Morgunblaðið - 13.09.1961, Side 23

Morgunblaðið - 13.09.1961, Side 23
f Miðvikudagur 13. sept. 1961 M ORGVNBLAÐIÐ 23 — Héraðsmót 'r Framhald af bls. 3. Meirihluti á Alþingi fékkst ekki og þá var þegar 1 stað rofið lof- orðið um, að með kommúnistum yrði ekki unnið. Sú kynlega skýr ing var látin fylgja, að með þessu aetti að kljúfa kommúnistaflokk- inn, eða hið svokallaða Alþýðu- Ibandalag, og skilja á milli Moskvulínumanna og hinna sem samstarfshæfir væru. Ekki var furða, þótt illa tækist til um samstarf, sem efnt var til í slík- um anda. En jafnvel í þessu urðu efndirn ar minni en til stóð. Áður en langt um leið snerist Framsókn á sveif með kommúnistum í verkalýðsfélögum á móti Alþýðu- flokknum, sem hann þóttist þó áður vera búinn að ganga í fóst- ibræðralag við. í V-stjórninni var þess vegna hver höndin upp á móti annarri og lókin urðu |)au, að hún flúði af hólmi á hættunn- ar stund. v' Samtök almennings misnotuð Þrátt fyrir það, þótt Moskvu- menn hafi enn öll ráð í Alþýðu- toandalaginu og hafi aldrei verið þar öflugri en nú, hefur Fram sókn aldrei haft nánara samstarf við flokk þeirra en að undan- förnu. Hallast ekki á um óheil- indin í því samstarfi, þar sem kommúnistar vilja ekki einung- is feiga alla þá lýðræðisflokka, sem þeir eiga í samstarfi við, held ur sjálft lýðræðisskipulagið. Engu að síður sameinast Fram sókn og kommúnistar nú um að misnota samtök almennings, verkalýðsfélög Og samvinnufélög í stjórnmálabaráttunni. Þessi fé- lög eru þó ætluð fyrir menn af öllum stjórnmálaflokkum. Þvílík misbeiting þeirra er jafnhættu- leg fyrir félögin sjálf og þjóð- félagið allt. Nú er hótað með því að afli þessara samtaka skuli verða beitt til að gera löglegar ákvarðanir ríkisstjórnar Og A1 þingis að engu. Þar með er bar- áttan orðin um það, hvort lög, réttur og lýðræði eigi að ríkja í landinu. Enginn skyldi ætla, að rétt kjörnir umboðsmenn meiri- hluta kjósenda láti undan síga í þeirri viðureign. Þeir hafa verið kjörnir til sinna vandasömu Starfa, af því að kjósendur treystu þeim. Því trausti hvorki mega þeir né munu þeir bregð- ast. — ★ — Séra Gunnar Gíslason I Glaum- bæ ræddi almenn viðhorf 1 lands málum og verkefni núverandi rikisstjórnar. Hvatti sr. Gunnar menn til þess að standa einhuga saman gegn nýrri verðbólgu og taka höndum saman um að fram- fylgja hinni miklu framkvæmda- áætlun ríkisstjórnarinhar. Jón Pálmason á Akri talaði í ræðu sinni um hættuna, sem þjóð um heims stæði af kommúnism- anum, og hver hætta íslending- um væri nú búin af samstöðu Framsóknar og kommúnista. Mótsgestir gerðu góðan róm að máli ræðumanna. — ★ — Flutt var óperan Kita eftir Donizetti. Með hlutverk fóru óperusöngvararnir Þuríður Páls- dóttir, Guðmundur Guðjónsson, Guðmundur Jónsson og Borgar Garðarsson. Við hljóðfærið var F. Weisshappel. Fögnuðu samkomu !gestir listafólkinu mjög vel. Að lokum var haldinn dans- leikur. Gautarnir léku fyrir dansL Eins og áður segir, var hér- aðsmót þetta prýðilega sótt, og fór það hið bezta fram í hvívetna. i ------------------------♦ l| Ráðning á> gátu dagsins: Svipur W 4-------------------—4 Scsmkomur KrLstniboðssambandið Kristniboðamir Felix Ólafsson og Ólafur Ólafsson tala á sam- komunni í Betaníu að Laufas- vegi 13 í kvöld kl. 8,30. Allir hjartanlega velkomnir. Hamfarir á Formösu TAIPEÍH 12. september. — Tutt- ugu og fimm létu lífið og 42 slösuðust, er hvirfilvindur gekk yfir Formósu síðasta sólarhring. Enn