Morgunblaðið - 06.09.1961, Síða 22
22
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvik'udagur 6. sept. 1961
Bandarískur körfubolta-
þjálfari kennir hér
ÍÞROTTAKENNARAR sitja
þessa daga á námskeiði hér í
Reykjavík og nema ýmsar sér-
greinar á íþróttasviðinu. Ein
þeirra er körfuknattlekiur og er
kennarinn bandarískur Clarence
Hodges Wyatt. Kemur hann hing-
að á vegum íþróttakennaraskóla
íslands sem heldur námskeiðið,
en mun jafnframt kenna á nám-
skeiðum sem skólinn ásamt Körfu
knattleikssambandinu efnir til
fyrir áhugaþjálfara og hina
frjálsu íþróttahreyfingu.
Jc Góður þjálfari kominn
Körfuknattleikssambandið hef-
ur iengi unnið að því að fá hing-
að þjáifara og tókst það loks fyrir
lipra og góða milligöngu Upplýs-
ingaþjónustu Bandaríkjanna. Er
Mr. Wyatt vel menntur í sinni
grein og er starfandi kennari í
háskóla í Bandaríkjunum.
Wyatt sagði við blaðamenn í
gær að hann hyggði gott til dval-
annnar hér. Mér lízt vel á það
sem ég hef séð, en á eftir að kynn
ast fleiru. Ég er reiðubúinn til
starfs hvenær sem er sólarhrings
— tilbúinn að vinna þótt í dag
sé „frídagur verkalýðs“ í Banda-
ríkjunum.
■k Tvö námskeið
Körfuknattleikssambandið efn-
ir til tveggja námskeiða í þessum
mánuði með Wyatt sem kennara.
Verður það í fyrsta lagi dómara-
námskeið og í 2. lagi þjálfara-
námskeið. Dómaranámskeiðið
hefst n.k. laugardag kl. 2 og
stendur þann dag og sunnudag-
inn og næstu helgi þar á eftir.
Verður farið yfir reglurnar með
hinum nýju breytingum sem voru
gerðar í Róm, en þær voru mikl-
ar og er því hverjum dómara og
leikmanni nauðsyn að kynnast
þeim. Eru körfuknattleiksmenn
hvattir til að láta þetta tækifæri
ekki úr greipum ganga.
Námskeið fyrir áhugaþjálfara
Og aðra er vilja, hefst 11. sept. og
stendur yfir til 22. sept. Verður
farið í ýmis tæknileg atriði með
hjálp körfuknattleiksmanna — og'
verða „tilraunadýrin" landsliðs-
mennirnir. Námskeiðið fer vænt-
anlega fram í Gagnfræðaskóla
Austurbæjar. Er skorað á alla
körfuknattleiksmenn að nota sér
þetta einstæða tækifæri til að
kynnast þjálfun.
Stjórn KKÍ er mjög þakklát
Upplýsingaþjónustu Bandaríkj'
anna fyrir fyrirgreiðsluna við út'
vegun þessa góða kennara.
ic Margt á prjónunum
KKÍ hefur fleira á prjónunum
rn. a. tækniþrautir að sænskri
fyrirmynd. Þá verður efnt til
hraðkeppni í lok september á
Keflavíkurvelli með þátttöku
2—3 liða af Keflavíkurvelli auk
ísl. liða. Þjálfari verður sendur
til Norðurlands ef fært þykir og
hinn bandaríski þjálfari mun
væntanlega gista Akureyri í viku.
En öllu þessu verður nánar skýrt
frá síðar.
Mynd þessi var tekin í kaffi-
boði er Ungmennasamband
Borgarfjarðar hélt fyrir full-
trúa og gesti á ársþingi ÍSl
um sl. helgi að Bifröst. Sýnir
hún Óskar Ágústsson, sam-
bandsstjóra Héraðssambands
Suður-Þingeyinga afhenda
Ragnari Olgeirssyni sambands
stjóra UMSB „styttu háttvís-
innar“ en styttuna unnu Borg
firðingar fyrir beztu fram-
komu á leikvelli og utan hans
á Iandsmóti UMFÍ í sumar.
I
Waern dæmdur frá
Enska knattspyrnan
5. UMFERÐ ensku deildarkeppn-
innar fór fram sl. laugardag og
urðu úrslit þessi:
1. deilð:
Birmingham — Leicester ........ 1:5
Blackburn — Wolverhampton _____ 2:1
Blackpool — Manchester U....... 2:3
Bolton — Arsenal ............. 2:1
Chelsea — Fulham .............. 0:0
Everton — Sheffield W ......... 0:4
Manchester City — Burnley...... 1:3
Sheffield U. — Aston Villa .... 0:2
Tottenham — Cardiff .......... 3:2
W.B.A. — Ipswich............... 1:3
West Ham — N. Forest ......... 3:2
2. deild:
Brighton — Bury .............. 0:2
Bristol Rovers — Sunderland__..„ 2:3
Leeds — Rotherham ............. 1:3
Luton — Huddersfield ......... 3:4
Middlesbrough — Preston ...... 1:0
Newcastle — Plymouth .......... 0:2
Norwich — Liverpool ........... 1:2
Southampton — Swansea ........ 5:1
Stoke — Derby ................. 1:1
Walsall — Leyton Orient ....... 1:5
Scunthorpe — Charlton ......... ?:?
