Morgunblaðið - 08.09.1961, Side 6

Morgunblaðið - 08.09.1961, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Foetudagur 8. sept. 1961 Frá listsýningu Listafélags Föroya á Ólafsvökuhátíðinni. — Á myndinni sjást tvö af listaverk- um Ólafar Pálsdóttur. íslenzk listakona synir i Færeyjum (ílöf Pálsdóttir var gestur Lista fél. Færeyja á Úlafsvökusýningu IISTAFÉLAG Færeyja gekkst í sumar að vanda fyr- Ir stórri listsýningu í Tórs- havn á Ólafsvökuhátíðinni. Bauð félagið nú í fyrsta skipti íslenzkum listamanni, Ólöfu Pálsdóttur mynd- höggvara, að taka þátt í sýn- ingunni sem gestur félagsins. Tók hún boðinu og sendi þangað 8 listaverk eftir sig, ásamt myndum af nokkrum öðrum verkum sínum. Listsýningin var mjög mikið sótt og betur en nokkru sinni áður. Komst Dimmalætting m.a. þannig að orði að hún hafi hrifið áhorfendur. Verk hinnar íslenzku listakonu vöktu þar sérstaka athygli. I formála fyrir sýningarskrá var listamannsferill Ólafar Páls dóttur rakinn á þessa leið: „Ólöf Pálsdóttir er íslendingur en ekki óþekkt í Færeyjum. Hún átti heima í Tórshavn á Stríðsárunum og faðir hennar var hér íslenzkur konsúll. Hún er fædd í Reykjavík en hóf list- nám sitt í Danmörku á Frede- riksberg tekniske skole árið 1947. Síðan stundaði hún nám í konunglega danska listaháskól- anum árin 1949—1955 og var prófessor Utzon Frank aðalkenn- ari hennar. Árið 1955 voru henni veitt gullverðlaun Listaháskólans. Árið 1954 stundaði hún í hálft ár listnám í Egyptalandi og 1957 dvaldi hún í hálft ár við nám í Róm í boði ítalska menntamála- ráðuneytisins. Hún hefur ennfremur stund- að nám og farið námsferðalög til Grikklands, Frakklands, Spán ar, Englands og Bandaríkjanna. Ólöf Pálsdóttir hefur tekið þátt í mörgum listsýningum, eins og t.d. á Charlottenborg, Haustsýningunni (Den frie) og Norrænu listsýningunni í Od- ense 1959. Listaverk hennar hafa hlotið góða dóma hjá gagn- rýnendum á Norðurlöndum. — Ennfremur hefur hún oft tekið þátt í sýningum á íslandi. 1 haust mun hún taka þátt í Norðurlandasýningunni í Reykja vík. Opinberar stofnanir hafa einn ig keypt listaverk af henni, m. a. Búnaðaranki íslands, Lista- safn ríkisins, Árósaborg, Reykja víkurbær, Verzlunarskóli ís- lands og íslenzka aðalræðis- mannsskrifstofan í Genúa. Ólöf Pálsdóttir sýnir nú í fyrsta skipti verk sín í Fær- eyjum sem gestur Listafélags Föroya“. William Heinesen skáld og listmálari ritaði einnig grein í sýningarskrána, sem hann nefndi Listamaðurinn og áhorf- andinn. Formaður Listafélags Færeyja er Hanus við Högadalsá. Vaxandi æskulýðsstarf í hinu forna Hólastifti SIGLUFIRÐI, 5. sept. — Þing æskulýðssambands kirkjunnar í hinu forna Hólastifti var háð hér á Siglufirði um s.l. helgi. Þingið sóttu 10 prestar en alls voru þingfulltrúar 37 frá 7 æsku- lýðsfélögum kirkjunnar, auk þriggja unglinga frá Bandaríkj- unum, sem dveljast nú hér á landi á vegum unglingaskipta þjóð- kirkjunnar. l’ingið hófst kl. 4 á laugardag á kirkjuloftinu, þar sem Gagn- fræðaskólinn var starfræktur til skamms tíma. Sr. Ragnar Lár- usson, sóknarprestur hér, bauð þingfulltrúa velkomna. En sr. Pétur Sigurgeirsson á Akureyri setti þingið og minntist æsku- lýðsleiðtogans Friðriks Frið- rikssonar og sálmaskáldsins Valdemars Snævarrs. Þingið ræddi einkum eflingu félags- starfseminnar meðal kristinnar æsku í landinu og blaðaútgáfu, en æskulýðssamtök þjóðkirkj- unnar gefa út málgagn, sem sr. Sigurður Haukur Guðjónsson ritstýrir. Auk annarra mála í sambandi við æskulýðsmótið var frumsýnd hér kvikmynd um líf og starf Alberts Schveitzérs, Óskarsverðlaunamynd, sem æskulýðssamband kirkjunnar í Hólastifti á. Þingfulltrúar allir sátu boð presthjónanna á Siglu- firði. Á sunnudag var hátíðaguðs- þjónusta og predikaði æskulýðs- fulltrúi þjóðkirkjunnar, sr. Ól- afur Skúlason, en hann og kona hans voru gestir þingsins. Altaris- þjónustu önnuðust sr. Birgir Snæbjörnsson og sr. Þórir Step- hensen. Að lokinni predikun var altarisganga og önnuðust hana sr. Ragnar Fjalar Lárusson og sr. Sigurður Guðmundsson á Grenjaðarstað. Á sunnudags- kvöld var kirkjukvöld. Þar