nöfnum, — en það
er önnur saga). Þá var vatnsmagn
ið í heyinu 40—45%.
Þessi vinnubrögð eru rædd og
borin saman við hesju-aðferðina,
sem krefst allmikillar handvinnu,
Og á það er bent að ekki hafi
þurft að taka hendi á heyinu fyrr
en við að jafna því í hlöðunni.
Tilraunastjórinn segist vera viss
um að heygæðin séu meiri en við
hesjun.
Þetta kemur ísl. bændum auð-
vitað ekki neitt ókunnuglega
fyrir sjónir, en sinn er siður í
landi hverju, og sennilega verður
fordæmið á Apelsvold o. fl. slík-
um stöðum til þess að bændur
fara að gefa súgþurrkuninni
meiri gaum. Norskir bændur
fylgjast allvel með því sem ger-
ist á tilraunabúunum.
—O—
Prófessor Nordbö - hinn kunni
byggingafræðingur í Ási hef-
ir nýlega tekið til máls um hinar
dýru byggingar á búum bænda.
Bendir hann á hver vandi og
voði er á ferðum þar sem byggt
er sem dýrast, vandaðast og var-
anlegast.
Hann telur að útihúsin á bænda
býlunum kosti bændur um 15%
af öllum bútekjum þeirra, það er
bygging, viðhald og rentur af
byggingarkostnaði.
Enginn veit hvernig framleiðsl
tinni verður háttað eftir 20—30—
40 ár, né hvernig þá hentar bezt
að búa að húsum við búskapinn.
Þess vegna er ráðlegt að líta í
kringum sig og athuga hvort ekki
er hægt að byggja á einfaldari
©g ódýrari hátt, og það þótt bygg-
ingarnar verði ekki eins traustar
Og varanlegar.
Bóndi sá er nú byggir öll úti-
hús ný og vönduð að siðvenjú,
Og miðuð við mjólkurframleiðslu
eem aðalþátt búskapar, bindur
eér bagga stóra. Nordbö rekur
það þannig — allar krónutölur
norskar krónur, sem nú má marg
falda með 6,10 til þess að fá sam-
svarandi krónutölu í ísl. krónum.
— Stofnkostnaður 8—10.000 krón
ur á kú. Hin árlega húskostnaðar
byrði á kú verður 400—500 krón-
ur. Ef kýrin mjólkar 4000 lítra
verður það um 10—12 aurar —
norskir á lítra mjólkur. — Og
þessi skattur leggst á mjólkina
í 40—50 ár ef hún á að borga
brúsann — rentur og afborganir
af kúa-hótelinu með öllu því sem
því til heyrir.
Hvaða gildi þessar tölur hafa
á íslandi skal ég láta ósagt, en
ætli útkoman sé nokkuð betri
þar ef öll kurl koma til grafar?
Hin steinsteyptu vígi sem byggð
eru fyrir töðuna hvað þá annað
kosta sitt, og líklega væru hlöður
úr bárujárni með jarðfasta staura
sem uppistöður betri hús til hey-
geymslu — spurning?
Tæknin verður að komast inn
fyrir fjósdyrnar — á margan
hátt, og ér að nokkru táknrænt
sagt. — Mér detta t. d. í hug
mykjukjallararnir, er nokkurt
vit í að byggja þá eins og verið
hefir. Nú þarf að koma traktorn-
um að við að moka í mykju-
dreifinn, það er ekki hægt í
venjulegum mykjukjallara. Það
eru engin vinnubrögð að aka inn
í kjallarann eftir einni vélskóflu-
fylli af áburði í einu og út aftur
afturábak og hlaða þannig mykju
vagn með dreifi. Mykjukjallarar
sem' hægt er að athafna sig í
með vélum verða að vera svo
rúmgóðir og háir undir loft að
ekki verður neitt hóf á um kostn-
aðinn. Verður ekki opið eða hálf-
opið haugstæði lausnin? Það er
hægt að byggja þau hentug og
þrifaleg, en þó eru gallar á, t. d.
frostið. Annars hefi ég aðeins
einu sinni — á einum bæ — séð
sómasamlegt haugstæði á íslandi,
það var hjá Eggert á Meðalfelli
í Kjós, og hann vissi sínu viti
maðurinn sá.