Staðan er nú þessi:
1. deild (efstu og neðstu Iiðin)
Sheffield W. 5 4 0 1 17:7 8
Manchester City 5 4 0 1 14:10 8
Manchester U. 5 3 1 1 13:8 7
í
IBK vann
stóran sigur
yfir Þrótti í bik-
arkeppninni
BIKARKEPPNI KSÍ hélt áfram
á Njarðvíkurvelli á laugardag-
inn. Þar áttust við b-lið Þróttar,
6em sigraði b-lið Akurnesinga
á dögunum og a-lið Keflavíkur
sem hélt nú sinn fyrsta leik í
keppninni.
Framan af stóðu Þróttarar
nokkuð í Keflvíkingum, en er
líða tók á hálfleikinn náðu Kefl-
víkingar öruggum tökum á
leiknum, skoiuðu 3 mörk fyrir
hálfleikslok. Síðari hálfleikur-
inn færði ÍBK hinsvegar tíu
mörk, eða rúmlega mark á
Ihverjar 5 mínútur.
Þróttarar stilltu nú upp mun
lakara liði en gegn Akranesi og
vantaði 7 af þeim leikmönnum,
sem þá léku. Næsti leikur ÍBK
verður einnig gegn Þrótti, nú
a-liðinu, og líklega komast Suð-
urnesjamena ekki upp með að
skora 13—0 í það skipti.
Tottenham
Fulham
Birmingham
W.B.A.
5 3 11 12:10 7
5 113 7:9 3
5 113 6:14 3
5 1 0 4 4:9 2
3. deild (efstu og neðstu liðin)
Liverpool 5 5 0 0 16:2 10
Bury 5 4 0 1 10:4 8
Leyton Orient 5 3 1 1 10:5 7
Preston 5 113 4:8 3
Charlton 5 0 2 3 5:14 2
Bristol Rovers 5 0 0 5 2:12 0
Alþjóðasamband frjáls-1
íþróttamanna gaf í dag út til-
kynningu, þar sem segir að
Svíinn Dan Waern sé frá deg-
inum í dag að telja útilokaður
frá keppni. „Gildir keppnris-
bann hans um alla milliríkja-
keppni og hefur öllum aðild-
arríkjum alþjóðasambandsins
verið send tilkynning um
bannið“.
Alþjóðasambandið tók þessa
ákvörðun eftir að sænska sam-
bandið hafði hundsað með öllu
ýmsar fyrirspurnir sem al-
þjóðasambanrdið sendi því
varðandi greiðslur þær er
Waern hefur fengið fyrir þátt
töku í íþróttakeppni. Sænska
sambandið hefur hvorki játað
né neitað spurningum um það
hvort Waern hafi fengið meiri
greiðslur en heimilar eru sam-
kvæmt alþjóðalögum þar um.
Upphaf málsins er þaS að
Waern skrifaði í fyrra grein í
tímarit þar sem hann komst svo
að orði, að hann gæti ekki skoð-
að sjálfan sig sem áhugamann.
Sænska sambandið tók málið þá
til athugunar. ákvað að dæma
hann ekki, en veitti honum áminn
ingu.
Síðan hefur Waern verið í sviðs
ljósinu og sífellt umdeildur vegna
þess að grunur leikur á að hann
taki meira fé fyrir þátttöku í
keppni en heimilt er.
Waern er 28 ára gamall, einn
fremsti hlaupari heims. Hann
hefur 6 sinnum sigrað í mílu«
hlaupi á skemmri tíma en 4 mín.
Hann varð 4 í 1500 m hlaupi í
Róm 1 fyrra.
Hvað þarf til að komast í landslið?
10 af 11 monnum tilraunalandsliðs valdir til Englandsfarar
Landsliðsnefndin valdi í
gær það 16 manna lið sem
heldur til Englands sem lands
lið íslands. Hún tók sér frest
fram yfir helgi að velja hið
endanlega landslið. Þegar þess
er gætt hvaða 16 menn lands-
liðsnefndin valdi, þá er skilj-
anlegt að nefndin tæki sér
hvíld fram. yfir helgi til að
velja endanlega liðið.
Þeir 16 er nefndin valdi til
Englandsfararinnar eru þessir.
Markverðir: Helgi Daníels-
son, Heimir Guðjónsson.