er 19 manna saknað og verið getur að fleiri hafi horfið, því margar byggðir hafa rofnað úr tengslum við umheiminn eftir' þær geysimiklu skemmdir, sem þessar hamfarir náttúrunnar ollu. Lögreglan segir, að a. m. k. 10 þúsund manns séu í nauðum staddir á húsþökum og hæðum umflotnum vatnL Drykkjarvatn er líka af skomtim skammti f þeim héruðum, sem verst hafa orðið úti. Yfir 1200 hús gereyði- lögðust í þessum hamförum, þvf vindhraðinn komst upp í 53 metra á sekúndu. Hvirfilvindurinn hefur nú tek- ið stefnu á kínverska megin- landið. UM hádegi í gær var fellibyl- urinn, sem nefndur hefur ver ið Betsy, kominn í 800 km fjar lægð frá Vestmannaeyjum. Má sjá á hinum gífurlega þéttu þrýstilínum að hvassviðrj er á allstóru svæði kringum lægð ina, m. a. s. komst vindhrað- inn í 76 hnúta (13 vindstig) á veðurskipinu Júlíu í gærmorg un. Þar voru þá 16 m. háar öldur. Lægðin var á hreyfingu NNA 1 gær, en tekin að lægja á sér. SV-mið: Austan eða SA stormur, skúrir. SV-land, Faxaflói og Faxa- flóamið: Áustam eða SA átt, stinningskaldi eða allhvass með morgninum, dálítil rign- ing. Breiðafjörður til Norður- lands og miðin: Austan gola, síðar SA stinningskaldi, skýj- að. NA-land, Austfirðir, NA- mið, Austfjarðarmið og aust- urdjúp: SA stinningskaldi, rigning með köflum. SA-land og miðin: Austan átt, hvasst með morgninum, rigning. Vöruskiptajöfnuðurinn — Norsku kosningarnar Framhald af bls. 1. ar í dag, að úr þessu yrði ekki að sinnL Stjórnin mundi alla vega sitja þar til þing kæmi saman, 1. okt. Sagði hann, að þau vandamál hefðu nú risið, sem hann hefði ekki reiknað með fyrir kosningar, þ. e. oddaaðstaða sósialiska þjóð- arflokksins — ög verkamanna- flokkurinn yrði að endurskoða afstöðu sína í ljósi þess. — ★ — Erlendis er yfirleitt talið, að Gerhardsen sitji áfram og leiti fulltingis sósialiska þjóðarflokks- ins í innanlandsmálum, en ann- arra flokka í utaflríkismálum, því sósialiski þjóðarflokkurinn klofn aði einmitt út úr verkamanna- flokknum vegna andstöðu gegn Atlantshafsbandalaginu. í Wash- ington, London, París, Bonn Og Kaupmannahöfn eru stjórnmála- menn á einu máli um það, að utanríkisstefna Norðmanna verði hin sama og áður, en ýmsir eru samt þeirrar skoðunar, að Ger- hardsen láti af forsætisráðherra- embætti vegna ósigursins — og einhver flokksbróðir hans taki við, sennilega Langelle. — ★ — Þingmenn skiptast þannig milli flokka (Síðustu kosningar í sviga): Verkamannafl. 74 (78) Hægri 29 (29) Kristilegir 15 (12) Miðflokkurinn 16 (15) Vinstri 14 (15) Sósialiski þjóðarfl. 2 Kommúnistar 0 ( 1) Uutfallsatkvæðatala flokkanna sem hér segir: Verkamannafl. 47% (48,3%) Hægri 18,7 (16 ) Kommúnistar 2,9 ( 3,3 ) Kristilegir 9,4 ( 9,9 ) Miðfl. 6,9 ( 6,1 ) Vinstri 7,1 ( 7,6 ) Sósial.þjóðarfl. 2,3 — ★ — Gerhardsen sagði í blaðaviðtali í dag, spurður um það hvort hugs anlegt væri, að verkamannaflokk urinn myndaði stjórn með sósial- iska þjóðarflokknum, að það yrði mjög erfitt fyrir flokk sinn að byggja á flokki sem aðeins hafi tvo þingmenn — og þar að auki væri ósammála í utanríkismálum. Hinsvegar, sagði forsætisráðherr- ann, að það yrði sennilega erfið- ara fyrir alla hina flokkana að koma sér saman um stjórnarfor- ystuna. Þetta yrði verkamanna- flokkurinn að íhuga gaumgæfi- lega áður en endanlega yrði gert út um málið. — ★ — Gerhardsen sagðist hafa búizt við að flokkurinn mundi missa allt að 3—4 menn, en hann sagðist líka hafaliaft von um að vinna þingsæti