Morgunblaðið - 10.09.1961, Qupperneq 15
Sunnudagur 10. sept. 1961
MORGUNBLAÐIÐ
15
j'
Páll Pálsson bóndí í Þúfum
Sjötugur i dag
í DAG á Páll Pálsson sjötugsaf-
mæli. Hann er fæddur að Prests-
foakka í Hrútafirði í Strandasýslu
sonur merkishjóanna Páls Ólafs-
sonar, síðast í Vatnsfirði, Páls-
sonar dómkirkjuprests í Reykja-
vík og konu hans Guðrúnar Ólafs
dóttur sekretera í Viðey Stephen-
sens Og Arndísar Pétursdóttur,
Friðrikssonar Eggerz í Akureyj-
um og Jakobínu Pálsdóttur amt-
manns Melsteð. Standa að Páli
merkar ættir í föður og móður-
ætt langt aftur í tímann, sem
ekki verða frekar raktar hér.
Fáll í Þúfum, eins og hann tíð-
ast er kallaður hér í héraðinu,
ólst upp hjá foreldrum sínum
ásamt fjölmennum systkynahóp,
á mannmörgu myndar- og raúsn-
arheimili.
Árið 1901 fluttist Páll með for-
eldrum sínum í Vatnsfjörð en það
ár var föður hans séra Páli Ólafs-
syni veitt Vatnsfjarðarprestakall.
f Vatnsfirði hafði áður verið
löngum vel búið.
Leið ekki á löngu þar til bú-
skapur séra Páls gerðist æði stór-
brotinn Og umfangsmikill.
Mun bústofn á jörðinni hafa
náð því að verða fjögur til fimm
hundruð fjár og 30 stórgripir.
í Borgarey sem liggur undir
Vatnsfjörð var þá árlega heyjað
um fimm hundruð hestar og hey-
ið flutt á land lengi vel á ára-
skipum þar til vélbátar komu til
sögunnar. Varpið í Borgarey
þurfti að hirða, sem gaf af sér
árlega fast að 100 pund af æðar-
dún. Hlunnindi voru og nokkur
af selveiði í Vatnsfirði.
Tók Páll ásamt bræðrum sin-
um og öðru starfsliði jafnan mik-
inn þátt í þeim starfsháttum er
fylgdu búskapnum í Vatnsfirði í
tíð foreldra hans, og telur hann
sér það hafa verið hollur skóli
undir lífsstarf hans.
Engrar menntunar utan heim
ilis síns naut Páll annarar en
tveggja vetra náms á Hvanneyr-
örskóla. Þaðan kom hann aftur að
loknu námi heim í Vatnsfjörð
vörið 1916. Hefur Páll sagt mér
að þá hafi faðir sinn sagt við
sig: „Nú skalt þú Páll minn taka
hér við allri bústjórn á heimil-
inu“, sem hann og gerði. Var
hann síðan ráðsmaður á búi föður
síns þar til hann tók búskapinn
í eigin hendur 1924 og bjó þar
á eigin hönd til vorsins 1929, en
þá flutti hann að Þúfum, sem
er annar næsti bær við Vatns-
fjörð.
Faðir Páls andaðist 11. nóv. ár-
ið 1928 en móðir hans fluttist að
Þúfum með Páli og dvaldi þar til
æviloka, dó 4. sept. 1937.
Mikil viðbrigði voru það fyrir
Pál að fara frá Vatnsfirði að Þúf-
, sem mátti þá teljast kotjörð,
illa húsuð og lítt ræktuð. Af tún-
inu í Þúfum fengust þá innan
við 100 hestburðir, enda það lítið,
stórþýft, grýtt og blautt.
En Páll fór ekki tómhentur
úr föðurgarði. Mun hafa flutt með
sér þaðan um 50 til 60 ær auk
annars bústofns er hann átti á
fóðrum í Vatnsfirði veturinn áður
en hann flutti að Þúfum. Liðu
fá ár frá því Páll byrjaði búskap
í Þúfum, þar til bú hans þar var
orðið gott og afurðaríkt. Studdist
hann fyrstu búskaparárin við all
mikinn heyskap á útengjum sem
þvarr eftir því sem ræktun túns-
ins jókst.
Hefur Páll sagt mér að mest
hafi hann fengið af túninu 550
hestburði og að þegar hann hætti
búskap í Þúfum hafi bústofn
hans verið 300 fjár, 6 kýr og 7
hestar.
Þegar á fyrsta búskaparári
sínu í Þúfum hóf Páll umbætur
á jörðinni. Byggði þá steinsteypt
íbúðarhús. Fylgdu þessum umbót
um mikil umsvif og erfiði. Allt
byggingarefni varð að flytja á
klökkum um langar óruddar götu
traðir. Kom þá að góðu, sem oft-
ar, mikill dugnaður og vinnu-
þrek Páls Og ósérhlífni við hvert
það verk, sem hann tekur sér
fyrir hendur. Telur hann þetta
fyrsta búskaparár sitt hið erfið-
asta í búskapnum.
Öll peningshús á jörðinni hefur
Páll og byggt upp og aukið túnið
mjög. Má telja að Þúfur séu nú
hin sætilegasta jörð. Beitiland er
þar frábærilega gott á svokölluð-
um Þúfnadal skammt frá bænum.