Umræða er hér engin um að
hreinsa til og fjarlægja plantaðan
skóg og enginn kvíði plágar
menn þar að lútandi. í vor voru
gróðursettar alls um_80 millj. trjá
plantna. Haustplöntunin er eftir,
hún hefst í lok júlí og snemma
í ágúst, Og það er plantað út í
September. Er þess vænzt að
plantað verði um 50 millj.
plantna í haust, þannig að plönt-
unin í ár komist alls upp í 130
millj. í fyrra var það „bara“
103 millj. Áætlunin 1960—1970 er
að planta árlega um 150 millj.
Annars er þetta, að greina að-
eins hver margar plöntur eru
gróðursettar árlega harla lítils
verði, sérstaklega við þær ástæð-
ur sem eru á voru landi ís-
landi. Það er um að gera að
planta hvern teig að fullu, með
því einu móti fæst réttur árang-
ur, hversu mikið er „mannfallið"
t. d. á Heiðmörk? Hve margar
plöntur þarf til þess að fullgera
hvern ha? Það er, að frumplanta
á fyrsta ári, og planta í eyðurnar
2—3 næstu ár. Hér eru menn yfir
leitt komnir yfir þann barnasjúk-
dóm að vanrækja að fullplanta
hvern teig. Eru ísl. skógræktar-
menn alheilbrigðir að þessu
leyti? Eru ekki víða eyður í, þar
sem plantað hefir veiið á undan-
förnum árum? Ég er smeikari við
þann ágalla heldur en hitt að fá-
ein barrtré á Þingvöllum valdi
þjóðarháska, svona næstu áratug-
ina.
Nýjar kartöflur kosta nú 57
aura kílóið. Gulrætur 57 aura.
Blómkál 2,10 kr. kílóið. Hvítkál 70
aura. Gulrófur 60 aura kílóið.
Nýtt lambakjöt — súpukjöt —
11,70 kr. — læri 12,35 kr. kílóið.
Svínakjöt — rifjasteik — 12,70
kr. kílóið. Egg 8,25 aura kílóið.
Hér er ekbert greint á milli sum-
arslátrunar og venjulegrar slátur
tíðar, og fjárslátrun er nú í full-
um gangi, á Stafangurssvæðinu
var slátrað um 7000 fjár vikuna
sem leið.
Hvernig rímar þetta við verðið
í Reykjavík þegar margfaldað er
með 6,08 — 6,10, eins og verður
að gera þegar norskur gjaldeyrir
er reiknaður um í íslenzkan og
yfirfærslugjaldi m. m. bætt við
hið skráða gengi bankanna.
22. ágúst 1961
Greinargerð náttúrufræðinga
um launakjör þeirra
UNDANFARIN ár hafa launakjör
íslenzkra náttúrufræðinga í þjón
ustu ríkisins verið miklum mun
lakari en starfsbræðra þeirra í
nágrannalöndum. Hefur munur-
inn farið vaxandi og er nú orðinn
meiri en svo, að við verði unað.
Laun íslenzkra náttúrufræð-
inga hafa einnig versnað miðað
við laun ýmissa hérlendra sér-
fræðinga, sem þeir eiga þó sam-
leið með vegna sambærilegrar
menntunar og svipaðrar ábyrgð-
ar. Má hér t.d. nefna verkfræð-
inga og lyfjafræðinga.
Þótt sérfræðingar þessir njóti
nú mun betri kjara en náttúru-
fræðingar, fer því fjarri, að kjör
þeirra séu eins góð og vera ætti,
þegar tekið er tillit til námskostn
aðar, tekjutaps á námsárum og
ábyrgðar í starfi. Verkfræðingar
hafa því gert kröfur til hærri
launa og eiga, þegar þetta er rit-
að, í verkfalli til að fá þeim fram
gengt.
Þar sem náttúrufræðingar telja
eðlilegt, að þeir njóti sömu kjara
og verkfræðingar, þykir rétt að
lýsa nokkuð kröfum þeirra, og
er þá stuðzt við upplýsingar í
grein Hinriks Guðmundssonar,
verkfræðings, í Morgunblaðinu
11. ágúst 1961. Má í eftirfarandi
töflu sjá, hvaða mánaðarlauna
íslenzkir verkfræðingar krefjast,
en þau fara hækkandi eftir starfs
aldri. Til samanburðar er einnig
getið mánaðarlauna danskra verk
fræðinga í ríkisþjónustu.
