Morgunblaðið - 13.09.1961, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 13. sept. 1961
MORCVNBLAÐIÐ
5
í
síðustu viku var á ferð í
bænum Ingibjörg Jóhannsdótt
ir, skólastjóri á Löngumýri í
Skagafirði. Hún hefur sem
kunnugt er rekið húsmæðra-
skólann á Löngumýri um ára-
bil af miklum dugnaði. Blaða
maður Morgunblaðsins innti
hana frétta úr skólanum, og
sagði Ingibjörg að vegna for-
falla gæti hún bætt við þrem
ur nemendum í skólann í vet-
ur, en hann yrði settur 1. okt.
n.k.
Þá sagði Ingibjörg Jóhanns-
dóttir, að jafnhliða skólanum
yrðu starfrækt námskeið í
ýmsum verklegum fræðum og
einnig kennd fræði sem lytu
að þroskun mannsandans. —
Væri það upplagt fyrir þær
stúlkur sem lítil fjárráð hefðu.
— Sundlaug verður byggð
við skólann eins fljótt og á-
stæður leyfa sagði Ingibjörg
en í vetur fá námsmeyjar að-
garrg að sundlauginni í Varma
hlíð, þegar tíðarfar leyfir.
Einnig vil ég koma því á fram
færi, að ef einhverjar náms-
meyjar hefðu áhuga á hesta-
mennsku þá hef ég nokkra
hesta fyrir þær, en æskilegt
væri ef þær kæmu með hnakk
og beizli.
Þá er og ráðgert, að nemend
ur Löngumýrar og Hólaskóla
æfi sömu sönglögin í vetur og
komi annað slagið saman til
söngæfinga og skemmtana.
— Hvaða augum lítið þér á
veruna, frk. Ingibjörg?
— Mér finnst tilveran vera
alveg dásamleg og tilmæli mín
til annarra eru á þessa leið: Ef
þið viljið verða hamingjusöm,
þá veitið meiri athygli rauðu
rósinni en svarta orminum í
moldinni.
Boðskapur minn til hirma
ungu er því sá: Búizt jafnan
við því, að í náinni framtíð
muni hin kærleiksríku máttar
völd himinsins færa ykkur
dýrmætar og mikilsverðar gjaf
ir, sem veita ykkur hamingju
og lífsgleði.
Verið þvi glöð og þakklát
fyrir það, sem bíður ykkar og
reynið að ala ykkur þannig
upp, að þið séuð verðug þess
að taka á móti konunglegum
gjöfum.
Ég trúi því sagði Ingibjörg
Jóhannsdóttir, skólastjóri að
lokum, að erfiðleikar og mót-
læti séu oft beztu viirir okkar,
sendir okkur til þroskunar og
blessunar.
Menn verða að uppgötva mikilvæg-
&sta lífsvísdóminn með eigin augum,
— F. Nansen.
Ekki er unnt að halda neinum niðri,
nema vera sjálfur í kafi með honum.
— Booker T. Washington.
Lygin er jafnvel svo voldug, að
hún getur látið það eftir sér að klappa
sannleikanum á öxlina og leyfa honum
að leika lausum hala. — Kaj Munk.
Syndin á mörg tæki ,en lygin er
t indfang þeirra allra.
— O. W. Holmes.
Rótum ættar runninn frá.
Ruddans vald þær gjarnan tjá.
Við að sjá hann sumum brá.
í sögum um það lesa má.
Dufgus.
Ráðning á næst öftustu síðu.
+ Gengið +
Kaup Sala
1 Ster]ingspun<i 120,76 121,06
1 Bandaríkjadollar - 42,95 43,06
1 Kanadadollar .....h. 41,66 41,77
100 Danskar krónur .... 622.68 624.28
100 Norskar krónur .... 603,00 604,54
100 Sænskar krónur .... 829,15 831,30
100 Finnsk mörk .. 13,39 13,42
100 Franskir frankar .. 873,96 876,20
100 Belgískir frankar 86,28 86,50
100 Gyllini 1.188,92 1.191,98
100 Svissneskir frank. 994,15 996,70
100 Tékkneskar kr 596.40 598.00
100 Austurr. sch 166,46 166,88
100 Vestur-þýzk mörk 1.077,54 1.080,30
100 Pesetar 71,60 71,80
1000 Lírur .. 69,20 69,38
Flugfélag íslands h.f.: Millilandaflug:
Gullfaxi fer til Oslóar, Khafnar og
Hamborgar kl. 08:30 í dag. Vsntanl.
aftur til Rvíkur kl. 23:55 í kvöld. Fer
til Glasg. og Kaupmh. kl. 08:00 í
fyrramólið.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egils
staða, Hellu, Hornaf jarðar, Húsavík
ur, isafjarðar og Vestm.eyja (2 ferðir)
Á morgun til Akureyrar (3 ferðir), Eg
ilsstaða, isafjarðar, Kópaskers, Vest-
mannaeyja (2 ferðir) og IÞórshafnar.