Árið 1919 kvæntist Páll Björgu
Jóhönnu Andrésdóttur, myndar
Og dugnaðarkonu, sem verið hef-
ur bónda sínum mjög samhent
við búskapinn.
Áttu þau fimm börn, en af
þeim eru eftirlifandi tvö, Páll
bóndi og hreppstjóri að Borg í
Miklaholtshreppi 1 Snæfellssýslu
kvæntur Ingu Ásgrímsdóttur og
Ásthildur gift Ásgeiri Svanbergs
syni bónda í Þúfum er tók við
jörðinni af tengdaföður sínum
fyrir tveimur árum. Auk
barna þeirra Páls og Bjargar
ólust upp hjá þeim til fullorðins-
áia fjögur fósturbörn, myndar-
og dugnaðarfólk.
Ásamt búskapnum hefur Páll
orðið að gegna margvíslegum
opinberum störfum fyrir sveit
sína og hérað. Oddviti Reykjar-
fjarðarhr. og sýslunefndarmaður
hefur hann verið í 40 ár og hrepp
stjóri sama hrepps í 21 ár. Á
Búnaðarþingi mun hann hafa set-
ið í 30 ár eða meira. Ótal mörg
önnur störf hafa Páli verið falin
innan héraðsins sem ekki verða
hér talin. Má af framansögðu sjá
að Páll hefur unnið sér traust
sveitunga sinna enda verið þess
maklegur, svo mjög sem hann hef
ur borið hag Og heill sveitarfé-
lagsins fyrir brjósti í hvívetna.
Mega sveitungar hans vera hon-
um þakklátir fyrir vel unnin
störf um langt árabil. Störf sem
lengst af hafa verið lágt launuð
en útheimt árvekni og fyrirhöfn
meir en margur hyggur.
Af eigin reynslu og kunnugleik
af Páli um langt skeið hefi ég
kynnzt samningalipurð hans og
lagni þegar á hefur reynt í störf
um fyrir sveitarfélag hans. Má
vera að sumum samverkamönn-
um hans hafi fundist hann full
„ýtinn“ (eins og við Vestfirðingar
orðum það) þegar hann hefir vilj
að köma málum sínum fram í
nefndum eða á fundum. Verður
Páli það ekki lagt til lýta af meir,
nema síður sé.
Að Páll valdi sér bóndastöðuna
að lífsstarfi undrast þeir ekki
sem þekkja hann vel. Hefur hann
haft yndi af að umgangast bú«
pening sinn. Ala hann vel og
hirða, sem er einasti vegurinn til
þess að hann skili góðum arði
og bein afleiðing þeirra hygg-
inda, sem í hag koma fyrir bónd-
ann.
Páll er maður ósérhlífinn, kapp
samur og duglegur við hvert það
verk er hann tekur fyrir, svo
að orð af fer. Geðspektar og hóf-
semdarmaður er hann í hvívetna.
Alltaf fús til að gera öðrum
greiða sem til hans leita. Munu
sveitungar hans bezt um þetta
geta borið.
Þó Páll sé nú hættui búskap Og
hafi enga jarðarábúð á hann
samt 50 til 60 ær á fóðrum hjá
tengdasyni sínum í Þúfum, sem
hann sjálfur hefur gaman af að
hirða og hugsa um.
Megi hann sem lengst á efri
árum sínum njóta þeirrar starfs-
gieði, sem hann í ríkum mæli
hefur notið í búskapnum í sam-
skiptum við gróandi jörð og bú-
pening sinn.
Vinir og vandamenn Páls og
konu hans frú Bjargar, óska í dag
þeim til hamingju og heilla í nú-
tíð Og framtíð.
Bjarni Sigurðsson Vigur.
Ilafnarfjarðarbíó hefur sýnt að undanförnu frönsku myndina
Næturklúbburinn. Myndin lýsir lifinu að tjaldabaki nætur-
lífsins á Champs-EIysées í París. — Aðalhlutverk leika hinir
þekktu leikarar Jean Gabin og Nadja Tiller.
VINNINGAR:
1. Þrlggja hcrhergja fokheld íbúð að Safamýri 41 kr. 140.000.00
2. Mánaöarferð með skipi um Miðjaröarhaf til Rússlands — 10.000,00
3. Flugfar fram og til baka, Reykjavík—Akureyri — 1.638,00
4. Flugfar fram og til baka Reykjavík—Vestmannaeyjar — 828,00
5. Páskaferð til Mallorka ásamt vikudvöl
6. Hringferð með m.s. Esju umhverfis landið
7. Flugfar fram og til baka Reykjavík—ísafjörður
8. 16 daga orlofsferð til Madeira og Kanaríeyja
9. Flugfar fram og til baka Reykjavík—Egilsstaðir
10. öræfaferð með Guðmundi Jónassyni
Öll ferðalögin gilda fyrir tvo
— 24.000,00
— 3,822,00
— 1.638,00
— 32.000,00
— 2.322,00
— 5.000,00
ÁáHti huðim
íMjúúm
cf kcífáA úmttk,
k)i. 25.
ckeýif Jkmwt
dMÍM'