Morgunblaðið - 10.09.1961, Qupperneq 24
12 islendingar kynna
sér starfsemi NATO
I DAG halda 12 fulltrúar frá
lýðræðisflokkunum áleiðis til
Parísar í boði upplýsingadeildar
Atlantshafsbandalagsins. Munu
þeir dveljast 1 París í þrjá
daga og kynna sér starfsemi
bandalagsins og tilhögun alla á
aðalstöðvum þess. Þeir fara ut-
an á vegum „Samtaka um vest-
ræna samvinnu", en stjóm sam-
takanna valdi þá með þeim
hætti, að hver lýðræðisflokk-
anna á fjóra fulltrúa í förinni.
Frá Alþýðuflokknum fara: Ás-
geir Einarsson skrifstofustjóri,
Keflavík, Björgvin Vilmundar-
son fulltrúi, Reykjavík, Pétur
Pétursson forstjóri, Reykjavík,
og Þórir Sæmundsson, skrif-
stofustjóri, Hafnarfirði.
Frá Framsóknarflokknum
fara: Guttormur Sigurbjamar-
son kennari og skattstjóri,
Kópavogi, Þórarinn Sigurðsson
skrifstofumaður, Reykjavík, Þrá
inn Valdimarsson fulltrúi, Rvk.,
og Örlygur Hálfdanarson full-
trúi, Reykjavík.
Frá Sjálfstæðisflokknum fara:
Bjarni Beinteinsson cand. jur.,
Reykjavík, Hermann Þórarins-
son sparisjóðsstjóri, Blönduósi,
séra Jónas Gíslason, Vík í Mýr-
dal og Valdimar Indriðason for-
stjóri, Akranesi.
Eins og kunnugt er, eru „Sam
tök um vestræna samvinnu“ að-
ili að „Atlantic Treaty Associ-
ation“ (ATA), sem ar alþjóða-
samband þeirra félaga í NATO-
ríkjunum er helga sig kynningu
á hinum ýmsu stofnunum og
samtökum sem vinna að vest-
rænu samstarfi. Heimsóknin til
Parisar er þáttur í þeirri við-
leitni „Samtaka um vestræna
samvinnu“ að kynna almennum
borgurum á Islandi starfsemi
Atlantshafsbandalagsins og efla
skilning á því.
■BBI
111111
En af jarnmyndum Danans Roberts Jakobsens á Norrænu
myndlistarsýningunni. Nefnist hún Bogi. Jakobsen er í hópi
þeirra myndlistarmanna, sem hvað mesta athygli vekja í
listaheiminum nú. Hann starfar í París. (Ljósm. Mbl.: K.M.)
Málverk eftir danska' listmálarann Richard Mortensen. —
Nefnist það Propriano og er eigandinn Carlsbergsjóðurinn
nýi. Mortensen starfar í París og er, eins og Robert Jakob-
sen í hópi fremstu listamanna þar í borg. Sjá bls. 3.
Góð byrjun hjd
Fóstbræðrum
Helsinki, 9. sept.
SUNGUM hér í gærkvöldi, við
húsfylli og stórkostlega góðar við
tökur áheyrenda. Margir blóm-
vendir bárust, og varð kórinn að
syngja fimm aukalög. Blaðaum.
mæli í morgun eru mjög lofsam.
leg.
Dagblaðið Helsingin Sanomat
ber lof á kór og einsöngvara, en
segir annars t. d. að íslenzk
músik sé á eftir tímanum. Blað.
ið hrósar mikið Erlingi Vigfús.
syni, sem það segir, að væri vel
til þess fallinn að syngja aðal.
hlutverk í óperum Tsjaikovskís,
Kristinn Hallsson er hinn reyndi
atvinnusöngvari, segir blaðið. —
Uusi Suomi hrósar mjög kór
og söngstjóra, svo og einsöngv.
urunum, sér í lagi Kristni.
f dag syngjum við í útvarpið,
Og ennfremur hefir félagið ísland
—Finnland móttöku fyrir kór.
menn. — öllum líður vel, og
biðja kórfélagar fyrir kveðjur
heim. — Ágúst.
Rússar heifa
MOSKVU, 9. sept. — Ráðstjórn-
in hafnaði formlega í dag til.
boði Macmillans og Kenndya
um stöðvun kjarnorkutilrauna.