14—15 17.000 18.515 5% — 8% 14.307
15—16 17.000 19.303 8% — 11% 15.058
16—17 17.000 19.303 11% — 14% 15.851
17—18 17.000 19.303 Meira en 14% * 16.694
18—19 17.000 19.303
19—20 17.000 19.303 Mánaðarlaun þau, sem hér eru
20 ár og meira 17.000 20.878 tilgreind, eru lágmarkslaun. Eftir
3
’ji
Ár
0—1
1—2
2— 3
3— 4
3—4
5— 6
6— 7
7— 8
8— 9
9— 10
10—11
11—12
12— 13
13— 14
£ *
- «
r.S
t, w .
& « ts
<2 H «
c SJ
5 £ 2
£ > M
Kr.
9.000
11.000
12.000
13.000
13.000
14.000
14.000
15.000
15.000
15.000
16.000
16.000
16.000
17.000
> s
«
ei c/j
^ > 2
1*1
«2 B *-
Jl ,
co ro
>-i a w
d so C3
W Ö rt
gS”
•« 9i »
£ * >
Kr.
10.242
10.951
11.424
11.370
12.370
13.788
13.788
14.969
14.969
16.151
16.151
17.333
17.333
18.515
Fyrir rösklega tveimur og
hálfu ári leitaði Félag íslenzkra
náttúrufræðinga upplýsinga um
launakjör náttúrufræðinga er-
lendis. Var ákveðið að miða
við veðurfræðinga, þar sem þeir
eru fjölmennasti starfshópur ís-
lenzkra náttúrufræðinga, veður-
stofur eru í flestum löndum og
störf veðurfræðinga hvarvetna
svipuð.
Kom í ljós, að veðurfræðing-
ar eru illa launaðir hér á landi,
t.d. miðað við aðstoðarmenn á
veðurstofum. Þurfa laun veður-
fræðinga hér að hækka verulega
til þess að launahlutfallið milli
þeirra og aðstoðarmannanna
verði hið sama og á hinum Norð-
urlöndunum, eða að meðaltali í
16 Evrópulöndum, sem skýrslur
liggja fyrir um, eða 34 löndum í
öllum heimsálfum. En hér á
landi er mjög lítið tillit tekið til
menntunar, námskostnaðar og
ábyrgðar við ákvörðun launa.
Athugun á launakjörurh veður
fræðinga í Danmörk, Noregi og
Svíþjóð leiddi i ljós, að byrj-
unarlaun veðurfræðinga voru
þar hærri en hámarkslaun veður-
fræðinga á fslandi, en launin
fóru hækkandi með vaxandi
starfsaldri, og hámarkslaunin
voru miklu hærri en hér á landi.
Hámarkslaun íslenzkra veður-
fræðinga, sem og annarra náttúru
fræðinga, hafa undanfarið verið
kr. 6.525 á mánuði, en boðuð hef-
ur verið 13,8% hækkun sem af-
leiðing af kauphækkunum og
gengisfellingu nú í sumar. Verð-
ur mánaðarkaupið því á næst-
unni kr. 7.425. Til samanburðar
eru hér birt mánaðarlaun
sæ'nskra veðurfræðinga með fil.
kand. prófi eins og þau voru í
ársbyrjun 1959 umreiknuð í ís-
lenzkar krónur eftir núverandi
sölugengi.
Mánaðarlaun
sænskra veður
fræðinga í árs
byrjun 1959
Starfsaldur
Ár
0—1%
1% — 3%
3% — 5%
ísl. kr.
10.492
11.636
12.896
14% árs starf eru mánaðarlaun
sænskra veðurfræðmga með fil.
kand. prófi því að rninnsta kosti
kr. 16.694 á mánuði. Meiri mennt
un og ábyrgðarstörf geta veitt
hraðari launahækkanir og hærri
laun.
Eitt af því, sem gerir kjör nátt-
úrufræðinga óhagstæðari á ís-
landi en í nágrannalöndum, er
það, að ábyrgðar- og stjórnar-
störf eru ekki launuð að verð-
leikum. Sem dæmi má enn taka
veðurfræðinga. Á Veðurstofu ís-
lands fyrirfinnast deildarstjórar,
sem fá enga aukaþóknun fyrir
deildarstjórn, þ. e. mánaðarlaun
þeirra verða kr. 7.425, þegar boð-
uð 13,8% hækkun hefur komið
til framkvæmda. Til samanburð-
ar má nefna, að mánaðarlaun
deildarstjóra sænsku veðurstof-
unnar eru ýmist kr. 20.817 eða
kr. 23.088. Rétt er að geta þess
hér, að flestar deildir sænsku
veðurstofunnar eru stærri en
deildir Veðurstofu íslands, en svo
er þó ekki í öllum tilfellum.