flutti sr. Sigurður Haukur Guðjónsson erindi um vandamál kirkjunnar í dag. Kirkjukór Siglufjarðar söng og bandarísku unglingarn- ir fluttu kveðjur frá kirkjudeild um sínum. Að lokinni guðsþjón- ustu sátu þingfulltrúar og fleiri boð sóknarnefndar, sem formað- ur hennar Andrés Hafliðason stýrði. Þing þetta var háð í sambandi við kirkjudag Siglfirðinga, sem árlega er haldinn í sambandi við afmæli kirkjunnar um mánaða- mótin ágúst—september. Þingið var ánægjulegur vottur um vax- andi æskulýðsstarf kirkjunnar í hinu forna Hólastifti. — Stefán. Kvöldskóli K. F. U. M. HINN 1. september hófst innrit- un nemenda í Kvöldskóla K.F.U. M., og fór hún fram í verzlun- inni Vísi, Laugavegi 1. Kvöldskóli K.F.U.M. er fyrst og fremst ætlaður piltum og stúlk um, sem stunda vilja gagnlegt nám samhliða atvinnu sinni, og eru þessar námsgreinar kenndar: íslenzka, danska, enska, kristin- fræði, reikningur, bókfærsla og handavinna stúlkna í yngri deild, en auk þess upplestur og íslenzk bókmenntasaga í framhaldsdeild. Inntökuprófs er ekki krafizt, en skólavist geta þeir hlotið, sem lokið hafa lögboðnu skyldunámi. Einnig er þeim nemendum, sem lokið bafa námi 1. bekkjar gagn. fræðastigsins, heimilt að sækja skólann. Að loknu burtfaraprófi úr Kvöldskólanum hafa þeir full* nægt skyldunámi sínu. Skólinn starfar aðeins í tveim deildum, byrjenda- og framhalds deild. Er fólki eindregið ráðlagt að tryggja sér skólavist sem allra fyrst, en umsækjendur eru tekn- ir í þeirri röð, sem þeir sækja um, þar til bekkirnir eru fullskip- aðir. — Skólasetning fer fram mánudaginn 2. október kl. 7,30 síðdegis í húsi K.F.U.M. og K, við Amtmannsstíg. Nauðsynlegt er að nemendur hafi meðferðis einkunnaspjöld síðasta skólaárs Þess er vænzt að umsækjendur mæti við skóla- setningu eða sendi einhvern x sinn stað. Annará kann svo að fara, að aðrir verði teknir í þeirra stað. KAIRO, 6. sept. (NTB-Reuter). — Talsmaður Arababandalagsins tilkynnti í dag að umhelginayrðu 3.300 hermenn frá Arabaríkjun- um sendir til Kuwait til að taka við af brezka varnarliðinu þar. ekki verið „auðvaldsáróður" og hún fékk passann sinn. • Ánægð með íslandsferðina • Hlusta gaumgæfilega Magnús Finnbogas., mennta skólakennari, leggur orð í belg í sambandi við skrifin um merkingu orðtækisins ,,að þegja þunnu hljóði.“ Kveðst hann vera sammála bréfritara, sem færði rök að því að þetta þýddi að leggja við þunnt eyra eða hlusta gaumgæfilega, en ekki að steinþegja, eins og það sé mikið notað af stjórnmála- mönnum. • Ekki auðvalds- •HHHBHHHMHSHBIMHI áróður“ Ummæli knattspyrnumanns ins, sem fór til Rússlands, í viðtali hér í blaðinu, að allt hafi virst þar falt fyrir tyggi- gúmmí, minnti unga sjómanns konu á eftirfarandi sögu: Hún fór til Rússlands með manni sínum ' sumar. í rúss- neskri höfn fékk hún passa, sem veitti henni réttindi til að fara í land. Svo varð henni það á að gefa barni sem hún hitti í biðskýli tyggigúmmí. Einhver hafði kært athæf- ið og hún var svift landgöngu passanum. Skipamiðlarinn g«kk svo í málið og eftir mikið þref var það leiðrétt, að þetta hefði ☆ FERDIIMAND ☆ Oft hefur í þessum dálkum verið fundið að þjónustu sem ferðamenn fá á íslandi. En í bréfi ,sem Marian Wells Irwin dóttir Abigail Þórðardóttur frá Hattardal I Álftafirði í Norður-ísafjarðarsýslu skrif- ar frá Bandaríkjunum kveð- ur við annan tón. Hún segir: „Við erum að koma úr tveggja mánaða ferð um Evrópu, þar er meðtalin vikudvöl á íslandi. Eg og son- ur minn erum sammála um að ísland tekur öllum 17 löndunum, sem við komum í, fram. Starfsfólk Hótel Borgar, bæði í gistihúsinu sjálfu og í veitingasalnum, var bæði gest- risið og mjög kurteist í fram komu. Verzlanirnar, sem við komum í, veittu prýðilega þjónustu og allt afgreiðslu. fólk var mjög hjálpsamt. Þeir íslendingar, sem við bundumst vináttuböndum við og íslenzk gestrisni þeirra sem við hittum gerir það að verk- um að okkur langar svo sann- arlega til að koma aftur og erum hreykin af að vera ís- lendingar.“ Það er ánægjulegt að geta birt svona bréf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.