Loftleiðir h.f.: 13. sept. er Snorri
Sturluson væntanl. frá NY kl. 06:30.
Fer til Stafangurs og Osló kl. 08:00.
Leifur Eiríksson er væntanlegur frá
NY kl. 19:00. Fer til Glasg. og Amster-
dam kl. 20:30. Eiríkur rauði er væntan
legur frá Hamborg, Khöfn og Osló kl.
22:00 Heldur áfram til NY kl. 23:30.
Jöklar h.f.: Langjökull er 1 Riga.
Vatnajökull er á leið til islands.
Eimskipafélag íslands h.f.: Brúarfoss
er á leið til Rvíkur. Dettifoss er í NY.
Fjallfoss er á leið til Rotterdam. Goða
foss er á leið til Akraness og Keflavík
ur. Gullfoss er á leið til Rvíkur. Lagar
foss er á leið til Hafnarfj og isafj.
Reykjafoss fer frá Rvík 1 kvöld til
Siglufjarðar. Selfoss er á leið til Rott
erdam. Tröllafoss er á leið til Seyðis
tfjarðar og Norðtfijarðar. Tungufoas
er á leið til Khafnar.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla kom í gær til Ghent. Askja er í
Rvík.
Hafskip h.f.: Laxé er á leið til Stettin
Skipadeild SÍS: Hvassafell er vænt
anlegt til Stettin 15. sept. Arnarfell er
í Archangelsk. Jökulfell er í NY Dís
arfell er í Riga. Litlafell er í Rvík.
Helgafell er í Hangö. Hamrafell er á
leið til Islands.
Þegar þess var farið á leit
við mig, að ég veldi hér kvæði
dagsins, kom mér fyrst í hug
að bera niður, þar sem er vísa
Egils Skalla-Grímssonar: Þél
höggr stórt fyr stáli, þvi fátt
í íslenzkri ljóðagerð tekur
henni fram. Hún er gædd þvi,
sem mér nú finnst eftirkeppn-
isverðast í skáldskap1 mynd-
rænni skynjun og umsköpun
nálægra hluta, hnitmiðuðu
formi, hljómríku máli og er
að innri gerð nýtízkulegri en
flest annað bundið mál ís-
lenzkra bókmennta frá liðnum
öldum. Eg hvarf þó að því að
velja kvæði, sem ég get sagt
um, að sé mér kært, mér þyki
vænt um, fremur en kvæði,
sem ég fyrst af öllu dáist að.
Mörg komu til greina. Að lok-
um ákvað ég að velja kvæði
Jóhannesar úr Kötlum: Álft-
í irnar kvaka.
Það má vel vera, að stöku
velur að þessu sinni )
Hannes Pétuísson. Vali *
sínu lætur hann fylgja
þessa greinargerð:
Ijóðlína í því kvæði hefði mátt
betur fara, en það skiptir mig
tiltölulega litlu máli. Eg las
þetta kvæði fyrst, þegar ég
var á fermingaraldri, og söng j
það sig þá í hug minn og hef-
ur átt þar heima síðan. Það er
meðal fyrstu kvæða, sem
gerðu mér Ijóst, hvað lýrikk
væri. Ef til vill hefði það ekki
náð jafn sterkum tökum á
mér, hefði ég kynnzt því mörg
um árum seinna. Um það verð
ur ekki dæmt. En hvað sem
því líður, er þetta kvæði bor-
ið uppi af óþvingaðri ljóð-
rænni tilfinningu, sem nú er
á nokkru undanhaldi í nýrri
ljóðagerð okkar, hefur, að því
er virðist, látið undan síga fyr-
ir ýmsum, þar á meðal vafa-
sömum, stílbrögðum.
Álftirnar kvaka er fyrsta
kvæðið í samnefndri bók, sem
kom út 1929. Jóhannes hefur
því ort það tæplega þrítugur
að aldri. Það er á þessa leið:
Bráðum er brotinn
bærinn minn á heiði.
Hlýtt var þar stundum,
hann er nú í eyði.
Man ég þá daga.
Margt var þá á seyði.
Varphólmans væna
vitja þær í skyndi.
Senn kemur æskan,
— sumardagsins yndi
Ljómandi fjaðrir
leika fyrir vindi.
Ungur ég undi
úti í varpa grænum.
Horfði á reykinn
hverfa fyrir blænum.
— Þar heyrði ég forðum
þytinn yfir bænum.
Kyrr eru kvöldin,
— kviðlð er þá fáu.
Sofa í hreiðrum
svanabörnin smáu.
Víðbláminn skyggir
vötnin djúpu og bláu.
Fuglar þar flugu,
frjálsir vængir glóðu.
Lokkandi súgur
lyfti blárri móðu.
Það voru svanir,
— söngfuglarnir góðu.
Hringaðir hálsai
hljóðar taka dýfur.
Árvakur skari
öldufaldinn klýfur.
— Andi guðs friðar
yfir vötnum svífi’r.