Var orðsending þar að lútandl
afhent sendiherrum Breta og
Bandaríkjamanna í Moskvu i
dag. —,
Rússar voru að
✓
„semja44 um bann
me5an þeir undirbjuggu kjarnorkutilraunirnar
af fuilu kappi
WASHINGTON, 9. sept. —
„Það er athyglisvert, að ráð-
stjórnin hefur enn ekki sagt
þjóðum sínum frá því að hún
hefur þegar hafið kjarnorkutil-
raunir — og er búin að
sprengja fjórar sprengjur",
sagði Salinger, blaðafulltrúi
Kennedys á blaðamannafundi í
gærkvöldi. „Það er greinilegt,
að ráðstjórnin er hikandi við að
segja þegnum sínum frá spreng-
ingunum“, bætti hann við.
Heimtuðu neitunarvald
„Ástæðan getur verið sú, að
Krúsjeff hefur hvað eftir annað
ítrekað, að hann gæti ekki trú-
að því að nokkur þjóð mundi
hefja kjarnorkutilraunir að
nýju“.
Viðræður um bann við kjarn-
orkutilraunum stóðu í þrjú ár I
Genf, en strönduðu m.a. á því,
að vesturveldin vildu ekki fall-
ast á kröfu Rússa um að þeir
fengju neitunarvald í stjórn
eftirlitskerfisins.
Trufla fréttasendingar
Salinger, endurtók, að það
væri mjög athyglisvert og lær-
dómsríkt, að ráðstjórnin hefði
enn ekki sagt fólkinu frá kjarn-
orkutilraununum, fólkið vissi
enn ekkert. Bandarfska útvarps.
stöðin Voice of America hefði
að vísu sagt frá þessu marg.
sinnis í sendingum á rússnesku,
en ógerningur væri að vita
hvort það hefði heyrzt \ Rúss.
landi, því ráðstjórnin léti
trufla allar sendingar á rúss.
nesku frá útlöndum.
Samningaundirbúningur
Salinger var spurður að þvl
hvort ekkert væri undarlegt við
þá staðreynd, að fyrsta spreng.
ing Rússa fylgdi alveg í kjölfar
tilkynningar ráðstjómarinnar
Framhald á bls. 23. |
Veit ekki hvað við gerum,
þegar við förum út í kvöld
segir Hörður BjÖrnson slldarkóngurinn
á sumarsildveiðunum
í G Æ R átti Mbl. símtal
við Hörð Björnsson frá
Dalvík, skipstjóra á Ólafi
Magnússyni, þar sem ver-
ið var að salta upp úr skip
inu hjá söltunarstöð'inni
Ströndinni og söltunar-
stöð Valtýs Þorsteinssonar
á Seyðisfirði. En Ólafur
Magnússon er nú orðinn
aflahæsta skipið á sumar-
síldveiðunum.
— Þetta gengur ágætlega
hjá ykkur. Ætlið þið að halda
áfram? spyrjum við.
— Maður fer nú að verða
latur við þetta. Það er ill-
mögulegt fyrir einn bát að
stunda þetta. Svo eru vand-
fengin veður þarna austur frá.
— Er allmikil síld þarna
ennþá?
— Við hittum á ágætan blett
í gær þar sem var mikið um
sild.
— Og þið eruð orðnir einir
þarna?
— Já, af íslenzkum skipum
að vera. Fanney var þarna hjá
okkur þangað til fyrir tveim-
ur dögum. Og nú er síldarleit-
in á Seyðisfirði búin að loka
stöðinni. Eg talaði seinast við
hana fyrir hádegið í gær og
þá var verið að loka. Við feng
um svo síldina milli 5 og 6 í
gærdag.
— Er eitthvað af útlendum
skipum þarna enn?
— Já, þau eru þarna vítt og
breitt um hafið, bæði Norð-
menn, Rússar og eitthvað af
Svíum. Þeir veiða allir í rek-
net.
— Veiztu um afla þeirra?
— Nei, ekki nákvæmlega, en
okkur hfeir sýnzt heldur lít-
ið hjá þeim, þegar við höfum
séð til. Það er líka nokkuð af
smásíld þarna og áreiðanlega
er eitthvað af þessum torfum,
sem við lóðum á, smásíld. Við
höfum verið svo heppnir að
fá lítið af henni.
— Hvað eruð þið þá komnir
með mikið núna?
— Eg veit það ekki nákvæm
lega enn. En það er líklega
nærri 21.800 tunnur. Það er
nú ekki búið að salta þetta
enn.
Framhald á bls. 23.