Einn af deildarstjórum sænsku
veðurstofunnar hefur einungis
yfir að segja einum aðstoðar-
manni og sem næst hálfum skrif-
stofumanni, en mánaðarlaun hans
eru engu að síður kr. 20.817.
Æðstu yfirmenn sænsku veður-
stofunnar hafa hærri laun. Næg-
ir hér að nefna, að mánaðarlaun
eins þeirra eru kr. 29.799, og heyr
ir sá beint undir veðurstofustjóra.
Hér að framan hefur verið vik-
ið að því, að íslenzkir náttúru-
fræðingar telja sig eiga að njóta
sömu kjara og verkfræðingar.
Námstími náttúrufræðinga er
sízt styttri en verkfræðinga, og
störf þeirra engu vandaminni.
Það er að vísu rétt, að þjóðhags-
legt gildi starfa verkfræðinga er
mjög mikið, en svo er einnig um
störf náttúrufræðinga. Flestum
hugsandi mönnum mun t.d. ljóst
mikilvægi starfa fiskifræðinga
fyrir þjóðarbúið, annarsvegar
við leit nýrra fiskimiða og leið-
sögn við veiðar, hins vegar við
verndun fiskistofna í þeim til-
gangi að tryggja fyllstu nýtingu
þeirra. Sé vikið að öðrum hóp;
náttúrufræðinga, veðurfræðing-
um, þá er þjóðhagsgildi starfa
þeirra einnig mjög mikið, enda
hefur veðrið gagnger áhrif á
flesta starfsemi landsmanna. Al-
menningi mun t. d. ljóst, að með
réttri veðurspá má stundum forða
stjórtjóni á lífi og eignum. Færri
munu hins vegar hafa hugleitt,
að nákvæmar veðurspár gera
kleift að nýta fleiri veiðidaga en
ella og að halda áfram að nefna
dæmi um mikilvægi starfa nátt-
úrufræðinga, en það verður ekki
gert hér. Hins vegar skal bent á,
að störf náttúrufræðinga, verk-
fræðinga Og annarra tækni- og
vísindamanna eru sá grundvöllur,
er byggja verður á sókn þjóðanna
til bættra lífskjara.
Það er skoðun íslenzkra nátt-
úrufræðinga, að nauðsynlegt sé
að gera nú þegar stórfelldar breyt
ingar til hækkunar á launakjör-
um þeirra. Yænta þeir, að les-
endur þessarar greinargerðar
sannfærist um að svo sé.
— Afmæli
Framh. af bls 14.
hjónin eiga 3 myndarleg og vel-
gefin börn, uppkominn son, Vil-
helm Ragnar, sem enn er heima
hjá íoreldrum sínum og 2 elsku-
legar dætur Gunnhildi Kristínu
og Helgu Elísabet sem eru á
bernskuskeiði. Fyrir 13 árum
urðu þau fyrir þeirri þungu sorg,
að missa tveggja ára efnis dreng
af slysförum. Hann hét Gunnar.
Að lokum þetta. Eg þykist vita,
að Kristinn verði mér ekkert
þakklátur þegar hann les þessar
línur, því maðurinn er hlédræg-
ur og ósýnt um allt, sem hann
teldi að höfðaði nærri hóli um
sig. Eg veit líka, að hjónin af
sömu ástæðum, dvelja nú í dag
fjarri sínu yndislega heimili, í
von um að geta á þann hátt flú-
ið örlög afmælisdagsins, og vera
má að þeim takizt það. — En
það er engin miskun hjá Magnúsi,
eins og þar stendur, og þó ég
skilji þessar tiltektir og virði þær
mikils, þá get ég samt ómögu-
lega neitað mér um þann mun-
að, að senda þessum aldavini
mínum og góða dreng afmælis-
óskir okkar hjónanna, þar sem
hann nú stendur með aldarhelm-
ingana í bak og fyrir, beinn og
fagurlimaður eins og forðum á
Jónsmessunóttum ævinnar í
þeirri björtu veröld, þegar lífs-
vonin í brjóstum okkar fór sig-
urför um heiminn. — Og þess-
um hamingjuóskum fylgja hjart-
ans kveðjur og þakkir til þeirra
hjónanna fyrir órofa vináttu og
tryggð.
Hallgrímur Th. Björnssoo