Hátt uppi á heiðum
hvítir fuglar kvaka.
Vængjunum stóru
veifa þeir og blaka.
Það eru álftir,
— álftirnar, sem kvaka.
Handan af hafi,
heim í auðnir f jalla,
vordægrin snemma
villta hópinn kalla.
Þá er nú sungið
— sungið fyrir alla.
Sólfögur sumur
syngja þær og vaka.
Haustnætur síðla
halda þær til baka,
ungar og gamlar,
— álftirnar, sem kvaka.
Margs er að minnast.
Margt er enn á seyði.
Bleikur er varpinn,
— bærinn minn í eyði.
Syngja þó ennþá
svanir fram á heiði.
Stórt herbergi
eldlhús og bað til leigu
á Seltjarnarnesi. Húshjálp
áskilin. Uppl. í síma 10194.
Óska eftir
2ja—3ja herb. íbúð. Fyrir-
framgreiðsla. Uppl. í síma
33990.
íbúð
Reglusamt kærustupar
vantar 1 eða 2 herb íbúð
strax eða 1. okt. Uppl. í
síma 34793.
Fámenna fjölskyldu
vantar 3ja herb. íbúð. Al-
gjör reglusemi. Símf 32142
eftir kl. 6 á kvöldin.
Eldri maður
í hreinlegri vinnu óskar
eftir herb. góð umgengni.
Tilb. sendist Mbl. fyrir
föstudagskvöld merkt —
„Smiðui — 5938“
Ung hjón
óska eftir að koma 2ja ára
barni í fóstur um smátíma.
Tilb. sendist afgr. Mbl.
merkt „Reglusemi — 100“
F amapr jónavél
á lausu borði til sölu. —
Einnig Silver-cross barna-
vagn, kerrupoki og hátt
rimlarúm. Uppl. í síma
13944.
Vil kaupa lítið hús
eða þriggja herb. íbúð með
40—50 þús. kr. útborgun.
Tilb. sendist Mbl. strax —
merkt. „5564“.
Stúlka um tvítugt
sem ætlar að vinna 1 ár i
Ameríku, óskar eftir fé-
laga. Tilb. merkt: „Kali-
fornía — 5576“ sendist blað
inu fyrir 16/9.
Til sölu
NSU—LAMBRETTA —
(Vesputegund) vel með
farin. Til sýnis í Þingholts
stræti 3 kl. 1—6 e.h. Sími
13760.
2ja—3ja herh.
íbúð óskast sem fyrst í Vest
urbænum, þrennt í heimili.
Uppl. í síma 12401 9—5
næstu daga.
Barngóð stúlka
óskast til heimilisstarfa 1
vetur. Ragnhildur Helga-
dóttir, Sími 35330.
Keflavík
2ja herb. íbúð óskast. Bam
laus hjón. — Uppl. í sima
2060.
Hafnarfjörður
Stúlka eða eldri kona ósk-
ast til heimilisstarfa hluta
úr deginum. Uppl. í síma
14254.
Hárgreiðsludama
óskar eftir vinnu nú þegar
Uppl. í síma 10924 milli 1
—6 e.h. í dag.
íbúð
3ja—4ra herb. til leigu ná
lægt Miklatorgi. Tiib. með
uppl. merkt „Rólegt —
5937“ sendist afgr. Mbl.
fyrir 15 þ.m.
Vantar pláss
fyrir skóvinnustofu á góð-
um stað í bænum. Tilb.
sendist Mbl. fyrir 16. þ.m
merkt „5833“
íbúð
Góð 4ra herb. íbúð í mið-
bænum til leigu frá 1. okt.
Einhver fyrirframgreið&la
Tilboð merkt „Á góðum
stað — 5563“ sendist Mbl.
Óska eftir
2ja til 3ja herb. íbúð í bæn
um. Tvennt í heimili til við
tals kl. 6—8. Uppl. í síma
12048.
Hafnarfjörður
Róleg og reglusöm eldri
kona óskar eftir herb. Til
boðum sé skilað á Pósthús-
Hafnarfjarðar merkt —
„Poste restante 5565“
Til leigu
stofa með innbyggðum
skápum. Eldhúsaðgangur
kemur til greina. Tilb. send
ist Mbl. merkt „Einhleyp
5341“ fyrir fimmtudags-
kvöld.
Ung barnlaus hjón
óska eftir lítilli íbúð Uppl.
í síma 22659.
Kjallaraíbuð í Laugarneshverfi
til sölu. íbúðin er 3 herbergi, vönduð og vel með
farin.
Fasteignasalan Hallveigarstíg 10
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON, hrl.
símar 13400 og 10082.
Hús við Miðstrœti
á góðri eginarlóð, hentugt fyrir heildsölu eða annan
svipaðan atvinnurekstur, til sölu.
Fasteignasalan Hallveigarstíg 10
KRISTJÁN QjtJÐLAUGSSON, hrl.
símar 13400 og 10082.