Bakverðir: Arni Njálsson,
Hreiðar Ársælsson, og Jón
Stefánsson.
- Framverðir: Garðar Arna-
son, Hörður Felixson, Sveinn
Teitsson og Helgi Jónsson.
Framherjar: Ingvar Elísson,
Gunnar Felixson, Þórólfur
Beck, Ellert Schram, Jakob
Jakobsson, Steingrímur
Bjömsson og Þórður Jónsson.
Þeir sem sáu leik landsliðs-
ins og pressuliðsins s.l. sunnu-
dag kemur valið allkynlega
fyrir sjónir. Þar bar pressulið
ið af landsliðinu í öllum grein
um knattspyrnunnar. Lands-
liðsnefndin fellir þann dóm
yfir liðunum að 10 af völdum
mönnum landsliðsins eru vald
ir til Englandsfarar — 6 af
því liði er sýndi yfirburði í
öllum greinum knattspyrn-
unnar.
Og eins og landsliðsnefndin
getur valdið þennan 16 manna
hóp getur hún eins valið hið
endanlega 11 manna lið. Þeg-
ar hún nú velur 10 af þeim
11 mönnum er hún valdi í
„landsliðið" s.l. sunnudag, virð
ist beinast að álíta að hún
ætli að hafa þessa 10 í hinu
endanlega landsliði og þá
skipta um mann í einni stöðu
og vinstri útherjastöðu og er
þá líklegast að spá því að
Jakob Jakobsson hljóti þá
stöðu.
Þessi stöðubreyting yrði í
samræmi við breytingar á úr-
valsliðum landsliðsnefndar að
undanförnu. Hún hefur við
hvern ósigurinn að öðrum tek-
ið það bjargráð að skipta um
vinstri útherja — og virðist
ætla að halda þeim kæk
áfram.
— Hvað þarf til að vinna
sig inn í landslið?
Þessa spurningu lögðum við
fyrir einn af landsliðsnefnd-
armönnum í gærdag. Við feng
um ekkert svar. Skiljanlegt.
Þessi spurning er spennandi
nú. Hví ekki að svara mönn-
um sem æfa — og æfa vel,
mönnum sem standa sig — og
standa sig vel, mönnum eins
og Bjarna Felixsyni, Ormar
Skeggjasyni og Birni Helga-
syni. Þeir, félagar þeirra og
unnendur góðrar knattspyrnu
þreytast á því ef vegið er í
knérunn góðrar knattspyrnu
skipti eftir skipti, aðeins til að
þóknast duttlungum einhverr-
ar nefndar sem telur sig, án
skýringa, geta gengið fram hjá
almenningsdómi um jafn
vinsælt og almennt mál og
frammistaða á leikvelli er.
Landsliðsnefnd á kannski
ekki að breyta liði sínu þegar
leikmenn bregðast í fyrsta
sinn. En þegar leikmenn bregð
ast leik eftir leik og aðrir sýna
góða frammistöðu leik eftir
leik. Er þá hægt að berja höfð
inu í steininn?
ísl. knattspyrnan er ekki
auðug af góðum leikmönnum.
Sá sem er góður að vori og
kannski sjálfsagðastur í lands-
lið er jafnvel ótækur í liðið
að hausti. Sá sem er lélegur
að vori er kannski*bezti mað
urinn um haustið.
Þessi sára staðreynd um
skeikulleika ísl. knattspyrnu
sést hjá einstaklingum — hún
sést hjá félögum og — blasir
alls staðar og alltaf við. En
samt sem áður heldur lands-
liðsnefndin í sína „gömlu“
menn — skipti eftir skipti.
Kann að vera að þeir allir
verði beztir að vori, en liðið
sem nefndin stillti upp síðasta
sunnudag er bara ekki bezta
lið landsins í dag. Og því þá
ekki að breyta um. Það er
ekki — að minnsta kosti á
ekki — að vera veita einhverj-
ar framtíðarstöður.
Þvert á móti er allur áhugi
nýrra og ungra manna drep-
inn ef ekki er fylgst með getu
þeirra. Hvað hafa menn eins
og Bjarni, Ormar og Björn
ekki sýnt? Hversu marga bar-
áttu og harða og góða hafa
þeir ekki sýnt? Og svo verða
þeir að víkja og lúta fyrir
mönnum sem sýna verri leik
að allra dómi. Það er þetta
sem kemur af stað tali um
klíku. Og slíkt er skiljanlegt.
En það er ennþá eftir að
velja í liðið endanlega. Þessir
þrír fá kinnhestinn nú, þrátt
fyrir góða frammistöðu. Á
mánudaginn verða það kanski
enn fleiri. Við skulum bíða og
sjá — og allir vona auðvitað
að landsleikurinn fari svo
mjög vel — en hvernig eiga
menn að trúa því að sú von
rætist? A.St.