í öðrum kjördæmum. Eg bjóst líka við að kommúnistar misstu sitt sæti, en ég gerði ekki ráð fyrir að sósialiski þjóðarflokk urinn fengi sæti, því síður tvö. Forsætisráðherrann var því næst spurður um álit á tillögu, sem fram hefði komið um að fimm stærstu flokkarnir mynd uðu samsteypustjórn. Undir viss- um kringumstæðum sagði Ger hardsen að það gæti verið æski- legt, til þess að efla einhug þjóð- arinnar á hættutímum. En þó að ástandið í heiminum væri slæmt núna taldi hann ekki brýna þörf fyrir slíka þjóðstjórn lýðræðisflokkanna. — ★ — Stórblöðin á Norðurlöndum segja mörg, að verkamannaflokk- urinn hafi tapað vegna þess að flokksstefnan sé ekki nógu fast- mótuð. Utanríkismálin séu það eina, sem flokkurinn hafi tekið föstum tökum — og það hafi ein- mitt verið utanríkismálin sem björguðu Gerhardsen, björguðu honum frá enn meiri ósigri. Hið mikla hættuástand í heiminum og vaxandi skilningur manna á gildi Atlantshafsbandalagsins. Margir telja, að sú fylgisaukning, sem Hægri flokkurinn fékk nú sé vís- bending um að hann sé mjög vax- andi og Verkamannaflokknum sé nú mikill vandi á höndum að leysa nú úr vandanum þannig, að næstu f jögur árin verði ekki stór- fellt vaxtarskeið Hægri flokksins. Heyskapur í meðallagi ÞÚFUM, 8/9. — Síðustu tvo dagana hefur brugðið til betri veðráttu. Vonast menn til að ná mestum hluta þeirra heyja, sem úti eru. Síðari sláttur stendur nú yfir, en hann er mest verkaður í vot- hey. Kann svo að fara að hey- skapur nái meðallagi, ef tíð verð ur góð eitthvað fram eftir hausti. Göngum hefur verið frestað hér við Djúp og unnið að hey- skap eins og hægt er. Laxveiði hefur verið dágóð í Langadalsá í sumar og 1. sept. höfðu þar fengizt 140 laxar. Veiðin í Laug- ardalsá er einnig dágóð en fjöldi laxa ekki kunnur. Sil- ungsveiði hefur og verið nokk- ur í ám annars staðar. Smokkveiði hér inni í Djúp- inu er lítil ennþá en rækju- veiðin stunduð af kappi. Veiðin hefur þó fram til þessa verið treg. Vegagerð að Keldu í Mjóa- firði er að verða lokið. — PP V ÖRU SKIPT A J ÖFNUÐURINN var í júlímánuði óhagstæður um 179,4 millj. og fyrstu 6 mán- uði ársins um 244,4 millj. króna. í júlí var flutt út fyrir 239,9 millj. króna en inn fyrir 419,4 millj. kr. Hagstofan gerir f skýrslu sinni þá athugasemd um inn- flutningstöluna í mánuðinum, að orsakir þess að hún er óvenju- lega há, séu tvær. Annars vegar verkföllin í júní, sem leiddu til þess að lítið var tollafgreitt af innfluttum vörum í þeim mán- uði en þeim mun meira í júlí- mánuði. Og hins vegar eru þær vörur, sem lögum samkvæmt voru tollafgreiddar á eldra gengi fram að 12. ágúst 1961, taldar með innfluttningi júlí- mánaðar, svo að ekki blandist saman innflutningur á eldra gengi og nýju gengi. Fyrstu 6 mánuði ársins var flutt út fyrir 1.392,5 millj. kr. og inn fyrir 1.636,9 millj. kr., þar af skip fyrir 80 millj. kr. Til sam- anburðar má geta þess að fyrstu 6 mánuði ársins 1960 var vöru- skiptajöfnuðurinn óhagstæður um 534,6 millj. kr. og í júlímán- uði um 81.9 millj. kr. SandgerSingar keppa í skák VETRARSTARFSEMI Taflfélags Sandgerðis hófst í gær, 12. sept. ember með hinni árlegu keppni um meistaratitil félagsins. Verð- ur teflit í 2 flokkum. Félagið er 6 ára um þessar mundir. Hefur verið keppt um meistaratitil innan félagsins á hverju ári. Auk þess hafa félag- ar tekið þátt í sýslukeppni um svonefndan sýslubikar, sem Ól- afur Thors forsætisráðherra gaf ■til keppninnar á sínum tíma. Fé- lagið hefur tvivegis þreytt bæjar keppni við Keflavík. Núverandi skákmeistari Sandgerðis er Björgvin Þorkelsson. — Páll Ó. Friðarsamningur DORTMUND, 8. september. — Willy Brandt, borgarstjóri V- Berlínar, sagði í dag, að jafnað- armenn mundu, ef þeir ynnu þingkosningarnar 17. þ.m., leggja drög að friðarsamningi við Þýzka land — í samráði við vesturveld- in. Mundi vesturveldunum þá vaxa styrkur í baráttunni gegn kommúnistum. Bled-skákmótið BLED, 12. sept. — Biðskákum lauk í dag, og urðu úrslit þeirra sem hér segir: Úr 1. umferð: Pachmann vann Matanovic í 53. leik. Ur 3. umferð: Naidorf vann Matanovic í 47. leik. Úr 4. umferð: Trifunovic og Port- isch gerðu jafntefli eftir 48 leiki. Úr 5. umferð: Tal vann Matano- vic í 41. leik. Úr 6. umferð: Donner vann Bisguier í 78. leik. Staðan eftir 6. umferð er þessi: 1.—4. Petrosjan, Fischer, Tal og Naidorf 4% vinning hver, 5.—7. Gligoric, Trifunovic og Keres 4, 8.-9. Darga og Donner 3%, 10.—11. Bisguier og Geller 3, 12.—13. Parma og Portisch 2%, 14.—17. Matanovic, Bertok, Ivkov og Pachmann 2, 18.—19. Friðrik Ólafsson og Udovcic 1% og 20. Germek 1. Frí var í dag. Einn bleiklax veiddist í sumar EINI bleiklaxinn (hnúðlaxinn), sem vitað er um, að hafi veiðst hér á lamdi á þessu sumri, fékkst á stöng vestur á Snæfellsnesi, sunnudagiran 3. þ.m. Valdimai Hailiðason húsasmíðameistari Sörlaskjóli 50, Reykjavík, veiddi laxinn á stöng (spón) í Haga- vatni, og var laxinn 47.5 cm að lengd Oig 1.15 kg á þyngd. Hamm var inær tveggja ára, og vai hrygna. Vantar hrygnuma hnúð- inn, sem einkennir hæraginn, en hnúðinn fá hængarnir, er kem- ur að hrygningatíma. Hrygnam var með lekandi hrogn, þegai hún veiddist. Á síðast liðnu sumri veiddust 21 bleiklaxar hér á lamdi, sem Veiðimálastofnunin hefur feng- ið vitneskju um. Þeir veiddust J ám norðan við línu af Mýrum (Hítará) og austur í Hverfisfljót og fékkst einn þeirra á Snæfells- nesi. Bleiklaxinn er tveggja ára að meðtöldum klaktíma, þegar hann hrygnir. Hanm hrygnir i fersku vatni, en seiðin ganga til sjávar, þegar þau hafa lokað við kviðpokann. Tekur hann þannig nær allan þroska sin í sjó. Árgangar af bleiklaxi eru mjög misstórir. Annað árið eru þeir víðast hvar sterkir, en hitt árið mjög veikir, og hefur slíkur munur komið fram hér á landi, þar sem 21 bleiklax veiddust í fyrra en aðeins einn til þessa í sumar. Kanadískur náms- styrkur veittur MENNINGARSTOFNUNIN Can- ada Council hefir nýlega úthlut- að námsstyrkjum fyrir skólaárið 1961—1962, og hefir íslendingi verið veittur einn styrkur að upphæð 2.000,00 dollarar auk ferðakostnaðar. Styrk þennan hef ir hlotið Hjörtur TOrfason, lög- fræðingur, Snorrabraut 85, Rvík. Hann mun stunda framhaldsnám í félagsrétti við háskólann í Tor- onto. Hjörtur fór til Kanada í síðustu viku. —* Mæðiveikin Framh. af bls. 24. ar, höfðu verið hýstar Síðustu 3 veturna í sömu stíu og Rjúpa. Það virðist vera augljóst, að þessi kind hefir náð að smitast af veika fénu í Haukadal og síð- ustu 2-3 veturna hafi svo smitið verið að búa um sig i Skarðafénu. Að svo stöddu verður ekkert fullyrt um það, hve þurramæ jí- sýking er mikil eða útbreidd í fé á þessum slóðum. En reynt mun verða að kanna heilbrigðisástand fjárins í Dölum og í öllu Mýrar- hólfinu eins fljótt og tök eru á. Nokkrar kindur frá Skörðum hafa enn ekki náðst en murau verða einangraðar jafn-óðum og þær koma fyrir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.